Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003
Frítekjumörk hækka
Spáð loftslagsbreytingum
ALMANNATRYGGINGAR: Jón
Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, hefur
ákveðið að frítekjumörk al-
mannatrygginga hækki um 6,0%
frá 1. september nk. Þetta þýðir
að tekjuviðmiðun bóta sem
Tryggingastofnun ríkisins er gert
að leggja til grundvallar í út-
reikningum sínum, og endur-
skoðuð er ár hvert, hækkar sem
þessu nemur. I stað tekna ársins
2001 verður frá 1. september nk.
miðað við tekjur ársins 2002
samkvæmt skattframtölum.
Þetta er gert með hliðsjón af 65.
gr. laga um almannatryggingar.
Viðmiðunarfjárhæðir í reglugerð
nr. 47/1990 um stofnanaþjón-
ustu fyrir aldraða hækka einnig
um 6,0 af hundraði þ. 1. septem-
ber nk.
MIKLAR BREYTINGAR: Spáð er
að lofthiti á norðurheimskaut-
inu geti hækkað um 3 til 9
gráðuránæstu lOOárum. Ger-
ist það verða gífurlegar breyt-
ingar á loftslagi og lífríki og
hafstraumar við Island gætu
breyst. Skiptar skoðanir eru um
hvaða áhrif breytingar á haf-
straumum, sér í lagi
Golfstraumnum, geti haft á að-
stæðurhérá landi.
Sjávarhiti við landið hefur verið
óvenjumikill í sumar, að mati
sjómanna, ekki síst með vest-
urströnd landsins. Mikil óvissa
er þó um hvaða áhrif þetta geti
haft á hefðbundna fiskistofna
sem (slendingar hafa byggt af-
komu sína á um áratugaskeið.
Skákmeistarar
SKÁK: Menntaskólinn á Akureyri
er Norðurlandameistari í skák
eftir að hafa sigrað sænskan
menntaskóla, Wenströmska
Gymnasiet, í síðustu umferð
Norðurlandameistaramóts fram-
haldsskóla. Islenskir skólar hafa
áður sigrað 17 sinnum á þessu
Norðurlandamóti. MH hefur sigr-
að 14 sinnum, MR tvisvar og
Verslunarskólinn einu sinni.
Búslóðaflutningar:
Tollurinn gerði
tónlistina upptæka
VANDRÆÐAMÁI: Tónlistarmaðurinn Kenneth Balys segir að tollstjórinn í Reykjavík hafi gert rúmlega hundrað og fimmtíu geisladiska með hans eigin tónlist upptæka og að málið sé allt
hið vandræðalegasta.
Fyrir rúmu ári flutti Vestur-ís-
lendingurinn Kenneth Balys til
landsins og hugðist hafa með sér
um tvö hundruð hljómplötur og
geisladiska með tónlist sem hann
hefur samið.Tollurinn gerði plöt-
urnar og diskana upptæka og
krafði Balys um greiðslu sem
hann neitaði og var málið því
sent áfram til lögreglunnar.
„Þetta er allt hið furðulegast mál,“
segir Balys og hlær, „ég skil eiginlega
ekki hvað er á seyði. Ég á ættir mínar
að rekja til fslands, á íslenska Ijöl-
skyldu og ákvað að flytja hingað.
Áður en ég pakkaði búslóðinni taldi
ég mig hafa athugað gaumgæfilega
hvað ég mætti flytja til landsins og
hvað ekki til að vera réttum megin
við lögin." Balys segist meðal annars
hafa flutt með sér upptökustúdíó sitt,
hljómplötur og geisladiska með eigin
tónlist. „Þegar fyrsta sendingin með
dótinu kom til landsins gerði tollur-
inn stúdíóið upptækt og krafðist þess
að ég borgaði af því toll á þeim for-
sendum að þetta væri atvinnutæki
eða verkfæri. Að lokum var samþykkt
að tækin væru til persónulegra nota
og að ég þyrfti ekki að borga af þeim.
