Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2003, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ2003 SKOÐUN 75 Valdhroki á þjóðhátíð SPJÖLDIN A LOFT: Hernum mótmælt á Austurvelli. KJALLARI Eiríkur Bergmann Einarsson stjómmálafræðingur í Kastljósi Sjónvarpsins á sunnudagskvöldið voru sýnd- ar myndir sem áhugakvik- myndatökumaður tók af af- skiptum lögreglunnar af mót- mælendum á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn. Eftir atburðinn og áður en mynd- irnar voru sýndar almenningi höfðu fulltrúar lögreglunnar lýst því yfir að mótmælendurnir hefðu verið fjarlægðir vegna þess að þeir trufluðu allsherjarreglu og að mót- mælendurnir hefðu farið inn á há- tíðarsvæðið þar sem þeir máttu ekki vera. Á myndunum var hvor- ugt að sjá og varalögreglustjóri, sem mættur var í Kastljósið, gerði enga tilraun til að rengja að þær gæfu rétta mynd af atburðinum. Friðsæl mótmæli Á myndunum kemur bersýnilega í ljós að innan um hundruð áhorf- enda voru örfáir mótmælendur, um það bil tugur talsins, og voru þeir allir staddir á því svæði sem ætlað var áhorfendum. Ekki var að sjá að neinn þeirra hefði gert minnstu tilraun til að fara inn á svæðið sem ætlað var fyrirmenn- unum og boðsgestum þeirra. Á myndunum kom jafnframt vel í ljós að mótmælin fóru friðsamlega fram. Ekki var að sjá að neinn mót- mælendanna hefði reynt að trufla „Ekki fæst séð afhvaða tilefni lögreglan sá ástæðu til að fjarlægja mótmælendur með valdi af Austurvelli sautjánda júní. Svo virðistsem um hreinan geðþótta og valdhroka hafi verið að ræða." dagskrána með frammíköllum eða með annarri háreysti. Þvert á móti stóðu þeir þarna þöglir og héldu heimatilbúnum mótmælaspjöld- um á lofti án þessa segja eitt ein- asta orð. Lögreglan raskar ró Hvers vegna sá lögreglan þá ástæðu til að fjarlægja mótmæl- endurna? Erfitt er að finna nokkurt skynsamlegt svar við því. Geir Jón og félagar í lögreglusveitunum gerðu Davíð Oddssyni í það minnsta lítinn greiða með því að ráðast til atlögu við friðsæla mót- mælendur meðan á ávarpi hans stóð. Áður beindist athygli fárra að mótmælendunum en með aðgerð- um sínum var það lögreglan sem beindi kastljósinu að þeim - með því að draga þá með valdi út af svæðinu. Með því móti var það sjálf lögreglan sem raskaði allsherjar- reglu á hátíðarsvæðinu en ekki þeir örfáu mótmælendur sem þarna voru samankomnir til að nýta sjálf- sögð mannréttindi og koma skoð- unum sínum á framfæri með frið- sömum þætti. „Rangar" skoðanir Á myndunum kemur valdhroki sumra lögreglumannanna berlega í ljós þegar þeir gerast sekir um það að rífa úr höndum mótmælenda heimagerðu mótmælaspjöldin þeirra og skemma beint fyrir fram- an myndavélina sem tók aðfarirnar upp á myndband. Á spjöldunum koma fram stjórnmálaskoðanir og eini tilgangurinn með því að skemma spjöldin er að koma í veg fyrir að mótmælendurnir fái að koma skoðunum sínum á framfæri. Þeir sem veifuðu íslenska fánanum, sem er lfka pólitísk tjáning, fengu að gera það í friði en ekki fæst séð að allsherjarreglu eða öryggi borg- aranna hafi staðið meiri ógn af mótmælaspjöldunum. Eins óhugnanlegt og það var að fylgjast með þessum aðförum voru orð varalögreglustjórans í Kastljós- þættinum þó enn óhugnanlegri. Eftir