Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2003, Qupperneq 24
40 TILVERA MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003
Stórafmæli
Islendingar Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Netfang: aettir@dv.is Sími: 550 5826 95 ára Guðmundur Tryggvason, Hlíðarhúsum 7, Reykjavík. 90 ára
Sextíu ára
Hjalti Jónsson,
Borgarhrauni 4, Grindavík.
Jóhanna Pálsdóttir,
Klausturhólum 2, Kirkjubklaustri.
85 ára
Margrét Níelsdóttir,
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
80ára
Dagbjört Jónsdóttir,
Mýrarkoti, Suður-Þingeyjarsýslu.
Sigríður Sveinsdóttir,
Mýrarvegi 111, Akureyri.
75 ára
Elsa Magnúsdóttir,
Einarsnesi 40, Reykjavík.
Högni Guðjónsson,
Miðtúni 1, Keflavík.
Sofffa Pétursdóttir,
Skálagerði 9, Reykjavík.
Sverrir Lúthersson,
Hellisgötu 16, Hafnarfirði.
Þorsteinn Hjartarson,
Stekkjarholti 18, Akranesi.
Þráinn Sigtryggsson,
Grundarbraut 26, Ólafsvík.
70 ára
Geirlaug Sigurðardóttir,
Asparfelli 10, Reykjavík.
60 ára
Anna Jóna Óskarsdóttir,
Ársölum 3, Kópavogi.
Árni Björn Steingrimsson,
Lækjargötu 13, Akureyri.
Daníel Jónsson,
Mýrarholti 3, Ólafsvík.
Hörður Ingimarsson,
Smáragrund 11, Sauðárkróki.
Kristfn Steingrfmsdóttir,
Blómvangi 15, Hafnarfirði.
Ófeigur Geirmundsson,
Logalandi 11, Reykjavík.
Sylvía Hróifsdóttir,
Hólabraut 16, Skagaströnd.
50ára
Eygló K. Sigurjónsdóttir,
Reykjavíkurvegi 48, Reykjavík.
Frímann V. Guðbrandsson,
Brennihlið 5, Sauðárkróki.
Guðbjört Sigrún Einarsdóttir,
Krókabyggð 26, Mosfellsbæ.
Guðrún Sigurrós Poulsen,
Austurhlíð 1, Selfossi.
Leifur Sörensen,
Smyrlahrauni 20, Hafnarfirði.
Mykola Vovk,
Vesturbergi 30, Reykjavík.
Pétur Amar Vigfússon,
Efstasundi 66, Reykjavík.
Sigurborg Jónsdóttir,
Spítalastíg 2b, Reykjavík.
Theódóra Jóna Þórarinsdóttir,
Nónhæð 1, Garðabæ.
Valgerður Ásta Kristjánsdóttir,
Aðalbraut 1, Dalvík.
Harald G. Haralds
leikari, tónlistormaður, þýðandi og verslunarmaður
Harald G. Haraldsson, leikari,
tónlistarmaður, þýðandi og versl-
unarmaður, Vesturgötu 22, Reykja-
vík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Harald fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann var í Miðbæjarskól-
anum, Hlíðardalsskóla, lauk lands-
prófi frá Gagnfræðaskólanum í
Vonarstræti, stundaði nám við
Leiklistarskóla Leikfélags Reykja-
víkur og lauk þaðan prófum 1969.
Harald söng með ýmsum dans-
hljómsveitum frá 1958-64, s.s.
Diskó-Sextett, KK-Sextettinum
1960-62, með Hljómsveit Andrésar
Ingólfssonar, Hljómsveit Finns Ey-
dals og loks með Hijómsveit Guð-
mundar Ingólfssonar. Hann var
jafnframt verslunarmaður við Hjól-
reiðaverslunina Örninn frá því á
unglingsárunum og til 1960, starf-
aði við Innkaupastofnun Reykja-
víkurborgar 1962-65, við Lands-
banka íslands 1965-69, var versl-
unarmaður í Erninum 1970-75, var
framkvæmdastjóri í Erninum
1979-90, var innkaupastjóri fyrir-
tækisins 1990-2000 og hefur stund-
að þýðingar og unnið við markaðs-
setningu frá 2001.
