Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 30
Létt hjá Leicester Rúllaði yfir slakt lið Leeds, 4-0, í gærkvöld Einn leikur fór fram í ensku úr- valsdeildinni í gærkvöld. Leicester tók á móti Leeds á Walkers-leikvanginum í Leicester. Leikurinn var aldrei spennandi því Leicester rúllaði yfir slakt Leeds og vann á end- anum, 4-0. Þar með vann liðið sinn fyrsta sigur á tímabilinu og komst upp í ellefta sæti. > Leikmenn Leicester lögðu grunninn að sigrinum með tveimur mörkum á þriggja mínútna kaíla um miðjan fyrri hálfleik. Fyrst skor- aði Lilian Nalis með þrumfleyg og síðan skoraði Skotinn knái Paul Dickov með fallegu skoti. Hann var síðan aftur á ferðinni á 82. mínútu og Jamie Scowcroft gulltryggði síð- an glæsilegan sigur Leicester með marki á lokamínútu leiksins. Paul Dickov, hetja Leicester í leiknum, sagði eftir sigurinn að þetta hefði verið gffurlega mikil- vægur sigur fyrir iiðið eftir tapið gegn Aston Villa í síðustu umferð. „Við höfum verið að spila vel en okkur hefur sárlega vantað fyrsta sigurinn. Nú er hann kominn og vonandi færir hann okkur gæfu,“ sagði Dickov eftir leikinn. „Knattspyrna er engin eldflaugavísindi, hún snýst um hugarfar og dugnað - nokkuð sem við höfðum ekki í dag." Peter Reid, knattspyrnustjóri Leeds, var foxillur eftir leikinn og sagði að sínir menn hefðu ekki átt skilið eitt eða neitt í leiknum. „Við vorum lélegri í öll í leiknum. Það var nánast bara eitt lið á vellin- um og það var Leicester. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með Houllier hundfúll Gerard Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, er hundfúll út í ástralska varnarmanninn Lucas Neill, sem fótbraut Jamie Carrag- her, varnarmann Liverpool, í leik liðsins gegn Blackburn á laugar- dag. Houllier segir að Neill eigi skil- ið að fara í mun lengra bann en þriggja leikja bannið sem hann fær sjálfkrafa fyrir rauða spjaldið sem honum var gefið fyrir brotið. Houllier segir brotið hafa verið ruddalagt og fordæmir fram- komu Neills í leiknum og eftir : hann. oskar@dvJs j mína menn. Menn verða að vinna sér inn réttinn til að spila fótbolta - hann kemur ekki að sjálfu sér. Við gátum ekki varist hornum, við gát- um reyndar ekki varist neinu þegar öllu er á botninn hvolft. JCnatt- spyrna er engin eldflaugavísindi, hún snýst um hugarfar og dugnað - nokkuð sem við höfðum ekki f dag en Leicester hafði nóg af," sagði Reid. oskar@dv.is ÚRVALSDEILD ENGLAND Leicester-Leeds 4-0 1-0 Lilian Nalis (19.), 2-0 Paul Dickov (23.), 3-0 Paul Dickov (82.), 4-0 James Scowcroft (89.). Arsenal 5 4 1 0 11-3 13 Man. Utd 5 4 0 1 9-2 12 Man. City 5 3 1 1 12-6 10 Chelsea 4 3 1 0 10-6 10 Portsm. 5 2 3 0 8-3 9 Southton 5 2 3 0 5-2 9 Liverpool 5 2 2 1 7-3 8 Birmingh. 4 2 2 0 4-2 8 Fulham 4 2 1 1 9-7 7 Blackburn 5 1 2 2 12-11 5 Leicest. 5 1 2 2 8-7 5 Charlton 5 1 2 2 6-7 5 Everton 5 1 2 2 8-10 5 Leeds 5 1 2 2 6-10 5 Bolton 5 1 2 2 4-10 5 A.Villa 5 1 1 3 5-9 4 Tottenh. 5 1 1 3 4-9 4 Newcast. 4 0 2 2 5-7 2 Middlesbr. 