Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 Björgunarmenn Guðrúnar Gísladóttur alls ekki hættir BJÖRGUN: Norska strandgaesl- an mun taka við björgun fjölveiðiskipsins Guðrúnar Gísladóttur við Leknes í Noregi og senda reikninginn til eig- enda skipsins, útgerðarfélags- ins Festi. Ástæðan er sögð vera fjárskortur bjögunarsveitar skipsins, fshúss Njarðvíkur. Björgunarfélagið Selöy Und- ervannsservice, sem aðstoðað hefur (shús Njarðvíkur við björgunina, mun vera að huga að málshöfðun gegn því til að fá greiddar þær 80 milljónir króna sem það á ógreiddar. Haukur Guðmundsson, for- svarsmaður (shússins, segir að norska strandgæslan vilji hrekja þá burt, og hafi raunar alltaf viljað það, en um 80% af verkinu sé lokið, en staðan nú sé sú að tryggja ábyrgðir fyrir framhaldinu. Fundur þar að lútandi sé í dag. Þeirséu alls ekki hættir, en þetta fjölmiðlafár út af málinu í Noregi geri þeim erfitt fyrir. Farið fram á milljón í bætur MÁLSÓKN: Foreldrar 12 ára telpu krefjast þess að móðir 16 ára pilts greiði henni 1 milljón króna í skaðabætur. Ástæðan er sú að fram er komið að pilturinn hafði samræði við telpuna á heimili sínu. Samkvæmt hegn- ingarlögunum er refsivert að hafa samræði við yngri en 14 ára. Ríkissaksóknari hefur ákært piltinn. Hann viðurkennir að hafa margsinnis haft samræði við telpuna og einnig að hafa vitað að hún hafi aðeins verið 12 ára. Samkvæmt heimildum DV var um ástarsamband að ræða. Eftir að því lauk var kæra hins vegar lögð fram. Pilturinn, móðir hans og verjandi mótmæla bótakröfunni sem fram er kom- in. Réttarhald verður háð í mál- inu fyrir luktum dyrum í október. Hneyksli skekur bresku úrvalsdeildina í knattspyrnu: Ung stúlka segir átta fót- boltamenn hafa nauðgað sér Lögreglan í London rannsakar hvort staðhæfingar 17 ára stúlku um hópur fótbolta- manna hafi nauðgað henni á hótelherbergi séu sannar. Karlmennirnir átta eru sagðir leikmenn liða í ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu. Lundúnalög- reglan hefur staðfest kæru stúlkunnar við fjölmiðla en vill að öðru leyti ekki tjá sig urri efnisatriði málsins. Breska dagblaðið Sun greindi fyrst frá málinu í gær. Þar segir að stúikan hafi verið á bar þegar hún féllst á að sænga með einum leik- mannanna. Þau hafl síðan haldið á lúxushótelið, Grosvenor House, í vesturhluta London. Hún segir hina leikmennina sjö hafa komið að þeim á hótelherberginu og þeir hafi síðan hver og einn ráðist á sig og nauðgað. Stúlkan tjáði lögreglu að hún hafi veitt mótspyrnu en án árangurs. The Sun nafngreinir ekki leik- SKUGGAMYNDIR: Þessar myndir af vangasvip átta karlmanna fylgdu frétt breska dagblaðsins The Sun sem greindi frá málinu í gær. mennina og segir lagalegar ástæð- ur að baki þeirri ákvörðun. Þó er fullyrt að leikmennirnir séu al- þekktir í heimi knattspyrnunnar og einn þeirra leiki jafnframt með landsliði. Svo virðist sem einn leikmann- anna, sá sem leikur með landsliði, hafi bókað nokkur herbergi fyrir hópinn. Leikmennirnir munu hafa haldið hópinn á barnum þar sem stúlkan komst í kynni við einn þeirra. Sjónarvottar segja leik- mennina hafa látið stórkarlalega, þeir hafi veifað peningaseðlum framan í þjóna og verið æstir í skapi. Tekinn á teppið Rannsókn lögreglu er umfangs- mikil enda málið litið alvarlegum augum. Sjónarvottar segja leikmennina hafa látið stórkarlalega, þeir hafi veifað peningaseðlum framan í þjóna og verið æstir í skapi. Fjöldi tæknimanna á vegum lög- reglu hefur rannsakað meintan vettvang glæpsins; fingraför og hugsanleg lífsýni hafa verið tekin. Hótelherberginu