Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Blaðsíða 28
28 DVSPORT ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 DV Sport Keppni I hverju oröí Netfang: dvsport@dv.is Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889 hópnauðgun? Þór ekki með Auðunn skoraði KNATTSPYRNA: Varnarmað- urinn Auðunn Helgason skor- aði eitt marka Landskrona í mikilvægum sigri á Sundsvall, 3-2, í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Auðunn skoraði annað mark Landskrona en með sigrinum tryggði liðið sæti sitt (úrvals- deild þótt enn séu þrjár um- ferðir eftir af deildinni. Átta leikmenn í KNATTSPYRNA: Enska lög- reglan rannsakar nú ákæru þess efnis að átta leikmenn í ensku úrvalsdeildinni hafi komið nálægt hópnauðgun á 17 ára stúlku á hóteli í Lundún- um um helgina. Talið er að hún hafi samþykkt að fara með einum leikmanni upp á hótelherbergi en þegar til kastanna kom þá bættust sjö leikmenn úr öðru félagi við. Stúlkan kærði verknaðinn á lögreglustöð og gekkst undir læknisrannsókn strax. Lögregl- an mun yfirheyra hana á næstu dögum en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Sex lið, Arsenal, Newcastle, Liverpool, Charlton, Chelsea og Aston Villa, voru að spila í Lundúnum um helgina. HANDKNATTLEIKUR: Þórsar- ar munu ekki taka þátt í bikar- keppni HS( sem hefst í kvöld og hafa tilkynnt Handknatt- leikssambandi íslands um þá ákvörðun sína. Þór átti að mæta (BV í Vest- mannaeyjum á morgun en ákvað að draga lið sitt út úr bikarkeppninni á síðustu stundu. Frá Hamri til Memphis Robert O'Kelly á leið í NBA-deildina Bandaríski körfuknattleiksmað- urinn Robert O'Kelly, sem lék með Hamri í Intersportdeildinni fyrri hluta síðasta vetrar, hefur skrifað undir samning við NBA- liðið Memphis Grizzlies. O’Kelly var látinn fara frá Hamri á miðju tímabili þar sem hann þótti ekki standa undir væntingum og í hans stað kom Keith Vassell. O’Kelly skoraði 31,4 stig að með- altali í þeim ellefu leikjum sem hann spilaði fyrir Hamar en þótti leggja fulllítið á sig varnarlega og var því látinn fara. Hann er fæddur og uppalinn í Memphis og skrifaði undir samning sem er þó þess efnis að félagið getur rift honum hvenær sem er. Hann er einn af tuttugu leikmönnum í leik- Hann þótti leggja full- lítið á sig varnarlega og varþví látinn fara. mannahópi Memphis Grizzles en fimmtán leikmenn komast í loka- hópinn sem spilar í NBA-deildinni á komandi tímabili. oskar@dv.is Með tilboð frá Brann Ólafur Örn Bjarnason íhugar nú tilboð norska liðsins Landsliðsmaðurinn Ólafur Örn Bjarnason kom heim frá Bergen í gær þar sem hann dvaldist hjá norska liðinu Brann. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum DV Sports fékk Ólafur Örn tilboð upp í hendurnar frá Brann sem hann hyggst fara yfir á næstu dögum. „Það segir sjálft að hann er ekki ókeypis enda teljum við að hann muni styrkja liðið mikið." TIL NOREGS? Ólafur Örn gæti verið á leiðinni til Br Ólafur örn sagði í samtali við norska blaðið Bergens Tidende í gær að Brann væri fyrsti valkostur hjá honum en hann heldur í dag til Stoke þar sem hann mun æfa fram að landsleiknum gegn Þjóðverjum. Forráðamenn Brann eru sam- kvæmt heimildum DV Sports til- búnir til að gera Ólaf Örn að launa- hæsta