Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003
ÖTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRIT5TJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRrrSTJÓRl: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvlk, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglys-
ingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl
við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Barnabókaverðlaun til
verkfræðings
- frétt bls.4
Fótboltamenn grunaðir
um hópnauðgun
- frétt bls. 6
Skákvakningin heldur
áfram hér á landi
- Skoðun bls. 15
Svona var sumarið hjá
ÍBV og Grindavík
- DVSportbls. 30-31
Finnlandsævintýri
Kaupþings
Búnaðarbanka
Fréttir bls. 8 og 9
Kæra nágrannann
fyrir hundahrotur
Rúmeninn Varga Attila, íbúi í
íbúðablokk í bænum Cluj Napoca
í Rúmeníu, hefúr verið ákærður
af nágranna sínum vegna þess
hve hundurinn hans, Sumo,
hrýtur hátt á nóttinni.
Nágranninn kvartar yfir því að
hann geti ekkert sofið þegar
hundurinn sofnar og heyrist háar
hrotumar um alla blokkina.
Annar fbúi í blokkinni, Iuliu
Popa, sagði í viðtali við bæjar-
biaðið að hroturnar í hundinum
væm svo háar að það tmflaði
öryggiskerfið í íbúðinni hans.
Maður sem býr f íbúð á neðri
hæð segist þegar hafa lagt fram
tvær kæmr en án árangurs.
Það var ekki fyrr en húsfélagið
lagði fram kvörtun að rétturinn
samþykkti að taka málið fyrir og
er nú beðið úrskurðar.
Hassið út um
LÖGREGLA: Lögreglan í Reykja-
vík veitti bifreið eftirför á laugar-
dagskvöld en grunur lék á að
ökumaður væri viðriðinn fíkni-
efnamál. Raunar hafði lögregla
haft afskipti af tveimur biium
vegna sama gruns en ekki vildi
betur til en svo að þegar laganna
verðir ætluðu að ræða við annan
ökumanninn gaf hann allt í botn
og ók af stað af miklu offorsi svo
gluggann
að við lá að lögreglumaður yrði
fyrir bílnum. Lögreglumenn
veittu bifreiðinni eftirför, sem fyrr
segir, og náðist bíllinn við Arnar-
bakka. Við eftirförina sást hvar
ökumaður kastaði út böggli sem
reyndist vera fullur af hassi. I kjöl-
farið gerðu lögreglumenn húsleit
hjá ökumanninum og fannst þar
meira af fíkniefnum, fíkniefnatól
og töluvert magn peninga.
Kviknaði í samfestingi
ELDSVOÐI: Eldur kom upp í
fatageymsu Jarðvéla við
Bakkaþraut í Kópavogi á fyrsta
tímanum í nótt. Starfsmenn
fyrirtækisins urðu eldsins varir
og gerðu slökkviliði viðvart.
Greiðlega gekk að ráða niður-
lögum eldsins og síðan var
húsið reykræst. Skemmdir eru
ekki taldar verulegar. Að sögn
slökkviliðs er talið að upptök
eldsins megi rekja til þess að
starfsmaður var að rafsjóða fyrr
um daginn og talið er að glóð
hafi hrokkið í samfesting hans.
Maðurinn yfirgaf vinnustaðinn
um sexleytið og hengdi þá
samfestinginn í fatageymslu.
Eldurinn kraumaði fram eftir
kvöldi og mildi þykir að menn
skyldu verða eldsvoðans varir
svo snemma sem raun var.
Vinnumálastofnun skoöar launagreiðslur Impregilo
Vill fylgjast með út-
borgun á morgun
KÁRAHRJÚKAR: Styr hefur staðið um launagreiðslur til starfsmanna ítalska verktakans
Impregilo og undirverktaka vegna vinnu á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka. Vinnumála-
stofnun yfirfer nú gögn frá fyrirtækinu en vill að fulltrúar stofnunarinnar verði viðstaddir
útborgun launa hjá Tecnoservice á morgun. DV-mynd GVA
Vinnumálastofnun segir að ver-
ið sé að yfirfara gögn um laun
starfsmanna Impregilo S.p.A.