hefur verið lok- að og lögreglumenn vakta hótel- ganginn. Auk þess hefur öryggis- gæsla hótelsins látið lögreglu í té myndbönd úr öryggismyndavélum og eru þau nú til rannsóknar. Starfsfólk hótelsins hefúr verið yfir- heyrt, þar á meðal herbergisþerna sem talin er hafa fært áttmenning- unum drykki upp á herbergi. Breska dagblaðið Mirror hefur eftir einum leikmannanna sem sæta rannsókn að hann hafi ekki komið nálægt nauðguninni. „Ég kom ekki nálægt þessu," sagði leikmaðurinn í samtali við blaðið. Hann kveðst ekki hafa dval- ið á Grosvenor House um liðna helgi. Tveir félagar mannsins sæta einnig rannsókn og var efnt til neyðarfundar hjá liðinu í gær. Heimildir herma að einn leik- mannanna hafi verið „tekinn á teppið" hjá yfirmönnum sínum. Eins og fyrr segir liggur ekki ljóst fyrir hvaða leikmenn sæta rann- sókn. Sex lið í ensku úrvalsdeild- inni léku í London um helgina; Arsenal, Aston Villa, Charlton, Chelsea, Liverpool og Newcastle. Skattleysismörk fylgja ekki launaþróun Launafólk greiðir hærri skatta en þyrfti að vera segir í riti Hlífar Skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun í landinu frá því að staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp 1988. Vegna þessa færist skattbyrðin sífellt neðar í tekjustigann samkvæmt athug- un Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði. Er það gagnstætt því sem stjóm- völd gáfu í skyn þegar staðgreiðslu- kerfið var tekið upp segir í nýjasta hefi Hjálms, riti Vlf. Hlífar. Núverandi skattleysismörk eru 67.468 krónur en ættu að vera 93.688 krónur sam- kvæmt útreikningum Hlífar. Þama munaði 26.220 krónum árið 2002 sem ættu ekki að vera skattlagðar eins og nú er gert. Þar af leiðir að launafólk greiðir mánaðarlega 10.108 krónum hærri skatta en ætti að vera ef skatt- leysismörk hefðu fylgt launaþróun í landinu. Á þessu ári em þetta samtals 121.296 krónur. f riti Hlífar segir einnig að stjórn- völd ýti á undan sér þessari öfug- þróun og virðist engu máli skipta hvaða afleiðingar það hefur fyrir fólk með lágar tekjur. Launafólk greiðir mánaðarlega 10.108 krónum hærri skatta en ætti að vera ef skattleysismörk hefðu fylgt launaþróun í landinu. Skattleysismörk vom 44.183 krónur árið 1988 við upphaf stað- greiðslukerfisins. Þau hafa hækkað hægt og bítandi en flest árin dregið í sundur með launaþróun í land- inu. Árið 1991 dró þó eitthvað sam- an, en þá vantaði samt 6.891 krónu upp á að þau næðu að halda í við launaþróunina. Einnig dró saman um 135 krónur á milli áranna 1997 og 1998 þegar munurinn var 17.558 krónur. „Það sem er ljótast og siðlausast við þetta allt saman er, að á sama tíma og almenningur safnar skuld- um, skuli laun þingmanna, ráð- herra og hálaunaðra embættis- manna vera hækkuð og skattar' þeirra lækkaðir." Þá er einnig bent á í riti Hlífar að samkvæmt álagningaskrám fýrir tekjuárið 2002 hafi nettó tekju- og eignaskattar hækkað úr 15% í 23% sem hlutfall af öllum skattskyldum tekjum frá árinu 1990. Fyrir mis- Skattleysismörk frá 1988 - 2002 og það sem upp á vantar að þau fylgi launaþróun i landinu 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2Q00 2001 2002 SkðttkysismÓfk 44.183 49.365 53 988§ 58.750 60.144 57.477 57.199 58.416 58.522 58.466 59.867 60.848 63.488 áÍ5.132 67,468 íwö sem upp ð vmtðr — TlMft — 20.612 24.552 26.220 20000 40000 60000 80000 100000 muninn mætti lækka persónuaf- slátt um 18.500 krónur, eða úr 26.825 í 45.325 krónur. Þá mætti hækka skattleysismörk úr 69.584 krónu í 117.575 krónur. hkr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.