5 0 1 4 4-12 1 Wolves 5 0 1 4 1-12 1 Veiðihornið 30 DVSPORT MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ2003 FALLEG VEIÐI: Eggert Sk Jóhannesson og Eyþór E. Sigurgeirsson með fallega veiði úr Soginu fyrir skömmu. DV-myndEE Haustrigningar Hleypa lífi í veiðina á nýjan leik Miklar rigningar síðustu daga hafa heldur betur hleypt lífi í veiðiskapinn en mokveiði hef- ur verið í Laxá í Dölum og mjög góð veiði í Hrútafjarðará og Síká. Á nokkrum dögum í Laxá í Döl- um komu næstum 300 laxar og mokið heldur áfram víða. Veiði- menn sem voru að koma úr veiðiá á Ströndum veiddu vel af vænum fiski, þeir stærstu voru 14 punda. Og svona mætti lengi, lengi telja. Hrútafjarðará hefur geflð 144 laxa og holl sem var að hætta í ánni veiddi 20 laxa en mikil flóð voru í ánni meðal þeir voru að Tungulækur er líka allur að koma til og hefur sést nýr fiskur í opinu í Skaftá. veiða og þegar þeir hættu komu miklu fleiri stórrigningar og flóð. Breiðdalsá hefur gefið 166 laxa og hún gæti endað í 200 löxum. Laxá á Nesjum hefur gefíð 67 laxa. Núna hefur borið töíuvert á sjó- birtingi, sérstaklega á neðsta veiðistaðnum, Ármótahylnum. Stærsti laxinn úr ánni er 18 punda. Sjóbirtingurinn er að koma inn fyrir austan en á Seglbúðasvæðinu í Grenlæk hefur borðið mikið á sjóbirtingi síðustu daga. Stærsti fiskurinn á land enn þá er 12 pund. Tungulækur er líka allur að koma til og hefur sést nýr fiskur í opinu í Skaftá núna í nokkra daga, á leið inn í lækinn. G.Bender Staffan velur landslið í golfi GOLF: Svíinn Staffan Johans- son, landsliðsþjálfari í golfi, hefur valið karla- og kvenna- landsliðið sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í Svíþjóð 26.-28. september næstkom- andi. Kvennalandsliðið er skip- að þeim Helenu Árnadóttur úr Golfklúbbi Akureyrar, Helgu Rut Svanbergsdóttur og Nínu Björk Geirsdóttur úr Golf- klúbbnum Kili og Kristínu Rós Kristjánsdóttur úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Karlalandsliðið er skipað þeim Heiðari Davíð Bragasyni Golf- klúbbnum Kili, Sigurði Rúnari Ólafssyni Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, Stefáni Orra Ólafssyni Golfklúbbnum Leyni og Erni Ævari Hjartarsyni Golf- klúbbi Suðurnesja. Stúdínur unnu KR í hörðum leik . ANNAÐ AF TVEIMUR: Paul Dickov fagnar hér seinna marki sfnu fyrir Leicester gegn Leeds í gærkvöld. upp muninn allan leikinn en missti af (S í blálokin. (S hefur nú unnið báða leiki sína þegarfyrri hluti mótsins er búinn en liðin þrjú sem leika á Reykjavíkurmótinu í ár eiga öll eftir að mætast aftur. Alda Leif Jónsdóttir var með 12 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar fyrir (S, Lovísa Guðmundsdóttir skoraði 9 stig, tók 9 fráköst og varði 6 skot í sínum fyrsta leik í meira en ár og þær Jófríður Halldórsdóttir og Stella Rún Kristjánsdóttir gerðu báðar 7 stig. Hjá KR var Hildur Sigurðardótt- ir með 18 stig og 12 fráköst og hitti auk þess úr öllum 10 vít- um sínum. Georgia Kristiansen skoraði 7 stig og Sigrún Hall- grímsdóttir gerði 6. í FÍNU FORMI: Heiöar Davíð Bragason hefur verið að spila vel. KÖRFUKNATTLEIKUR: (Svann KR, 53-41, í hörðum leik á Reykjavíkurmóti kvenna í körfubolta en leikurinn fór fram í Kennaraháskólnum í gær. Stúdínur unnu fyrsta leik- hluta, 16-5, og höfðu frum- kvæðið eftir það en KR-liðið kom sér aftur inn í leikinn á mikilli baráttu í öðrum leik- hluta og var líklegt til að vinna ifgjjl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.