Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2003, Síða 30
46 TILVERA MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003
Pressan hélt Strokes við efnið
Alltaf best með Blur
TÓNLIST: Julian Casablancas,
söngvari New York-rokksveitar-
innarThe Strokes, segir að óttinn
við að mistakast hafi haldið hon-
um við efnið þegar sveitin vann
að nýrri plötu sinni. Nýja platan,
J sem mun heita Roon on Fire,
verður gefin út 20. október
næstkomandi en í byrjun októ-
ber kemur smáskífan 12:51.
Casablancas viðurkennir fúslega
að þeir hafi verið undir mikilli
pressu við gerð plötunnar, enda
voru vinsældir fyrstu plötunnar
þvílíkar að erfitt verður að toppa
það. Hann sagði: „Það er okkur
mikilvægt að klúðra ekki því sem
aðrar kynslóðir hafa fært okkur...
. Við erum venjulegir menn, ekki
allt of alvarlegir listamenn, en
við tökum það sem við gerum
mjög alvarlega."
TÓNLIST: Damon Albarn er sagð-
ur dvelja á íslandi um þessar
mundir og þegar eru komnar af
stað kjaftasögur af fylliríi hans í
bænum. Ef rétt reynist mun hann
vera hér í fríi eftir að hafa leikið á
stórum tónleikum með Blur að
undanförnu og hann virðist aftur
búinn að fá áhugann á þeirri sveit.
Hann er reyndar tilbúinn með fullt
af nýjum lögum sem hann ætlar
að nota á næstu plötu, Gorillaz, en
í nýlegu viðtali talaði hann um
hve gaman væri að spila með Blur:
„Það er ekkert sem getur komið í
staðinn fyrir þá tilfinningu að spila
á tónleikum með Blur. Þessi lög
okkar eru sum hver áratugargöm-
ul og það hefur verið afar gaman
að spila þau á tónleikum í ár og
sjá viðbrögðin og tilfinningarnar
sem þau hafa vakið hjá fólki."
Charles Bronson látinn
Einn mesti töffari kvikmyndanna
Charles Bronson lést aðfaranótt
sunnudagsins, 81 árs að aldri.
Bronson, sem áður var kolanámu-
maður, átti að baki 60 kvikmyndir,
meðal annars hinar vinsælu Death
Wish kvikmyndir þar sem hann lék
CHARLES BRONSON: Lék í hasarmyndum
með heilsan leyfði.
engil götunnar, sem lét til sín taka
eins og um eins manns her væri að
ræða.
Bronson lést úr lungnabólgu.
Hafði hann þá um nokkurt skeið
þjást af Alzheimer-sjúkdómnum.
Bronson var ávallt fámáll maður
sem flfkaði ekki einkalífi sínu á
borð fyrir aðra. Þó var hann um
tíma vinsælt slúðurdálkaefni
vegna skilnaðar og hjónabands.
Um hlutverk sín í kvikmyndum þar
sem hann var yfirleitt með byssu í
hönd eða lúberja andstæðingana
sagði hann eitt sinn í viðtali: „Ég
veit vel hvað mér þykir skemmti-
legt í kvikmyndum og það er ekki
Charles Bronson.
Ferill Bronson er langur og við-
burðaríkur. Hann hóf að leika und-
ir eigin nafni, Charles Buchinski, en
breytti því fljótt í Bronson. Árið
1972 var hann mesta aðdráttarafl
kvikmyndanna að mati þeirra sem
um slíkt fjalla í Hollywood.
Vinsældir Bronson náðu út um
allan heim og var það ekki síst í
Suður-Evrópu sem hann var dýrk-
aður. ítalir nefndu hann II Brutto,
sem þyðir Sá ljóti. Bronson var þrí-
giftur. Önnur eiginkona hans var
leikkonan Jill Ireland, sem lést eftir
langa baráttu við krabbamein árið
1990.
AFMÆLISBARN: Þegar fólk eldist er oft sagt - meira í gamni en alvöru - þegar það á af-
mæli að það sé „afmælisbarn dagsins". Þau orð öðlast þó meiri merkingu þegar Michael
Jackson á í hlut en alkunna er að hann hefur ekkert fullorðnast frá því að hann var vinsæl
barnastjarna og er þó orðinnn hálffimmtugur, en hann átti einmitt 45 ára afmæli á föstu-
daginn. Hann hélt upp á það í Orpheum-leikhúsinu i Los Angeles og bauð öllum sem
hann var viss um að samfögnuðu honum. Martin Bashir, sem gerði hina umdeildu heim-
ildamynd um Jackson, hefur tæpast verið boðið. Á myndinni má sjá Michael Jackson
syngja ásamt gestum We Are the World.
