Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 MENNING 13 Menning Leikhús • Bókmenntir ■ Myndlist ■ Tónlist ■ Dans Umsjón: Sitja Aðalsteinsdóttir Netfang: silja@dv.is Sími:550 5807 Diddú syngur með Sinfó TÓNLIST: Á fimmtudag og föstudag verður Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, í bjarma kastljósanna á sviði Háskóla- bíós ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands. Á efnisskrá eru verk eftir Aron Copland og Leonard Bernstein og nú er tækifærið til að heyra Diddú syngja Some- where og fleiri meistaraverk. Miðasalan á Netinu er hafin! Ljósmyndasýningu lýkur MYNDLIST: Nú eru bara nokkr- ir dagar þangað til Ijósmynda- sýning Yann Arthus-Bertrand á Austurvelli verður tekin niður. henni lýkur sunnudaginn 21. september og verður verslun- inni lokað á sama tíma. Þeir sem ekki hafa séð sýninguna nú þegar eru hvattir til að drífa sig í bæinn áður en það er um seinan. Eldey eftir Yann Arthus-Bertrand. Lína á 21 barna og girðingin hálffallin, skólinn kuldalegt gfmald, sirkusinn úr litlu efni en nægu. Mest er borið í sjóræn- ingjaskip Lang- sokks skipstjóra sem siglir inn á sviðið. í öllu sínu veldi, enda þarf það að mæta út- hafsöldum. í stfl við þetta útlit var leikur allur stór- karlalegur, hreyf- ingar stórar, dans- atriði allgroddaleg og tal, söngur og hljóðfæraleikur á hæsta styrk. Mætti benda fólki á að þessi sýningerekki iT . 3. .11 ANDSTÆÐUR MÆTAST: Lina fyrir minnstu leik- húsgestina en nær þeim mun lengra upp eft- ir aldursstiganum. Óvænt upphafsatriði sýningar- innar, sem ekki er úr smiðju Astrid Lindgren, segir áhorfend- um á táknrænan hátt að í vændum sé ævintýri. Ekki raun- veruleiki. Mér fannst í fyrstu að þetta væri nokkuð sniðug leið til að skipta yfir á ímyndunaraflið, en eftir á að hyggja dregur atriðið tennurnar úr samfélagsádeilu verksins. Astrid teflir Línu - gáf- aðri, orðheppinni og nautsterkri - gegn bældu samfélagi, fjandsam- legu þeim sem er öðruvísi, og stendur með henni gegnum þykkt og þunnt. Það skiptir máli að Lína sé í alvöru. Astrid vissi sem er að börn sjá ekki sig sjálf í persónu Línu, hún verður þeirra óskamynd; fulltrúar (llmur Kristjánsdóttir) dansar við frú Prússólín (Sigrún Edda Björnsdóttir). DV-myndir Eggert barna eru Tommi og Anna (Bergur Þór Ing- ólfsson og Edda Björg Eyjólfsdóttir), þæg og prúð og elsk að foreldrum sínum, en sem verða samt glöð í hjarta sínu þegar Lína setur fína kafflboðið hjá mömmu þeirra (Katla Mar- grét Þorgeirsdóttir) á annan endann. Allir leikararnir snerust eins og skopparakringlur kringum orkuboltann llmi á sviðinu og reyndu að halda í við hana á fartinni. Allir leikararnir snerust eins og skoppara- kringlur kringum orkuboltann Ilmi á sviðinu og reyndu að halda í við hana á fartinni. Lög- regluþjónana klaufsku Iéku Þór Tulinius og Guðmundur Ólafsson (sem lék eiginlega Sigga Sigurjóns að leika löggu), þjófana Glám og Glúm leika Halldór Gylfason og Gunnar Hansson og voru hvor öðrum hálfvitalegri. EUert Ingimundarson gerði Adolf sterka og Langsokk skipstjóra kannski ívið of líka en það er langt á milli þeirra í sýningunni. Theodór Júlíusson var ágætur sirkusstjóri og Hanna María Karlsdóttir innlifuð kennslukona. Allir karlmennirnir munstruðu sig á sjóræningja- skipið meðan það stóð við og mynduðu þétt- an og hávaðasaman hóp. Herra Níels var alveg sérstaklega apalegur í meðförum Vöku Dags- dóttur eða Vöku Vigfúsdóttur og hesturinn var hæfilega ekta. Þó að margt hafi breyst í umhverfi barna á Lína enn erindi - þó að hún sé komin á sjö- tugsaldur. Leikfélag Reykjavikur sýnir á stóra sviðinu: Lína Langsokkur eftir Astrid Lindgren. Leikgerð: Astrid Lind- gren og Staffan Götestam. Þýðing: Þórarinn Eldjárn. Tónlist Georg Riedel og Geirfuglarnir. Tónlistarstjóri: Þorkell Heiðarsson. Danshöfundun Lára Stefánsdóttir. Lýsing: Elfar Bjarnason. Leikmynd og búningan Sigur- jón Jóhannsson. Leikstjóri: María Reyndal. LEIKLISTARGAGNRYNI Silja Aðalsteinsdóttir Lína Langsokkur er flutt Inn I Sjónarhól á /s- lensku sviði einu sinni enn, nú í túlkun ungrar leikkonu sem þreytir frumraun sína I atvinnu- leikhúsi. Ilmur Kristjánsdóttir