Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Qupperneq 24
y
24 TILVERA ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003
, íslendingar
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Netfang: aettir@dv.is
Sími: 550 5826
Hundrað ára
Afmæli
90 ára
Karvel Ogmundsson
útgerðarmaður og rithöfundur í Njarðvík
Karvel Ögmundsson, útgerðar-
maður og rithöfundur, Bjargi, Sjáv-
argötu 18, Ytri-Njarðvík, sem nú
dvelur á hjúkrunarheimilinu Garð-
vangi, Garði, er hundrað ára í dag.
Starfsferili
Karvel fæddist á Hellu í Beruvík á
Snæfellsnesi og ólst upp í Beruvík
og á Hellissandi á Snæfellsnesi.
Karvel naut barnaskólafræðslu á
Hellissandi í fjóra vetur og veturinn
1926-27 og lauk stýrimannaprófi
frá Stýrimannaskólanum á ísaflrði.
Karvel var enn á barnsaldri er
hann hóf sjóróðra með fóstra sín-
um, Eggerti Guðmundssyni, í
Bakkabæ á Hellissandi. Hann varð
> formaður á árabátum, íjórtán ára,
og nítján ára varð hann formaður á
vetrarskipi.
Á yngri árum var Karvel skipstjóri
á mörgum vélbátum en 1933 flutti
hann til Njarðvíkur með konu sinni
og fjórum dætrum. Þar rak hann
útgerð og stórt fiskvinnslufyrirtæki,
frystingu, þurrkun og söltun, í sam-
starfi við bróður sinn, Guðmund
Þórarin. Voru þeir með umsvifa-
mestu fiskverkendum landsins um
árabil.
^ Karvel sat í hreppsnefnd Kefla-
víkur 1938-42, var oddviti Njarð-
víkur 1942-62, var hvatamaður að
byggingu skólahúss í Njarðvíkum
en fyrsti barnaskólinn þar var starf-
ræktur á neðri hæðinni á Bjargi,
heimili Karvels, beitti sér fyrir
byggingu eins vandaðasta barna-
leikvallar landsins á þeim tíma, í
Njarðvíkum, var einn af stofnend-
um Barnastúkunnar Sumargjafar
og gæslumaður hennar í fimmtán
ár, beitti sér fyrir byggingu lands-
hafnar í Njarðvíkum og stjórnaði
þeim framkvæmdum, beitti sér fyr-
ir því að Njarðvíkingar fengju sitt
eigið rafmagn og rennandi vatn í
hvert hús og vann að ýmsum öðr-
. um framfaramálum innan byggð-
arlagsins.
Karvel var einn af stofnendum
Útvegsbændafélags Keflavíkur, síð-
ar Útvegsmannafélag Keflavíkur,
og formaður þess í átján ár, einn af
stofnendum Olíusamlags Keflavík-
ur og nágrennis og formaður þess í
þrjátíu ár, einn af stofnendum
Vinnuveitendafélags Suðurnesja og
formaður þess í tíu ár, einn af
Sextíu ára
deildorstjóri á Hetlu
Valur Haraldsson deildarstjóri,
Heiðvangi 10, Hellu, Rangárþingi
ytra, er sextugur í dag.
Starfsferill
Valur fæddist á Efri-Rauðalæk í
Holtum og ólst þar upp. Hann
stundaði hefðbundin sveitastörf í
uppvextinum og lauk búfræðiprófi
frá Hvanneyri 1964.
■* Valur vann við vélaviðgerðir og
gleriðnað til 1969, hefur verið
starfsmaður Skattstofu Suðurlands
á Hellu frá 1969 og er þar nú deild-
arstjóri.