Harald var lengst af fastráðinn
leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur
1969-84, leikari hjá LR, Þjóðleik-
húsinu og ýmsum öðrum leikhús-
um, s.s. Alþýðuleikhúsinu og Kaffi-
leikhúsinu frá 1984, hefur leikið í
íjölda útvarpsleikrita, í sjónvarpi og
kvikmyndum, stundað talsetningu
fyrir kvikmyndir og auglýsingar,
hefur tekið þátt í fjölda skemmtana
á vegum Leikfélags Reykjavíkur, í
tónlistaruppákomum og í revíum.
Harald hefur leikið vel á fimmta
tug sviðshlutverka, s.s. dátann, í
Sögunni af dátanum, eftir Charles
Ramuz og Igor Stravinsky; Hemma,
í Hemma, eftir Véstein Lúðvíksson;
Natan, í Skáld-Rósu, eftir Birgi Sig-
urðsson; Garry, í Garry Kvartmillj-
ón, eftir Allan Edwald, Gvendó, í
Atómstöðinni, eftir Halldór Lax-
ness; Magnús í Bræðratungu, í ís-
landsklukkunni, eftir Halldór Lax-
ness; sögumanninn, í Blóðbræðr-
um, eftir Willy Russell, ogjason, í
Medeu, eftir Evrepítes, og s.frv.
Fjölskylda
Kona Haralds er Jóhanna K. Eyj-
ólfsdóttir, f. 19.3. 1954, fram-
kvæmdastjóri Amnesty Inter-
national á íslandi. Hún er dóttir
Eyjólfs K. Sigurjónssonar, nú lát-
inn, endurskoðanda, og k.h., Unn-
ar Friðþjófsdóttur húsmóður.
Dóttir Haralds er Helga Kristín
Haraldsdóttir, f. 24.3. 1968, mark-
aðsfulltrúi hjá EJS, búsett í Reykja-
vík, en maki hennar er Guðbjörg
Halldórsdóttir.
Börn Haralds og íyrrv. eiginkonu
hans, Guðnýjar Daníelsdóttur, eru
Daníel Ágúst Haraldsson, f. 26.8.
1969, tónlistarmaður í Brússel, en
kona hans er Gabriela Friðriksdótt-
ir listamaður og dóttir þeirra Danf-
ela, f. 2.12. 1989; Sara Haraldsdótt-
ir, f. 17.4.1971, nemi í Reykjavík, en
maður hennar er Jóhann Örn Geir-
dal nemi og er dóttir þeirrra ÁJfrún
Freyja, f. 2.11. 2000, auk þess sem
dóttir Söru er Margrét, f. 30.7.1996.
Sonur Haralds er Georg Haralds-
son, f. 8.12. 1976, tölvunarfræðing-
ur, búsettur í Reykjavík, en kona
hans er Bryndís Bjarnþórsdóttir
tölvunarfræðingur.
Hálfbróðir Haralds, samfeðra, er
Andlát
Grímur Örn Haraldsson, f. 18.12.
1938, vélsmiður í Garðabæ.
AJsystkini Haralds: Sólveig Har-
aldsdóttir Hart, f. 9.2. 1946, hús-
móðir í Birmingham á Englandi;
Sigríður Haraldsdóttir, f. 23.10.
1947, húsmóðir í Kópvogi.
Foreldrar Haralds: Haraldur S.
Guðmundsson, f. 9.1. 1917, d. 20.9.
1979, stórkaupmaður í Reykjavík,
og k.h., Sigurbjörg Bjarnadóttir, f.
20.10. 1924, húsmóðir og verslun-
armaður.
Ætt
Haraldur var sonur Guðmundar
Sveinssonar, verkamanns í Reykja-
vík, og Guðfinnu Magnúsdóttur.
Fósturfaðir Haralds Guðmunds-
sonar var Harald Gudberg, af
dönskum ættum, stofnandi hjól-
reiðaverslananna Fálkans og Arn-
arins.
Sigurbjörg er systir Kristjönu,
ömmu Magnúsar Stefánssonar
alþm. Sigurbjörg er dóttir Bjarna, b.
í MiJdaholtsseli í Miklaholtshreppi
á Snæfellsnesi, fvarssonar, og
Magndísar Benediktsdóttur.
Harald verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Gunnar Maggi Arnason
prentsmiðjustjóri í Reykjavík
Gunnar Maggi Árnason prent-
smiðjustjóri, Hálsaseli 20, Reykja-
vík, lést á Landspítalanum við
Hringbraut laugardaginn 23.8. sl.
Hann var jarðsunginn frá Grafar-
vogskirkju föstudaginn 29.8. sl.
