Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 17
76 TILVERA ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 TILVERA 17 Tilvera Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl Netfang: tilvera@dv.is Sími: 550 5813-550 5810 Britney Spears rauk á dyr í viðtali Popp-beibið og mjaðmahnykkj- arinn Britney Spears á að sögn að hafa rokið út úr viðtali hjá bresku sjónvarpsstöðinni Channel 4 eftir að stjórnandinn, Simon Amstell, hafði móðgað hana með því að segja að hann teldi hana klikkaða og síðan spurt hana hvort hún notaði megrunarpillur. Umræddur Simon, sem er þekktur fyrir sína brengluðu kímnigáfu, hitti Spears í New York og var ætlunin að sýna við- talið í toppþættinum, Popworld. Fíflalæti Simons, sem var ætlað að kalla fram bros, munu hafa farið illa í Spears sem rauk á dyr eftir áðurnefndar glósur. Haft er eftir Spears að henni hafi þótt framkoma Simons móðg- andi og spurningar hans hafi verið bæði kvikindis- og rugl- ingslegar. Sagt er að upptökum hafi verið eytt að kröfu Spears en talsmað- ur hennar sagði að allt byggðist þetta á misskilningi. Viðtalið hefði aðeins verið stytt og Spears væri ánægð með það. Ryder trúir á sakleysi Memphis-tríósins Vandræðaleikkonan Winona Ryder, sem nýlega var fundin sek um búðahnupl, er farin að ganga með armband til heið- urs þremur ungum mönnum sem dæmdir voru fyrir morð en hún telur saklausa. Um er að ræða þá Damien Echols, Jason Baldwin og Jessie Miskelley, eða Memphis-tríóið, en þeir voru handteknir og dæmdir fýrir morð á þremur átta ára drengjum árið 1993 þegar þeir sjálfir voru á unglingsaldri. Talið var að hinir myrtu hefðu verið fórnarlömb trúarathafnar en Ryder og fleiri Hollywood- stjörnur, eins og Eddie Vedder og Johnny Depp, trúa á sak- leysi þeirra og hafa barist fyrir því að mál þeirra verði tekið upp. Ryder hefur látið grafa nöfn piltanna og handtökudag á umrætt armband. „Ég hugsa til þeirra á hverjum degi og trúi að þeir séu saklausir. Ég mun ekki hætta fyrr en þeir eru lausir," sagði Ryder en efasemdir um sekt mannanna vöknuðu eftir að heimilda- mynd var gerð um málið árið 1996. Stjörnur í Frans Bandaríska leikkonan Holly Hunter og leikstýran Catherine Hardwicke voru meðal gesta á amerísku kvikmyndahátíðinni í Deauville á Ermarsundsströnd Frakklands. Þær Holly og Catherine sjást hér koma til frumsýningar myndarinnar Þrettán sem þær unnu saman að. Ameríska hátíðin i Deauville er árlegt fyrirbæri og nýtur mik- illar virðingar í kvikmyndaheim- inum enda keppast allar stór- stjörnurnar við að sýna sig þar og sjá aðrar. KVIKMYNDIR HELGIN 12.-14.SEPT. Sætl Fyrlr viku Titill Innkoma, helgin Innkoma alls Fjöldi bíósala 1. - ONCE UPON A TIMEIN MEXICO 23.424 23.424 3282 2. - MATCHSTICK MEN 13.087 13.087 2711 3. CABIN FEVER 8.633 8.633 2087 4. 1 DICKIE ROBERTS 5.042 12.871 2083 5. 3 PIRATES OF THE CARRIBEAN 4.506 287.884 2029 6. 4 FREAKY FRIDAY 4.061 101.971 2567 7. 2 JEEPERS CREEPERS 2 3.019 31.865 2784 8. 8 SEABISCUIT 2.754 113.606 2102 9. 5 S.W.A.T 2.708 112.791 2062 10. 7 OPEN RANGE 2.706 53.482 2063 11. 10 UPTOWN GIRLS 1.403 35.496 1425 12. 9 FREDDY VS. JASON 1.387 80.539 1577 13. 