Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 TILVERA 27 Frumsvnd samtímis í kvikmyndir.is SAMBiO og á Islaridi ITnl HáshúlaDíó AN JOB ★ ★★ Roger Ebert B8C ★★★ L.A. Times kwikniyndir.is Fullkomið rán Svik Uppgjör mti legasta ynd ársins Otll GEÍ EVEN Sýnd kl.5.30,8og 10.30. B.i. 16ára. Sýnd kl.5.45,8 og 10.15. B.i. lOára. PIRATES OF THE CARIBBEAN: Sýnd kl. 8. B.i. lOára. NÓI ALBÍNÓI: Sýnd kl. 6. Enskur texti. "H. Breslcir r/ Bíódagar ALL OR NOTHING: Sýnd kl. 10.05. | SWEET SIXTEEN: Sýnd kl. 8. BLOODY SUNDAY: Sýndkl.8. PLOTS WITH A VIEW: Sýnd kl.óog 10.30 KRINGLAN Frumsvnd samtímis í ALFABAKKI CE UPON A I IML lN Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15. B.i. 16 ára. Sýnd í Luxus VIP kl. 5.45,8 og 10.15. Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. B.i. 12 ára Banderas, Johnny Depp og Salma Hayek i mögnuðu framhaldi af hinni i^ ■■■ni I DIDATCC ACTUC . 1 ASTRlKUR: Sýnd m.ísl.tali kl.4 Sýnd kl.5.45,8,9.05 og 10.10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 6,8 og 10.10. i r inm uj vji ■ i iL.^yna o.sv,o og IU.OU. AMERICAN PIE 3: Sýnd kl. 6,8 og 10.15. | SINBAD: Sýnd m.ísl.tali kl.4. STÓRMYND GRÍSLA: Sýnd m/ fsl.tali kl.5.30 og 7. TOMB RAIDER: Sýnd kl. 8 og 10.15. STÓRM. GRÍSLA:Sýnd m. ísl. tali kl. 4 og 6.11 KRINGLAN tS 588 0800 ÁLFABAKKI tX 587 8900 THE MAGDALENE SISTERS: Sýnd kl.5.45 og 10.05. FJÖLMIÐLAVAKTIN GeirA.Guðsteinsson gg@dv.is Sjálfstæðir Islendingar Stöð 2 tók þá ánægjulegu ákvörð- un á halda áfram í vetur með þætti Jóns Ársæls Þórðarsonar, Sjálfstæðir íslendingar. Þættir hans í fyrravetur voru margir hveijir mjög skemmti- legir og fékk hann til liðs við sig fólk sem var oftast fremur skemmtilegt og flest nokkuð sjálfstætt í hugsun og gerðum en ekki allir eins og geng- ur og gerist. Það kom því ekki á óvart að þessi þáttagerð hans skyldi til- nefind til edduverðlauna. Á sunnu- dag var upprifjunarþáttur frá þátt- um síðasta vetrar þar sem m.a. var farið í heimsókn til Bryndísar Schram í Helsinki sem ekki lá á skoðunum sínum fremur en fyrri daginn. Annar upprifjunarþáttur verður einnig áður en nýir þættir líta dagsins ljós. Það er nú kannski ein- um of mikið af hinu góða en kannski er það í lagi þar sem fyrsti vetrardag- ur hefur ekki enn litið dagsins ljós og virðist langt undan af tíðarfarinu að dæma. Eftir það sætta sjónvarpsá- horfendur sig ekki við neinar endur- tekningar, ekki einu sinni á Sjálf- stæðum Islendingum. Ákvörðun Stöðvar 2 að færa fréttatímann aftur til kl. 19.00 er al- veg arfavitlaus ákvörðun, mjög ómarkviss og óskynsamleg. Frétta- tími Stöðvar 2 naut töluverðs áhorfs meðan hann var ekki í samkeppni við Ríkissjónvarpið, það er nú bara bláköld staðreynd. Fréttafíklar munu nú horfa á Island í dag sem hefst kl. 18.30, síðan á fréttatíma Ríkissjónvarpsins og síðan Kastljós - það er ekki flókið. Fréttatími Stöðvar 2 mun týnast í þessu ferli jafnvel þótt fréttir þar hafi stundum þótt beinskeyttari og fféttamenn jafhvel farið ffam úr sjálfúm sér. Það væri gaman að heyra skýringar á þessum breytingum, áskrifendur eiga heimtingu á því. STJÖRNUGJÖF DV ★ ★' ★ ★ All or Nothing ★ ★★★ The Magdalene Sisters ★★★•i Bloody Sunday ★★★■11 Sweet Sixteen ★★★■i Nói albfnói ★★★■i 28 Days Later ★★★ PiratesoftheCaribbean ★ ★★ Terminator 3 ★ ★★ Croupier ★ ★★ Sindbað sæfari ★ ★★ The Italian Job ★ ★ Basic ★ ★ Bruce Almighty ★ ★ Hollywood Homicide ★ ★ Legally Blonde 2 ★i Daddy Day Care ★ Lara Croft.... ★ Hetjur og skúrkar FORINGINN: Sean Connery í hlutverki Alans Quartermains tekst á við óvininn. KVIKMYNDAGAGNRÝNI Hilmar Karlsson hkarl@dv.is Er eitthvert vit í að skella saman Alan Quartermain, Nemó, ósýni- lega manninum, Tom Sawyer (orð- inn fullorðinn), Dorian Grey, Mori- arty, blóðsugu í ætt við Dracula, Jekyll og Hyde, fyrsta kafbátnum og fyrsta kappakstursbílnum í eina sögu sem gerist 1899? Því ekki, ann- að eins hefur nú verið gert á pall- borði sölumanna. Hugvitssamlegur myndasögu- smiður átti hugmyndina að þess- um kokkteil og hefúr hún nú verið framreidd í kvikmyndina League of Extraordinary Gentlemen. Þar sem Quartermain er aldursforsetinn þá er hann foringinn, það er að segja •þeirra sem teljast hetjur. En eins og sjá má af upptalningunni eru ekki aílar þessar sögupersónur fulltrúar hins góða í klassískum bókmennt- um. Með nútímatækni í kvikmyndum er að sjálfsögðu hægt að gera helling við þessar persónur svo þær verði í mynd eins og lesandinn ímyndar sér þær við lesturinn og það er svo sannarlega gert. Má jafnvel ætla að tæknisnillingarnir hafi hver um sig fengið eina persónu til sköpunar og síðan verið keppni um hver væri flottust. Þetta á samt ekki við um Quartermain og Sawyer sem eru fulltrúar hins mannlega, hetjur sem nota riffla. Og eins og það nægi ekki að vera með þennan fjölskrúðuga hóp persóna þá eru í myndinni ýmis vítisvopn sem eingöngu voru til á teikniborði Jules Verne og H.G. Wells um aldamótin 1900. Sagan er ekki merkileg. Leitað er til Alain Quartermain þegar Breska heimsveldið er á barmi styrjaldar við Þjóðverja. Illmenni, sem við fáum skýringu á síðar, sér sér hag í að steypa þessum risaþjóðum í stríð. Quartermain er í Áfrfku og eins og sannur herramaður bregst hann ekki þegar skyldan kallar. Þegar þarna er komið hefur myndin farið prýðisvel af stað. Upphafsatriðin eru dökk og flott og Smárabíó/Regnboginn/Laugarásbíó League of Extraor- dinary Gentlemen ★★ í mótsögn við eyðimerkurlandslag- ið í Afríku, þar sem Quartermain dvelur. Það er fyrst þegar búið er að safna bjargvættunum saman í eina liðsheild að myndin fer að verða flöt og fyrirsjánleg og má segja að þar bregðist krosstré sem önnur tré. Þegar hópurinn er saman kom- inn í kafbátnum hans Nemo á hraðsiglingu til Feneyja, með við- komu í París, hefði myndin átt að fara að verða dularfull og áhuga- verð. í stað þess sitjum við uppi með illskiljanlegan söguþráð þar sem meðal annars er reynt að sprengja í loft upp allar byggingar í Feneyjum og lieimsólcn í höfúð- stöðvar óvinarins í Mongólíu, höf- uðstöðvar sem líkjast mest vopna- verksmiðju. Sean Connery er eins og skapað- ur í hlutverk Quartermains. Þetta er jú sá trausti maður sem fann nám- ur Salómons konugs. Það vantar samt neistann í leik hans og það á við um fleiri. Það er helst að ég hafi haft gaman af Tony Curran í hlut- verki ósýnilega mannsins, kannski vegna þess hvað hann sást lítið. í honum er húmorinn mestur. League