Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 SKOÐUN 15 Alþjóðleg skákhátíð Hróksins á Suðurlandi tileinkuð sunnlenskum börnum: Skákvakningin heldur áfram Skáklistin hefur verið í gífur- legri sókn á íslandi undanfarin misseri, ekki síst vegna hins ótrúlega þróttmikla starfs Skák- félagsins Hróksins. Liðsmenn Hróksins heimsækja nú alla grunnskóla landsins annað árið í röð og gefa öllum börnum í 3. bekk kennslubók í skák. Og í lok næsta mánaðar verður efnt til al- þjóðlegrar skákhátíðar á Suðurlandi sem tileinkuð er sunnlenskum börnum. Eitt sterkasta mót sögunnar Öllum grunnskólabörnum á Suð- urlandi verður boðið til leiks á há- tíðinni sem stendur yfir 28. október til 7. nóvember. Efnt verður til barnaskákmóts og risafjölteflis þar sem börnunum gefst færi á að spreyta sig gegn sterkum skák- mönnum. „Okkar erlendu meist- * arar hafa átt mjög mik- | inn þátt í þeirri skák- f vakningu sem hefur Q orðið hérsíðustu tvö árin." Kannski er merkast við hátíðina alþjóðlegt skákmót sem haldið verður á Hótel Selfossi. I því felst nefnilega tilraun til að festa í sessi alþjóðlegt stórmót á fslandi, en sambærilegt mót var haldið á Sel- fossi í fyrra. Þannig gæti Selfoss orð- ið nokkurs konar „Hastings norð- ursins" að sögn Hrafns Jökulssonar, forseta Hróksins, sem þakkar sér- staklega liðsinni sveitarstjómar Ár- borgar við skipulagningu hátíðar- innar, í meistaraflokki á mótinu keppa meðal annarra sigurvegararnir frá því í fyrra, þeir Ivan Sokolov og Pre- drag Nikolic. Stigahæsti keppand- inn er rússneski stórmeistarinn Vla- dimir Malakhov sem er aðeins 21 árs en kominn með tælega 2700 Elo-stig. Þess má geta að ferð hans hingað til lands er um leið brúð- kaupsferð. Þá keppir Victor Bolog- an sem sigraði á sterkasta skákmóti heims á árinu. íslensku stórmeist- ararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þórhallsson keppa einnig á mótinu. Hrafn Jökulsson segir að meðal- stig keppenda á mótinu verði yfir 2.600 Elo-stigum sem kalla megi skilgreininguna á „ofurmóti". Hann segir að fá sterkari mót hafi verið haldin hér; þó megi nefna alþjóð- legt mót á vegum Hróksins á Kjar- valsstöðum fyrr á þessu ári og tvö heimsbikarmót á vegum Alþjóða- skáksambandsins fyrir rúmum ára- tug. Ótal járn í eldinum Hrókurinn hefur ekki setið auð- um höndum undanfarin misseri og haldið hvert skálcmótið á fætur öðru. Mótið á Kjarvalsstöðum í febrúar síðastliðnum, þar sem Vikt- or Korchnoi mætti til leiks meðal annarra, vakti mikla athygli og um 5.000 manns lögðu þangað leið sína HRAFN Á HANNES 5: Forseti Skákfélagsins Hróksins stendur í stórræðum við að kynna börnum skák- listina og skipuleggja stórmót. í skákhreyfingunni. Ég minni á að kjörorð alþjóða- skákhreyfingarinnar eru „Gens una sumus", „Við erum ein fjölskylda". Hrók- urinn starfar f þeim anda. Og það góða fólk sem hefur komið hingað oft á ári und- anfarin tvö ár, heimsótt með okkur tugi skóla, teflt við þúsundir barna og tekið þátt í því að vekja þessa bylgju; þetta útlenda fólk, sem er því miður verið að útiloka frá íslandsmótinu að einhverju marki, það á meira í skákvakningunni á íslandi en flesta grunar." Kynslóð „bjargað" Spurt er hvort skákin, sem um áratugaskeið hefur átt miklum vinsældum að fagna á Islandi, hafi kannski verið komin að því að deyja út fyrir nokkrum árum. „Við vorum í þann mund að missa heila kynslóð úr skákinni," segir Hrafn. „Hér var um nokkra hríð heldur dauflegt um að litast. En ég hef meiri áhuga á framtíð- inni og velti henni miklu’ meira fyrir mér en fortíð- inni. Sagan er til að læra af henni en framtíðin er miklu áhugaverðap og það eru mörg spennandi verkefni framundan. Það er allt að grænka og það er það sem skiptir máli.