6 THE ORDER 1.140 6.845 1975 14. 11 AMERICAN WEDDING 1.137 102.486 1011 15. LOST IN TRANSLATION 925 925 23 16. AMERICAN SPLENDOR 840 3.871 272 17. 12 THE MEDALLION 835 21.252 990 18 13 THE ITALIAN JOB 791 104.733 980 19 20 FINDING NEMO 636 334.702 624 20. 18 WHALE RIDER 632 19.100 15 ALLAR UPPHÆÐIRIÞÚSUNDUM BANDARlKJADOLLARA El Mariachi vinsæll Eins og við var að búast urðu vin- sældir Dickie Roberts, fyrrum barnastjörnu, endasleppar og að- sóknin minnkaði um rúm 50% milli helga. í efsta sætið skýst hins vegar nútímavestrinn Once Upon a Time in Mexico, nýjasta kvikmynd Ro- berts Rodriguez, þar sem E1 Mari- achi er mættur í þriðja sinn. Anton- io Banderas leikur byssumann sem hefur það fyrir sið að geyma vopn sín í gítarkassa. Myndin hafði af- gerandi yfirburði í aðsókn um helg- ina og helsti keppinautur hennar, Matchstick Men, var nokkuð langt fyrir aftan hana. Sú mynd skartar Ridley Scott sem leikstjóra og Nicolas Cage í aðalhlutverki. I henni segir frá tveimur svindlurum sem eru í miðri stóraðgerð þegar dóttir annars þeirra skýtur upp kollinum og setur strik í reikning- inn. Þriðja nýja kvikmyndin, sem vermir þriðja sætið, er unglinga- hryllingurinn Cabin Fever. Hún ONCE UPON AT1MEIN MEXICO: Antonio Banderas með byssuna í gítarkassanum. fjallar um ungmenni sem eru innikróuð á stað þar sem mannætuskrímsli hefur komið sér fyrir. Sjóræningjamyndin Pirates of the Caribbean heldur áfram að fá mikla aðsókn og nálgast 300 millj- óna dollara markið. Hún mun samt ekki hafa það að ná teiknimyndinni Finfing Nemo sem er aðsóknar- mesta kvikmynd ársins. Lífið í háloftum Hin ágæta spennumynd Phone Booth laumaði sér upp í efsta sæti myndbandalistans og skildi eftir tvær nýjar myndir sem urðu að sætta sig við annað og þriðja sætið. Önnur þessara mynda er gaman- myndin View from the Top, þar sem Gwyneth Paltrow leikur metn- aðarfulla flugfreyju. Leikur hún Donnu Jensen, smábæjarstúlku með drauma um að verða flug- freyja á fyrsta farrými. Er hún tilbú- in að gera hvað sem er til að láta draum sinn rætast. En að láta drauma sína rætast getur verið erfitt eins og hún á eftir að kynnast. Hún fær aðeins vinnu til að byrja með hjá lidu flug- félagi sem flýgur á milli tveggja smá- borga. Donna fer síðan á námskeið þar sem heldur betur er líf í tusk- unum og smátt og smátt fer eitthvað af draumum hennar að rætast. Það eru margir þekktir leikarar sem eru í minni hlutverkum. Má þar nefna Christine App- legate, Kelly Preston, Mark Rufolo, Candice Bergen og Mike VIEW FROM THE TOP: Gwyneth Paltrow og Kelly Preston (flugfreyjubúningum. Myers sem leikur leiðbeinanda á námskeiðinu. MYNDBÖND VIKAN 8.-14. SEPT. Sætl Áöur Tltill Vikurá lista 1. 2 PHONEBOOTH 2 2. - SHANGHAI KNIGHTS 1 3. - VIEWFROMTHETOP 1 4. 1 MAIDIN MANHATTAN 3 5. 4 NARC 3 6. 5 TWO WEEKS NOTICE 6 7. 7 HUNTED 5 8. 3 LOTR:THE TWO TOWERS 3 9. 6 JUST MARRIED 6 10. 8 THE RING 4 11. 9 NATIONAL SECRETARY 7 12. 10 CHICAGO 4 13. 13 THE PIANIST 6 14. 11 ANALYZE THAT 7 15. - ANTWONE FISHER 1 16. 17 ADAPTATION 3 17. 14 SOLARIS 3 18. 12 FINAL DESTINATION 2 5 19. 15 BLUECRUSH 2 20. 