Fer stofnunin fram á að fulltrúi
hennar verði viðstaddur út-
borgun launa til starfsmanna
Tecnoservice 1. október, vegna
vinnu í september.
f gögnunum, sem Vinnumála-
stofnun voru afhent sl. fimmtudag,
kemur fram að starfsmenn Tecnos-
ervice srl. hafa enn ekki fengið greidd
laun vegna starfa sinna hér á landi,
en þeir komu til starfa í byrjun sept-
ember. Eiga þeir að taka við fyrstu
greiðslu launa á morgun 1. október.
Af því tilefni hefur stofnunin farið
þess á leit við Impregilo S.pA að
fulltrúi Vinnumálastofnunar fái að
vera viðstaddur útborgun launanna.
Óskað hefur verið eftir að svar við
þeirri beiðni berist í síðasta lagi fyrir
kl. 12.00 á hádegi í dag.
ASÍ ókyrrist
Þá lýsti Grétar Þorsteinsson, for-
seti Alþýðusambands fslands, því
yfir á Morgunvakt Ríkisútvarpsins í
gær að þolinmæði verkalýðshreyf-
ingarinnar gagnvart Impregilo sé á
þrotum. Verkalýðshreyfingin mun
ekki ltða að Impregilo verði veittur
afsláttur á gildandi kjarasamning-
um. Fyrirtækinu beri að fara eftir
þeim leikreglum sem hér gilda. Ef
ekki tækist að leysa málin á næstu
dögum yrði það viðfangsefni í
komandi kjarasamningaviðræð-
um, en samningar eru lausir um
áramót.
Gögnin sem Vinnumálastofnun
fékk afhent ná yfir launagreiðslur
til erlendra starfsmanna á vegum
ítalska verktakafyrirtækisins
Impregilo S.p.A. sem starfar við
uppsetningu vinnubúða á Kára-
hnjúkasvæðinu. Er verið að yfirfara
gögnin og kanna hvort þær upplýs-
ingar um launakjör hinna erlendu
starfsmanna reynast fullnægjandi.
Fundað á föstudag
Samstarfsnefnd mun fjalla um
málið nk. föstudag en hún starfar á
grundvelli laganna um atvinnurétt-
indi útlendinga.
Verkalýðshreyfingin
mun ekki líða að
Impregilo verði veittur
afsláttur á gildandi
kjarasamningum.
Nefndin hefur það hlutverk að
fjalla um almenn álitamál varðandi
útgáfu atvinnuleyfa og umsóknir
um atvinnuleyfi fyrir hópa útlend-
inga. í nefndinni eiga sæti fulltrúar
félagsmálaráðuneytis, Vinnumála-
stofnunar, Alþýðusambands fs-
lands, Samtaka atvinnulífsins og
Útlendingastofnunar. Mun nefnd-
in m.a. fjalla um fyrirkomulag á af-
greiðslu þeirra umsókna um at-
vinnuleyfi sem nú bíða afgreiðslu
og þeirra sem eiga eftir að berast
vegna framkvæmdanna við Kára-
hnjúkavirkjun. í því sambandi
verður sérstaklega skoðað hvort
hægt er með einhverjum hætti að
tryggja að farið verði að íslenskum
kjarasamningum og reglum sem
gilda á íslenskum vinnumarkaði,
t.d. með því að laun verði greidd
inn á bankareikninga á nafni starfs-
manna hér á landi. hkr@dv.is
Umræður um stefnuræðu forsætisráðherra:
Nýliðar spreyta sig
Námstími til stúd-
entsprófs verði þrjú ár
er tillaga verkefnisstjórnarmenntamálaráðherra
Nokkrir þeirra sem komu nýir
inn á Alþingi í síðustu kosning-
um koma fram fyrir hönd flokka
sinna við umræður um stefnu-
ræðu forsætisráðherra á
fimmtudag.
