Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2003, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003 TILVERA 43
HáSHDlaDíD
SAMBW
★★★* . ■ k tj. ./!★★★ Kvikmyndirjs 2 Ó.HX •7|\57 t .■\/S * SLHMP M.B.t? • *** Kvikmyndir.com 'pIR/TTES m
Sýnd kl. 5.40,8 og 10.20. B.i. 12. ára. Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. B.i. 10. ára.
HULK Sýnd kl. 5.30 Tilboð kr. 400. B.i. 12. ára.
NÓI ALBINÓI: Sýnd kl. 6. B.i. 12 ára. Enskur texti.
jT Breskir ★ SSll Bíódagar
PURE: Sýndkl.10, CROUPIER: Sýnd kl. 8.
THE MAGDALENE SIS:Sýnd kl.5.45 ALL OR NOTHING: Sýnd kl. 8.
PURELY BELTER: Sýndkl.8. BLOODY SUNDAY: Sýndkl.5.50.
PLOTS WITH A V.: Sýnd kl. 10.30. | | SWEET SIXTEEN: Sýnd kl. 10.
ALFABAKKI
Sýnd kl.4,6,8og 10.
Sýnd í Lúxus kl.5,7.45 og 10.15.
PIRATES OF THE CARRIBEAN
Sýnd kl.5.30 og 8.15 B.i. lOára.
STÓRMYND GRfSLA: Sýnd m.ísl.tali kl.4 og 6. |
BASIC: Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. ára. ÁSTRÍKUR: Sýnd m. ísl. tali kl. 3.50.
SINBAD: Sýnd m. ísl.tali kl. 4 og 6 SINBAD: Sýnd m.ensku.tali kl. 8.
KRINGLAN tS 588 0800
ÁLFABAKKI tS 587 8900
Cameron Diaz
ertekjuhæst
leikkvenna
Samkvæmt nýrri úttekt
Heimsmetabókar Guinness
fyrir árið 2004 er Charlies
Angels-stjarnan Cameron
Diaz nú tekjuhæsta leikkonan
í Hollywood, með um 25
milljónir punda í árstekjur en
það nemur um 3,2 milljörðum
íslenskra króna.
Diaz, sem er þrítug, hefúr
þar með skotið óskar-
verðlaunaleikkonum eins og
Júlíu Roberts, Halle Berry og
Nicole Kidman aftur fyrir sig á
listanum eftir mjög svo arðbær
hlutverk í myndum eins og
Gangs of New York og Shrek.
STJORNUGJÖF DV
Nói alblnói ★★★*
28DaysLater ★★★
Pirates of the Caribbean ★ ★★
Terminator 3 ★★★
HULK ★★★
Sindbað sæfari ★★lí.
Basic ★ ★
What a Girl Wants ★★
Bruce Almighty ★★
Hollywood Homicide ★★
Charlie's Angels: Full Throttle ★ ★
Matrix Reloaded ★★
Legally Blonde 2 ★Á
Lara Croft.... ★
Sögupersóna í lifanda lífi
KViKMV’NOAGAGNRYKi
Hilmar Karlsson
hkarl§dv.is
Croupier er ekki ný kvikmynd eins
og aðrar kvikmyndir á breskum bíó-
dögum. Hún er gerð 1998. Þegar hún
var fyrst sýnd hvarf hún einhverra
hluta vegna af markaðinum án þess
að tekið væri eftir því. Það er nú samt
svo að góðar kvikmyndir falla ekki í
gleymsku og þegar ljóst var að
Croupier ætti sér annað lff þá var
henni skellt aftur á markaðinn, flest-
um til gleði og ánægju því myndin er
sérstök og skemmúleg lýsing á
manni sem langar til að vera rithöf-
undur en á erfitt með að skrifa þar til
hann ákveður að skrifa út frá atburð-
um sem hann lifír.
Jack Manfred (Clive Owen) hafði
áður verið gjafari í spilavfú en fómað
starfinu vegna metnaðar úl að gerast
rithöfundur. Þegar ekkert gengur að
skrifa ræður hann sig aftur í spilavíti
og uppgötvar að hann á auðveldara
með að skrifa skáldsögu sem hann
byggir á reynslu sinni. Eftir því sem
líður á myndina verður hann síðan
GJAFARINN: Clive Owen kominn f ein-
kennisbúninginn.
