Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 DVSPORT 31 Gylfi skoraði KNATTSPYRNA: Gylfi Einars- son skoraði fyrsta mark Lil- lestrom sem vann mikilvægan sigur, 3-1, á Brann í norsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu í gær. Brann hafði gengið vel fyrir þennan leik og ekki tapað í sjö leikjum í röð. Gylfi fékk fimm í einkunn hjá norska net- miðlinum Nettavisen fyrir frammistöðu sína í leiknum. Halldóra tekur við KR KNATTSPYRNA: Halldóra Sig- urðardóttir hefur tekið við þjálfun íslandsmeistara KR í Landsbankadeiid kvenna af Vöndu Sigurgeirsdóttur sem ákvað að hætta með liðið eftir að hafa stýrt því til tveggja meistaratitla á undanförnum tveimurárum. Halldóra hefur mikla reynslu af þjálfun hjá félaginu en hún var aðstoðarmaðurVöndu árið 2002 auk þess sem hún hefur stýrt öðrum og þriðja flokki hjá félaginu með góðum árangri. Halldóra tekur við góðu búi frá Vöndu enda varð liðið íslands- meistari með ellefu sigra og þrjú jafntefli ífjórtán leikjum í sumar þrátt fyrir að lenda í miklum vandræðum með meiðsli. Platini kemur KNATTSPYRNA: Franski knattspyrnusnillingurinn Mich- ael Platini verður heiðursgest- ur á lokahófi íslenskra knatt- spyrnumanna sem fram fer á Broadway þann 4. nóvember næstkomandi. Platini, sem kemur ásamt konu sinni,Christele, situr í Fram- kvæmdastjórn UEFA ásamt Eggerti Magnússyni. Einar tryggði sér endúró-titilinn Það leit ekki út fyrir að veð- urguðirnir væru hliðhollir þeim 64 keppendum sem mættir voru á lokakeppnina um DV Sport ís- Ilandsmeistaratitilinn í endúró. Það hafði verið stanslaus rign- ing alla nóttina fyrir keppni og þar sem brautin, 9,5 km löng, hafði verið lögð daginn fyrir keppni voru á sumum stöðum tjarnir, allt upp í 100 metra lang- ar og breiðar. Eftir að keppendurnir 64 höfðu farið 1 prufuhring í brautinni á eftir keppnisstjórn sem þurfti að breyta brautinni lítillega á nokkrum stöðum til að komast fram hjá verstu tjörnunum var stiilt upp í ræs hjá meistaradeild, en í meist- aradeild voru mættir 27 keppendur. Á meðal keppenda var Svíi ac) nafni Morgan Carlson, en hann var á meðal keppenda í motocross- keppninni á Álfsnesi þegar Vél- Brautin varð erfiðari og erfiðari með hverj- um eknum hring og voru keppendur farnir að festa sig ansi víða í brautinni. hjölaíþróttaklúbburinn vígði keppnissvæði sitt þar. Morgan var þá annar í öllum keppnunum og var því nokkur eftirvænting um það hvað hann gæti í endúró. Eftir prufuhringinn sagði hann að þetta væri það hrikalegasta sem hann hefði komið nálægt og er skemmst frá því að segja að árangur hans var eftir því. Einar Sigurðarson sem ekur KTM-hjóli varð efstur að stigum fyrir þessa keppni og þar af leiðandi ræstur fremstur, Viggó Viggósson, sem ekur TM-hjóli, var annar og Haukur Þorsteins þriðji á Yamaha. Einart tók strax forystuna, hélt henni alla keppnina og sigraði með 5 ekna hringi á 95,27 mín. Annar varð Haukur Þorsteins á 97,52 mín °g Viggó Viggósson varð þriðji á 102,15 mín. Þessi sigur Einars gerði vonir Viggós um að ná af honum ís- landsmeistaratitlinum ansi litlar en ef Viggó átti að ná titlinum hefði orðið Einar að vera neðar en í tí- unda sæti í seinni keppninni. I Baldursdeild, sem ekur í 55-60 mín. og bara eina keppni, var mun meiri barátta um heildarsigur og voru það átta efstu sem áttu góðan möguleika á að sigra deildina, en 37 keppendur voru skráðir til keppni. Eftir fyrsta hring kom Þór Þor- steinsson fyrstur og hélt hann for- ystunni báða hringina og sigraði. Annar varð Jóhann Guðjónsson og þriðji varð Sigurður Magnússon. Jó- Eftir prufuhringinn sagði hann að þetta væri það hrikalegasta sem hann hafi komið nálægt. hann Guðjónsson varð þar með sig- urvegari í Baldursdeild 2003 með 185 stig. Seinni umferðin í meistaradeild var svo ekin öfugan hring miðað við fyrri keppnina og hafði fækkað tals- vert í hópnum, en aðeins 15 voru ræstir í seinni umferðina. Eftir fyrsta hring var Viggó með nokkra forystu, annar var Einar og í þriðja sæti var Gunnlaugur R. Björnsson. Var að sjá að flugmaður- inn hefði fundið fluggírinn því að hann virtist hreinlega fljúga yfir pollana í byrjun keppni, en þetta voru bara fyrstu 15-20 mín. af löng- um 90 mín. því að brautin varð erf- iðari og erfiðari með hverjum ekn- um hring og voru keppendur farnir að festa sig ansi víða í brautinni. Viggó Viggósson hélt forystunni alit til loka og sigraði örugglega á tím- anum 98,34 mín. en annar varð Ein- ar Sigurðarson á 105,07 mín. og Haukur Þorsteinsson varð þriðji á tímanum 106,46. Þetta olli því að Einar hélt fs- landsmeistaratitlinum annað árið í röð með 555 stig og annar var ð Viggó Viggóson með 502 stig og Haukur Þorsteinsson þriðji með 452 stig. HJ TVEIR BESTU: Á efri myndinni sést Einar Sigurðssori á KTM-hjóli sínu í keppninni í Húsmúla í gær en hann tryggði sér (slandsmeistaratitilinn í DV Sport endúrókeppninni á þessu tímabili auk þess sem lið hans, KTM, bar sigur úr býtum í liðakeppninni. Á neðri myndinni erViggó Viggósson áTM-hjóli en hann sigraði í seinni umferðinni. Hann hafnaði hins vegar í öðru sæti á Islandsmótinu samanlagt. DV-myndir Sigurður Jökull

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.