Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2003, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2003, Side 17
16 TILVBRA ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ2003 + ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ2003 TILVERA 17 Tilvera Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl Netfang: tilvera@dv.is Sími: 550 5813 -550 5810 Schiffer kallar DRAUGAGANGUR: Þýska ofur- fyrirsætan Claudia Schiffer fékk þekktan draugabana til að heimsækja herragarð sinn í Suffolksýslu á Englandi um daginn. Sögursagnir herma að aftur- gengin nunna, Penelope að nafni, ráfi um ganga og sali Coldham Hall sem fýrirsætan og eiginmaður hennar, leik- á draugabana arasonurinn Matthew Vaughn, eiga saman. Claudia hafði ver- ið vöruð við draugagangi á herrasetrinu en lét viðvaran- irnar í fýrstu sem vind um eyr- un þjóta. Það var ekki fyrr en eftir að vinur hennar hafði róið í henni að hún féllst á að kalla til sín Elizabeth Bridgeman. Sú ku vera þekkt- ur draugabani og djöflaútrek- andi á Englandi. Claudia er hjátrúarfull kona að eðlisfari og segja vinir hennar að henni líði miklu betur eftir heim- sóknina. „Andrúmsloftið í hús- inu er allt annað og Claudia er virkilega ánægð með árangur- inn," segir ónafngreindur vin- ur fyrirsætunnar við breska blaðið Sunday Mirror. Claudia Schiffer. Fær stórfé fyrir að lána andlitið CHANEL: Hollywoodleikkonan Nicole Kidman stendur í samn- ingaviðræðum við snyrtivöru- og hátískufyrirtækið Chanel um að lána fallegt andlit sitt í auglýsingar. Fyrir vikið fær leikkonan rúman hálfan millj- arð íslenskra króna ef samn- ingar nást, að því er breska æsiblaðiðThe Sun greinirfrá. Forstjórar Chanel eru á því að Nicole, eða öllu heldur postu- línslétt húð hennar, sé ákjós- anlegur fulltrúi fyrirtækisins. Leggja þeir allt kapp á að ná henni til sín. Enda þótt samn- ingar hafi ekki verið undirrit- aðir enn staðhæfa heimilda- menn að Chanel muni kynna Nicole sem fyrirsætu sína eftir aðeins tvær vikur eða svo. Nicole Kidman. Brad Pitt í fínu formi LEIKARAR: Það hefur vakið at- hygli þeirra sem nýlega hafa séð Brad Pitt hversu hann er orðinn vöðvastæltur. Hefur það gefið þeim sögum byr undir báða vængi að hann sé á töflum og hormónalyfjum. Þessum sögu- sögnum hefur Brad Pitt reiðst ákaflega og sagði talsmaður hans um helgina að Pitt hefði í margar vikur æft í líkamsræktar- stöð á hverjum degi og væri það hluti af undirbúningi hans fyrir kvikmyndina Troy sem byggð er á Hómerskviðum og hann myndi ekki undir neinum kringumstæðum nota töflur eða lyf til að flýta fyrir vöðvabygg- ingunni. (Troy leikur Brad Pitt hetjuna Akkiles sem þótti fremstur meðal stríðsmanna í Trójustríðinu. Brad Pitt. KVIKMYNDIR HELGiN 20.- 22.JÚNÍ Sætl Fyrir Titill Innkoma, Innkoma Fjöldi viku helgin alls biósala 1. _ THE HULK 62.128 62.128 3660 2. 1 FINDING NEMO 21.138 228.549 3404 3. 2 2 FAST 2 FURIOUS 11.099 102.889 3140 4. 3 BRUCE ALMIGHTY 9.806 210.542 3074 5. 7 THEITAUAN JOB 7.165 67.635 2095 6. 4 RUGRATS GO WILD 6.942 23.800 3041 7. ALEX AND EMMA 6.111 6.111 2310 8. 5 HOLLYWOOD HOMICIDE 5.930 21.562 2840 9. 6 DUMBAND DUMBERER 4.357 20.016 2609 10. 8 THE MATRIX: RELOADED 3.942 264.401 1850 11. FROM JUSTIN TO KELLY 2.715 2.715 2001 12. 10 X2: X-MEN UNITED 1.350 209.628 1301 13. 9 DADDY DAY CARE 1.060 94.778 1040 14. 12 BEND IT LIKE BECKHAM 740 22.960 315 15. _ WHALE RIDER 602 1.048 78 16. 11 WRONGTURN 509 13.636 437 17. 17 WINGED MIGRATION 370 3.519 77 18. 16 SPELLBOUND 330 2.127 93 19. 19 L AUBERGE ESPAGNOLE 240 2.693 99 20. 