Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Blaðsíða 10
70 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003
Útíönd
Heimurínn í hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Afall fyrir Bondevik
NOREGUR: Úrslit bæjar- og
sveitarstjórnarkosninganna í
Noregi þykja áfall fyrir Kjell
Magne Bondevik forsætisráð-
herra. Kristilegur flokkur hans
tapaði um þriðjungi fylgis.
Kjósendur færðu sig til bæði
vinstri og hægri frá miðju
stjórnmálanna og unnu Sósíal-
íski vinstriflokkurinn og hinn
hægrisinnaði Framfaraflokkur
sögulega sigra.
Samkvæmt kosningaspá sem
gerð var eftir að helmingur at-
kvæða hafði verið talinn er
Verkamannaflokkurinn enn
stærsti stjórnmálaflokkur Nor-
egs þrátt fyrir að gengi hans
nú séð hið versta í sveitar-
stjórnarkosningum í 75 ár.
Bondevik lýsti vonbrigðum
með úrslitin.
Fangar deyja
SÁDI-ARABÍA: Eldur í fangelsi
nærri Riyadh, höfuðborg Sádi-
Arabíu, varð 67 föngum að
bana ígær.Tuttugufangarog
þrír fangaverðir slösuðust í
eldsvoðanum.
Embættismenn sögðu enn of
snemmt að segja til um upp-
tök eldsins, að því er opinber
fréttastofa Sádi-Arabíu greindi
frá í gær.
Tveggja daga heimsókn Powells til íraks lauk í gær:
Sakaði Sýrlendinga
um ábyrgðarleysi
Bandarískir hermenn handtóku
í gær að minnsta kosti sjö
manns í Tikrit og nágrenni,
heimaborg Saddams Husseins,
fyrrverandi (raksforseta, en
mennirnir eru grunaðir um að
hafa aðstoðað við fjármögnun
skæruárása á hersveitir banda-
manna í írak, þar á meðal
einnar í höfuðborginni Bagdad
í gær þar sem einn bandarískur
hermaður lést af sárum sínum.
„Við teljum að mennirnir hafi
staðið á bak við íjölda árása hér í
Tikrit og nágrenni. Þeir eru alla
vega aðalhvatamennirnir," sagði
Troy Smith, liðsforingi í bandaríska
hernum í Tikrit, sem stjórnaði að-
gerðunum í gær, en ráðist var inn í
þrjú íbúðarhús í Tikrit og það
fjórða í Auoja í nágrenni borgarinn-
ar.
„Þetta er óvinurinn"
Að sögn fréttamanns Reuters-
fréttastofunnar, sem fylgdist með
aðgerðunum, fengu bandarísku
hermennirnir allt annað en hlýjar
móttökur, enda fullri hörku beitt
þar sem hlið og hurðir heimila voru
sprengdar og sparkað upp.
Tíu ára gamall drengur, sem stillt
var upp úti í garði ásamt fjölskyldu
sinni, sagði eftir að hafa fylgst með
bandaríku hermönnunum yfir-
heyra einn fjölskyldumeðlim
allharkalega að hann ætlaði að
verða íraskur stríðsmaður. „Ég ætla
að verða íraskur stríðsmaður og
drepa bandaríska hermenn," sagði
drengurinn og benti á bandarísku
hermennina, vopnaða rifflum,
sleggjum og vírklippum í leit sinni
að skæruliðum. „Þetta er óvinur-
inn,“ sagði drengurinn.
Eldri maður, sem leiddur var
handjárnaður og berfættur frá
heimili sínu, spurði hermennina af
hverju þeir hefðu brotist inn á
heimili sitt. „Þið þurftuð ekki ann-
að en banka og ég hefði strax opn-
að," sagði gamli maðurinn við her-
mennina sem beindu byssum sín-
um að brjósti hans.
295 hermenn fallnir
Áðurnefnd árás í Bagdad var gerð
snemma í gærmorgun en þar var
bifreið hermannsins sem lést af
sárum sínum fyrir sprengjuvörpu-
árás.
Þar með hafa 156 bandarískir
hermenn látið lífið í írak síðan
„Ég þarfekki að segja
ykkur að Saddam Huss-
ein hafi verið morðóður
harðstjóri - þið vitið
það/'sagði Colin Pow-
ell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir
þann 1. maí að meiri háttar hern-
aðaraðgerðum væri lokið. Þar af
hafa 74 fallið í skæruárásum en alls
hafa 295 bandarískir hermenn
farist í írak síðan stríðið hófst í lok
mars og þar af 189 í bardögum.
Powell í Halabja
Tveggja daga heimsókn Colins
Powells, utanríksráðherra Banda-
ríkjanna, lauk í gær en þá var hann
viðstaddur opnun safns og afhjúp-
un minnismerkis í bænum Halabja
í norðurhluta fraks til að minn-
inngar um þá fimm þúsund kúrda
sem létu lífið í eiturgasárás íraska
hersins á bæinn árið 1988.