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn tala
þeir Guðlaugur Þór Þórðarson, sem
að vísu hefur áður setið á þingi sem
varamaður, og Einar Oddur Krist-
jánsson, auk Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra. Fyrir Samfylking-
una tala össur Skarphéðinsson,
Margrét Frímannsdóttir og nýlið-
inn Ágúst Ólafur Ágústsson. Fyrir
Vinstrihreyfmguna - grænt fram-
boð tala Steingrfmur J. Sigfússon,
Kolbrún Halldórsdóttir og Þuríður
Backman.
Ákveðið verður í hádeginu í dag
hverjir tala fyrir hönd Framsóknar-
flokksins. Ekki náðist í Guðjón Arn-
ar Kristjánsson, formann Frjáls-
lynda flokksins.
Þingsetning á morgun
Alþingi verður sett á morgun.
Þingsetningarathöfnin hefst klukk-
mmm an 13.30 með guðs-
■ þjónustu í Dómkirkj-
Ps. unni. Séra Ólafur Jó-
i hannsson, sóknar-
'jy prestur í Grensás-
prestakalli, predikar
Guðlaugur Þór 0g þjónar fyrir altari
Þórðarson- ásamt biskupi ís-
lands, herra Karli Sig-
™ 1 Forseti íslands set-
y ur þingið og að því
|r '"-jpl loknu tekur starfsald-
AJShIH ursforseti þingsins,
Ágúst Ólafur Halldór Ásgrímsson
Ágústsson. utanríkisráðherra,
við fundarstjórn og stjórnar kjöri
forseta Alþingis. Að loknu fundar-
hléi verður fjárlagafrumvarpinu og
öðrum þingskjölum útbýtt, kosið í
embætti varaforseta þingsins,
fastanefndir þess og alþjóðanefnd-
ir og loks hlutað til um sæti þing-
manna. Sem fyrr segir verður
stefnuræða forsætisráðherra og
umræður um hana á dagskrá á
fimmtudag en á föstudag verður
fyrsta umræða um fjárlagafrum-
varp fyrir næsta ár. oiafur@dv.is
Stytting náms til stúdents-
prófs hefur verið meðal
stefnumála íslenskra stjórn-
valda.
Menntamálaráðherra, Tómas
Ingi Olrich, kynnti í gær skýrslu
verkefnisstjórnar þar sem fjallað
er um áhrif styttingar náms til
stúdentsprófs. í ársbyrjun 2002
efndi menntamálaráðuneytið til
málþings um hugsanlega stytt-
ingu og í kjölfarið var skipuð verk-
efnisstjórn til að gera úttekt sem
gæfi forsendur til að taka ákvörð-
un um hvort, og þá hvernig, ætti
að stytta námstíma til stúdents-
prófs.
í skýrslunni eru áhrif styttingar
metin og nokkrum hugmyndum
um útfærslu varpað fram. Lagt er
til að námstími til stúdentsprófs
verði styttur um eitt ár en til að
mæta auknu kennsluálagi verði
kennsludögum innan skólaársins
fjölgað um tíu. Stytting náms til
stúdentsprófs er grundvallar-
breyting á íslensku menntakerfi
og menntamálaráðuneytið vill
leitast við að gefa almenningi og
fagaðilum eins mikið vægi í þeirri
ákvarðanatöku og mögulegt er. í
því augnamiði er efnt til umræðu-
þings á netinu um styttingu náms
til stúdentsprófs. Umræðuþingið
er haldið á Menntagátt mennta-
málaráðuneytisins,
www.menntagatt.is.
Stefnt er að því að umræðu-
þingið standi yfir fram eftir vetri
og að starfshóparnir skili niður-
stöðum sínum fyrir lok árs 2003. í
framhaldi af því mun mennta-
málaráðherra taka endanlega
ákvörðun um hvort og hvernig
skuli staðið að styttingu náms til
stúdentsprófs. Það kemur síðan í
hlut Alþingis að breyta lögum ef
frumvarp þess efnis verður lagt
fram.