Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2003, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003
Af hverju að æfa líkamann?
Fallegur líkami eða vellíðan
LÍKAMIOG SÁL
Guðjón Bergmann
yoga@gbergmann.is
Þegar hausta tekur dusta fs-
lendingar rykið af æfingafötum
sínum og hellast inn í líkams-
ræktarstöðvarnar.
Markmiðin eru mörg og mis-
munandi en undirliggjandi ástæð-
an hjá langflestum er þyngdartap.
í byrjun, á háannatíma líkams-
ræktarinnar, er mikilvægt að
spyrja sig: Hvers vegna ætla ég að
hefja æfingar? Hvert er markmið-
ið? Hver er tilgangurinn?
Gott flæði um líkamann
Samkvæmt jógafræðunum snú-
ast líkamsæfingar um að halda
góðu flæði um helstu kerfi líkam-
ans. Með því að halda vöðvum
mjúkum og sterkum, liðum sveigj-
anlegum, öndunarfærum virkum,
góðu flæði um æðakerfið og hug-
anum vakandi með sterku tauga-
kerfi, myndum við grunninn að
heilbrigðum líkama. Nota má mis-
munandi ieiðir til að ná þessum
markmiðum en mikilvægt er að
líta á líkamann sem heild og taka
öll starfandi kerfi inn í myndina.
Gott flæði um líkamann styrkir
ónæmiskerfið og hefur þar af leið-
andi heilsueflandi og fyrirbyggj-
andi áhrif.
Ekki fötin sem menn vilja?
Margir virðast haldnir þeirri
hugmynd að hamingjan sé höndl-
uð með því að komast í föt sem
Við getum ekki enda-
laust haldið okkur í
sama líkamlega form-
inu. Hið óumflýjanlega
er að líkaminn mun
eldast og á endanum
deyja. Tilþessað
öðlast hamingju þarf
að hugsa jöfnum
höndum um líkama,
huga og sál.
eru nokkrum númerum minni eða
með því að líta betur út án fata.
Svo er ekki. Þegar ég vann sem
jógakennari á líkamsræktarstöðv-
um, áður en ég hóf minn eigin
rekstur, rakst ég hvað eftir annað á
fagurlega skapað fólk í góðu formi
sem upplifði stöðuga andlega
vanlíðan og varð óánægðara með
sjálft sig eftir því sem það æfði
meira þar sem viðmiðunarhópur-
inn var alltaf í betra formi. Á sama
tíma var þetta fólk að hvetja aðra
til dáða á þessu sviði og sór þess
eið að því hefði aldrei liðið betur.
Leita eftir vellíðan
Ég hvet fólk frekar til að leita eft-
ir vellíðan í gegnum líkamsæfing-
ar en að vera fast í skorðum mark-
miða og árangurstengdra sjónar-
miða um aukinn styrk, færri kíló
eða meiri liðleika. Með því að taka
ákveðiri skref, æfa reglulega og
leita eftir vellíðan frekar en skjót-
um árangri verður til ánægjulegur
lífsstfll sem hjálpar okkur að koma
jafnvægi á lífið. Við öðlumst sjálf-
krafa aukinn styrk og liðleika. Ef
maður lætur sér líða vel að lokinni
æfingu mun maður sjálfkrafa líta
betur út en ef maður vill bara líta
betur út er ekki endilega sjálfsagt
að manni muni líða betur.
Ytra útlit skilar sér ekki endilega
í innri vellíðan en innri vellíðan
skilar sér alltaf í meiri útgeislun.
Við getum ekki endalaust haldið
okkur í sama líkamlega forminu.
Hið óumflýjanlega er að líkaminn
muni eldast og á endanum deyja.
Á meðan við einblínum
um ofá útlitið er auð-
veldlega hægt að missa
sjónar á því sem skiptir
virkilega máli í lífinu. Á
sama tíma getum við
afsakað aðgerðaleysi
með því að segjast ekki
vilja stunda líkams-
dýrkun. Líkamanum
verður ekki viðhaldið
öðruvísi en með reglu-
legri hreyfingu.
Til þess að öðlast hamingju þarf
að hugsa jöfnum höndum um lík-
ama, huga og sál.
Líkaminn er skip á ólqusjó
lífsins
Jógaheimspekin kennir okkur
að hugsa um líkamann sem farar-
tæki. Við íslendingar erum sjó-
menn í eðli okkar og gætum því
hagnast á því að líta á lfkamann
sem skip. Sjómenn vita að mikil-
vægt er að halda við skipi, hafa
það sjófært, en ekki gengur að
hafa það í höfn og punta það dag-
inn út og inn. John A. Shedd sagði:
„Skip eru örugg í höfn - en skip
eru ekki byggð í þeim tilgangi."
Skip þurfa að vera sterk og þola
mislynd veður á Jífsins ólgusjó ef
þau eiga að skila okkur á leiðar-
enda. Það sama gildir um lík-
amann. Hann þarf að vera sterkur
og heilbrigður en útlitsdýrkun
mun óumflýjanlega enda með sár-
um vonbrigðum. Ef við setjum
jafnvægi í aðalhlutverk og hvorki
afneitum líkamanum né dýrkum
hann munum við ganga hinn
gullna meðalveg.
Á meðan við einblínum um of á
úditið er auðveldlega hægt að
missa sjónar á því sem skiptir
virkilega máli í lífinu. Á sama tíma
getum við afsakað aðgerðaleysi
með því að segjast ekki vilja
stunda líkamsdýrkun. Líkaman-
um verður ekki viðhaldið öðruvísi
en með reglulegri hreyfingu.
■ ■■■■■
HLEBSLU/-
f
Hraðskiptipatróna
..sparar tíma og eykur afköst!
ArmúU 17, lOB Reykfenrik
síml: 533 1334 fax: 55B 0499