Powell lofaði því þegar hann
ávarpaði hundruð íbúa bæjarins
við minningarathöfn að Ali Hassan
al-Majid, eða svokallaður „Efna-
vopna-Ali“, sem nú er í haldi
Bandaríkjamanna, grunaður um að
hafa stjórnað morðárásunum í
Halabja, verði látinn svara til saka
fyrir íröskum rétti.
„Ég þarf ekki að segja ykkur að
Saddam Hussein hafi verið morð-
óður harðstjóri, - þið vitið það. En
ég get lofað ykkur því að það sem
gerðist hér árið 1988 mun aldrei
gerast aftur," sagði Powell.
Áframhaldandi skæruárásir
Á sama tíma var íraskur lögreglu-
foringi, Khdayyir Mukhlif, skotinn
til bana í bænum Khalidiya norður
af Bagdad en þar hafa bandarískar
eftirlitssveitir orðið fyrir sífelldum
skæruárásum á síðustu vikum.
Að sögn taismanns lögreglunnar
í Khaldiya gerðu þrír menn á pallbfl
skotárás á bfl Mukhlifs við eftirlits-
stöð í bænum með þeim afleiðing-
um að hann lést auk þess sem tveir
félagar hans særðust lífshættulega.
Eftir heimsóknina til Halabja
sakaði Powell Sýrlendinga um að
hafa ekki gert nóg til að koma í veg
fyrir að skæruliðahópar færu yflr
landamærin frá Sýrlandi til árása á
hersveitir bandamanna í frak.
Hann sagðist ekki geta túlkað að-
gerðaleysi þeirra öðruvísi en sem
beina aðstoð við hryðjuverkin.
Þetta kom fram á fréttamanna-
fundi sem Powell boðaði til í Kúveit
á leið sinni heim frá frak í gær og
sagði hann að ábyrgðarleysi sýr-
lenskra stjórnvalda yrði tekið fyrir í
bandaríska þinginu í dag.
POWELL í HALABJA: Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, var í gær við-
staddur minningarathöfn
í bænum Halabja.
Fellibylur nálgast
íbúar á austurströnd Bandaríkj-
anna eru að búa sig undir komu
ísabellu sem stefnir í átt til Norður-
Karólínu. Verður það öflugasti felli-
bylur sem þar hefur komið í fjölda
ára. Mestur vindhraði í fellibylnum
er nú um 200 kflómetrar á klukku-
stund. Búist er við að óveðrið gangi
á land á fimmtudag, hugsanlega þó
á miðvikudagskvöld. Tjón af svona
fellibyl getur orðið mikið.
Enginn kannast við mann-
inn á eftirlitsmyndunum
Sænska lögreglan er enn engu
nær um hver hann er, maður-
inn sem sést á myndum úr eft-
irlitsmyndavélum vöruhússins
þar sem Anna Lindh, utanrík-
isráðherra Svíþjóðar, var
stungin til bana í síðustu viku.
„Við erum engu nær því að
nafngreina hann,“ sagði Leif
Jennekvist sem stjórnar morð-
rannsókninni.
Milljónir manna hafa séð
myndir af meintum morðingja
Lindh í sjónvarpi, blöðum eða á
Netinu. Samt hafa lögreglunni
ekki borist neinar vísbendingar
sem að gagni koma, reyndum lög-
reglumönnum til furðu.
„Venjan er að svona góð iýsing
ÓÞEKKTUR: Enn hefur enginn gefið sig
fram sem veit hver þessi maður er. Hann
er grunaður um morðið á Önnu Lindh.
gefí okkur rétt nafn fljótt. Því má
geta sér þess til að maðurinn sé
útlendingur sem aldrei hefur
komist í kast við sænsk yfirvöld,"
sagði rannsóknarlögreglumaður-
inn Per-Anders Fritshammar við
sænska blaðið Dagens Nyheter.
Önnur skýring sem varpað hef-
ur verið fram er að maðurinn hafi
breytt útliti sínu, til dæmis með
hárkollu.
Blá derhúfa, sem talið er að
morðinginn hafi verið með og
fannst nærri morðstaðnum,
reyndist innihalda lífsýni. Það
gæti hugsanlega komið lögregl-
unni á sporið.
Myndir af hinum grunaða hafa
verið sendar til löggæsluyfirvalda
í útlöndum.
Sendifulltrúi SÞ
vill fá að hitta
baráttukonuna
Aung San Suu Kyi
Sérlegur sendimaður Sameinuðu
þjóðanna, Razali Ismail, er að
reyna að fá leyfi herforingjastjórn-
arinnar í Burma til að hitta baráttu-
konuna Aung San Suu Kyi, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, til að kanna
heilsufar hennar.
Suu Kyi hefur verið í haldi herfor-
ingjanna frá því í maílok, eftir að til
átaka kom milli stuðningsmanna
hennar og óþokka á snærum
stjórnvalda.
Herforingjarnir hafa ekki enn
veitt leyfi fyrir heimsókninni.
Razali hitti Suu Kyi síðast í júní.
„Hann fer ekki nema hann fái
grænt ljós á að hitta Suu Kyi,“ sagði
embættismaður hjá SÞ í samtali við
fréttamann Reuters.
Flokkur Suu Kyi sigraði í þing-
kosningum 1990 en hefur ekki
fengið leyfi til að taka við völdum.