Valur var formaður ungmenna-
félagsins Ingólfs 1964-66, hefur
verið virkur félagi í Flugbjörgunar-
sveitinni á Hellu frá 1959 og situr í
® Fjarskiptaráði björgunarsveita frá
1990.
stofnendum Ungmennafélags
Njarðvíkur og í fyrstu stjórn þess og
einn af stofnendum Rotaryklúbbs
Keflavíkur. Hann var formaður
Sjálfstæðisfélags Keflavíkur og síð-
ar einn af stofnendum og formaður
sjálfstæðisfélagsins Njarðvíkings
og er heiðursfélagi þess, sat í stjórn
Sjúkrahúss Keflavíkur og í stjórn
Sparisjóðs Keflavíkur auk fjölda
annarra stjórnarstarfa.
Karvel var einn af stofnendum
Olíufélagsins hf., Esso, og sat í
stjórn þess í fjörutíu og sjö ár eða til
níutíu ára aldurs og sat í stjórn
Samvinnutrygginga frá stofnun,
1946-99.
Þegar Karvel var kominn fast að
áttræðu hóf hann ritstörf. Hann
skrifaði ævisögu sína, Sjó-
mannsævi, sem kom út í þrem
bindum, 1981, 1982 og 1985. Er
hann var áttatíu og þriggja ára vann
hann til verðlauna í samkeppni á
vegum Námsgagnastofnunar fyrir
handrit að barnabókinni Refir sem
kom út 1990 og þegar hann var níu-
tíu ára kom út önnur barnabók eft-
ir hann sem heitir Þrír vinir: Ævin-
týri litlu selkópanna, sem örn og
Örlygur gáfu út.
Karvel var sæmdur heiðursmerki
Sjómannadagsráðs Keflavíkur 1968
og heiðursmerki Sjómannadags-
ráðs Hellissands 1976. Hann er
heiðursfélagi Ungmennafélags
Njarðvíkur, sjálfstæðisfélagsins
Njarðvíkings og Stórstúku íslands.
Árið 1978 var hann gerður að heið-
ursborgara Njarðvíkur og ári
seinna, 1979, var hann sæmdur
riddarakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu.
Fjölskylda
Karvel kvæntist 14.4. 1928 önnu
Margréti Olgeirsdóttur, f. 14.1.1904,
d. 26.4. 1959, frá Risabjörgum á
Hellissandi, dóttur Maríu Guð-
mundsdóttur frá Stóru-Hellu, Hell-
issandi, og Olgeirs Oliverssonar frá
Gröf í Grundarfirði. Anna var í Hvít-
árbakkaskóla í Borgarfirði og Hús-
mæðraskólanum á Blönduósi, hús-
móðir á stóru og gestkvæmu heimili
og var m.a. einn af stofnendum
Kvenfélags Njarðvfkur.
Sambýliskona Karvels var Þór-
unn Maggý Guðmundsdóttir, f.
19.9. 1933, dóttir Guðmundar Kr.
Fjölskylda
Valur kvæntist 1.6. 1968 Sigrúnu
Bjarnadóttur, f. 15.6. 1944, kenn-
ara. Hún er dóttir Elínborgar Sig-
urðardóttur, f. 20.5.1909, og Bjarna
Jóhannssonar, f. 16.9. 1908, d. 2.2.
2002, en þau voru bændur að Ár-
bakka í Landsveit.
Börn Vals og Sigrúnar eru Þor-
steinn. f. 2.2. 1966, vélvirki en hans
dóttir er Agnes og er kona hans
Guðbjörg Sigurðardóttir en þeirra
böm em Victor Bjarmi og Harpa
Sif; Elínborg, f. 14.2. 1968, kennari
en maður hennar er Hermann Jón
Einarsson og em börn þeirra Val-
dís, Einar Bjarni og Jóhann; Ólafur,
f. 10.10. 1969, kerfisfræðingur en
kona hans er Sigríður Kristín Sig-
urðardóttir og em þeirra börn Sig-
rún Inga, Hugrún Lilja og Guðjón
Valur.
Guðmundssonar, skipstjóra í
Keflavík, og k.h., Ingibjargar Bene-
diktsdóttur frá fsafirði.
Börn Karvels og Önnu em Olga
María, f. 16.8. 1928, húsmóðir í
Njarðvíkum; Guðlaug Svanfríður, f.