Starfsferill
Gunnar Maggi fæddist 24
desember 1940 og ólst upp í
Reykjavík. Eftir hefðbundið barna-
og gagnfræðaskólanám hóf hann
nám 1959 í offsetprentun í Litho-
prenti. Hann tók sveinspróf 1964
og fékk meistarabréf 1969.
Gunnar Maggi starfaði síðan við
iðngrein sína í tvö ár í Glasgow í
Skotlandi og hér heima í prent-
smiðjunni Litbrá, uns hann stofn-
aði eigið prentfyrirtæki, Prent-
tækni, sem rak allt fram á síðasta
dag.
Gurinar Maggi tók virkan þátt í
félagsmálum offsetprentara og
seinna í störfum samtaka atvinnu-
rekenda, Félagi íslenska prentiðn-
aðarins og Samtökum iðnaðarins.
Hann var í sveinsprófsnefnd offset-
prentara um árabil.
Gunnar Maggi starfaði einnig
mikið fyrir hestamannafélagið Fák,
sat í nefndum og annaðist m.a.
herrakvöld þeirra Fáksmanna í
mörg ár. Hann sat í stjórn og var
varaformaður Fáks síðustu misser-
in.
Fjölskylda
Gunnar Maggi kvæntist 8.2.1964
Stefaníu Flosadóttur, f. 28.4. 1940.
Hún er dóttir hjónanna Margrétar
Laufeyjar Guðmundsdóttur, f. 11.5.
1902, d. 3.6. 1978, og Flosa Einars-
sonar, f. 25.1.1906, d. 12.11.1954.
Börn Gunnars Magga og Stefaníu
eru Margrét, f. 6.1. 1963, fram-
reiðslumaður, gift Þóri Sigfússyni, f.
19.7. 1959, deildarfulltrúa, en börn
þeirra eru Hildur María, Stefanía
Ósk og Guðrún Margrét; Árni, f.
18.12. 1968, framreiðslumaður;
Hulda Guðrún, f. 9.1. 1976, leik-
skólakennari sem leggur stund á
mannfræði í Amsterdam í Hollandi.
Systkini Gunnars Magga eru Vig-
fús Þór, f. 6.4. 1946, kvæntur Elínu
Pálsdóttur, f. 16.6. 1948; Halla Vil-
borg, f. 28.10.1948, giftÁsmundi Ei-
ríkssyni, f. 10.12. 1950; Rúnar Jón, f.
19.6. 1953, kvæntur Kristínu Eiríks-
dóttur, f. 7.6.1954.
Foreldrar hans voru hjónin Hulda
Halldórsdóttir, f. 10.5. 1920, d. 12.2.
2000, og Árni Vigfússon, f. 10.7.
1914, d. 16.4. 1982.
40 ára
Ari Árnason,
Helluvaði 4, Hellu.
Edda Björg Kristmundsdóttir,
Móholti 11, (safirði.
Helgi Helgason,
Víðimel 59, Reykjavík.
Jón Hörður Jónsson,
Löngumýri 15, Garðabæ.
Jónas Henningsson,
Hásteinsvegi 5, Stokkseyri.
Kolbrún Ýr Smáradóttir,
Vallartröö 7, Kópavogi.
Logi Sigurfinnsson,
Hljóðalind 11, Kópavogi.
Ragnar Magnús Gunnarsson,
Funafold 1, Reykjavík.
Reynlr Ólafsson,
Krummahólum 2, Reykjavík.
Andlát
Ágústa Sigurðardóttir Ringsted,
Víðilundi 10c, Akureyri, er látin.
Ingibjörg Þórstína Einarsdóttir
Rains frá Vestmannaeyjum, Beloit,
Wisconsin, Bandaríkjunum, lést á
Mercy Hospital í Janesville
sunnud. 17.8. Jarðarför hennar fór
fram í Rockford lllinois 21.8. sl.
Anna Inglbjörg Sigurðardóttir frá
ísafirði, Digranesheiði 21, Kópa-
vogi, andaðist miðvikud. 27.8.
Sigríður Sveinbjömsdóttir, Skál-
holtsvík, lést á Sjúkrahúsi
Hvammstanga aðfaranótt mið-
vikud. 27.8.
Sigurður R. Inglmundarson, Álf-
heimum 4, lést á gjörgæsludeild
Landspítalans miðvikud. 27.8. sl.
Jóhann E. Óskarsson lést
miðvikud. 27.8.