Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2003, Side 28
28 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003
D V Sport
Keppni [ hverju oröi
Netfang: dvsport@dv.is
Sfmi: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889
Stórgróði hjá Man. Utd
Barnsley steinlá fyrir QPR
KNATTSPYRNA: Enska úr-
valsdeildarliðið Manchester
United hagnaðist um 39,3
milljónir punda (tæpa fimm
milljarða íslenskra króna) fyrir
skatta á bókhaldsárinu sem
endaði 31. júlí á þessu ári.
Hagnaður félagsins jókst um
22% á milli ára en veltan jókst
um 18% í 173 milljónir punda
(um 22 milljarða íslenskra
króna). Félagið græddi 27,6
milljónir punda á meistara-
deildinni á árinu og fékk 24,2
milljónir punda út úr samningi
sínum við íþróttavöruframleið-
andann Nike.
„Þessar niðurstöður sýna að
Manchester United er árang-
ursríkt bæði utan vallar og inn-
an," sagði David Gill, einn for-
ráðamanna félagsins.
KNATTSPYRNA: Guðjón
Þórðarson og lærisveinar hans
í Barnsley gerðu ekki góða ferð
til Lundúna í gærkvöld þegar
þeir sóttu Queens Park
Rangers heim í ensku 2. deild-
inni.
Lokatölur leiksins urðu 4-0 fyr-
ir heimamenn og það voru
þrjú mörk QPR á fjórum mínút-
um um miðbiksíðari hálfleiks
sem gerðu út um leikinn.
Heldur hefur dregið af Barnsley
eftirfrábæra byrjun. Liðið hef-
ur ekki unnið leik í deildinni
síðan 6. september og fallið úr
efsta sætinu niður í það ellefta
á þeim tíma, sjö stig frá
toppnum.
QPR er aftur á móti í ágætis
málum í þriðja sæti deildarinn-
ar.
K a R L A R
SS-BIKAR
1. umferð
HR-Fram 15-42
Leon E. Pétursson 5, Gylfi Þór Harð-
arson 3, Þormar Þorbergsson 3,
Arnar Hauksson 1, Baldvin Einars-
son 1, Bjarki Elías Kristjánsson 1,
Gunnar Þorsteinsson 1 - Jóhann
Gunnar Einarsson 9, Stefán Baldvin
Stefánsson 8, Arnar Þór Sæþórsson
6, Guðjón Finnur Drengsson 6, Jón
Björgvin Pétursson 4, Einar Sig-
urðsson 2, Guðlaugur Arnarsson 2,
Magnús Jónsson 2, Björgvin Þór
Björgvinsson 1, HjálmarVilhjálms-
son 1,ValdimarÞórsson 1.
Grótta/KR 2-Afturelding 25-26
Konráð Olavson 11, Davið B. Ólafs-
son 4, Björgvin Barðdal 2, Guð-
mundur Albertsson 2, Hafsteinn
Guðbrandsson 2, Jóhann Þorláks-
son 2, Willum Þór Þórsson 2 -
Hilmar Stefánsson 6, Ernir Hrafn
Arnarsson 4, Jens Ingvarsson 4,
VladislavTrufan 4, Daníel Berg
Grétarsson 3, Hrafn Ingvarsson 3,
Einar Ingi Hrafnsson 1, Magnús
Einarsson 1.
World Class-Valur 16-53
Guðmundur Magnússon 3, Jón G.
Viggósson 3, KristóferThomson 3,
Róbert Herbertsson 3, Benjamín
Hallbjörnsson 1, Hans Aðalsteins-
son 1, Hilmar Guðlaugsson 1, Ægir
Friðgeirsson 1 - Finnur Friðgeirs-
son 13, Freyr Brynjarsson 11, Krist-
ján Karlsson 5, Elvar Friðriksson 4,
Hjalti Gylfason 4, Ægir Hrafn Jóns-
son 4, Atli Rúnar Steinþórsson 3,
Ásbjörn Stefánsson 3, Heimir Árna-
son 2, Ingvar Árnason 2, Hjalti
Pálmason 1, Sigurður Eggertsson
1.