12.12. 1929, sjúkraliði í Njarðvík-
um; Líneik Þórunn, f. 27.8. 1932,
íþróttakennari í Reykjavík; Ester, f.
23.8. 1933, d. 15.5. 1989, sérkenn-
ari; Ögmundur, f. 10.3. 1936, flug-
vélvirki í Georgfu í Bandaríkjunum;
Sólveig, f. 19.12. 1940, lektor í
kennslufræði, búsett í Reykjavík;
Eggert, f. 13.11. 1943, d. 22.5. 1962,
sjómaður.
Sonur Karvels og Þómnnar er
Eggert, f. 22.5. 1964 slökkviliðs-
maður, búsettur í Hafnarfirði.
Börn Þómnnar em Guðmundur
Ragnar Mýrdal, f. 9.10.1950, málari
í Bandaríkjunum; Kristján Sveinn
Kristjánsson, f. 5.3. 1953, smiður í
Reykjavík; Helgi Jóhann Kristjáns-
son, f. 19.10. 1954, fiskverkandi I
Njarðvíkum; Ingibjörg Dagmar
Kristjánsdóttir, f. 30.1.1957, banka-
starfsmaður í Reykjavík; Magnús
Systkini Vals em Sigrún, f. 2.9.
1939, matráðskona að Lýtingsstöð-
um í Holtum; Runólfur, f. 26.10.
1941, verslunarmaður á Selfossi;
Halldór, f. 13.3.1946, verkamaðurí
Vestmannaeyjum; Helgi, f. 20.9.
1949, verkamaður á Rauðalæk.
Foreldrar Vals: Haraldur Hall-
dórsson, f. 13.10. 1897, d. 21.3.
1978, og Ólafi'a Hrefna Sigurþórs-
dóttir, f. 11.12. 1907, d. 12.1. 1988,
bændur á Efri-Rauðalæk.
Valur og Sigrún senda ættingjum
og vinum kveðjur á afmælisdaginn.
Þau eru stödd ITyrklandi.
Þór Kristjánsson, f. 11.5. 1963,
tölvuviðgerðarmaður í Reykjavík.
Systkini Karvels vom Guðlaug
Svanfríður, f. 30.3. 1896, sauma-
kona; Sigríður, f. 22.7. 1897, hús-
móðir; Einar, f. 26.2. 1899, vélstjóri;
Kristbjörg, f. 28.9. 1900, húsmóðir;
Karvel Línberg f. 7.5. 1902, d. 7
mánaða; Líneik, f. 18.9. 1905, d. 4
ára; ögmunda (Maddý), f. 21.9.
1907, húsmóðir; Guðmundur Þór-
arinn, f. 9.5. 1910, útgerðarmaður;
Karl, f. 8.4. 1912, smiður; Daníel, f.
19.4. 1915, skipstjóri; Jóhannes, f.
26.9. 1917, vélstjóri. Systkini Kar-
vels em öll látin.
Foreldrar Karvels vom Ögmund-
ur Andrésson, f. 5.7. 1855 að Ein-
arslóni á Snæfellsnesi, d. 11.1.
1923, bóndi og Sólveig Guðmunds-
dóttir, f. 2.9.1873 í Purkey á Breiða-
firði, d. 10.6. 1942, húsfreyja.
Karvel og börn hans bjóða ætt-
ingjum og vinum að gleðjast með
sér í samkomusal hjúkmnarheimil-
isins Garðvangs í Garði á afmælis-
daginn, þriðjudaginn 30.9., kl.
15.00-18.00.
Andlát
Þórir Benedikt Sigurjónsson, fyrrv.
deildarstjóri, lést á hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli laugard. 27.9. si.
Pétur Jóakimsson lést á Sólvangi
miðvikud. 24.9.
Jarðarfarir
Stefanfa Ásbjarnardóttir hjúkrun-
arkona frá Guðmundarstöðum,
Vopnafirði, verður jarðsungin frá
Áskirkju þriðjud. 30.9. kl. 13.30.
Davíö Eiðsson, sem lést sunnud.
