Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2003, Síða 6
6 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNI2003
Drengur féll ofan í hver
SLYS: Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar sótti í gærkvöld 14 ára
dreng sem hafði fallið ofan í
hver í Reykjadal ofan Hvera-
gerðis og hlaut hann brunasár
á höndum og fótum.
Drengurinn var í hópi fólks
sem hóf gönguferð efst í
Kömbunum og stefndi
þaðan inn í Reykjadal. Dreng-
urinn féll ofan í gamla borholu
sem dælir upp um 80-90
gráða heitu vatni innst inni í
Klambragili.
Gert var að sárum drengsins í
nótt en ekki er enn vitað
hversu alvarlega hann slasað-
ist. Hjálparsveit skáta í Hvera-
gerði var einnig kölluð út og
voru átta björgunarsveitar-
menn sendir til móts við hóp-
inn til að aðstoða hann.
'
Framsókn í R-lista
BORGIN: Framsóknarmenn í
Reykjavík funduðu í gær um
samstarfið innan R-listans.
Fundinn sátu borgarfulltrúar
flokksins og formenn kjör-
dæmissambanda og flokksfé-
laganna í borginni. Guðjón
Ólafur Jónsson, formaður kjör-
dæmissambands flokksins í
Reykjavík suður, segir að á
fundinum, sem stóð í tæpa
klukkustund, hafi komið fram
að framsóknarmenn myndu
vinna af heilindum í R-listan-
um hér eftir sem hingað til.
Upphlaupið á flokksstjórnar-
fundi Samfylkingarinnar á
dögunum breytti því ekki.
Fíkniefnabrot
aldrei fleiri
en í fyrra
Aldrei hefur meira af fíkniefn-
um verið gert upptækt en árið
2002, samkvæmt upplýsing-
um frá ríkislögregiustjóra.
Fíkniefnabrotum fjölgaði úr 911
árið 2001 í 994 árið 2002 og er það
9,1 prósentuaukning á milli ára.
Flest brotanna komu upp í Reykja-
vflc en þó verður að hafa í huga að
hluti þeirra kemur til vegna mála
sem eiga upphaf sitt hjá embætti
sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli
og tollstjóranum í Reykjavík. 67
prósent fíkniefnabrotanna komu
upp á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í
umdæmum lögreglustjóranna í
Hafnarfírði, Kópavogi og Reykjavík.
Færri einstaklingar voru kærðir í
fyrra en árið 2001, eða alls 1039
manns, þar af 917 karlar og 122
konur, og er það um það bil hund-
rað færri einstaklingar en árið áður.
Lagt var hald á meira af hassi en
áður eða ríflega 57 kfló og það sama
má segja um kókaín en lagt var
„Við hjá SÁÁ höfum orð-
ið vör við mikla aukn-
ingu á neyslu fíkniefna
síðustu ár og hingað
kemur sífellt fleira fólk
sem á við fíkniefna-
vanda að etja."
hald á ríflega 1,8 kfló af efninu. Alls
var lagt hald á tæp 7,2 kfló af am-
fetamíni en aðeins einu sinni hefur
verið lagt hald á meira af efninu
sem var árið 2000, þegar lagt var
hald á ríflega 10 kfló. Mun minna
I Yfirlit landamæra þar sem fíkniefni voru haldlögð
Efnistegundir Keflav- flugv. Norræna Reykjav- flugv. Tollpóst- stofan Skipahöfn/ Rvík Samtals
Hass (g) 24.378,4 3,95 821,0 29.809,8 55.013,1
Kannabisfræ (g) 3,2 i 0,13 3,4
Kannabisfræ (stk.) 5,0 ! 30,0 35,0
Kannabislauf (g) 28,7 ; 399,2 427,9
Maríhúana (g) 15,0 94,8 12,0 121,8
Tóbaksbl. hass (g) 7,9 2,4 10,3
Amfetamín (g) 1.100,0 12,5 1.112,6
Amfetamín (stk) 2,0 2,0
Kókaín (g) 1.512,0 60,7 : 1.572,7
E-pillur stk. 28,5 I 28,5
AMFETAMlN: Aldrei hefur jafn mikið verið tekið af fíkniefnum og í fyrra, meira af
hassi en áður og aðeins einu sinni verið tekið meira af amfetamíni.
var haldlagt af e-töflum árið 2002
en áður eða 814 stykki.