Breskir dagarí Háskólabíó
Croupier
★★★
tengdari persónunni sem hann skrif-
ar um og þegar hann stendur á tíma-
mótum þá segir hann við sjálfan sig
að Jack hefði ekki gert þetta en Jake
(skáldsagnapersónan) hefði aftur á
móti gert það, og það er Jake sem
hefur vinninginn.
Jack er sögumaður í myndinni og
iýsir fyrir okkur einstakri veröld
spilavíta. Hann spilar ekki sjálfur -
veit hversu líkumar á vinningi em
litlar. Clive aftur á móti þrífst á að sjá
aðra tapa. Hann er slyngur í sínu
starfi, það slyngur að hann getur haft
örlög þeirra sem spila við hann á
sinni hendi kæri hann sig um. Jack er
kaldur persónuleiki sem gerir sér
grein fyrir því að hann getur aldrei
veitt unnustu sinni þá rómantík sem
hún vill. Hann telur sig ekki heldur
þurfa á spennu að halda í líf sitt. Það
verður þó hans hlutskipti að verða
óviljandi miðdepill spennandi at-
burðarásar því Croupier er ekki að-
eins áhugaverð kvikmynd um lífið í
spilavíti heldur einnig sakamála-
mynd með óvæntum endi.
Croupier er vel gerð og innhalds-
rík kvikmynd. Clive Owen smellpass-
ar í hlutverk Jacks og það er honum
að þakka, ásamt vel skrifuðu handriú
og styrkri leikstjóm Mike Hodges
(Get Carter, Murder By Numbers),
að Croupier er góð skemmtun.
Leikstjóri: Mike Hodges. Handrit: Paul
Mayersberg. Kvikmyndataka: Michael Gar-
fath. Tónlist Simon Fisher-Turner. Aðalleik-
aran Clive Owen, Gina McKee, Alex
Kingston og Katie Hardle.
Ungur maður á uppleið
KVIKMYNDAGAGNRÝNI
SifGunnarsdóttir
sif@dv.is
ímyndið ykkur ungan mann af
lægstu þjóðfélagssúgum sem er svo
hugmyndaríkur og duglegur að
vinna að yfirmaður hans tekur eftir
honum og gerir hann að skjólstæð-
ingi sínum. Ungi maðurinn fær
þannig kærkomið tækifæri til að
hjálpa fjölskyldu sinni fjárhagslega
og koma henni í betra húsnæði.
Þetta hljómar óneitanlega eins og
hver önnur Hollywood-draumasaga
en svo er aldeilis ekki. Ungi maður-
inn, Liam, býr í Glasgow og atvinnu-
greinin sem hann leggur metnað
sinn í er dópsala og það er ekkert fal-
legt eða upplífgandi við sögu hans.
Liam (Compston) er 15 ára. Hann
vinnur fyrir vasapeningum með því
að selja stolnar sígarettur. Hann er
kjaftfor en sjarmerandi, harður af
sér og klár. Efúr að geðvondur afi
hans og stjúpfaðir fleygja honum á
dyr býr hann með stóru systur sinni
sem er einstæð móðir. Liam á sér
einn draum: Að bjarga móður sinni
undan stjúpa og dópi þegar hún
losnar úr fangelsi á 16 ára afmælinu
hans. Til þess að draumurinn geti
ræst þarf Liam að koma þeim úr
hverfmu þar sem þau búa og til þess
þarf hann peninga - miklu meiri en
þá sem hann vinnur sér inn við sf-
garettusöluna. Möguleikarnir eru
ekki margir og hann, eins og svo
margir stórborgarkrakkar í vonlaus-
um aðstæðum, fer að selja dóp.
Breskir dagar í Háskólabíó
Sweet Sixteen
★★★"<
Það er magnað að fylgjast með
þróun Liams úr kjaftforum strák að
reyna að bjarga sér yfir í fullgildan
glæpamann. Smám saman sér mað-
ur samviskuna Ijara út þannig að á
endanum er hann, og þeir sem hann
elskar, það eina sem skiptir máli.