skoðun á myndunum flutti hann ekki afsakanir lögreglunnar og lofaði yfirbót og betrun eins og búast mátti við heldur sagði það blákalt út að lögreglan teldi sig hafa fulla heimild til að takmarka tján- ingarfrelsi borgaranna. Hann benti á að þar sem boðað hefði verið til samkomunnar undir ákveðnum pólitískum formerkjum til að hylla íslenska þjóðríkið og hlýða á póli- tíska ræðu forsætisráðherrans hefði verið fyllilega eðlilegt að halda þeim frá sem komu til að lýsa annarri skoðun. Svo virðist sem lögreglan telji sig þess umkomna að meta hvaða skoðanir borgararn- ir megi tjá og hverjar ekki og jafnvel grípa tii aðgerða ef menn lýsa rangri stjórnmálafstöðu. HERINN BURT- EN SAMTEKKI: Vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar hafði brotthvarf varnarliðsins á stefnuskrá sinni en hugurfylgdi ekki máli hjá þeim Ólafi (situr Kristjáni Eld- járn forseta á hægri hönd) og Einari Ágústssyni utanríkisráðherra (situr Kristjáni á vinstri hönd). stjórninni saman án þess að styggja Bandaríkin í hermálinu." Stefnuleysi í bók Vals kemur á nokkrum stöðum fram að íslenskir ráða- menn virtust hafa litla hugmynd um hvað þeir vildu í raun þegar fulltrúar Bandaríkjastjórnar gengu á eftir stefnu þeirra í málum varn- arliðsins. Þeir Ólafur Jóhannesson og Einar Ágústsson viðurkenndu á fundi með sendiherra Bandaríkjanna á íslandi sumarið 1971 að þeir hefðu takmarkaða þekkingu á hlutverki herstöðvarinnar og þyrftu að afla sér frekari þekkingar á varnargildi hennar áður en ráðist yrði í viðræð- ur við Bandaríkjamenn. Sjálfur forsætisráðherr- ann gat sem sagt ekki svarað sendiherranum því hver stefna ís- lenskra stjórnvalda væri í varnarmálum landsins. Það var 13. nóvember 1973 sem viðræður hófust við Bandarfkja- menn um framtíð varnarliðsins. „Einar Ágústsson var gersamlega óundirbúinn vegna þess hve mikil orka hafði farið í landhelgismálið og hafði sem fyrr engar tillögur fram að færa,“ segir í bók Vals. Og slíkt var stefnuleysi íslenskra stjórnvalda að bandaríski sendi- herrann gekk á fund Ólafs forsætis- ráðherra í desember 1973 og kvart- aði undan því að hann ætti erfitt með að útskýra fyrir yfirmönnum sínum hver stefna íslendinga væri í varnarmálum. Um svör Ólafs segir Valur í bók sinni: „Ekki hafði Ólafur fremur en Ein- ar neinar fastmótaðar tillögur um niðurskurð í hernaðarumsvifum á Keflavíkurflugvelli. Bandaríkja- menn yrðu að bjóðast til að fækka enn frekar í hernum og koma með nýtt og dramatískt útspil í málinu. Þegar Irving [sendiherrannj spurði í hverju það ætti að felast játaði Ólafur að hann vissi það ekki og sagðist skammast sín hálfparinn fyrir það.“ Sjálfur forsætisráðherrann gat sem sagt ekki svarað sendiherran- um því hver stefna íslenskra stjórn- valda væri í vamarmálum landsins. Enda hafði ekkert sjálfstætt mat farið fram á varnarþörfinni og ekki var skipuð nefnd til að fjalla um ör- yggis- og varnarmál landsins fyrr en mörgum ámm sfðar eða 1978. Þrátt fyrir það hafa stjórnvöld nú - árið 2003 - enn ekki látið gera út- tekt á varnarþörfum íslands, eins og fram hefur komið í DV. Blekkingar I sama samtali sagði Ólafur Jó- hannesson við sendiherra Banda- ríkjanna að hann myndi þurfa að tala af hörku um varnarliðið og jafnvel hóta uppsögn vamarsamn- ingsins í áramótagrein sinni nokkmm dögum síðar - „en bað Bandaríkjastjórn að hafa ekki of miklar áhyggjur af því[!!]