21.9., verður jarðsunginn frá Foss-
vogskapellu þriðjud. 30.9. kl.
13.30.
Sigurborg Hjartardóttlr frá Gröf í
Þorskafirði verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju þriðjud. 30.9. kl.
13.30.
Ólafur Björgvin Guðmundsson,
Hafnarstræti 9, Akureyri, varð
bráðkvaddur þriðjud. 23.9. Útför
hans fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjud. 30.9. kl. 13.30.
.ValurHaraldsson
Jóhannes Arason,
Dvergabakka 16, Reykjavík.
Jóhannes Þorbjarnarson,
Gunnlaugsgötu 21 b, Borgarnesi.
80 ára
Finnbjörg Jónsdóttir,
Vallholtsvegi 17, Húsavík.
Jóhanna Loftsdóttir,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Kristín Arnórsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Sigríður Pálmadóttir,
Efstasundi 7, Reykjavík.
75 ára
Aðalbjörg Jónasdóttir,
Kasthvammi, Húsavík.
Kristln Marsellíusdóttlr,
Völusteinsstræti 18, Bolungarvík.
70 ára
Björk Nóadóttir,
Dalsgerði 3a, Akureyri.
Margrét Ámundadóttir,
Árskógum 6, Reykjavík.
60 ára
Ámi Jósep Júllusson,
Hraunsvegi 7, Njarðvík.
Baldur Björnsson,
Fitjamýri, Hvolsvelli.
Haukur Þorvaldsson,
Vogabraut 2, Höfn.
Mikael Sigurðsson,
Hólabraut 9, Hrísey.
Minnie Karen Wolton,
Vegghömrum 5, Reykjavík.
Sigrún Maria Glsladóttir,
Selvogsgrunni 5, Reykjavík.
Stefán Pétursson,
Sandholti 14, Ólafsvík.
Stefnir Einar Magnússon,
Hraunstíg 3, Bakkafirði.
50 ára
Ingibjörg
Sveinbjömsdóttir,
Auðarstræti 15,
Reykjavík.
Halldóra G. Valdórsdóttir,
Langekru, Hellu.
Janl Djerfi,
Meiðastaðavegi 7b, Garði.
Jóhanna J. Aðalsteinsdóttir,
Fagrahjalla 18, Vopnafirði.
Jón Heiðar Jónsson,
Munkaþverá, Akureyri.
Katrln Steinsdóttir,
Suðurvangi 8, Hafnarfirði.
Kristján Benjamín Sigurðarson,
Strandgötu 72, Eskifirði.
óskar Kristjánsson,
Dvergholti 7, Mosfellsbæ.
Rósbjörg Sigríður Olsen,
Valbraut 17, Garði.
Sigurjón Kristinn Baldursson,
Rauðási 14, Reykjavík.
Valgeir Rúnar Hauksson,
Engjavegi 9, (safirði.
40 ára
Anna Friöriksdóttir,
Álfhólsvegi 16, Kópavogi.
Anna Margrét Eggertsdóttir,
Vættagili 1, Akureyri.
Eygló Guðnadóttir,
Efstasundi 99, Reykjavík.
Guðrún Halldóra Gestsdóttir,
Birkigrund 51, Kópavogi.
Hannes Ingi Guðmundsson,
Gullsmára 3, Kópavogi.
Hulda Ásgeirsdóttir,
Hrafnagilsstræti 21, Akureyri.
Julian MarkWilliams,
Lyngási 4, Garðabæ.
Kolbrún Hauksdóttir,
Laufvangi 11, Hafnarfirði.
Laufey Kristmundsdóttir,
Sandholti 17, Ólafsvík.
Óli Pétur Lúðvfksson,
Arnarheiði 3, Hveragerði.
Óskar Jensson,
Glæsivöllum 9, Grindavík.
Sigríður Svava Þorsteinsdóttir,
Haukalind 4, Kópavogi.
Sigrún Jónsdóttir,
Gnoðarvogi 62, Reykjavík.
Sæmundur Þór Sæmundsson,
Snorrabraut 52, Reykjavík.