Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2003, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2003, Síða 12
12 FRÉTTtR ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ2003 í Heimurínn i hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson og Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is / erlingur@dv.is Sími: 550 5829 Pútín í heimsókn til Blairs RÚSSLAND: Vladimír Pútín Rússlandi heldur í sögulega heimsókn til Bretlands í dag og eru vonir bundnar að honum og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, takist að bæta sam- skipti ríkjanna. Heldur hefur andað köldu á milli þeirra frá því Bretar og Bandaríkjamenn ákváðu að ráðast inn í írak. Pútín er fyrsti rússneski þjóð- höfðinginn til að koma í opin- bera heimsókn til Bretlands síðan Alexander 2. keisari heiðraði Breta með nærveru sinni 1874. Svo merkileg þykir heimsókn Pútíns að hann mun dvelja í Buckinghamhöll, í boði Elísabetar drottningar. Blair sagði í viðtali við rúss- neska fréttastofu að heimsókn- in væri merkilegur atburður í samskiptum þjóðanna. „Ég lít á hann sem sterkan stjórnmálamenn sem talar hreint út," sagði Blair. Nú er bara spurningin hvort Pútín takist að sefa Breta sem margir hverjir móðguðust þeg- ar hann skensaði Blair opinber- lega á fundi með fréttamönn- um í apríl vegna meintra gjör- eyðingarvopna í (rak. f ísraelar halda áfram aðgerðum á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna: Hundrað Hamas- liðar handteknir HEFNDUM HÓTAÐ: Á sama tíma og viðræður fara fram við Hamas-samtökin um tímbundið vopnahlé hótar Hamas-leiðtoginn Abdel-Aziz al-Rantissi grimmilegum hefndum fyrir morð (sraelsmanna á Hamas-foringjanum Abdullah Qawasmeh í Hebron á laugardaginn.Tveir stuðningsmenn hefndaraðgerða sýna hér stuðing sinn í mótmælaaðgerðum gegn morðinu í gær. ísraelskar hersveitir héldu í morgun áfram aðgerðum á heimastjórnarsvæðum Palest- ínumanna og var aðgeðum nú beint að bænum Hebron á Vesturbakkanum þar sem meira en hundrað liðsmenn Hamas-samtakanna voru handteknir eftir að ísraelskir hermenn höfðu gengið hús úr húsi í leit að meintum liðs- mönnum Izzedine al-Qassem- hreyfingarinnar, vopnaðs arms Hamas-samtakanna. I yfirlýsingu frá ísraelska hernum segir að sérsveitir hersins hafi tekið þátt í aðgerðunum, sem búist var við að stæðu fram eftir morgni, en gripið var til þeirra þrátt fyrir góðar líkur á því að samkomulag væri að nást um tímabundið vopnahlé við herská samtök Palestínumanna og þar með Hamas-samtökin, sem þykir kraftaverk, eftir að ísraelskir hermenn höfðu á laugardagskvöld skotið einn helsta foringja þeirra, Abdullah Qawasmeh, til bana í Hebron. Qawasmeh var sakaður um að hafa borið ábyrgð á þremur sjálfs- morðsárásum fyrr í vor og þar á meðal árásinni í Jerúsalem þann 11. júní, þar sem sautján mann létu lífið þegar palestínskur sjáffs- morðsliði lét til skarar skríða í þétt- setnum strætisvagni á Jaffa-stræti í Jerúsalem. fsraelar halda því fram að ætiunin hafi aðeins verið að handtaka Qawasmeh en hann hafi verið skotinn til bana eftir að hafa dregið upp byssu. Sjónarvottar segja aftur á móti að Qawasmeh hafi verið skotinn til bana þar sem hann stóð fyrir utan bænahús í Hebron og hótaði Hams-leiðtoginn Abdel-Aziz al-Rantissi, sem slapp naumlega undan útsendurum fsraelsmanna fyrr í mánuðinum, að morðsins