15 HOLES 231 64.299 249 Allar upphæðir I þúsundum Bandaríkjadollara Græni risinn gnæfði yfir aðra í Bandaríkjunum átti engin kvik- mynd möguleika gegn Hulk um helgina. Þessi rándýra ævintýrakvik- mynd fékk tvöfalt meiri aðsókn en næsta kvikmynd sem var Finding Nemo og er á leiðinni með að verða allra vinsælasta teiknimynd sem gerð hefur verið. Aðsóknin á hana er komin í 230 milljónir dollara og er lítið lát á henni. Hulk, sem trónir á toppnum, er gerð eftir vinsælli teiknimyndasögu sem einnig var vinsæl sjónvarpssería fyrir mörgum árum. í myndinni verður genabreyting á ungum manni með þeim afleiðingum að hann breytist í stóra græna ófreskju. Myndin hefur ekki aðeins fengið góða aðsókn heldur eru gagn- rýnendur hrifnir og þakka þeir gæði myndarinnar leikstjóranum Ang Lee (Grouching Tiger, Hidden Dragon) MYNDBÖND VIKAN 16,-22. JÚNÍ Sæti Fyrir Titill Vikurá lista 1. 8MILE 1 2. _ ABOUT SCHMIDT 1 3. 1 TRANSPORTER 2 4. 2 SWEET HOME ALABAMA 6 5. 3 RED DRAGON 5 6. BLOODWORK 1 7 4 THETUXEDO 4 8. _ EQULIBRIUM 1 9 5 FEMME FATALE 3 10. 6 BALLISTIC 4 11. 8 STEALING HARVARD 2 12. 10 CHANGING LANES 10 13. 15 CRUSH 2 14. 7 SUPER TROOPERS 3 15. 9 THE GOODGIRL 4 16. 12 THE MASTER OF DISGUISE 7 17. 11 THE SALTON SEA 7 18. 20 DIE ANOTHER DAY 9 19. 14 ENOUGH 11 20. 13 FRIDAY AFTER NEXT 5 HULK: Eins og sjá má þarf heilan her gegn Hulk sem er ekki aðeins að hugsa um útlit- ið heldur einnig innviði persónanna sem hann er að fást við. Ein önnur ný kvikmynd er ofarlega þessa vikuna, Alex and Emma sem Rob Reiner leikstýrir, og er með Kate Hudson og Luke Wilson í aðalhlut- verkum. Hún þykir ekki eiga framtið fyrir sér að mati gagnrýnenda sem gefa henni slæma dóma. Eminem og fleiri rapparar Það kom engum á óvart að 8 Mile skyldi skella sér beint í efsta sæti myndbandalistans. Mynd þessi varð vinsæl meðal ungs fólks og víst er að margir vilja sjá Eminem aftur í því sem hann kann best. Ekki er það verra að hann þykir sýna góðan leik ( fyrstu kvikmynd sinni. Söguhetja myndarinnar er Jimmy Smith, ungur tónlistarmaður í bfla- borginni Detroit. Hann er fullur af heift og hatri út í samborgarana. Hann býr ásamt móður sinni í nið- urníddu og varasömu fátækrahverfi og vill komast burtu úr borginni. Hann telur sig aðeins eiga eina flóttaleið, tónlistina. Innst inni elur hann með sér draum um að hún eigi eftir að gera hann ffægan og ríkan. Hann hefur ásamt félögum sínum stofnað hljómsveit og kemur hún 8 MILE: Eminem þykir hafa sýnt stjörnu- leik í fyrstu kvikmynd sinni. fram í hip-hop klúbbum í Detroit. Arðurinn er ekki mikill en þrátt fyrir mótlætí sjá þeir félagar skimu hand- an við svartnættið. Mótleikarar Eminems eru Kim Basinger, sem leikur móður hans, Mekhi Phifer, Omar Benson Miller, De’Angelo Wilson og Evan Jones sem leika vini Smiths í rappinu. Brittany Murphy leikur kærustu hans. Ævintýralegur sólstöðuleiðangur á hæsta fjall Vestfjarða: Kaldbakur klifinn Sungið á toppnum: Kátur hópur tekur lagið undir gítarleik Guðrúnar Snæbjargar Sigþórsdóttur frá Þingeyri. Tindurinn blasti við okkur þegar við horfðum inn Fossdal sem gengur inn af Arnarfirði norðanverðum. Þangað vorum við komin, 120 manns, (sólstöðuferð JC-félagsins á ísafirði. Hefð er orðin fyrir því að fé- lagið standi fýrir fjallaferð á sumar- sólstöðum þegar vart sér mun dags og nætur. Að þessu sinni lá leiðin á Kaldbak sem er hæsta fjall Vest- fjarða. Það gnæfir yfir önnur á skag- anum sem er milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Útsýni þaðan er afar gott og leiðin næsta greið. Að minnsta kosti komust flestir úr hópnum á tindinn og þó voru sumir allt annað en vanir fjallgöngumenn. Hitnað og svitnað Kaldbakur er 998 metra hár og er hæsta fjall Vestfjarða, þessa lands- hluta sem er ögrum skorinn og á ótal fjöll. Kaldbakur blasti við okkur þeg- ar komið var af Gemlufallsheiði og niður í Dýrafjörð. Viðfangsefnið varð strax spennandi. En við héldum lengra, yfir Hrafns- eyrarheiðina og nálguðumst tindinn með því að ekið var út með Arnar- firði norðanverðum. Fjallarúta sel- flutti fólk inn Fossdal en fólk gekk áleiðis inn eftir honum. Um 