er nægilega nærri bæði Línu og nútímabörnum til að búa til persónu sem höfðar sterkt til þeirra en skelf- ir þau svolítið um leið. Enda er ekkert dregið úr því í uppsetningu Maríu Reyndal að Lína er auðvitað óþolandi barn, eins og frú Prússólín segir. Sú er leikin af Sigrúnu Eddu Björnsdóttur sem myndaði glæsilega and- stæðu við Línu í útliti jafnt sem innræti. Þar mætir hugmyndaflugið stofnanasamfélaginu svo hvín í. Sýningin myndar sannfærandi heild. Svið- ið er hæfflega hráslagalegt, Sjónarhóli klambrað saman svo minnir á kassahús FÉLAGAR LÍNU: Hesturinn og herra Níels. Bókmenntahátíð - in memoriam II Þegar síðasta þorskastríðið stóð sem hæst bað Roy Hattersley, landvarnaráðherra Breta, ritara sinn að útvega sér einhverjar bókmenntir frá þessari þjóð þarna I útnorðri til að hann gæti komist að því við hverja hann væri að berjast. Ritarinn fór á stúfana og kom úl baka með Sjálfstætt fólk efúr Halldór Laxness. Hattersley las bókina og sagði að því loknu: „Við getum ekki unnið þetta stríð" Breski bókaútgefandinn Christopher MacLehose sagði þessa sögu á lokadegi Bók- menntaháú'ðar í Reykjavflc á laugardaginn var og sagðist hafa hana eftir manninum sjálfum. Efúr fundinn sagði hann svo að það mætti velta fyrir sér hvað Hattersley hefði sagt - og gert - ef það hefði verið 101 Reykjavík sem hann hefði lesið! Fagurfræðileg skýring Lokadagurinn hófst á erindi Halldórs Guð- mundssonar þar sem hann dró upp mynd af ís- lenskum núúmabókmenntum í stórum drátt- um. Styrkur þeirra liggur í þúsund ára málhefð og því hve miðlægar bókmennúmar em í menningu þjóðarinnar, sagði Halldór, en það sem hefur stuðlað að útrás þeirra á undanföm- um ámm er ákveðin fagurfræðileg þróun sem náði hámarki á 9. áratugnum. Áður skiptust ís- lenskir rithöfundar gróft í sögumenn og stflista, en á undanförnum rúmum áratug hafa þessar tvær gerðir mnnið saman í eina. í eina úð var það stórfrétt ef íslenskt skáld- verk var selt erlendum útgefanda; nú em gerð- ir ríflega 200 samningar um slíkt á ári. Italski útgefandinn Luigi Brioschi sagði að þetta væri ekki skrítið; bókmennúr jaðarþjóða hefðu mðst inn á markaðinn undanfama ára- tugi, enda hlyti andstaða við hnattvæðingu einnig að koma upp í bókaútgáfu. Ekkert tæki er máttugra skáldsögunni til að sýna ólflca heima og kynna okkur það sem er framandi, og þetta eiga íslenskar bókmenntir að nýta sér, að hans mati. Bækur og Björk En hvaða ráð em til að útbreiða íslenskar bókmenntir enn frekar? í fyrsta lagi þurfa er- lendir útgefendur að frétta af góðum bókum og Claudia Múller, út- gefandi frá Þýskalandi, sagðist hafa njósnara á Islandi úl að lesa fyrir sig og segja frá. Þýðendur em auðvitað geysilega mikilvægir og við þurf- um að hafa góða sinnu á að þjálfa fólk til að þýða á sem flestar tungur. Ekki þarf síður að halda við íslenskukunnáttu góðra þýðenda. Það var gaman að fá þennan morgun frétt um að Mýrin eftir Amald Indriðason hefði far- ið yfir hundrað þúsund eintaka mörkin í Þýska- landi þvf yfirleitt vekja íslenskar bókmenntir ekki svona mikinn áhuga. Nokkurt gys var gert að kápumyndinni á þýsku útgáíúnni, því utan á þessari borgarmorðsögu er mynd af íslenskum sveitabæ úr torfi og grjóú. Hún á að laða að ís- landsvinina - og gerir það greinilega, þó að vissulega hafi bókin lflca fengið afbragðs- Arnaldur Indriðason og breski útgefandinn hans, DV-mynd Pjetur umsagnir gagnrýnenda. íslenskar skáldsögur hreyfast yfirleitt ekki mikið í verslunum - en það gerir hins vegar ís- lensk tónlist. Vicky Cribb, þýðandi frá London, benú á þetta og fannst upplagt að tengja svala ímynd íslenskrar tónlistar - Bjarkar, Sigur Rós- ar - við íslenskar bókmenntir. Væri ekki hægt að hafa standa með músflc og bókum hlið við hlið í verslunum? Hugmyndinni var ekki yfirmáta vel tekið. Mönnum fannst eðlilegra að rithöfundar drægju með sér aðra rithöfunda og tóku dæmi af Peter Hoeg sem hefði opnað leið fyrir danska rithöfunda til mikilla vinsælda meðal ensku- mælandi þjóða. Kannski verður Arnaldur Ind- riðason slflcur segull. UPPHAFIÐ AÐ FAGURRIVINÁTTU: Christopher MacLehose.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.