16 LIFE OR SOMETHING LIKE IT 5 segir Anna Heiða Pálsdóttir bókmenntafræðingur DoktorAnna Heiða Pálsdóttirstarfaral- eln áskrifstofu Alcoa í Reykjavík. Hún þýddi hlna nýju bók, Galla- buxnaklúbburinn, ogermannafróð- ust um Harry Potter hérálandfheldur m.a. úti vefsíðunni: http://www.mmedia.is /ah/harry.htm „Ég hef verið með íslensku síð- una um Harry Potter í þrjú ár og ef ég uppfæri hana ekki nógu reglu- lega er ég alveg látin vita af því og mér sagt til syndanna," segir Anna Heiða hlæjandi. „Þarna eiga krakkarnir að geta nálgast allar fréttir af þessum vini sínum, enda gerði ég þessa síðu til að efla barnabókmenntir, m.a. svo að þeir sem skrifa ritgerðir um Harry Potter gætu nálgast þar ýmiss konar efni.“ Minni úr gömlum ævintýrum Anna Heiða var nýlega með fyr- irlestra eða örnámskeið um þenn- an vinsæla galdrastrák á vegum Endurmenntunarstofnunar og voru þau mjög vel sótt. „Það er ánægjulegt að sjá krakka draga foreldra sína á fyrirlestra í Háskól- anum og gaman að verða vitni að því hversu dugleg þau eru 5 bera fram spurningar f fullum af fólki. Ég er hrædd um að maður hefði ekki verið svona burðugur sjálfur á þessum aldri,“ segir hún. En hvaða skýringar hefur hún á vin- sældum Harrys Potters? „Joanne Rowling leikur sér að alls konar hugmyndum og tekur minni úr ævintýrum þegar hún skrifar Harry Potter. Það er til dæmis margt líkt með honum og öskubusku. Persónunni er í upp- hafi sýnt óhugnanlegt óréttlæti, maður fær strax samhug með henni og óskar þess af heilum hug að hún fái uppreisn æru, verði sig- urvegari. Þetta hafa ævintýrin gert í gegnum tíðina og þannig er það með Harry Potter. Meðal annars þess vegna er hann svo vinsæll. Það má finna samsvörun með hon- um og Hans og Grétu, sem ekki fengu að alast upp hjá foreldrun- um, líka litla ljóta andarunganum, sem uppgötvar um síðir að hann er svanur, og Mjallhvíti sem elst upp hjá vondu stjúpunni." Höfundurinn kemst ekki út fyrir dyr - En hvað er nýtt að frétta af Harry Potter og höfundi hans? „Strax eftir að nýjasta bókin kom út sat Rowling fyrir svörum í Royal Albert Hall, í beinni útsendingu á Netinu. Þar kom margt skemmtilegt fram, til dæmis að þegar hún hefði lesið upp úr fýrstu bókinni hefðu birst tvær hræður í búðinni og starfsfólk verslunarinnar vorkennt henni svo mikið að það kom líka til að hlusta. Nú þýðir ekkert fyrir hana að reyna að hafa upplestur. Það fer allt á annan endann. Fyrstu bæk- urnar voru handskrifaðar og hún elskar að sitja á kaffihúsi með blokk og penna en það er vonlaust fyrir hana síðan hún varð svona fræg. Hún er eiginlega hætt að geta farið út fýrir dyr." - Situr hún þá ekki bara inni og pikkar næstu bók? „Jú, og hún hefur lfka tekið virk- an þátt í kvikmyndagerðinni. Nýr leikstjóri hefúr verið fenginn að þriðju myndinni, hann heitir Cu- arez og er mexíkóskur. Sænskur blaðamaður, sem fékk að vera við- staddur tökur í útjaðri London, sá sama atriðið tekið nítján sinnum áður en leikstjórinn varð ánægður svo að hann virtist vandvirkur. Cu- arez leyfir sér líka að breyta ýmsu. Nú sést Hermione í þröngum bol ANNA HEIÐA' „Það er ánægjulegt að sjá krakka draga foreldra sína á fyrirlestra