“. Þetta er ekki eina dæmið um tvöfeldni ís- lenskra ráðamanna gagnvart ís- lensku þjóðinni sem getið er um í bók Vals því að hvað eftir annað gengu fslenskir ráðamenn á fund bandarískra embættismanna og fullvissuðu þá um að það stæði alls ekki til að standa við stefnuyfirlýs- ingu stjórnarinnar um brotthvarf hersins. Skýrasta dæmið er líklega fundur Einars Ágústssonar utanríkisráð- herra með Irving sendiherra þar sem hann fór þess beinlínis á leit að Bandaríkjastjórn beitti vísvitandi blekkingum til þess að létta undir með ríkisstjórn íslands. Valur vitn- ar hér í frásögn sendiherrans af þessum fundi: „Einar Ágústsson spurði hvort ríkisstjóm Bandaríkjanna væri reiðubúin að beita sýndarmennsku í varnarliðsmálinu og leggja fram mjög róttækar tillögur [um niður- skurð í varnarliðinu], sem hún þyrfti síðan aldrei að framfylgja. Ég tjáði honum að það væri ávallt hættulegt að beita blekkingum og tillögur Bandaríkjastjórnar fram að þessu hefðu verið lagðar fram í góðri trú." Vinstristjórnin hrökklaðist frá völdum 1974 áður en til þess kæmi að leiða hermálið til lykta. E E D Óþvegið „Og þó að Samfylkingarfólk bugti sig og beygi, standi og sitji og stingi upp í frúna dúsu eins og henni dettur í hug hverju sinni leynir örvæntingin og óánægjan sér ekki. [...] Að sjá annan mann blómstra í stólnum á vegum Reykjavíkur- listans er vont. Reykjavíkurlist- inn það er ég. Þess vegna er engin tilviljun að helstu kálfar Samfylkingarinnar skuli nú hver á fætur öðrum enn bugta sig og beygja og reyna allt hvað af tekur til að eyðileggja samstarfið um Reykjavíkurlist- ann með misgáfulegum yfirlýs- ingum og ummælum. Einhvers staðar yrði alla vega grátið þurrum tárum!" Guðjón Úlafur Jónsson, formaður Kjör- dæmissambands framsóknarmanna í Reykjavík suður og trúnaðarmaður I samningaviðræðum um framboð R- listans. Þeir eru farnir að rífast „Eftir höfðinu dansa limirnir. Davíð Oddsson hefur á síðustu árum afrekað að setja alla um- ræðu um utanríkismál á afar lágt plan, svo lágt að aðrir sjálfstæðismenn eru nú loksins farnir að kvarta." Birgir Hermannsson d Kreml.is leggur út afgagnrýni Þórlindar Kjartansson- ar, fyrrverandi aðstoðarmanns fjdr- málardðherra, d máflutning Heimdall- arí umræðu um Evrópusambandið. Frelsi til að spilla „Ef til dæmis múslímar fá leyfi til að halda samkomu einhvers staðar, er það þá spurning um „tjáningarfrelsi" að allir aðrir megi skálma með krossa inn á samkomuna? Það er mikill munur á því hvort skilti er fjar- lægt þar sem maður gengur með það í sakleysi sínu eða hvort það er tekið af manni sem fer með það inn á hátíð sem aðrir halda og hafa fengið fullt leyfi fyrir, í þeim tilgangi að spilla hátíðinni fyrir þeim." Vefþjóðviljinn á Andrlki.is. Alltfyrir viðskiptavininn „Ekki einungis hafi verið sýnt fram á að einkaaðilar geti rekið fangelsi sem séu meðal þeirra bestu í landinu heldur hafi til- koma samkeppninnar haft mjög hvetjandi áhrif til fram- þróunar í öllu kerfinu." Frétt á vefSamtaka atvinnulifsins um reynslu Breta af einkareknum fangels- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.