Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2003, Page 28
28 DVSPORT FIMMTUDAGUR 19.JÚNÍ2003 DV Sport Keppni í hverju orði Netfang: dvsport@dv.is Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889 Sárt að sjá á eftir Beckham KNATTSPYRNA: „Það er sárt að sjá á eftir góðum leikmanni og þá ekki síst góðum félaga sem Beckham er,“ sagði Roy Keane, fyririiði Manchester United, í gær. Keane sagði að þetta væri hlutur sem væri óumflýjanlegur í knattspyrnunni.„Menn koma og fara og Alex Ferguson hefur selt menn áður og einhvern veginn hefur karlinn náð að fylla upp í þau skörð," sagði Keane bætti við að einhvern góðan dag myndi hann verða seldur.„Líklega ekki fyrir 20 milljónir, kannski 2 milljónir punda." Haft var eftir Ferguson í gær að það væri mikil áskorun fyrir Beckham að leika með liði á borð við Real Madrid og hann myndi standa sig vel á nýjum vígstöðvum. Handbolti: (slenska kvennalandsliðið í hand- bolta tapaði fyrir danska úrvalsdeildarliðinu Ikast/Bording, 32-29, í æf- ingaleik. Hrafnhildur Skúla- dóttir var markahæst með 6 mörk og Alla Gorkorian skoraði 4 mörk. Liðið leikur 3 leiki við Portúgal um helgina ytra. jks.5p0rt@dv.is K A R L A R LANDSBANKADEILD ú Staðan: KR 5 3 1 1 6-6 10 Fylkir 5 3 0 2 9-4 9 Þróttur 5 3 0 2 8-7 9 KA 5 2 2 1 8-6 8 FH 5 2 2 1 7—5 8 ÍA 5 13 1 5-4 6 IBV 4 2 0 2 6-7 6 Valur 5 2 0 3 7-9 6 Grindavfk 5 1 0 4 5-10 3 Fram 4 0 2 2 4-7 Markahæstu menn: 2 Gunnar Heiðar Þorvaldsson, IBV 4 Sinisa Kekic, Grindavfk 4 Björgólfur Takefusa, Þrótti 3 Haukur Ingi Guðnason, Fylki 3 Hreinn Hringsson, KA 3 Jóhann Hreiðarsson.Val 3 Sören Hermansen, Þrótti 3 Allan Borgvardt, FH 2 Arnar Gunnlaugsson, KR 2 Gunnar Þór Pétursson, Fylki 2 Hjálmar Þórarinsson, Þrótti 2 Jónas Grani Garðarsson, FH 2 Pálmi Rafn Pálmason,KA 2 Sigurbjörn Hreiðarsson.Val 2 SteinarTenden, KA 2 Veigar Páll Gunnarsson, KR 2 Næstu leikir: IBV-Fram Grindavík-Þróttur (BV-FH Valur-(A Fylkir-KR FH-Fram KA-Valur lA-Fylkir KR-Grindav(k Þróttur-lBV Ikvöld kl. 19.15 21. júní kl. 14.00 22. jún( kl. 16.00 22.júní kl. 17:00 22.júnfkl. 15Æ0 25. júnf kl. 19:15 25. júnf kl. 19:15 25. júnf kl. 19:15 25. júníkl. 19:15 26. júní kl. 19:15 Leik Fram ogKAÍ6. umferð var frestaö til 17.júli vegna þdttöku KAI Intertoto kepninni. KNATTSPYRNA 1.DEILD KVENNA A-riðill: HSH-Breiðablik 2 1-10 (ris Jónsdóttir - Vilfrfður Sæþórs- dóttir 3, Eyrún Oddsdóttir 2, Dag- mar Árnadóttir 2, Inga Jónsdóttir, Guðný Þórðardóttir, sjálfsmark. HK/Víkingur-ÍR 2-3 Salome Ingólfsdóttir, Lára Hafliða- dóttir - Berglind Rafnsdóttir, Bryn- dfs Jóhannesdóttir,Ásta Péturs- dóttir. B-riðill: Sindri-Leiknir 3-1 Jóna Kristjánsdóttir, Lena Marteins- dóttir.Guðný Einarsdóttir - Una S. Jónsdóttir. Fjarðarbyggð-Einherji 4-0 Ingibjörg Jónsdóttir, Sonja Gfsla- dóttir, Jóhanna Magnúsdóttir, Ásta Guðmundsdóttir. Eins og vélarvana dallur FH-ingar unnu Grindavík og skildu þá eftir í næstneðsta sæti deildarinnar FH-ingar halda áfram að hrekja allar spár fótboltasérfræðinga og í gærkvöld kom liðið sér fyrir í fjórða sæti Landsbankadeildarinnar með sanngjörnum sigri á Grindvíking- um í Kaplakrika. Grindvíkingar eru lika að koma á óvart en með öðr- um hætti - liðið er nú í næstneðsta sæti deildarinnar