Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2003, Síða 16
32 DVSPORT MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ2003
DV Sport
* Keppni í liverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889
Fyrsta tap Rosenborg
KNATTSPYRNA: Undur og stór-
merki áttu sér stað í norsku
knattspyrnunni í gær þegar
Rosenborg tapaði sínum fyrsta
leik á leiktíðinni. Kom það
gegnTromso á útivelli, 2-1, en
Rosenborg er samt sem áður
með 10 stiga forystu á toppi
deildarinnar enn þá. Árni Gaut-
ur Arason sat á varamanna-
bekk Rosenborg allan leikinn.
Enginn íslendingur var á skot-
skónum eins og svo oft áður í
sumar. Helgi Sigurðsson og Jó-
hann B. Guðmundsson voru í
byrjunarliði Lyn sem mætti
Lilleström, en þar var Indriði
Sigurðsson sá eini í byrjunar-
liðinu. Gylfi Einarsson og Davíð
Viðarsson komu hins vegar
báðir inn á í síðari hálfleik.
Heppnisdráttur
KÖRFUBOLTI: Keflavík datt í
lukkupottinn þegar dregið var í
riðla í hinum nýja FIBA-bikar í
Evrópu. Þetta er í fyrsta skipti
sem keppnin er haldin en Kefl-
víkingar þurfa ekki að ferðast
langt til andstæðinga sinna.
Liðin sem drógust með Kefla-
vík eru Toulon í Frakklandi og
Ovarense og Madeira, bæði í
Portúgal.
Silja úr leik
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR: Silja Úlf-
arsdóttir, hlaupakona úr FH,
hljóp á tímanum 61.30 sek. í
400 metra grindahlaupi og
komst ekki áfram á EM ung-
linga 22 ára og yngri sem hald-
ið var um helgina. Þá kastaði
Óðinn Björn Þorsteinsson,
einnig úr FH, 49.20 m í kúlu-
varpi og dugði það ekki til að
komast í 12 manna úrslit.
Tvö íslandsmet féllu
hjá Islendingunum á HM í sundi í Barcelona
Það er óhætt að segja að keppni
hafi byrjað vel hjá íslendingun-
um á HM í sundi sem hófst í
Barcelona í gær. Tvö íslandsmet
féllu, ólympíulágmarki var náð
og bæting upp á tæpa sekúndu
átti sér stað.
Keppni hófst með undanriðlum í
100 m flugsundi kvenna þar sem
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir var með-
al þátttakenda. Hún synti á 1:03,49
og bætti sinn besta persónulega ár-
angur um tæpa sekúndu. Hún varð
í 30. sæti af 53 keppendum.
Lára Hrund Bjargardóttir gerði
sér lítið fyrir og bætti íslandsmetið í
200 metra fjórsundi um meira en
tvær sekúndur. Hún synti á 2:20,35
og bætti eigið met sem var orðið 4
ára. Hún varð í 31. sæti og náði um
leið að vinna sér þátttökurétt á
Ólympíuleikunum í Aþenu á næsta
ári.
Hjá strákunum kepptu þeir Jak-
ob Jóhann Sveinsson og Jón Oddur
Sigurðsson í 100 metra bringu-
sundi. Þar bætti sá fyrrnefndi ís-
landsmet sitt frá EM í fyrra um 14
hundraðshluta úr sekúndu er hann
synti á 1:03,11 sem dugði honum í
31. sæti. Jón Oddur kom að bakk-
anum á 1:05,91 og lenti í 53. sæti af
92. Hann bætti sinn persónulega
árangur lítillega.
Þá komst Astralinn Ian Thorpe
enn og aftur í sögubækurnar með
því að vinna gull í 400 m skrið-
sundi. Það var hans 9. HM-gull sem
er met. í 4x100 m skriðsundi leiddi
goðsögnin Alexander Popov sveit
RÚSSa til sigurs. eirikurst@dv.is
BÆTTl SIG: Jakob Jóhann Sveinsson setti nýt Islandsmet í 100 metra bringusundi.