(R 2-Breiðablik 25-30
Róbert Rafnsson 8, Jóhann Ás-
geirsson 6, Erlendur Stefánsson 3,
Frosti Guðlaugsson 3, Guðmundur
Pálsson 2, Björgvin Þór Þorgeirsson
I, Ólafur Gylfason 1, Þorkell Guð-
brandsson 1 - Björn Óli Guð-
mundsson 10, Stefán Guðmunds-
son 6, Davíð Ketilsson 4, Gunnar B.
Jónsson 3, Ingi Þór Guðmundsson
3, Guðmundur Guðmundsson 2,
Vilhelm Sigurðsson 2.
Haukar 2-ÍR 30-45
Einar Jónsson 8, Jason Ólafsson 7,
Óskar Ármannsson 6, Sigurjón Sig-
urðsson 4, Hreinn Jónsson 3, Helgi
Ásgeir Hreiðarsson 1, Pétur Vil-
bergsson 1 -Tryggvi Haraldsson
II, Bjarni Fritzson 8, Einar Hólm-
geirsson 6, Sturla Ásgeirsson 6,
Ragnar Helgason 5, Daði Skúlason
3, Davíð Ágústsson 2, Fannar Þor-
björnsson 2, Hannes Jón Jónsson
1, Lárus Jónsson 1.
1 . D E I L D
ENGLAND
Bradford-Derby 1-2
Cardiff-Wigan 0-0
Norwich-Reading 2-1
Rotherham-: Stoke 3-0
Watford-Burnley 1-1
West Brom-Millwall 2-1
Wimbledon-Sheff. Utd 1-2
Sunderland-lpswich 3-2
Sheff. Utd 10 7 2 1 20-10 23
WBA 10 7 1 2 17-10 22
Wigan 10 6 3 1 14-6 21
Norwich 10 6 2 2 16-11 20
Sunderl. 10 6 1 3 17-10 19
West Ham 9 5 2 2 10-6 17
N. Forest 9 5 1 3 16-11 16
Millwall 11 4 4 3 15-13 16
Cardiff 10 4 3 3 19-12 15
Readinq 10 4 2 4 14-11 14
Burnley 11 4 2 5 16-18 14
Crewe 9 4 1 4 9-12 13
Gillingh. 11 3 4 4 12-18 13
Walsall 10 3 3 4 12-11 12
Stoke 11 3 3 5 13-15 12
Derby 10 3 3 4 11-16 12
C. Palace 9 3 2 4 13-13 11
Stór skörð að f
Meiðsli lykilmanna skapa vandræði fyrír leikinn geg
tÍÞRÓTTALJÓS
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@dv.is
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu mætir Þjóðverjum í
Hamborg 11. október í síðasta
leik liðanna í undankeppni EM
2004. íslenska liðið þarf á sigri
að halda til að vinna riðilinn en
jafntefli færir liðinu í það
minnsta annað sætið og rétt til
að taka þátt í umspili um fjögur
laus sæti í lokakeppninni. Stór
skörð hafa verið höggvin í liðið
síðan (sland og Þýskaland
gerðu markalaust jafntefli á
Laugardalsvelli í síðasta mán-
uði. Framherjinn Heiðar Helgu-
son og varnarmaðurinn Lárus
Orri Sigurðsson, sem voru með
bestu mönnum íslenska liðsins
í leiknum, eru báðir meiddir og
verða ekki með og því bíður
landsliðsþjálfaranna Ásjgeirs
Sigurvinssonar og Loga Olafs-
sonar erfitt verkefni við að
púsla saman liðinu.
Lárus Orri hefur fundið sig gífur-
lega vel í þriggja manna vörninni
sem Ásgeir og Logi tóku upp þegar
þeir byrjuðu og sennilega spilað
sína bestu landsleiki á ferlinum í
sumar. Hann er gífurlega sterkur
maður á móti manni, vinnur
flestallt í loftinu og valdar vel fyrir
félaga sína í vörninni.
Þeir menn sem Ásgeir hefur úr
að moða sem staðgenglar Lárusar
Orra eru Pétur Marteinsson, Brynj-
ar Björn Gunnarsson, Ivar Ingi-
marsson og Kristján Sigurðsson.
Enginn þessara leikmanna íyllir
skarðið sem Lárus Orri skilur eftir
sig. ívar og Brynjar Björn hafa lítið
fengið að spila með sínum liðum í
Englandi og eru því í lítilli leikæf-
ingu.