Þegar seinni sendingin kom var farið
í gegnum hvem einasta hlut, sem
þeir hafa rétt á, og allar upptökur
með minni eigin tónlist gerðar upp-
tækar. Þetta voru demóar, fimmtíu
eintök af plötu sem ég gaf út fyrir
nokkrum ámm og hundrað fímmtíu
og átta nýir geisladiskar sem ég ætl-
aði að nota sem prómó."
Leiðinlegur misskilningur
Balys segist ekki geta skilið hvers
vegna toUurinn bregðist svona ein-
kennUega við. „Ég held hreinlega að
málið sé orðið persónulegt eða að
þeir haldi að ég sé eitthvað tengdur
eiturlyfjum vegna þess að þetta er
teknótónlist. Ég var að minnsta
kosti spurður að því af einum tollara
hvor tónlistin ætti eitthvað skylt við
það sem menn heyra á reifhátíð-
um.“
Þegar Balys er spurður hvort ekki
Þetta voru demóar,
fimmtíu eintök afplötu
sem ég gafút fyrir
nokkrum árum og
hundrað fimmtíu og
átta nýir geisladiskar
sem ég ætlaði að nota
semprómó."
teljist eðlUegt hjá tollinum að álykta
sem svo að hann ætli að selja disk-
ana, þar sem hann sé með svona
mörg eintök af sama diskinum, seg-
ir hann að svo megi vel vera. „Það
má hártoga það mál á marga vegu
en hvað sem því líður þá eru þetta
allt prómóeintök sem ætluð eru til
kynningar.“
Balys segist hafa boðist tU að
borga toU af diskunum á sínum tíma
en að krafa toUstjóra hafi hljóðað
upp á sjötíu og átta þúsund króna
sekt og að hann viðurkenndi á sig
lögbrot og að hann hefði ekki getað
sætt sig við það. „Þetta er hreinlega
leiðinlegur misskUningur og mér
finnst að það eigi að leysa málið sem
slíkt.
Sent til lögreglustjóra
Júlíus Georgsson, lögfræðingur hjá
tolUnum, segir að mál Balys sé kom-
ið til Lögreglustjórans í Reykjavflc.
„Það fór fram rannsókn á málinu hjá
okkur og lögð var tíl ákveðin lausn,
sem lögfræðingur Balys hafnaði fyrir
hans hönd, og í framhaldi af því var
málið sent lögreglustjóra til með-
ferðar.“ Júlíus segist ekki vUja fara
nákvæmlega út í málavexti en segir
að málið verði að skýrast í framhaldi
af meðferð þess hjá lögreglunni og
hvað sé löglegt og hvað ekki. „Hvað
sem öðru líður þá hefðum við ekki
sent það áfram tfl lögreglunnar
nema við teldum að um meinta refsi-
verða hátterni væri að ræða.“ kip@dv.is
MINNINGARSUND: Bræðrunum Ara og Jóhannesi Páli Gunnarssonum var vel fagnað að
afstöðnu fjögurra kílómetra sundi sem þeir þreyttu (minningu bróður síns. DV-mynd Eggert
4 kílómetra
minningarsund
Bræðurnir Ari og Jóhannes Páll
Gunnarssynir syntu á laugardag frá
Áttæringsvör f Viðey tU smábátahafn-
arinnar við Ægisgarð f Reykjavíkur-
höfn, rúmlega 4 km leið. Sundið tók
um eina og hálfa klukkustund.Ari og
Jóhannes syntu þessa leið í minningu
bróður síns, Kristjáns Gunnarssonar,
sem framdi sjálfsvíg við Austurbæjar-
skólann í nóvember í fyrra. Jafhffamt
vUdu þeir með þessu sundi vekja at-
hygli á alvarleúca þunglyndis. Stóð
fjölskylda bræðranna að áheitasöfn-
un og söfnun á styrkjum fyrir Geð-
hjálp, samfUiða sundi bræðranna.