Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER2003 MENNING 73
Huggun í sorg
BÓKMENNTIR: Skálholtsútgáf-
an hefur gefið út bókina
Huggun í sorg eftir Karl Sigur-
björnsson biskup. Bókin er til-
einkuð þeim sem sorgin hefur
sótt heim, hún geymir hugg-
unarorð úr ýmsum áttum, ör-
stutta texta í formi íhugana og
bæna og orða Biblíunnar sjálfr-
ar um sorg og missi, huggun
og von. Textar bókarinnar orða
hugsanir
fólks þegar
sorgin sækir
að með öllum
sínum þunga.
Bókin fæst í
þókaverslun-
um og í
Kirkjuhúsinu
á Laugavegi
31.
Kristín Eyfells
MYNDLIST: Olíumálverk af
Anwar Sadat, fyrrverandi
Egyptalandsforseta, eftir lista-
konuna Kristínu Halldórsdótt-
ur Eyfells er til sýnis á listasafni
Aðalbókasafns Alexandríu í
Egyptalandi og er nú í eigu
safnsins. Kristín lést í Orlando í
Flórída á síðastliðnu ári en þar
hafði hún átt heima með
manni sínum, Jóhanni Eyfells,
málar Sadat
prófessor við University of
Central Florida, frá árinu 1969.
Hún þótti afar frumleg lista-
kona sem notaði sterka liti og
drætti sem minntu á íslenskan
uppruna hennar. Sadat var að-
ili að frægu samkomulagi um
frið í Miðausturlöndum ásamt
Menachen Begin frá Israel en
féll fyrir hendi ofstækismanna
6. október 1981.
Blíðfinnur í Vitanum
BÓKMENNTIR: (þættinum
Vitanum á Rás 1 í kvöld kl. 19
hefst lestur á sögunni Ert þú
Blíðfinnur? Ég er með mikil-
væg skilaboð. Höfundurinn,
Þorvaldur Þorsteinsson, les.
Allt leikur í lyndi hjá Blíðfinni,
garður hans er í blóma og sól-
in skín. En dag einn finnur
hann þrjá hugprúða félaga illa
slasaða í garði sínum ...
Stephansstefna
verður haldin í tilefni 150 ára afmælis Stephans G. Stephanssonar
KLETTAFJALLASKALDIÐ: Málverk Gunnars Karlssonar
af Stephani G. Stephanssyni sem verður á kápu seinna
bindis ævisögu skáldsins eftir Viðar Hreinsson. Það
kemur út á afmælisdaginn.
ítilefni afþví aÖ á föstudaginn, 3. október, verða
150 ár liðin frá fæðingu Stephans G. Stephans-
sonar gangast Háskóii íslands, ReykjavíkurAka-
demían, StofnunSigurðarNordalsog TheNordic
Association for Canadian Studies (NACS) fyrir
ráðstefnu um skáldið, samtíð hans, verk og
hugmyndir í Háskóla íslands dagana 3.-5.
október.
Stephan G. Stephansson var og er merkast-
ur íslenskra skálda í Vesturheimi og af ýms-
um fræðimönnum talinn með bestu ljóð-
skáldum Kanada. Hann var fæddur á Kirkju-
hóli í Seyluhreppi í Skagaflrði 1853, fluttist til
Vesturheims tæplega tvítugur og kom aðeins
einu sinni tii fslands eftir það. Hann vann
hörðum höndum alla ævi og eru afköst hans
á ritvellinum með ólíkindum miðað við það.
Hann lést í Kanada 1927.
Ráðstefnan verður sett í hátíðasal Háskól-
ans kl. 20 að kvöldi 3. október. Páll Skúlason
rektor, Stephan Benediktson, dóttursonur
Stephans, og Indriði Indriðason rithöfundur
munu ávarpa samkomuna. Þá verður síðara
bindi ævisögu Stephans eftir Viðar Hreinsson
kynnt en það kemur út þennan dag hjá bóka-
útgáfunni Bjarti. Einnig skemmtir afkomandi
Stephans, Bill Bourne, með söng.
Ráðstefnan fer fram í stofu 101 í Lögbergi á
laugardaginn og í stofu 101 í Odda á sunnu-
daginn. Fyrirlesarar verða prófessorarnir
Marc Shell frá Harvard-háskóla, David Arna-
son frá Manitoba-háskóla og Odd S. Lovoll
frá St. Olav College, Minnesota, Jars Balan,
fræðimaður frá Edmonton í Alberta, Krist-
jana Gunnars, rithöfundur frá Vancouver, og
íslendingarnir Baldur Hafstað, Eysteinn Þor-
valdsson, Helga Kress, Bergljót Kristjánsdótt-
ir, Guðrún Guðsteinsdóttir, Róbert Haralds-
son, Kristján Eirfksson, Sólveig Anna Bóas-
dóttir, Steinþór Heiðarsson, Vigfús Geirdal,
Úlfar Bragason og Viðar Hreinsson, ævisögu-'
ritari Stephans.
Allir eru velkomnir á ráðstefnuna og má
lesa dagskrána á heimasíðum Háskólans,
www.hi.is, og Stofnunar Sigurðar Nordals,
www.nordals.hi.is.
Á laugardagskvöldið verður hátíðarkvöld-
verður í Iðnó kl. 19. Matseðillinn verður sá
sami og í samsæti í Reykjavík til heiðurs
Stephani G. þegar hann kom til íslands 1917.
Kvöldverðurinn kostar 4.800 kr. án drykkjar-
fanga. Þeir sem hafa hug á að koma til kvöld-
verðarins eru beðnir að skrá sig hjá Stofnun
Sigurðar Nordals í síma 562 6050 eða í tölvu-
pósti: ulfarb@hi.is.
í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar sitja
Guðrún Guðsteinsdóttir, Úlfar Bragason og
Viðar Hreinsson. Af sama tilefni opnar
Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn
sýningu um ævi og störf Stephans G. í forsal
þjóðdeildar 3. október. Á sýningunni verða
handrit, bækur og myndir og einnig yfirlit um
Vesturheimsprent. Þá endursýnir Sjónvarpið
heimildamynd Jóns Egils Bergþórssonar um
Stephan G. á sunnudaginn kl. 14.10.
JSennibekkir og fræsivélar
Skápar og hirslur.
Patrónur og bakkar.
Skrúfstykki, tessar,
hraðskiptihaldarar
og stálhaldarar.
Fræsar, rennistál,
s n i ttta p p a r, b o r a r,
mælitæki, kílnálar.