og lítur helst út eins og vélarvana dallur rétt við innsiglinguna - kemst hvorki lönd né strönd. Sigur hinna geðprúðu Gaflara var mjög öruggur og ekkert minna en fyílilega verðskuldaður. Þeir hófu leikinn af krafti og fengu dauðafæri strax á 5. mínútu en þá var Jón Þorgrímur Stefánsson klaufl að skora ekki eftir góða fyrir- gjöf Freys Bjarnasonar. Fátt markvert gerðist næstu mfn- úturnar en á 19. mínútu komst Sin- isa Kekic inn fyrir vörn FH-inga en Daði Lárusson átti ekki í erfiðleik- um með slakt skot hans. Eftir þetta voru heimamenn mun sterkari og nær því að skora. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson átti tvö hörkuskot og Baldur Bett eitt en Ólafur Gott- skálksson varði þau öll. Það var svo á 44. mínútu sem FH-ingar náðu forystunni með laglegu marki þar sem gamli rebbinn Heimir Guð- jónsson var snöggur að átta sig á sljóleika vamar gestanna. FH-ingar héldu svo áfram undir- tökunum í byrjun síðari hálfleiks og þegar sjö mínútur voru liðnar af honumbættuþeirvið markiogþar var það Bauninn Allan Borgvardt sem var arkitektinn. Fimm mínút- um sfðar fékk svo Jónas Grani Garðarsson dauðafæri en tókst ekki að bæta við þriðja markinu. Allt var síðan með kyrrum kjör- um næstu sjö mínúturnar en alveg upp úr þurru tókst Grindvíkingum að minnka muninn og skrifast markið alfarið á Daða Lárusson, markmann FH. Það sem eftir lifði leiks var ekki mikið um færi en heimamenn nær því að bæta við en gestirnir að jafna. FH-ingar héldu góðum tökum á leiknum og sigur þeirra var í raun aldrei í hættu eftir mörkin tvö. Það voru þeir sjálfir sem gáfu Grindvíkingum vonar- neista en þeim tókst hins vegar aldrei að nýta sér hann - til þess var leikur þeirra allt of brotakennd- ur. Liðið lék oft sæmilega úti á vell- inum en þegar nær dró marki varð bitleysið allsráðandi og öruggir og baráttuglaðir varnarmenn FH-inga áttu ekki í nokkrum vandræðum. FH-ingar voru vel skipulagðir og fóru í einu og öllu eftir því sem fyr- ir þá var lagt. Sjálfstraust liðsins er gott og það er fátt sem bendir til að þessi góða byrjun liðsins í sumar sé bara blaðra sem springur - til þess erþéttleikinnof mikill og innihald- ið er svo sannarlega ekkert hlátur- gas! -sms FH-Grindavík 2-1 (1-0) ... 1 -0 Allan Borgvardt (44., skot úr teig eftir sendingu Hermanns og snögga aukaspyrnu Heimis). 2-0 Hermann Albertsson (52., skot úr markteig, fylgdi eftir skoti Jónasar Grana). 2-1 Slnisa Kekic (64, skalli úr markteig eftir háa fyrirgjöf Ray Anthonys). FH (4-3-3) DaðiLárusson ................2 Ásgeir Gunnar Ásgeirsson ....5 TommyNielsen ................4 Sverrir Garðarsson ..........4 Freyr Bjarnason .............4 BaldurBett ..................4 Heimir Guðjónsson............3 Jónas Grani Garðarsson.......3 Jón Þorgrímur Stefánsson ....3 (71„GuðmundurSævarsson ....3) Allan Borgvardt..............6 (83., Atli Viðar Björnsson ..-) Hermann Albertsson...........4 (75, Emil Hallfreðsson.......3) Samtals 13 menn .............48 Gul spjöld: FH:Nielsen(34.). Grindavfk: Óðinn (50.). Rauð spjöld: Engin. Skot (á mark): '14 (8)-10 (3) Horn: 7-2 Aukaspyrnur: 16-16 Rangstöður: 5-2 Varin skot: Dómarl: Erlendur Eirfksson (3). Daði 2 - Ólafur Ahorfendur: 523. 