of Extraordinary Gentlemen er því miður meiri brellusýning heldur en spennu- mynd. Hún er aldrei leiðinleg, hröð atburðarás og hamagangur mikill. Þar sem hún nær ekki festu er f samskiptum persónanna, hvort sem það eru Quartermain eða Sawyer á mannlegum nótum eða Dorian Grey og blóðsugan Mina sem þurfa að gera upp málin sín á milli. Leikstjóri: Stephen Norrington. Handrit: James Dale Robinson, eftir myndasögum Alan Moore og Kevin O'Neill. Kvíkmyndataka: Dan Laustsen. Tónlist: Trevor Jones. Aðalleikarar: Sean Connery, Naseeruddin Shah, Peta Wilson, StuartTownsend og Shane West. Hvað er ísjónvarpinu íkvöld? KVENNABURtÐ: Soldánar eignuðu sér konur og settu í kvennabúr sin. Kvennabúrið í Sjónvarpinu kl. 23.10: Sagan af Hurrem í kvöld og næsta þriðjudagskvöld verður sýnd bresk heimildarmynd í tveimur hlutum um konurnar í lcvennabúri Tyrkjasoldáns í Istan- búl á sextándu öld. Tyrkir réðu þá voldugasta múhameðstrúarrílci sögunnar sem teygði sig frá Bagdað tii Búdapest. Hundruð kvenna voru flutt nauðug í lcvennabúr soldáns- ins og ilestar voru þar út ævidaga sína sem eign hans. En í höllinni gat kynþokkinn jafngilt völdum eins og sannaðist á einni konu sem tókst að bræða hjarta soldánsins. Hún hét Aleksandra Lisowska og var dóttir rússnesks rétttrúnaðar- prests. Hún tók íslamstrú og var gefið nafnið Hurrem, Hin hlátur- milda. í fyrri þættinum er sögð sag- an af henni og leyndardómum kvennabúrs Tyrkjasoldáns. Lífið .eftir vinnu Gerðarsafn: Þrjár nýjar sýningar eru í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni. Ein þeirra er sýning Katrínar Þor- valdsdóttur í vestursal er heitir BORðHALD/Ef ég segi þér hver ég er þá gleymir þú hver ég var. Urbancic minnst: Tónleikar verða í Salnum í Kópavogi í kvöld og hefj- ast þeir kl. 20, þar sem aldarafmælis Dr. Victor Urbancic, 1903-1958 verður minnst. Dr. Bjarki Svein- björnsson fjallar um ævi og störf Dr. Urbancic og leikur hljóðritanir úr safni Ríkisútvarpsins. Flytjendur eru Þórunn Guðmundsdóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Hrefna Unnur Egg- ertsdóttir, Ásgeir Hermann Stein- grímsson, Eiríkur Örn Pálsson, Þor- kell Jóelsson, Oddur Björnsson og Sigurður Sveinn Þorbergsson. Alfa-námskeið kynnt: Biblíuskólinn við Holtaveg efnir til Alfa-nám- skeiðs næstu vikurnar og hefst það með kynningarkvöldi í kvöld kl. 20 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg. Léttar kaffiveitingar verða í boði en aðgangur er ókeypis og án nokk- urra skuldbindinga um þátttöku í námskeiðinu sem hefst viku síðar. Kynningarfundur: Reykjavíkurdeild Rauða krossins verður með kynn- ingarfund í kvöld kl. 20 fyrir þá sem vilja láta gott af sér leiða með þátt- töku í sjálfboðnu starfi félagsins 6-12 tíma á mánuði. Fundurinn er í Sjálfboðamiðstöð Rauða krossins að Hverfisgötu 105, kl. 20. Bæjarbió: Kvikmyndasafn (slands sýnir heimildarmyndina Lousiana Story eftir Robert J. Flaherty í Bæj- arbíói, Strandgötu 6, í Hafnarfirði í kvöld kl. 20. Myndin er bandarísk frá 1948,78 mínúturað lengd og segir frá samskiptum fátækrar fjöl- skyldu og olíuborunarvinnuflokks og þeim áhrifum sem hann hefurá fjölskylduna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.