“ á Skákdegj fjölskj'ldunnar sem haldinn var samhliða mótinu. Al- þjóðlega mótið á Selfossi í fyrra fékk mikla umfjöllun í hinu virta skák- tfmariti New In Chess og Græn- landsmótið sem Hrókurinn stóð fyrir komst á forsíðu síðasta tölu- blaðs ritsins, enda ekki á hverjum degi sem nýtt land bætist í hóp þeirra sem haldið hafa alþjóðlegt skákmót. Um helgina hófst mótaröð Hróksins og Fjölskyldu- og hús- dýragarðsins fyrir börn í 1.-6. bekk. Skákskóli Hróksins, sem verður op- inn börnum af öllu landinu, tekur til starfa í Rimaskóla í Reykjavík innan tíðar. Hringferð um landið er hafin, þar sem öllum 3. bekkjar börnum á landinu - um 4.300 börn- um - verður afhent bókin Skák og mát að gjöf frá Eddu útgáfu og Hróknum. Og þannig mætti lengi telja. Útlendir meistarar Hrókurinn er fimm ára gamalt skákfélag sem hóf keppni á íslands- mótinu í 4. deild fyrir fimm árum, vann sig upp um deild á hverju ári og hefúr orðið íslandsmeistari síð- ustu tvö. Sterkir eriendir meistarar hafa keppt fyrir Hrókinn en sú liðs- skipan hefur verið umdeild og fyrir liggur að kvóti verður settur á leyfi- legan fjölda erlendra skákmanna á íslandsmótinu. Hrafn er ekki alls kostar sáttur við þau viðbrögð. „Hrókurinn er stoltur yfir því að hafa teflt fram á íslandsmóti mönn- um á borð við Sokolov, Adams og Shirov, en þeir tveir síðamefndu em í hópi 10 sterkustu skákmanna heims, segir Hrafn. „Okkar erlendu meistarar hafa átt mjög mikinn þátt í þeirri skákvakningu sem hefur orðið hér síðustu tvö árin - og við emm ekki jafnuppteknir af upp- mna manna og sumir félagar okkar Friðrik Ólafsson stórmeistari og danski stórmeistarinn Bent Larsen mætast í einvígi á veg- um Skákfélagsins Hróksins á Hótel Loftleiðum í nóvember. Einvígi þeirra um Norður- landameistaratitilinn 1956var stórviðburður í íslenskri skák- sögu. Bent Larsen verður aðalskák- skýrandi á alþjóðlegu móti Hróks- ins á Hótel Selfossi og Friðrik Ólafsson verður verndari móts- ins. í framhaldi af því heyja þeir svo einvígi á Hótel Loftleiðum. Þeir Larsen og Friðrik vom ein- hverjir snjöllustu skákmenn Norðurlanda á 20. öld og háðu margar ormstur á skákborðinu. Árið 1956 háðu þeir einvígi um Norðurlandameistaratitilinn sem telja má til stórviðburða íslenskr- ar skáksögu. Friðrik, sem var um árabil í hópi bestu skákmanna heims, hafði þá nýverið slegið í gegn með óvæntum sigri á hinu Skák í skólana „Það er virkilega gaman að koma inn í skólastofurnar og kennarastof- urnar því að áhuginn er svo mikill; þekkta skákmóti í Hastings á Englandi. lslenskir fjölmiðlar vom undir- lagðir í margar vikur fyrir einvígið. Eins og nærri má geta hljóp mikið kapp í þjóðina, sem líklega þráði Hrafn um heimsóknir Hróksins í gmnnskóla landsins. „Framlag Eddu útgáfu með bókargjöfinni hefur vitanlega verið alveg ómetan- legt. Fyrst og fremst em það þó börnin sem hafa sjálf borið þessa vakningu uppi því að það em þau sem koma heim til sín og byrja allt í einu að tala