Þróunin er aldrei ósennileg því hvert
skref er vandlega undirbyggt með
atvikum sem smám saman breyta
lífsviðhorfi hans. Vandamál Liams
er ekki bara skortur á möguleikum;
systir hans Chantelle (Annmarie
Fulton) er með bein í nefinu og æú-
ar sér að komast upp úr ræsinu en
velur hina löngu og þymum stráðu
leið menntunar. Það sem Liam hef-
ur farið á mis við, og gerir hann að
svo auðveldri bráð fyrir glæpakóng
hverfisins, er algjör skortur á heil-
brigðu verðmætamati, og þegar það
birúst honum í bamingi systur hans
við að mennta sig og ala samtímis
upp bamið sitt án ofbeldis og eitur-
lyfjaneyslu finnst honum auðveld-
ara og eðlilegra að rækta draum sem
á sér enga stoð í raunveruleikanum
- að móðir hans breyti um persónu-
leika og hann verði ríkur og sjálf-
stæður af því að selja eiturlyf.
Compston, sem nú er að leika fyr-
ir Friðrik Þór, er frábær, eins og
reyndar allir leikarar í myndinni.
Ken Loach segir okkur söguna ber-
skjaldaða og án nokkurrar væmni.
Skoðanir hans em hreinar og klárar
og hann liggur ekkert á þeim: Jafn-
auðugt þjóðfélag og hið breska á að
tryggja börnum sínum mannsæm-
andi líf; allt annað er glæpur.
Leikstjóri: Ken Loach. Handrit: Paul Laverty.
Kvikmyndataka: Barry Ayckroyd. Tónlist
George Fenton. Aöalleikaran Martin Comp-
ston, Annmarie Fulton, William Ruane,
Michelle Coulter, Gary McCormack.
Lífíð .eftir
vinnu
*
FENJAVÍK: Opnuð hefur myndlistar-
sýning Andra Páls Pálssonarog
Brynju Guðnadóttur í Gallerí Undir-
heimum, Álafossvegi 31 í Mosfells-
bæ. Sýningin kallast Fenjavík og
samanstendur af Ijósmyndum og
innsetningu. Hún stendurtil 14.
september og er opin fimmtudaga
til föstudaga frá 15.00-18.00 og
laugardaga til sunnudaga frá
13.00-17.00.
KENNARAHÁSKÓLINN: Dr.James
Butler, prófessor í verndunarlíffræði
villtra dýra, er staddur hér á landi
ásamt kanadískum sjónvarpsmönn-
um. Árið 2001 hófst hann handa við
verkefni sem fólst í því að skrá niður
reynslu fólks af yfirnáttúrulegum
fyrirbærum. (kanadíska sjónvarpinu
er þáttur sem kallast Magnificent
Obessions og dr. Butler er gestur
hans. Sjónvarpsmennirnir fylgja
honum eftir í vikutíma þar sem
hann leitar heimilda um álfa og
gnóma hér á landi. (dag kl. 15 gefst
kostur á að hlusta á dr. Butler flytja
fýrirlestur í Bratta, nýjum fundarsal
Kennaraháskólans við Stakkahlíð.
Gengið er inn í salinn Háteigsvegs-
megin. Aðgangseyrir er 500 krónur.
UÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR:
Sýningunni Frumefnin fimm -
Ferðadagbækur Claire Xuan lýkur í
dag í Ljósmyndasafni Reykjavíkur,
Grófarhúsi, 6. hæð,Tryggvagötu 15.
Opiðerfrá 12-19. Aðgangurer
ókeypis.
GAUKUR Á STÖNG: Pétur Jesú og
félagar hans í Dúndurfréttum spila á
Gauknum í kvöld. Matseðillinn sam-
anstendur af bestu lögum hljóm-
sveitanna Pink Floyd og Led Zeppel-
in. Húsið opnað klukkan 21.
LISTASAFN SIGURJÓNS: Högg-
myndasýningin Meistarar formsins -
Úr höggmyndasögu 20. aldar hefur
verið opnuð í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar. Sýningin, sem kemur frá
Rfkislistasafninu í Berlín, var í Lista-
safninu á Akureyri í sumar og hlaut
mikla athygli. Nú fá Sunnlendingar
einnig möguleika á að sjá þessar
perlur eftir helstu módernista í evr-
ópskri höggmyndasögu. Á sýning-
unni verða einnig verk eftir braut-
ryðjendur íslenskrar höggmyndalist-
ar, þá Einar Jónsson, Ásmund
Sveinsson, Sigurjón Ólafsson og
Gerði Helgadóttur.