leikmanni liðsins gangi hann í raðir félagsins. „Hann er fastamaður í landsliði sem á möguleika á því að komast í lokakeppni EM. Það segir sjálft að hann er ekki ókeypis enda teljum við að hann muni styrkja liðið mik- ið ef hann ákveður að koma til okk- ar,“ sagði Per Ove Ludvigsen, fram- kvæmdastjóri norska liðsins, við sama blað í gær. oskar@dv.is Beckham ekki lengi frá Verður með RealMadrid um næstu helgi Enskir knattspyrnuáhuga- menn geta andað léttar því að það er orðið Ijóst að meiðslin sem David Beckham varð fyrir gegn Valencia á laugardaginn eru ekki eins alvarleg og fyrst var haldið. Beckham meiddist á fæti í leiknum og fyrst var haldið að meiðslin væru það alvarleg að hann myndi ekki spila með Eng- lendingum gegn Tyrkjum 11. október í Istanbúl í undankeppni „Þetta eru ekki alvar- leg meiðsli þó að þau séu sársaukafull." EM. Sá leikur virðist þó ekki vera í hættu því að læknar Real Madrid stefna að því að gera hann leik- hæfan fyrir leik Madrid gegn Espanyol næstkomandi sunnu- dag. Hann missir reyndar af leiknum gegn Porto í meistaradeildinni á morgun en læknar liðsins eru bjartsýnir. „Þetta eru ekki alvarleg meiðsli þó að þau séu sársaukafull.” oskar@dv.is Ríkharður með á ný Landsliðsþjáifararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson völdu í gær 22 manna hóp fyrir landsleikinn gegn Þjóðverjum í Hamborg 11. október næst- komandi. Fimm leikmenn, Ríkharður Daðason, Bjarni Guðjónsson, Gylfi Einarsson, Hjálmar Jónsson og Tryggvi Guðmundsson, voru ekki í hópnum í sfðasta leik gegn Þjóð- verjum en þrír leikmenn, Heiðar Helguson og Lárus Orri Sigurðsson sem eru meiddir og Jóhannes Karl Guðjónsson, sem er í banni, eru fjarverandi úr síðasta leik. Fjarvera þessara þriggja leikmanna veikir Mesta athygli vekur endurkoma Ríkharðs Daðasonar en hann hef- ur ekki spilað með landsliðinu síðan gegn Ungverjum íseptember í fyrra. liðið mikið auk þess sem óvíst er um Hermann Hreiðarsson en hann hefur verið meiddur að undanförnu. Mesta athygli vekur endurkoma Ríkharðs Daðasonar í landsliðið. Hann hefúr ekki spilað með lands- liðinu síðan gegn Ungverjum í september í fyrra og virðist, ef marka má frammistöðu hans um síðustu helgi með liðinu sínu Frederikstad þar sem hanrn skoraði tvö mörk, vera að komast f gott form. Einnig er gleðilegt að sjá Tryggva Guðmundsson á nýjan leik í hópnum en hann er nýstiginn upp úr meiðslum. oskar@dv.is LANDSLIÐSHÓPURINN GEGN ÞÝSKALANDI Nafn: Félagslið Landsleikir/mörk Birkir Kristinsson (BV 73 Árni Gautur Arason Rosenborg 31 Rúnar Krlstinsson Lokeren 102/3 Arnar Grétarsson Lokeren 63/2 Hermann Hreiðarsson Charlton 51/3 Helgi Sigurðsson Lyn 49/10 Þórður Guðjónsson Bochum 48/12 Ríkharður Daðason Frederikstad 42/14 Brynjar Björn Gunnarsson Nottingham Forest 38/3 Tryggvi Guðmundsson Stabæk 32/9 Arnar ÞórViöarsson Lokeren 28 Pétur Marteinsson Hammarby 27/1 Eiður Smári Guðjohnsen Chelsea 26/9 Ólafur Örn Bjarnason Grindavík 13 Indriöi Sigurðsson Genk 12 Bjarni Guðjónsson Bochum 12 Marel Baldvinsson Lokeren 11 Ivar Ingimarsson Wolves 11 Gylfi Einarsson Lillestrom 8 Hjálmar Jónsson Gautaborg 5 Veigar Páll Gunnarsson KR 3 Kristján Örn Sigurðsson KR 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.