um tafl. Það er dregið fram gamalt sett og fjölskyldur byrja jafnvel að eyða saman tíma sem var áður notaður í sjónvarpið eða tölv- una. Auðvitað finna foreldrar til léttis yfir hverjum klukkutíma sem börnin em ekki í „Counterstrike" eða einhverju álíka göfugu fyrir framan tölvuskjá. Og taflið reynir á rökhugsunina og ímyndunaraflið." Og Hrafn sér fyrir sér að skákin verði hluti af námsefninu, rétt eins „Ég sé fyrir mér að eftir nokkur ár verði skákin orðin námsgrein í 70- 80% allra skóla á land- inu." og sund og tónmennt, svo að dæmi séu tekin. „Það er mjög stórt, metn- aðarfullt og merkilegt verkefni að ala heila kynslóð upp og kenna henni skák. Ég sé fyrir mér að eftir nokkur ár verði skákin orðin náms- grein í 70-80% allra skóla á landinu, til dæmis með einni kennslustund á viku. Fyrir utan jákvæð áhrif þess almennt munu óhjákvæmilega fylgja því ótal lítil kraftaverk, þegar við finnum þá sem hafa afburða- hæfileika. Það eiga alls ekki allir að verða meistarar - Guð veit að ég er það ekki - en „bónusinn" yrði að finna þá sem hafa afburðahæfi- leika." otafur@dv.is sigur yfir Dananum Larsen enn heitar en ella vegna þess hve til- tölulega skammt var liðið frá stofnun lýðveldisins. Larsen hafði hins vegar betur í þetta sinn. otafur@dv.is það em allir að pæla í skák,“ segir Einvígi á vegum Hróksins í nóvember: Friðrik og Larsen mætast á ný STÁLIN STINN: Stórmeistararnir Bent Larsen og FriðrikÓlafsson mættust á Reykjavíkur- skákmótinu 1978 og er myndin tekin við það tilefni. Þeir hafa marga hildina háð og mætast á ný á Hótel Loftleiðum í nóvember. Valur í Eimskip? Hluthafafundur verður hald- inn í Eimskipafélaginu á fimmtu- daginn í næstu viku þar sem £JJ stokkað verður upp í stjórn fyrir- Jb tækisins í kjölfar breytinga á Q eignarhaldi. Menn velta mjög y> vöngum yfir því hver taki við __ stjórnarformennsku af Benedikt V Jóhannessyni. Heimildir herma (0 \A ValurValsson. að Björgólfur Guðmundsson, for- maður bankaráðs Landsbankans, þrýsti mjög á um að ValurVals- son, fýrrverandi forstjóri Islands- banka, verði fyrir valinu. Einartaki viðaf Kristjáni Kristján Ragnarsson er á sínu síðasta starfsári sem formaður bankaráðs Islandsbanka. Hann lætur væntanlega af störfum á hluthafafundi í febrúar og er full- yrt að Einar Sveinsson, varafor- maður bankaráðs, taki við for- mennskunni nema einhverjar ófyrirséðar uppákomurverði í viðskiptalífinu - sem hefur reyndar sýnt sig að geta allt eins orðið. Formannsefni Morgunblaðsins? Var það ekki stórkostleg tilvilj- un að Margrét Gauja Magnús- dóttir (To-Be-Grateful Kjartans- sonar) skyldi vera í nánast heil- siðuviðtali f Daglegu lífi í Morg- unblaðinu í gær. Viðtalið var um störf Margrétar hjá Hinu húsinu. Hitt kom ekki fram að svo skemmtilega vill til að hún er í framboði til formennsku í Ung- um jafnaðarmönnum, sem halda þing sitt um næstu helgi. Það var því ekki seinna vænna að kynna hana rækilega til leiks með stóru viðtali. (þessu sambandi vekur athygli að blaðamaðurinn sem tók viðtalið var blaðamaður á kvenfrelsisblaðinu Veru. Já, reyndar á meðan það blað var enn gefið út af Kvennalistanum. Hún á því ekki langt að sækja áhuga á því að konur komist til áhrifa í stjórnmálum, en eini mótframbjóðandi Margrétar Gauju er einmitt karlkyns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.