Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 6
06 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 Veruleg aukning einkaneyslu Frítt í strætó? SAMGÖNGUR: Borgarverkfræð- ingur hefur varpað fram þeirri hugmynd að framhaldsskóla- nemendur fái frítt í strætó tvisvar á dag gegn framvísun skólaskírteinis í þeirri von að það dragi úr umferðarþunga einkabíla. Bifreiðaeign hér- lendis er orðin hlutfallslega meiri en í Bandaríkjunum og umferðarþungi eykst stöðugt. EFNAHAGSMÁL Fjárfesting óx nú um ríflega 17% og er þetta í fyrsta skipti í tvö ár sem fjár- festing vex. Samkvæmt tölum Hagstofu (slands hefur einka- neysla aukist hröðum skrefum það sem af er ári og vegur nú þyngst í aukinni landsfram- leiðslu. Landsframleiðsla er tal- in hafa vaxið um 2,7% að raun- gildi á 2. ársfjórðungi 2003 miðað við sama fjórðung fyrra árs. Þetta er lítils háttar breyt- ing frá 1. ársfjórðungi en þá er talið að hagvöxturinn hafi numið 3,1%. Einkaneysla veg- ur þyngst í landsframleiðslunni og jókst hún um 7,4% á öðrum ársfjórðungi 2003 samanborið við um 5,2% vöxt á fyrsta árs- fjórðungi 2003. Þessa miklu aukningu í einkaneyslu má að stærstum hluta rekja til aukins innflutnings á vöru og þjón- ustu. Samneysla jókst um 5,1% á 2. ársfjórðungi 2003. Það er heldur meiri aukning en á 1. fjórðungi ársins en vöxturinn er þó sambærilegur og verið hefur undanfarin ár. Óánægja á LSH ATVINNA: Einungis um þriðj- ungur starfsmanna í yfirstjórn Landspítala-háskólasjúkrahúss er ánægður með vinnuandann í sjúkrahúsinu. Þetta kemur fram í könnun Vinnueftirlitsins. Um 16 prósent sérfræðinga eru ánægð með vinnuandann og 13 prósent aðstoðar- og deildarlækna. Óá- nægja er með vinnuskipulag og ófullnægjandi upplýsingaflæði. Landsbankinn spáir 5,5% hagvexti á ári að meðaltali til2006 Meiri vöxtur - minni þensla Hagvöxtur verður meiri í ár eða 4,2% og að meðaltali 5,5% á ári til ársins 2006, að því er fram kemur í hagspá Lansbankans fyrir árin 2003 til 2010 sem kynnt var í morgun. „Meiri vöxtur, minni þensla," er meginniðurstaða greiningardeildar Landsbankans um hagvaxtarskeið- ið sem í hönd fer. Eða eins og Björgólfur Guðmundsson stjórnar- formaður orðaði það í morgun með vísan til helstu boðorða líkams- ræktar: „Meiri vöðvar, minni flta." Hagvaxtarskeiðið hefst fyrr en áður hefur verið talið eða strax á þessu ári, samkvæmt spá bankans. Það verður keimlikt því síðasta að því leyti, að mikill hagvöxtur í nokkur ár - 5,5% að meðaltali árin 2003 til 2006 - endar snögglega með samdrætti sem gert er ráð fyr- ir að verði árin 2007 og 2008 áður en hagvöxtur glæðist á nýjan leik. Það sem greinir þetta hagvaxtar- skeið hins vegar frá síðustu upp- sveiflu er að hagvöxtur verður meiri en uppsveiflan varir skemur, eða í íjögur ár að árinu 2003 meðtöldu. f öðru lagi gerir Landsbankinn ráð fyrir að þensla verði minni. Fyrir því segir bankinn ýmsar ástæður. Upp- söfnuð fjárfestingar- og neysluþörf sé minni en um miðjan síðasta ára- MEIRIVÖÐVAR CKj MINNI FITA: Þannig lýsti stjórnarformaður Landsbankans megininntakinu í hagvaxtarspá bankans fram til 2010. tug, þegar hagkerfið var að taka við sér eftir áralanga stöðnun. Það sem greinir þetta hagvaxtarskeið frá síð- ustu uppsveiflu er að hagvöxtur verður meiri Til dæmis takmarki hátt skulda- hlutfall heimilanna neyslugetuna. Staðan á vinnumarkaði sé einnig með þeim hætti að ósennilegt sé að