„Við hjá SÁÁ höfum orðið vör við
mikla aukningu á neyslu fíkniefna
síðustu ár og hingað kemur sífellt
fleira fólk sem á við fíkniefnavanda
að etja,“ segir Einar Axelsson lækn-
ir á Vogi um aukna fíkniefnaneyslu.
„Flestir sem hingað leggjast inn
eiga fyrst og fremst í vandræðum
með áfengisneyslu sínu og það er
enn langalgengasti vfmugjafmn
Þjóðerni og kyn þeirra sem kæröir voru
Ríkisfang Karl Kona Samtals
Bandaríkln 2 2
Belgía 1 1
Bretland 2 2
Danmörk 7 1 8
Dómlníska lýöveldið 1 1
Frakkland 2 2
Holland 1 1
Hondúras 1 1
írland 1 1
íslartd 38 01 ; 49
Pólland 1 1
Þýskaland 3 1 4
Samtals 56 17 73
sem fólk notar hér á landi. Hins
vegar finnum við að fíkniefnin eru
sífellt að sækja meira á og það er
áhyggjuefni." erlakristin@dv.is
Utanríkisráðherra um upphaf viðræðna við Bandaríkin:
Segir leyndina nauðsynlega
Engar upplýsingar fást um
efni viðræðnanna við Banda-
ríkjamenn, hvorki frá samn-
inganefndum né stjórnvöld-
um. Utanríkisráðherra segir
leyndina nauðsynlega.
„Þessi fundur var gagnlegur og
vinsamlegur," segir Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra um
fyrsta samningafundinn um fram-
tíð varnarsamstarfsins, sem stóð í
hálfa fjórðu klukkustund í gær.
Bandaríska sendinefndin fór af
landinu síðdegis í gær og hefur
næsti fundur ekki verið ákveðinn.
Halldór hitti sendinefndina ekki.
Ljóst er að tilgangur þessa fyrsta
fundar var ekki að komast að
beinni niðurstöðu heldur að við-
ræðunefndirnar gerðu grein fyrir
afstöðu sinni. Halldór segir að eng-
in ástæða sé til að tala um það á
þessu stigi hvort mikið beri í milli.
„Þetta fór fram í vinsamlegu and-
rúmslofti og ég tel að það sé vilji til
að ftnna ásættanlega lausn á þessu
máli. Það skiptir miklu."
Spurt er hvort ekki væri eðlilegt
að upplýsa þjóðina um hvað
Bandaríkjamenn leggja til í þessum
efnum, ekki síst í ljósi þeirra miklu
hagsmuna sem fjölmargir hafa af
EKKERT AÐ FRÉTTA: Þau Gunnar Snorri Gunnarsson og Marisa Lino, formenn samninganefndanna, voru á einu máli um það eftir fundinn í gær að hann hefði verið á vinsam-
legum nótum. Hvorugt vildi hins vegar víkja orði að efnisatriðum viðræðnanna. DV-myndir GVA
veru varnarliðsins. Hvers vegna
þessa leynd? „Það er alltaf þannig í
vandasömum málum og viðkvæm-
um að það er ekki hægt að greina
frá öllu sem fer á milli aðila," segir
Halldór. „Þannig er það f öllum
samningaviðræðum og hefur alltaf
verið. Það gagnast engum að rjúfa
trúnað með þá hluti. Þetta er ekki
einkamál okkar og ekki heldur
einkamál Bandaríkjamanna. Við-
ræður sem þessar þurfa ávallt að
fara fram í trúnaði, þannig var það í
viðræðum um sfðustu bókun sem
lauk 1996 og þannig verður það að
vera áfram." olafur@dvJs