yrði grimmilega hefnt. Talsmaður ísraelshers sagði í morgun að liðsmenn Hamas-sam- takanna í Hebron bæru ábyrgð á fjölda árása á ísraelska borgara á undanförnum vikum þar sem að minnsta kosti 52 hefðu látist og þess vegna hefðu aðgerðirnar verið nauðsynlegar, en eftir áðurnefnda sjálfsmorðsárás í Jerúsalem hótuðu ísraelar að „þurrka út" öll herská samtök Palestínumanna. Síðustu fréttir herma að viðræður Abbas við leiðtoga Hamas-sam- takanna séu að skila árangri og að jafnvel sé von á yfirlýsingu frá samtökunum um tíma- bundið vopnahlé. Mahmoud Abbas, forsætisráð- herra Palestínu, hefur að undan- förnu reynt að fá palestínska öfga- hópa til þess að hætta árásum á ísraelska borgara og stöðva blóð- baðið en að kröfu ísraelsmanna er það forsendan fyrir því að friðar- viðræður á grundvelli „Vegvísisins" geti hafist. Síðustu fréttir herma að viðræð- ur Abbas við leiðtoga Hamas-sam- takanna séu að skila árangri og að jafnvel sé von á yfirlýsingu frá sam- tökunum á næstunni um tíma- bundið vopnahlé sem feli í sér að allar árásir á ísraelska borgara á heimastjórnarsvæðunum á Gaza og Vesturbakkanum og einnig inn- an fsraels verði tafarlaust stöðvað- ar. Ekld er víst að það dugi til til þess að friðarviðræður geti hafist þar sem ísraelsk stjórnvöld hafa hafnað öllum samningum um vopnahlé við palestínska öfgahópa. „Það er óásættanlegt fyrir pafest- ínsk stjórnvöld, ísraela og Banda- rfkjamenn að einstakir foringjar Hamas-samtakanna stjórni þvf hvort árangur náist í friðarsamn- ingum," sagði Amos Giland, yfir- maður í fsraelska hernum, eftir fund með Mohammed Dahlan, öryggismálaráðherra Palestínu, í gær en þar mun Dahlan hafa ítrekað kröfu Palestínumanna um að Israelar dragi herlið sitt strax frá Gaza-svæðinu og Betlehem á Vesturbakkanum. BOÐINN íVEISLUNA: Harrý prins á Englandi kemurtil 21 árs afmælisveislu stóra bróður sins, Vilhjálms prins. Harrý var boðið til veislunnar, öfugt við grínistann Aaron Barschak sem gerði allt vitlaust með uppátækjum sínum. Prakkari setur allt á annan endann í konungsfjölskyldunni: Tókst að kyssa Villa prins Breska grínistanum og prakk- aranum Aaron Barschak tókst að kyssa Vilhjálm prins Karls- son á báðar kinnar í 21 árs af- mælisveislu prinsins í Windsorkastala um helgina áður en öryggisverðir tóku hann og leiddu á brott. Bretar hugsa til þess með hryll- ingi hvað kynni að hafa gerst ef Barschak hefði reynst hryðjuverka- maður en ekki grínisti sem vildi vekja athygli á sjálfum sér. Barschak komst inn á kastalalóðina með því að klifra yfi vegg og fór síð- an óboðinn í afmælisveisluna. Yfirvöld fengu hland fyrir hjartað þegar atvikið spurðist út og David Blunkett innanríkisráðherra ávarp- aði þingið um hádegisbil þar sem hann greindi frá þvf sem ríkis- stjórnin og lögreglan ætla að gera til að koma í veg fyrir að svona nokkuð endurtaki sig. Barschak var með gerviskegg á andlitinu og klæddur í bleikan kjól þegar hann gerðist boðflenna í veislu prinsins. Hann sagði í viðtali við blaðið Daily Mail að hann hefði hrifsað hljóðnemann af Vilhjálmi prinsi þegar hann var að þakka ömmu sinni og föður fyrir veisluna. Það var svo ekki fyrr en Barschak var kominn út úr veislusalnum og fram á barinn, þar sem hann bað um að fá kampavín, að hann var tekinn og færður á lögreglustöð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.