launahækkanir verði jafn miklar og síðast. Þá muni fljótandi gengi krónunnar auðvelda aðlögun. Samkvæmt spánni fer hagvöxtur mest upp f 7,3% árið 2005. Við- skiptahalli verður mestur árið 2006 eða 8,5% af vergri landsframleiðsiu. Kaupmáttur eykst um ríflega 12% og atvinnuleysi fer lægst í 2% árin 2006 og 2007. Þetta er í fyrsta sinn sem Lands- bankinn gerir spá um þróun efna- hagsmála til svo langs tíma en gert er ráð fyrir að sambærileg spá verði gerð árlega héðan í frá. íGÓÐU JAFNVÆGI: Björn RúnarGuðmundsson hjá greiningardeild Landsbankans kynnti hagvaxtarspána í morgun og lagðj áherslu á að hagkerfið vaeri í góðu jafnvaegi nú, ólíkt því sem var við upphaf síðustu uppsveifiu. Húsbréf Útdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: 1. flokki 1989 - 52. útdráttur 1. flokki 1990 - 49. útdráttur 2. flokki 1990 - 48. útdráttur 2. flokki 1991 - 46. útdráttur 3. flokki 1992 - 41. útdráttur 2. flokki 1993 - 37. útdráttur 2. flokki 1994 - 34. útdráttur 3. flokki 1994 - 33. útdráttur Koma þessi bréf til innlausnar 15. nóvember 2003. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birtí Fréttablaðinu, þriójudaginn 16. september. Upplýsingar um útdregin húsbréf má einnig finna á heimasíðu íbúðalánasjóðs: www.ib.is. íbúðalánasjóður Borgartúni 21 I 105 Reykjavík Isími 569 6900 I Fax 569 6800 Norðlingaölduveita skilar Asahreppi 5-10milljónum en Gnúpverjum engu: Allar tekjurnar í annan hreppinn Skeiða- og Gnúpverjahreppur fengi engin fasteignagjöld af Norðlingaölduveitu en Ása- hreppur fengi, að talið er, á milli 5 og 10 milljónir króna á ári. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, greiðir fyrirtækið ekki fasteignagjöld af stfflum en af öllum steyptum hús- um. Eina mannvirkið við Norðlinga- öldu sem fasteignagjöld yrðu greidd af yrði væntanlega fyrirhugað dælu- hús sem yrði reist á austurbakka Þjórsár í Ásahreppi. Á vesturbakkan- um, í Skeiða- og Gnúpveijahreppi, yrðu engin gjaldskyld mannvirki en hins vegar yrði þar stærri hluti Norð- lingaölduións en austan megin. „Dæluhúsið yrði eins og h'tið stöðv- arhús. Af þokkalegum stöðvarhúsum em venjulega greiddar yfir 10 milljón- ir á ári í fasteignagjöld þannig að ég gæti ímyndað mér að gjöldin af dælu- húsinu yrðu einhvers staðar á bilinu 5-10 milljónir," segir Eysteinn Haf- berg, verkfræðingur hjá Landsvirkjun. MISSKIPT GÆÐUNUM: Engin gjöld eru greidd til sveitarfélaga fyrir lón eða stíflur og því fengi Skeiða- og Gnúpverjahreppur engar tekjur af Norðlingaöldu. Ásahreppur fengi hins vegar fasteignagjöld af dæluhúsi á austurbakka Þjórsár. Þorsteinn Hiimarsson segist ekki telja að þessi staðreynd hafi neitt með afstöðu hreppanna til Norðlingaöldu- veitu að gera. „Bæði sveitarfélögin hafa tíi margra ára haft ágætar tekjur af virkjunum Landsvirkjunar og em nokkuð svipað í sveit sett hvað það varðar," segir Þorsteinn. Jónas Jónsson, oddviti Ásahrepps, tekur undir það og segist ekki telja að þetta hafi haft minnstu áfirif. „Eg tel að við verðum að líta algjörlega ífam hjá svoleiðis hlutum því að svona framkvæmd er þjóðhagslega hag- kvæm og við verðum að líta á það með opnu hugarfari að mMvægt sé að liðka fyrir henni. Mér finnst mjög hæpið að eitt lítið sveitarfélag stoppi svona stórt mál, sérstaldega eftir að það náði verulegum áfangasigri með því að ná lóninu út fyrir friðlandið." olafur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.