5 Maður leiksins hjá DV Sporti: Allan Borgvardt, FH Grindavík (4-5-D Ólafur Gottskálksson .......4 ÓðinnÁrnason ...............3 (67, Alfreð Jóhannsson......3) Ólafur Örn Bjarnason........3 Gestur Gylfason.............3 Ray Anthony Jónsson ........2 Guðmundur Andri Bjarnason ... 3 Paul McShane ...............2 Eyþór Atli Einarsson........3 Michael Jónsson.............2 (85, Eysteinn Hauksson......-) Óli Stefán Flóventsson......3 Sinisa Kekic................3 Samtals 12 menn............34 Blóðug barátta: Grindvfkingurinn Sinisa Kekic og FH-ingurinn Tommy Nielsen berjast hér um boltann (leik liðanna (Kaplakrika (gær. Nielsen fékk skurð á höfuðið í leiknum og lék með miklar umbúðir það sem eftir var leiks. DV-myndSigurður Jökull Oruggur sigur sagði Ásgeir Ásgeirsson, leikmaður FH Ásgeir Gunnar Ásgeirsson lék sérlega vel í leiknum í gærkvöld, eins og reyndar allir kollegar hans í FH-vörninni. Hann var í sigurvímu þegar DV-Sport náði tali af honum rétt eftir leik: „Þetta var frábært," var það fyrsta sem Ásgeir sagði og hann bætti við: „Við ætluðum okkur sigur hér á heimavelli og lögðum allt í sölurnar og uppskárum samkvæmt því. Mér fannst þessi sigur vera mjög öruggur hjá okkur og þetta gekk afar vel hjá okkur í vörninni allan leikinn. Við áttum fullt af færum í fyrri hálfleik og áttum jafnvel að vera í tveimur- þremur mörkum í hálfleik. Síðan héldum við haus í síðari hálfleik þrátt fyrir að fá á okkur slysalegt mark og það er góð stemning í hópnum og nú er bara að halda áfram á þessari braut.“ En kom það Ásgeirí á óvart hvað Gríndvúdngar voru slakir? „Já, ég get ekki neitað því, ég bjóst við þeim mun sterkari og baráttuglaðari og þá sérstaklega í byrjun leiks því það hefur verið á brattann að sækja fyrir þá hingað til,“ sagði hinn harðskeytti Ásgeir. -SMS Eysteinn sterkur: Eysteinn Lárusson hefur leikið afar vel fyrir nýliða Þróttar f fyrstu fimm leikjum sfnum í efstu deild og hér hefur hann betur gegn Fylkismanninum Birni Viðari Ásbjörnssyni. DV-mynd Sigurður Jökull > ; / (• * * Grindavík í efstu deild: Sífelldar slakar byrjanir Grindvíkingar voru Jöngum þekktir fyrir það að byrja ís- landsmótið illa og nú er eins og þeir hafi tekið upp þann ósið á nýjan leik. Grindavíkurliðið hefur aldrei unnið fyrsta leik sinn á tímabili í efstu deild og maí- og júnímán- uðir hafa aldrei verið þeim gjöf- ulir. Margir álitu að þetta væri breytt eftir þrjú síðustu tímabil þar sem Grindavíkurliðið hefur verið í efri hluta og tekið 58% þeirra stiga sem hafa verið í boði í fyrstu fimm leikjunum. En í ár er eins og allt sé fallið í sama farveg og fyrstu fimm ár liðsins í deildinni þar sem Grindavík náði aðeins í 21 stig samtals í fyrstu fimm umferð- unum (af 75). Grindavík er þrátt fyrir þessar sífelldu slöku byrj- anir eina liðið sem ekJci hefur fallið. ooj.sport@dv.is BYRJANIR GRINDAVÍKUR Stig Grindavíkur í fyrstu fimm leikjum liðsins í efstu deild: (af 15 stigum sem eru í boði) 1995 4 (Markatala:7-10) 1996 5 (Markatala:4-9) 1997 2 (Markatala: 2-8) 1998 5 (Markatala:5-7) 1999 5 (Markatala:5-7) 2000 9 (Markatala: 6-2) 2001 9 (Markatala: 8-6) 2002 8(Markatala:11-9) 2003 3 (Markatala: 5-10)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.