Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 9 FJÁRSÖFNUN: Þessa dagana fá landsmenn sérhannað umslag inn um póstlúguna sem hægt er að nota undir erlenda mynt og seðla og skila í pósthús eða sparisjóð. Afgangsmyntin úr sumarfríinu og annar smápen- ingur getur nefnilega nýst til að mæta þörfum þúsunda manna sem árlega hringja í hjálparsíma Rauða krossins. Sigrún Árnadótt- ir, framkvæmdastjóri Rauða kross (slands, segir að margireigi erlenda peninga í krukkum eða skúffum og hægt sé að koma þessum peningum í verð og nota til góðra verka. Sparisjóður- inn, (slandspóstur og Flugleiðir- frakt styðja Rauða krossinn við fjáröflunina en afrakstur hennar rennur allur til hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Ný stjórn TM BREYTINGAR: Á hluthafafundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. 11. september 2003 var gerð breyting á stjórn félagsins. ( stjórn voru kosnir Eiríkur S. Jó- hannsson, Geir Zoéga, Guð- björg Matthíasdóttir, Gunn- laugur Sævar Gunnlaugsson, Sigurbjörn Magnússon, Sindri Sindrason og Þorsteinn Már Baldvinsson. Ný í stjórn eru Ei- ríkur S. Jóhannsson, Guðbjörg Matthíasdóttir og Sindri Sindrason. Úr stjórn gengu aft- ur á móti Ástríður Gísladóttir, Einar Sigurðsson og Gunnar Þór Þórarinsson. Stjórnin hefur skipt með sér verkum. Gunn- laugur Sævar Gunnlaugsson er formaður, Guðbjörg Matthías- dóttir er varaformaður og Geir Zoéga er ritari. Ráðherra fundarum kjaramál ogsamskipti við ImpregiloáKárahnjúkum: Krafist skýringa Árni Magnússon félagsmálaráð- herra tekur undir þá skoðun verkalýðshreyfingarinnar að skoða þurfi kjaramál erlendra starfsmanna við byggingu Kára- hnjúkavirkjunar eftir ábendingar verkalýðshreyfingarinnar sem átti fund með ráðherra. Fundurinn fjallaði um kaup og kjör starfsmanna við byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Fram hefur komið að grunur leiki á um að portúgölskum verkamönnum séu ekki greidd þau laun sem fram komi á þeim ráðningarsamningum sem fulltrúar Impregilo hafa lagt fram. Verkalýðshreyfingin telur eðlilegast að Impregilo greiði verkamönnunum laun beint en ekki gegnum erlendar starfs- mannaleigur. Verður kannað hver sé réttur fé- lagsmálaráðuneytisins að grípa inn í málið ef verið er að brjóta á er- lendu starfsmönnunum og þeim greidd lægri laun en hérlendir kjarasamningar segi til um. For- dæmi eru um inngrip ráðuneytis- ins vegna kjaramála, m.a. þegar rússneskir verkamenn voru að leggja raflínu á Suðurlandi fyrir nokkrum árum. Fundað verður að nýju með verkalýðshreyfingunni í næstu viku og einnig verður Impregilo krafíð skýringa á mis- ræmi milli launa og framlagðra samninga. gg@dv.is Bæjarhreppur gegn lögþving- un sameiningar Sveitarstjórn Bæjarhrepps í Strandasýslu leggst gegn lög- þvingaðri sameiningu sveitar- félaga og vill frekari útskýring- ar Arna Magnússonar félags- málaráðherra á hans hugmynd- um þar að lútandi. Þessu til áréttingar hefur sveitar- stjórn Bæjarhrepps sent Sambandi íslenskra sveitarfélaga bréf f júlí. Ragnar Pálmason á Kollsá II, oddviti Bæjar- hrepps, segir að sam- einingar eigi auðvitað að vera affúsum og frjálsum vilja Ragnar Pálmason á Kollsá II, oddviti Bæjarhrepps, segir að sam- einingar eigi auðvitað að vera af fúsum og frjálsum vilja sveitar- stjórna og íbúa sveitarfélaganna, ekki sé hægt að koma auga á hag- inn af lögþvingun. Engar viðræður standi yfir milli sveitarfélaga í Strandasýslu, Dalasýslu og ná- grenni um sam- einingu. „Nú eru bændur að heimta fé af fjalli og fer slát- urfé að nokkuð jöfnu á Flvammstanga og Sauðárkrók, það er ákvörð- un hvers bónda hvert hartn sendir sitt fé. Ætli það fari ekki um 10.000 lömb til slátrun- ar úr Bæjarhreppi, en á veturna er hér um 8.000 fjár á fóðrum. Bænd- ur eru hér fyrst og fremst sauðfjár- bændur, en hér eru tvö biönduð býli með sauðfé og mjólkurkýr, að Ljótunnarstöðum og Hlaðhamri, og eru einu kúabúin í Strandasýslu. Vegna umræðu um útflutning á heyi vegna offramleiðslu er rétt að taka fram að það þarf að fást eitt- hvert verð fyrir heyið þótt það kosti eitthvað af farga héyi. Ef útflytjandi sækir heyið heim á hlað er hægt að sætta sig við 1.600 krónur fyrir heyrúllu af umframbirgðum," segir Ragnar Pálmason. gg@dv.is Frjálsyndir endurflytja tillögu um aðskilnað veiða og vinnslu Giiðjón Arnar Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins, segir að á þingflokksfundi í gær hafi m.a. verið rædd ýmis mál sem verið sé að vinna og ætlun- in sé að flytja á Alþingi sem sett verður 1. október nk. „Við munum endurflytja eitt- hvað af okkur málum sem við telj- um að skipti verulegu máli. Þar vil ég sérstaklega nefna fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu, að- skilnað ríkis og kirkju, bætta stöðu lífeyrisþega með því að lífeyris- greiðslur skerði ekki bætur miðað við lágmarksupphæð. Eitthvað munum við láta heyra í okkur um sjávarút- vegsmál, land- búnaðarmál og samgöngumál en fækka þarf m.a. mun hrað- ar einbreiðum brúm og bæta samgöngukerf- ið víða, ekki síst á Vestfjörðum. Við viljum einnig bæta stöðu heyrnarlausra í þjóðfé- laginu og munum flytja mál því til staðfestingar," segir Guðjón Arnar Kristjánsson. Guðjón Arnar Kristjánsson. Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. september 2003, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. september 2003 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er faUið hafa í eindaga til og með 15. september 2003 á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, fóstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnaðargjaldi, iðgjaldi i Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, sem eru: tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur rnanna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald i framkvæmdasjóö aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddur barnabótaauki og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liönum fyrir vangoldnum éftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiöa, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjámám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjaid í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir tO að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skráningamúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskomnar þessarar gildir ekki í þessum Reykjavík, 16. september 2003. Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum Tollstjórinn í Reykjavik Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgamesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.