•t
Krikket
ájökli
Um helgina var hér á landi statt
úrvalslið EFG bankans í Lundúnum
í krikket. Liðið lék hér þrjá leiki,
þeirra á meðal miðnæturkrikket í
Laugardalnum, „alvöru" leik á
sama stað og að síðustu lék það
gegn Kylfunni frá Stykkishólmi,
nyrsta krikketsklúbbi veraldar, á
sjálfum Langjökli. „ískrikket", eins
og segir í fréttatilkynningu.
í leik Iaugardagsins, þegar EFG
lék gegn íslenska landsliðinu, báru
ensku gestimir nauman sigur úr
býtum, með 131 hlaupi gegn 128.
Að leiknum loknum bauð breski
sendiherrann til mótttöku í sendi-
ráðinu og varð það til að kóróna
góða heimsókn ensku krikketleik-
aranna.
í liði þeirra var einn flugmaður
Iceland Express, sem styrkti komu
EFG-liðsins, en það var sjálfur
Bmce Dickinson, söngvari þunga-
rokkshljómsveitarinnar Iron
Maiden og vakti það ómælda lukku
bæði meðspilara hans og áhorf-
enda, sem margir hverjir komu
gagngert til að berja goðið augum.
eirikurst@dv.is
*
Þórey stökk
4,43 metra
Þórey Edda Elísdóttir, stang-
arstökkskona úr FH, hafnaði í
þriðja sæti þegar hún stökk
4,43 metra á alþjóðlegu frjáls-
íþróttamóti í Cuxhaven í
Þýskalandi í gær. Þórey reyndi í
þrígang við nýtt íslands- og
Norðurlandamet, 4,53 metra,
en felldi í öll skiptin.
Það var heimamaðurinn
Yvonne Buschbaum sem vann
keppnina með stökk upp á4,63
metra en í öðm sæti varð Mon-
ika Pyrek frá Póllandi. Elena
Belyakova ffá Rússlandi stökk
sömu hæð og Þórey Edda, en
notaði við það fleiri tilraunir og
varð því að gera sér fjórða sæt-
ið að góðu að þessu sinni. Alls
tóku níu stúlkur þátt í stangar-
stökkskeppninni. vignk@dv.is
Laugavegshlaup í steikjandi hita
1 lOluku 55 kílómetra löngu hlaupinu sem fór fram við erfiðar aðstæður
„Þetta var rosalega erfitt hlaup.
Það erfiðasta sem ég hef tekið
þátt í hér á landi," sagði Charles
Hubbard þegar hann kom í
mark í Þórsmörk eftir að hafa
hlaupið Laugaveginn á laugar-
dag. Hubbard kom fyrstur
manna í mark.
Þetta var þriðja árið í röð sem
Charles vann hlaupið. í ár hljóp
hann þetta 55 kílómetra hlaup á
4:59:21. Charles sigraði í fyrra á
4:39:27, en hann náði besta tíma
sínum 2001, 4:39:21. Steinar Jens
Friðgeirsson varð í öðm sæti og
fyrstur íslendinga, hljóp á 5:21:10.
Veðrið á laugardag var gríðarlega
erfitt fyrir hlauparana, sól og mikill
hiti alla leið. Hitinn í forsælu í
Emstmm, þar sem búnir em 40
kílómetrar af leiðinni, var 23 gráð-
ur. Hitinn á móti sól var þar um eða
yfir 30 gráður.
„Ég kem aftur"
Þónokkrir hlauparar áttu í vand-
ræðum vegna vökvataps og leið illa
vegna hitans. Nokkmm þeirra varð
að gefa vökva í æð í markinu í
Húsadal. Átta hlauparar náðu ekki í
mark en 110 luku hlaupinu. Veðrið
er þó ein óvissan í hlaupinu og
hlauparari sem DV ræddi við eftir
hlaupið var staðráðinn í að koma
aftur að ári þrátt fyrir erfiða reynslu
í ár.
NH