í Háskólanum og gaman að verða vitni að því hversu dug- leg þau eru að bera fram spurningar ífullum sal af fólki." DV-mynd ÞÖK og gallabuxum en í fýrri myndun- um voru krakkarnir alltaf í gamal- dags skólabúningum." - Veistu hvenær búist er við næstu bók? „Það var rekið svo mikið á eftir Rowling með síðustu bók að hún vill ekki gefa upp hvenær næsta er væntanleg en hún er byrjuð á henni. Það á að verða sú næstsíð- asta en hún er þegar búin að skrifa lokakafla síðustu bókarinnar.“ Góð saga um fjórar steipur - Segðu okkur nú aðeins frá Gallabuxnaklúbbnum? „Já, það er skemmtileg og góð saga um fjórar stelpur. Ein þeirra á gallabuxur sem þær passa allar í og ákveða að skiptast á um. Stúlkurn- ar fara hver í sína áttina en við fylgj- um hverri og einni þann tíma sem hún hefur gallabuxurnar. Sagan hefur notið gríðarlegra vinsælda víða og verið er að kvikmynda hana. Svo er komið framhald sem ég er byrjuð að þýða. Ég hafði áður þýtt bækurnar Gyllta áttavitann, Lúmska hnífinn og Skuggasjónauk- ann eftir Philip Pullman. Það eru dáiítil viðbrigði að fara úr bresku fantasíumáli f bandarískt nútíma- mál en spjallrásir um Harry Potter sem ég les reglulega, hjálpuðu mér og svo líka áhorf á vinsæla ung- lingaþætti, Friends og fleiri. Harry Potter fyrirlestur í Fjarðabyggð Anna Heiða er doktor f barna- bókmenntum frá breska háskólan- um University Worcester. En hvernig datt henni í hug að ráða sig hjá Alcoa? „Ég útskrifaðist í október 2002 og var að leita mér að starfi. Ég fékk ekki kennslu við háskólana og eftir að hafa kynnt mér fýrirtækið Alcoa, meðal annars stefnu þess í um- hverfismálum, þá ákvað ég að sækja um. Mér til undrunar var ég valin úr 200 manna hópi og þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf. Ég þekkti ekki til í Fjarða- byggð áður, en finnst yndislegt að kynnast staðnum og fólkinu fýrir austan. Ég hef meira að segja verið beðin að vera með Harry Potter fyr- irlestur þar og ætía að slá til.“ gun@dv.is Listamenn hittust oq Það var létt yflr hópnum sem hittist á laugardaginn var og minnt- ist þrjátíu ára útskriftarafmælis úr Myndlista- og handíðaskóla fs- lands. Þetta var fýrsti hópurinn sem gekkst undir inntökupróf í þann skóla, það er árið 1969, og hann hefur plumað sig vel í listinni allar götur síðan. Upphitunarpartí var í hinu nýja galleríi Sjafnar Har við Skólavörðustíginn og svo var haldið í miðborgina og snætt á veit- ingahúsinu Caruso. Að sjálfsögðu fengu makar og kennarar að taka þátt í gleðinni. Gamli skólastjórinn, Hörður Ágústsson, kom þó ekki en sendi skeyti og hið sama gerði Bjöm Th. Björnsson. Bragi Ásgeirs- son mætti hins vegar og var vel fagnað. gun@dv.is LANGFERÐAFÓLKIÐ: Þau komu alla leið frá Svíþjóð til að hitta LILLURNAR: Þau voru yngst í bekknum, Sjöfn Har, Áskell Másson gömlu skólasystkinin, Sigrún Sverrisdóttir, Sigríður Þórisdóttir og Gunnhildur Pálsdóttir. myndlistarkennari og Magnús Sæmundsson. kættust Á GÓÐRI STUND: Magnús Kjartansson, Sigríður Búadóttir, Áskell Másson, Kogga, Bragi Ásgeirsson, Sjöfn Har, SigurðurTómasson og Steinunn Bergsteinsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.