Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 19.JÚNÍ2003 DVSPORT 29 Hélt að þetta væri að koma sagði Finnur Kolbeinsson, fyrirlidi Fylkis „Það var slæmt að fá rauða spjaldið og mjög sárt að fá þetta sigurmark á okkur í lokin. Við héldum áfram að sækja eftir að við urðum einum færri og opnuðum okkur fyrir bragðið og þeir eru skeinuhættir og refsuðu okkur íyr- ir það,“ sagði Finnur Kolbeinsson, fyrirliði Fylkis, sem virtist hafa komið sínunt mönnum í gang með laglegu jöfnunarmarki sínu. „Ég hélt að þetta væri að koma þegar ég skoraði og að við mynd- um frekar bæta við mörkum en þeir. Við vorum ekki nægilega grimmir í fyrri hálfleik og þetta varð síðan allt miklu erfiðara eftir að þeir skoruðu. Við héldum bolt- anum allt of lengi og töðuðum honum síðan klaufalega í stuttum sendingunum. Við ætluðum ekki að gefast upp og héldum áfram og seinni hálfleikur var ágætur. Þetta var opinn og skemmtilegur leikur en því miður datt þetta ekki okkar megin. Við erum bara áfram í þessum sex liða pakka við toppinn og þó að við ætluðum okkur að komast á toppinn aftur í kvöld þá þurfum við bara að taka okkur saman í andlitinu og koma tvíefld- ir til baka gegn KR,“ sagði Finnur sem sá á eftir félaga sínum Ólafi Inga Skúlasyni í bann eftir rauða spjaldið sem hann fékk í gær. „Það er mjög slæmt að missa hann því hann er búinn að spila alveg glimr- ^ andi vel það sem af er,“ sagði Finnur að lokum. oojsporvsdv.is . # , , r* ll* -i /-j r\\ LauqardalsvÖllur Þrottur-Fylkir 2-1 (1-0) ,8.^003-s.Umferö 1 -0 Björgólfur Takefusa (32., skot úr teig eftir einleik og sendingu Halldór Hilmissonar). 1- 1 Finnur Kolbeinsson (76., skot úr teig eftir hafa komist inn (sendingu Jens Sævarssonar). 2- 1 Sören Hermansen (90., skot úr markteig eftir stórskotahríð að marki Fylkis). Þróttur (4-4-2) Fjalar Þorgeirsson...........4 Ingvi Sveinsson..............3 Eysteinn Lárusson............4 Jens Sævarsson...............3 Ólafur Tryggvason ...........3 Halldór Hilmisson............3 Páll Einarsson...............4 Guðfinnur Ómarsson...........3 (70., Erlingur Þór Guðmundsson . 3) Hallur Hallsson..............3 (82., Hjálmar Þórarinsson ...-) Sðren Hermansen..............3 BjörgólfurTakefusa...........4 Samtals 12 menn..............40 Dómari: Jóhannes Valgeirsson (3). Áhorfendur: 1175. Gul spjöld: Þróttur: Ólafur (38.), Hallur (68.), Páll (88.). Fylkir: Ólafur Ingi (31.). Rauð spjöld: Fylkir: Ólafur Ingi (83.) 2 gul. Skot (á mark): 13 (10)-23 (8) Horn: 3-6 Aukaspyrnur: 18-20 Rangstöður: 1 -2 Varin skot: Fjalar 4- Kjartan 7. Maður leiksins hjá DVSporti: Páll Einarsson, Þrótti Fylkir (4-3-3) Kjartan Sturluson ............4 Helgi Valur Danlelsson........4 Valur Fannar Gfslason ........2 Hrafnkell Helgason............3 Gunnar Þór Pétursson..........1 Sverrir Sverrisson ...........1 (59., Þórhallur Dan Jóhannsson.. 3) Finnur Kolbeinsson............4 Ólafur Ingi Skúlason..........3 Björn Viðar Ásbjörnsson.......2 (55, Sævar Þór Gíslason ......3) Haukur Ingi Guðnason .........3 Theódór Óskarsson ............3 (78., Ólafur Páll Snorrason...-) Samtals 13 menn...............36 Sören Hermansen tryggði Þrótturum þriðja sigurinn í röð og þar með nýtt félagsmet í efstu deild Sören Hermansen tryggði Þrótti þriðja deildarsigurinn í röð á þriðju mínútu í uppbót- artíma í Laugardalnum í gær- kvöldi, 2-1 á Fylki, og nýlið- arnir eru búnir að stimpla sig af krafti inn í Landsbanka- deildina eftir að hafa farið stigalausir úr fyrstu tveimur umferðunum. Sören Herman- sen hefur skorað sigurmark í síðustu tveimur leikjum og með þremur sigurleikjum í röð hefur Þróttur sett nýtt fé- lagsmet í tíu liða efstu deild. Það eru einkum dramatískar lokamínútur sem standa upp úr skemmtilegri viðureign Þróttar og Fylkis í Landsbankadeild karla í gær, í leik sem fyrst fór á flug í seinni hálfleik þegar bæði lið fengu góð tækifæri til að bæta stöðu sfna. Þegar Sören Hermansen sendi boltann loks í markið eftir þrjár mínútur af uppbótartíma var eins og Dananum væri ædað að vera hetja Þróttarliðsins í gærkvöld. Sören hafði þegar skorað mark í leiknum sem var dæmt af vegna rangstöðu og rúmum tíu mínútum fyrr var Ásgeir Elíasson, þjálfari liðsins, svo gott sem búinn að