Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2003, Page 8
8 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003
Vetnisvögnum seinkar
FRESTUN. Komu þriggja
vetnisknúinna strætisvagna til
landsins seinkar um einn mán-
uð. Upphaflega áttu vagnarnir
að koma nú um helgina en
þeir hafa að undanförnu verið í
prufuakstri í Þýskalandi. Hafa
komið upp tafir í framleiðslu-
ferlinu sem valda seinkuninni.
Koma vagnarnir því ekki til
landsins fyrr en í lok septem-
ber og verða formlega teknir í
notkun fimmta október. Búist
er við að þeir verði á leið tvö
og er ætlunin að hafa þannig
eina leið sem eingöngu verður
sinnt með vetnisknúnum
vögnum. Á næstunni verði
ökumenn þjálfaðir til að aka
bílunum.
Evrópusambandið greiðir 40%
af kostnaðinum við þetta til-
raunaverkefni sem fram fer í
tíu borgum Evrópu. Hver borg
fær þrjá vagna til reynslu og
eru borgirnar valdar með tilliti
til ólíkra staðhátta. Reykjavík er
eina borgin utan Evrópusam-
bandsins sem tekur þátt í
þessum tilraunum, en vagn-
arnir verða hér í tvö ár í til-
raunaakstri.
Yfirtökutilboð?
VlÐSKIPTl: Líkur eru á að félag
tengt Landsbankanum og Sam-
son kaupi eignarhluta Saxhóls,
eignarhaldsfélags Nóatúnsfjöl-
skyldunnar, í fjárfestingarfélaginu
Straumi. Fari svo eru Landsbank-
inn og tengd félög komin með
um 40 prósent eignarhlut í
Straumi. Fari hluturinn yfir40 pró-
sent verða þessir aðilar að gera
öðrum hluthöfum yfirtökutilboð.
IDOL-STJARNA: Og svo bara brosa.
DV-myndir Pjetur Sigurðsson
Idol - Stjörnuleit á Stöð 2:
1.400 manns
Idol - Stjörnuleit á Stöð 2 hefur
farið fram úr björtustu vonum
en 1.400 keppendur skráðu sig
til leiks og miðað við hina frægu
höfðatölu telja aðstandendur
að um heimsmet sé að ræða.
Áheyrnarpróf var á Hótel Loft-
leiðum um helgina og á Hótel KEA
á Akureyri viku sfðar. 100 keppend-
ur komast áfram í fyrstu umferð en
sfðan fækkar þeim f 32 og aðeins 9
fara í lokaúrslit. Sjónvarpsáhorf-
endur fá síðan að sjá upprennandi,
íslenskar poppstjörnur á föstu-
dagskvöldum. Fyrsti þátturinn af
Idol - Stjörnuleit fer í loftið á Gam-
anztöð Stöðvar 2 föstudaginn 19.
september. Kynnar eru hinir eld-
hressu Simmi og Jói sem gert hafa
garðinn frægan á PoppTíví.
Fyrsti þátturinn afldol
- Stjörnuleit fer í loftið
á Gamanztöð Stöðvar 2
19. september.
Fyrirmynd þáttarins er sótt til
Bretlands. Áskrifendur Stöðvar 2
þekkja þó bandarísku útgáfúna
best en American Idol sló í gegn
hérlendis fyrr á árinu. Það eru
Bubbi Morthens, Sigga Beinteins
og Þorvaldur Bjami Þorvaldsson
sem sitja í dómnefnd Idol-stjörnu-
leitar og þau eiga erfitt verkefni fyr-
ir höndum hkr@dvis SPENNA: Mikil eftirvænting og spenna var í loftinu á Hótel Loftleiðum á laugardaginn þegar fjöldi ungmenna mætti þar í áheyrnarpróf
vegna Idol-stjörnuleitar.
í áheyrnar-
próf
Á BEKKNUM: Stóra stundin að renna upp og áhyggjur af hvort menn muni standa sig
nógu vel farnar að hrúgast upp í kollinum.