STELLA McCARTNEY: Faðir hennar, Paul
McCartney, leiddi hana upp að aitarinu.
Stella giftirsig
Einn þekktasti tískuhönnuður
heimsins, Stella McCartney, sem
er kannski enn þekktari fýrir að
vera dóttir Pauls McCartneys,
gekk í það heilaga um helgina. Sá
heppni heitir Alasdhairs Willis og
er bókaútgefandi. Bæði eru þau
31 árs gömul. Mikil leynd hvíldi
yfir atburðinum og var engum
blaðamönnum eða ljósmyndur-
um boðið til veislunnar. Talið er
að um hundrað gestir hafi verið á
boðslista. Á föstudaginn fór sá
kvittur um eyjuna Isle of Bute
undan Skotlandi að eitthvað mik-
ið væri á seyði, fræga fólkið
streymdi að og tveimur klukku-
stundum fyrir brúðkaupið sást til
Pauls McCartneys og Chris Mart-
ins úr Coldplay og fleiri gesta að
fá sér bjórkollu á kránni Kingarth.
Meðal þeirra sem komu síðan í
biúðkaupið voru Madonna og
eiginmaður hennar, Guy Ritchie,
Liv Tyler, Kate Moss, Chrissie
Hynde, Tom Ford og Pierce
Brosnan.
Tfc
ft
SALMA HAYEK: Hayek mætti á sérstaka
barnasýningu í Feneyjum á Spy Kids: 3-D
og setti upp þrívíddargleraugu.
WOODY ALLEN: Opnunarkvikmynd hátíðarinnar var nýjasta kvikmynd Woodys Allens,
Anything Else. Allen mætti til Feneyja og sést hér með aðalleikkonu sinni, Christinu Ricci.
JOHNNY DEPP: Komtil
Feneyja til að fylgja eftir
nýjustu kvikmynd sinni,
Once Upon aTime in
Mexico, sem Robert
Rodriguez leikstýrir.
Fræga fólkið í Feneyjum
Kvikmyndahátíðin í Feneyjum hófst í síðustu viku og
mun standa til 6. september. Þótt hátíðin hafi ekki
sama aðdráttarafl og sú í Cannes, drífur að fjölda kvik-
myndastjarna til að kynna nýjustu kvikmyndir sínar,
sýna sig og sjá aðra enda ljósmyndarar á hverju strái.
Opnunarmyndin í ár var nýjasta kvikmynd Woodys
Allens, Anything Else, og mætti hann í eigin persónu
til að vera viðstaddur sýninguna. Þetta er í fyrsta sinn
sem hann mætir í Feneyjum en í áttunda sinn sem
mynd eftir hann er frumsýnd þar.
Allen ávarpaði gesti á frumsýningu og sagði meðal
annars að hann væri ekki kvikmyndahátíðarmann-
eskja, „en þar sem Italir og Frakkar hafa stutt vel við
SYLVESTER STALLONE: Stallone stillir sér upp fyrir Ijósmyndara.
Hann mætti til að fylgja Spy Kids: 3-D eftir.
OMAR SHARIF: Omar Sharif var með þeim fýrstu sem komu til
Feneyja þar sem hann fær afhent heiðursverðlaun.
bakið á mér (kom á síðustu kvikmyndahátíð í Cannes)
finnst mér ég skulda þeim að mæta. Auk þess sjá þeir
sem þekkja mínar kvikmyndir að ég hef blygðunarlaust
stolið frá snillingum á borð við Fellini, De Sica og Ant-
onioni."
Ekki keppir kvikmynd Allens til neinna verðlauna,
sem er kannski eins gott því að dómar hafa ekki verið
vinsamlegir. Þess má geta að á Breskum bíódögum í
Reykjavík er sýnd The Magdalene Sisters, eftir Peter
Mullen, sem sigraði á hátíðinni í fyrra og fékk Gullljón-
ið.
hkarl@dv.is