skipta honum út af en hætti við þegar Fylksimaðurinn Ólafur Ingi Skúlason var rekinn út af. Sören sem hafði annars hægt um sig í leiknum fékk síðan þrjú dauðafæri í sömu sókninni og skoraði loks úr þriðja færinu eftir að Kjartan Sturluson, markvörður Fylkis, hafði „Það er frábært að skora sigurmarkið því mér fannst ég ekki kom- ast í takt við leikinn varið fjórum sinnum í tíu sekúndna stórhríð að marki Árbæjarliðsins. „Það er frábært að skora sigur- markið því mér fannst ég ekki kom- ast í takt við leikinn. Eg hljóp og hljóp en boltinn féll ekki fyrir mig fyír en á síðustu mínútunni þegar ég fékk þrjú færi og náði loksins að nýta það síðasta. Það að ég hafi ekki spilað eins vel og ég tel mig geta „Þetta var mjög ánægjulegur sig- ur í kvöld enda unnu mínir menn vel fyrir honum," sagði Ásgeir Elía- son, þjálfari Þróttar, eftir þriðja sigur liðsins í röð. Ásgeir var samt ekki órólegur þrátt fyrir að liðið færi stigalaust í gegnum tvo fyrstu leikina. „Við áttum alveg eins von á að tapa fyrstu tveimur leikjunum og vorum alveg rólegir yfir því,“ skiptir engu fyrst markið kom og sigurinn er í höfn,“ sagði Sören í leikslok. „Það var mikið áfall að fá þetta mark á okkur því þótt þeir væru mikið með boltann sköpuðu þeir sér ekki góð færi. Við gáfum þeim markið en vorum sem betur fer heppnir í lokin,“ sagði Sören sem heftir fúlla trú á liðinu. „Við er- um mjög ánægðir með gengið hingað til. Deildin er mjög jöfn en ef við náum allavega stigi í Grinda- vík á laugardaginn þá lítur þetta mjög vel út fyrir Þrótt. Við höfum alltaf lagt aðaláhersluna á að halda okkur uppi en nú stefnir í að við getum einnig tekið þátt í barátt- unni í effi hlutanum,“ sagði Sören. Leikfræði Þróttar gekk eins og í sögu í gær. Allir sem einn eru Þrótt- arar skynsamir og vinnusamir sagði Ásgeir sem sá þó hluti í leikn- um í gær sem máttu betur fara. „Við vorum klaufar að nýta okkur ekki hröðu upphlaupin betur og þurfum að laga það fyrir næstu leiki. Varnarleikurinn var ágætur en Fylkismenn eru með öskufljóta menn frammi sem þýddi að við þurftum að loka svæðunum aftar- lega á vellinum. Sóknin gekk betur varnarlega og jafnframt fljótir að snúa vörn í sókn og skapa fram á „Leikfræði Þróttar gekk eins og ísögu ígær." við. í vöminni stjórnar Eysteinn Lárusson reynslulitlum leikmönn- um eins og herforingi, á miðjunni er Páll Einarsson að komast f frá- bært form og les varnir mótherj- anna sem aldrei fyrr og ekki má gleyma snjöllum sendingum Hall- dórs Hilmissonar, leikni og krafti Björgólfs Takefusa eða mark- heppni Sörens manns sem augljóslega má aldrei líta af. Fylkismenn gerðu hins vegar allt of mörg mistök í leiknum og gerðu sig seka um að framkvæma allt of marga einfalda hluti á of flókinn hjá þeim í seinni hálfleik, við vor- um farnir að þreytast og þeir búnir að lesa betur okkar vamarleik," sagði Ásgeir sem sem betur fer hætti við að skipta Sören út af, „Ég ætlaði að taka Sören út af en svo misstu þeir mann út af og þá var möguleiki á að halda þremur á miðjunni. Við emm áfram bara jarð- hátt í þessum leik. Þeir höfðu vissu- * lega ekki heppnina með sér í nokkmm góðum fæmm í seinni hálfleik en boltinn kom seint og illa út úr vörninni sem auðveldaði Þróttumm að loka svæðum fyrir fljóta framherja Árbæjarliðsins. Þeir Helgi Valur Daníelsson og Finnur Kolbeinsson gerðu reyndar sitt til að skapa ágæt færi fyrir fé- laga sfna en það er eins og útivöll- urinn ætli að reynast liðinu erfiður í sumar. Heimaleikirnir þrír hafa unnist með marktölunni 8-1 en liðið er enn stigalaust á útivelli eftir tvo tapleiki, gegn ÍBV og Þrótti. Næst er stórleikur gegn KR og þá er kannski eins gott að þeir séu komnir í Árbæinn á nýjan leik. ooj.spon@dv.is bundnir og okkar markmið er sem fyrr að halda okkur í deildinni. Þegar við höfum náð því markmiði þá er í lagi að fara skoða stöðuna upp á nýtt. Þróttur hefur verið að fara upp og niður og stöðugleiki í efstu deild er það sem er stefnt á,“ sagði Ásgeir sem hefur nú stjórnað liði í 115 sigurleikjum f efstu deild. ooj.spon@dv.is „Við erum áfram jarðbundnir" sagði Ásgeir Elíasson þjálfarí Þróttarsem fagnaði 115. sigrinum sem þjáifaríí efstu deild

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.