Hvorugur leikmannanna virðist
njóta mikils trausts hjá þjálfurun-
um því að ívar hefur ekki spilað
eina mínútu síðan þeir félagar tóku
við og svo virðist sem Brynjar Björn
hafi verið gerður einn ábyrgur fyrir
lélegu miðjuspili í Færeyjaleiknum
ytra. Hann var í það minnsta sá eini
af þremur miðjumönnum sem var
tekinn fyrir leikinn gegn Þjóðverj-
um og var ekki einu sinni skipt inn
á þegar varnartengiliðurinn Pétur
Marteinsson meiddist. Kristján
örn er óreyndur í landsliðinu og
erfitt að byrja í leik sem þessum
þrátt fyrir að hann hafi verið öflug-
ur í Landsbankadeildinni í sumar.
Það er nefnilega töluverður munur
að dekka Miroslav Klose eða Stein-
ar Tenden, með fullri virðingu fyrir
þeim ágæta leikmanni. Líklegast
þykir mér að Ásgeir og Logi taki
Pétur Marteinsson af miðjunni og
setji hann í miðvörðinn í stað
Lárusar Orra. Það heppnaðist
ágætlega gegn Færeyingum úti en
sá galli er á gjöf Njarðar að Pétur
var að spila mjög vel á miðjunni
gegn Þjóðverjum og má íslenska
liðið illa við að missa hann þaðan.
Tveir varnarsinnaðir?
Ef Pétur fer í vörnina þá eiga Ás-
geir og Logi nokkra valkosti í stöðu
vamartengiliðs. Áðurnefndir ívar
og Brynjar Björn geta báðir spilað
þessa stöðu en auk þeirra em
Lokeren-félagarnir Arnar Þór Við-
arsson og Arnar Grétarsson færir
um það. Brynjar og Ivar em eins og
Það þarfað vísu tölu-
vert áræði og kjark til
að setja Ríkharð í liðið
eftir svona langa fjar-
veru en hann er eini
maðurinn í hópnum
sem kemst í hálfkvisti
við Heiðar í loftinu.
áður sagði ekki í leikæfmgu en Arn-
ar Grétarsson er ekki nógu sterkur
varnarlega til að spila þessa stöðu.
Arnar Þór Viðarsson hefur spilað
þessa stöðu í Belgíu og þótt hann
hafi lítið getað sem vinstri bak-
vörður f landsliðinu þá þótti hann
eiga góðan leik í þessari stöðu í vin-
áttuleiknum gegn Finnum í apríl-
mánuði.
í ljósi þess að Jóhannes Karl
Guðjónsson er í leikbanni er ekki
ólíklegt að Ásgeir og Logi stilli upp
tveimur varnarsinnuðum miðju-
mönnum fyrir aftan Rúnar Krist-
insson og þá stæði valið á milli
ívars, Brynjars og Arnars Grétars-
sonar. Brynjar er baráttujaxl og
hefur oft skilað miklu fyrir liðið
þegar mikið hefur legið við og því
myndi ég taka hann fram yfir fvar
og Arnar. I’var er reynslulítill lands-
liðsmaður og Arnar er ekki nógu
grimmur til að leysa þessa stöðu.
Skarð Heiðars
í framlínunni þarf að fylla skarð
Heiðars Helgusonar. Hann átti frá-
bæran leik gegn Þjóðverjum, hljóp
tugi kílómetra og vann alla skalla-
bolta og það er í raun og vem að-
eins einn maður sem getur leyst
Heiðar af hólmi. Það er Ríkharður
Daðason sem hefur löngum sýnt
mikilvægi sitt fyrir landsliðið þegar
hann er í formi. Hann er gífurlega
öflugur skallamaður og þann kost
verður gott að hafa gegn Þjóðverj-
um í Hamborg. Marel Baldvinsson
nýtur lítils trausts og var meðal
Það heppnaðist ágætlega
gegn Færeyingum ensá
galii er á gjöfNjarðar að
Pétur spilaði mjög vel á
miðjunni gegn Þjóðverj-
um og má íslenska liðið
illa við að missa hann
þaðan.
annars ekki í 18 manna hóp fyrir
leikinn gegn Þjóðverjum, Helgi Sig-
urðsson og Tryggvi Guðmundsson
nýtast vel gegn smærri þjóðunum
en engan veginn gegn þeim sterk-