120 manna hópur gekk á Kaldbak við Arn- arfjörð um helgina. Mið- nætursól var og ævin- týralegt útsýni. Þreyta að ferðalokum var í fylgd með lífsgleðinni. Hver og einn gekk á sínum hraða og þegar sumir voru enn í miðjum dalnum voru aðrir komnir upp á fjallsöxlina sem er geng alveg upp á topp. Þetta var svolítið á fótinn. Strax niðri í dal var maður farinn að hitna og svitna. Þá stakk maður flís- peysunni í bakpokann og var á skyrtunni. Þegar geislar miðnætur- sólarinnar hurfu var hins vegar gott að bregða sér í hana aftur. Leiðin að Gullna hliðinu Eftir þvi sem ofar dró varð útsýnið meira. Kannski var þetta eins og hjá kerlingunni forðum í Gullna hliði Davíðs; að fegurðin jókst því hærra sem hún komst með sálina í pokan- um. Þegar hátt var komið var horft nið- ur á öll hin fjöllin. Sandafellið við Dýrafjörð, sem Þingeyrarkauptún stendur undir, blasti við okkur, sem og Arnarfjörður og botnlangarnir tveir sem inn af honum ganga; firð- irnir tveir sem kenndir eru við Trostan og Geirþjóf. Þannig sáust í senn söguslóðir hinnar frægu sögu um Gísla Súrsson. Er hermt að öli vötn falli til Dýrafjarðar og í Arnar- firði voru forðum galdramenn og særingameistarar á hverju strái. Gangan var almennt nokkuð auð- veld og mesta brattanum mættí maður með því að þræða brekkurn- ar skáhallt. Þannig varð gangan auð- veldari. Þegar við nálguðumst tind- inn mættu okkur klettabjallar sem þurfti að ldífa og prfla. Hífa sig upp frá einum steini til annars. „Klífa skriður, skríða kletta," kvað Tómas forðum. Togast í þúsund metrana Lagt var upp úr minni Fossdals klukkan rúmlega tíu um kvöldið og á tindinn var fólk að ná milli klukkan tvö og þrjú um nóttina. Eins og ein- kennandi er með fjöll á Vestfjörðum þá er toppur Kaldbaks rennisléttur, eftir að hafa þannig flast út forðum þegar landið var í mótun og undir jökli fyrir þúsundum ára. Jarðfræði og raunvísindi öll urðu hins vegar að aukaatriði á þessu hæsta fjalli Vestfjarða. Að meginmáli varð kátínan yfír að hafa náð á topp- inn. Fólk prflaði upp í vörðuna góðu sem er á fjallinu og er tæpir tveir FJÖLL LANDSINS Hvannadalshnjúkur 2.119 m. Snæfell 1.833 m. Herðubreið 1.682 m. Eiriksjökull 1.675 m. Hekla 1.491 m. Mælifellshnjúkur 1.138 m. Skjaldbreiður 1.060 m. Kaldbakur á Vestfjörðum 998 m. Esja 914 m. Lómagnúpur 767 m metrar á hæð - og togar Kaldbak þannig upp í þúsund metrana. Sumir tóku lagið á fjallinu, enda er söngur í sumarnóttinni alltaf seið- andi. Aðrir tók svo myndir af mið- nætursólinni þar sem hún var í fjarskanum úti við sjóndeildarhring, aftur farin að hækka á lofti. Þreytan og lífsgleðin Klukkan var milli fjögur og fimm þegar hópurinn kom niður af fjall- inu. Fólk fetaði slóðina niður fjallsöxlina og auðvitað var sýnu auðveldara að fara niður í móti en upp. Leiðin lá niður í Haukadal sem gengur inn af Dýrafirði en þangað kom fjallarútan góða og selflutti fólk að fremstu bæjum í dalnum, þaðan sem aðrar rútur ferjuðu okkur svo til Þingeyrar. Þar komumst við í sund- laug. Potturinn var snarpheitur og dásemd var líkast fyrir göngugarpa að geta þar tekið sárustu verki úr vöðvum þótt sú þreyta, sem farin var að herja á fólk, væri öðru fremur skyld lífsgleðinni og þeim fögnuði sem því fylgir ævinlega að ná á hæstu tinda. sigbogi@dv.is + Kvittað fyrin Skrifað í gestabókina sem geymd er í vörðunni sem er á toppi Kald- baks. DV-myndir sbs íbygginn á fjallinu: Karl Eskil Pálsson fréttamaður var meðal þeirra sem gekk á fjallið. (baksýn sést út yfir Arnarfjörð og botnlangafirði hans. Langt á brattann: Rúturnar fluttu fólkið í minni Fossadals en inn eftir honum og síðan eftir fjallsöxlinni og alveg upp á topp Kaldbaks þurfti fólk að ganga. Aning: [ miðjum hlíðum Kaldbaks kastaði fólk mæðinni og fyrir suma var þar ekki van- þörf á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.