Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2003, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2003, Side 13
h ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ2003 FRÉTTIR 13 Tómhenturfrá Burma BURMA: Japanskur ráðherra, sem ætlaði að reyna að fá bar- áttukonuna Aung San Suu Kyi leysta úr haldi herforingja- stjórnarinnar, fór tómhentur frá Burma í gær. Hann sagði að herforingjarnir hefðu að- eins gefið óljós loforð um að þeir myndu „leiðrétta málið". Vaxandi reiði gætir í garð her- foringjastjórnarinnarfrá því hún ákvað að hneppa Suu Kyi, sem hlautfriðarverðlaun Nóbels á sínum tíma, í varð- hald í maílok, eftir átök stuðn- ingsmanna hennar og þorp- ara á snærum stjórnvalda. Tetsuro Yano, aðstoðarutan- ríkisráðherra Japans, sagði að lítill árangur hefði orðið af fundi sínum með yfirmanni burmnesku leyniþjónustunn- ar, þriða valdamesta manni herforingjastjórnarinnar. Japanar veita Burma meiri að- stoð en nokkur önnur þjóð. I síðustu viku sögðu stjórnvöld íTokyo að þau ætluðu að íhuga að draga úr aðstoðinni ef Suu Kyi yrði ekki sleppt. Suu Kyi er haldið í einhverju illræmdasta fangelsi Burma, skammtfrá höfuðborginni. Skip á leið til Súdans SPRENGJUSKIP: Grísk yfirvöld tilkynntu í gær að skip með 680 tonn af sprengiefni innan- borðs, sem var stöðvað undan Grikklandsströndum í vikunni, hefði verið á leið til Austur-Afr- íkuríkisins Súdans. Að sögn grísks ráðherra jafnað- ist sprengiefnið um borð í skip- inu á við litla kjarnorku- sprengju. Það voru grískir sérsveitar- menn sem fóru um borð í skip- ið í grískri landhelgi. Skipið lestaði farminn ÍTúnis og var hann ætlaður efnaverk- smiðju sem síðan reyndist ekki vera til. Grísk yfirvöld geta enn ekki sagt hvort nota hafi átt sprengiefnið til að fremja hryðjuverk. Áhöfn skipsins hef- ur verið handtekin. uEíHItTrHfAR MÓTMÆLI f NEW YORK: John O'Neill var í hópi manna sem mótmæltu í gær fullyrðingum Georges W. Bush Bandaríkjaforseta um meinta gjöreyðingarvopnaeign íraka. Engin vopn hafa fundist þrátt fyrir ákafa leit og velta ýmsir því fyrir sér hvort Bush og fleiri hafi sagt ósatt til að fá þingheim til að fallast á innrásina í (rak. Árásin á meinta bílalestSaddams: Sýrlenskir landamæra- verðir særðust í látunum Allmargir sýrlenskir landa- mæraverðir særðust þegar bandarískar sérsveitir í írak réðust á bílalest þar sem talið var að háttsettir menn úr fyrr- um stjórn Saddams Husseins væru saman komnir. „Ekki er enn ljóst hvernig þeir særðust, hvort þeir urðu milli tveggja elda. En ég held að við sé- um enn að gera að sárum þriggja þeirra," sagði bandarískur embætt- ismaður í gær. Þá hefur embættismaður í land- varnaráðuneytinu Pentagon viður- kennt að bflalestin kunni að hafa verið komin yflr landamærin til Sýrlands þegar árásin á hana var gerð í síðustu viku. Sýrlensk stjórnvöld hafa ekki enn viljað tjá sig um aðgerðir banda- rísku sérsveitarmannanna og bandarískur embættismaður gaf í skyn að engin formleg boð hefðu farið á milli landanna vegna þessa. Lengi hefur verið stirt á milli Sýr- lands og Bandaríkjanna vegna ásakana ráðamanna í Washington um að Sýrlendingar styddu við bakið á hryðjuverkamönnum. Embættismenn vestra segja engar vísbend- ingar um að Saddam og synir hans tveir, Uday og Qusay, hafi verið drepnir í árásinni. Embættismenn vestra segja eng- ar vísbendingar um að Saddam og synir hans tveir, Uday og Qusay, hafi verið drepnir í árásinni. Verið er að rannsaka lffsýni úr þeim sem týndu lífi en niðurstaðan liggur ekki enn fyrir. Bandarískir öldungadeildarþing- menn sögðu í gær að svo kynni að fara að bandarískir hermenn yrðu í írak í að minnsta kosti fimm ár. Þingmennirnir, sem allir sitja í hinni áhrifamiklu utanríkismála- nefnd öldungadeildarinnar, hvöttu George W. Bush forseta eftir heim- sókn til íraks, til að vera hrein- skiptnari um þátt Bandaríkjanna og kostnaðinn við uppbyggingu íraks. George Tenet, forstjóri leyni- þjónustunnar CIA, mun sitja fyrir svörum leyniþjónustunefndar öld- ungadeildarinnar á fimmtudag og er ekki búist við öðru en að hann standi við skýrslu CIA um gjöreyð- ingarvopnaeign íraka. Sem kunn- ugt er hafa engin slík vopn fundist frá því stjórn Saddams féll fyrir tveimur mánuðum, þrátt fýrir ákafa leit bandarískra hermanna. Spurningar hafa vaknað um hvort upplýsingar hafi vísvitandi verið rangtúlkaðar í stríðs þágu. Ferðaviðvörunum aflétt í Peking Fjölmiðlar í Hong Kong full- yrtu í morgun að Alþjóða heil- brigðisstofnunin, WHO, myndi í dag draga til baka viðvaranir um ferðalög til Peking, höfuð- borgar Kína, vegna SARS-far- aldursins sem herjað hefur á borgarbúa á undanförnum mánuðum, en boðað hefur verið til blaðamannafundar í dag með fulltrúum WHO og Gao Qiang, aðstoðarheilbrigð- isráðherra Kína, þar sem búist er við yfirlýsingu þess efnis. Peking er sú borg í heiminum þar sem flest SARS-tilfelli hafa greinst til þessa en á megin- landi Kína létust um 350 manns úr veikinni og þar af meira en helmingur í höfuðborginni. Talið er að WHO muni draga viðvörun sína til baka þar sem ekkert SARS-smit hefúr greinst í Peking í tólf daga en á mánu- daginn var Hong Kong lýst smitíaust svæði eftir að ekkert tilfelli hafði greinst þar í tuttugu daga. Ibúar Peking er þó ekki alveg lausir við veikina því um það bil fjörutíu manns er enn haldið í einangrun eftir að hafa greinst með smit fyrr í vor. Talsmenn WHO hafa ekkert viljað staðfesta um málið ann- að en að boðað hafi verið til blaðamannafundar í dag með Gao Qiang aðstoðarheilbrigðis- ráðherra Kína og dr. Shigeru Umi fulltrúa WHO. Það mætti halda að hann hafi verið að Jói útherji VINNA 1X2 leiknum á dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.