Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 12
72 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 MANNHAF: Mannfólkið var í meirihluta í almenningi Reykjaréttar. Víða réttað á Suðurlandi um helgina: Fé af fjalli í skugga tekjurýrnunar bænda Haustréttir voru víða á Suður- landi um helgina. í Hruna- mannahreppi réttuðu bændur á föstudag, síðan var bæði rétt- að í Tungunum og á Skeiðum á laugardaginn. Fjölmenni var í Reykjarétt á Skeiðum. „Fólkið er mun íleira en féð,“ sagði einn góðbóndinn af Skeiðunum. Margir hafa það að föstum lið á hverju ári að koma í réttir og upplifa stemninguna sem því fylgir. „Hér höfum við komið áratugum saman og það er alltaf jafn gaman. Við höfum þessa föstu liði eins og venjulega. Förum í al- menninginn og fáum réttu tilfinn- inguna fyrir mannlífinu og fénu. Sfðan fáum við okkur nesti, sem er fastur liður í ferðinni. Ómissandi þáttur í réttarferðinni," sögðu rétt- SAMBÖND TRYGGÐ: Haraldur Haraldsson heilsaði upp á bændur (Reykjarétt. argestir sem voru að snæða nestið undir réttarveggnum. Áfram hist þótt féð hverfi „Féð og lömbin eru góð í heild- ina en eins og oft eru smá lömb innan um,“ sagði Aðalsteinn Guð- mundsson á Húsatóftum, fjall- kóngur þeirra Skeiðamanna. Fjár- bændum hefur farið fækkandi á undanförnum árum. Framleiðslan fer minnkandi og afkomu greinar- innar fer sífellt hrakandi. Fyrir skemmstu var bændum tilkynnt um enn frekari lækkun á innleggi haustsins frá í fyrra og hækkun á útflutningskvótanum. Þetta segja bændur að þýði um 16-18% tekju- lækkun á innleggi haustsins. - En með hvaða hug koma menn í réttir og draga fé sitt undir þessum tíðindum? „Það er ekki hægt að sjá að hugur fólksins í réttum hafi nokkuð breyst, það er ákveðin menning að koma í þær. Ég er viss um að þó að allt fé yrði skorið niður yrðu áfram haldnar réttir hér. Norður í Svarfaðardal var allt fé ALLIR HJÁLPAST AÐ: Stefán og Erlingur Snær að draga. skorið niður vegna riðu fyrir mikil mæting. Jafnvel meiri en áður nokkrum árum. Þar héldu menn þó var,“ sagði Aðalsteinn Guðmunds- áfram í réttardaginn og þar var son á Húsatóftum. -NH GÓÐBÆNDUR: Bændur kepptust við að draga fé sitt í dilka. KÓNGAR: Ingunn Guðmundsdóttir, sveitarstjóri Gnúpverja- og Skeiðahrepps, og Aðal- steinn Guðmundsson á Húsatóftum, fjallkóngur Skeiðamanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.