Alþýðublaðið - 12.04.1969, Síða 4
4 Aliþýðu'blaðið 12. apríl 1969
Ungfrú Alena Rosochatck-
en frá Tékkóslóvakíu var,
stodd í London þegar Varsjár |
bandalagsherirnir gerðu inn-
rásina í Tékkóslóvakíu. H.ún1
ákvað að setjast um kyrrt í j
Englandi. Hins vegar var ung
frúin lítt enskumælandi, svo |
erfitt reyndist fyrir hana að ,
fá vinnu. Hún ákvað að ger-
ast fyrirsæta og tókst að fá
vinnu. ,,Fyrii(sætustarfið er1
það eina, sem ég get innt af
hendi á meðan ég ekki tala
sómasamlega ensku,“ sagði j
ungfrúin. Og hér er liin 21.
árs gamla tékkneska stúlka J
í mini-kjól, þeim stytzta, sem
við höfum séð lengi. '
LEIKHUS
Vísað á
færan
Lei\félag Kópavogs:
HÖLL í SVÍÞJÓÐ
eftir Francoise Sagan
Þýðandt: Unnur Eirí\sdóttir
Leikstjóri: ' Brynja Bcncdiftsdóttir
Lei\mynd: Baltasar
Leikfélag Kópavogs hefur í þetta
sinn eflt leikhóp sinn þremur ung-
um leikurum sem nokkuð hafa
komið fram á sviði í Reykjavík, og
leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir
leikkona; það er raunar orðinn vani
að leikstjórar úr Reykjavík starfi
að sýningum Leikfélags Kópavogs.
Mætti hvort tveggja verða öðrum
leikfélögum fordæmi, en Leikfélag
Kópavogs nýtur að þessu leyti að
sjálfsögðu nábýlis sins við leikhúsin
í höfuðstaðnum. Slíkt samstarf leik-
félaganna úti um land við leikhús
og leikhúsfólk í Reykjavík er tví-
mælalaust æskilegt báðum aðiljum
og hlýtur að fara vaxandi á næstu
árum; ungum og upprennandi leik-
ara- og leikstjóraefnum verður það
vafalaust kærkomið að fá tækifæri
að reyna sig við stærri og kröfu-
harðari verkefni en kostur gefst í
Reykjavík, og leikfélögunum úti um
land líðsinni skólagenginna leikara
tíma og tíma með þeirri tilbreytni
leikhóps og verkefnavals sem slík-
ur liðsauki gerði mögulega. I’róun
öflugustu leikfélaganna verður vafa-
laust smámsaman hin sama og Leik-
veg
félags Reykjavíkur, stefnir með tím-
anum að skipulegum .leikhúsrekstri
undir forustu menntaðs leikhús-
fólks og síðan atvinnumanna að
leiklist; varðar áreiðanlega míklu
að sú stefna sé tekin í tíma og hald-
ið markvisst í áttina. Vera má að
Leikfélag Kópavogs sé nú að kom-
ast að einhverjum slíkum tímamót-
um, og minnsta kosti er það gefið
í skyn í leikskránni. En félagið
hefur á undanförnum árum sýnt
mikinn áhuga og dugnað í starfi
sínu, og stundum lánazt að hálda
merkilega álitlegar leiksýningar. Er
tvímælalaust æskilegra að starfsemi
þess verði efld og aukin en lögð
með öllu niður -— ef svo er komið
að velja þarf þar í milli.
En þótt liðsaukinn sé Leikfélagi
Kópavogs áreiðanlega kærkominn
og þarfur sýningunni verður ekki
sagt að aðkomufólkið, Sigrún
Björnsdóttir, Sigurður Karlsson,
Erlendur Svavarsson, skeri sig til-
takanlega úr hóp heimamanna,
Theódórs Halldórssonar, Björns
Einarsson, Arnhildar Jónsdóttur.
Þau fyrrtöldu munu að vísu njóta
tneiri kunnáttu í starfi sínu sem
einkutn kom fram af skólaðri radd-
beitingu þeirra. En leikmáti þeirra
er engu að síður fjarska einhæfur,
fábreyttur eins og oft gerist hjá
dugandi áhugafólki; og sá upp-
gerðarlegi ýkjubragur sem einkum
gætti hjá Sigrúnu og Sigurði staf-
ar áreiðanlega ekki af hlutverkun-
um sjálfum. Þetta er aldeilis ekki
sagt til að áfellast þau sérstaklega,
enda eru hlutverk Elenóru og
Sebastians áreiðanlega með því
'helzta og markverðasta sem þau
hafa gert á sviði; sama gildir um
Erlend Svavarsson sem kom vel og
drengilega fyrir í hlutverki Fredriks.
Theódór Halldórsson og Björn Ein-
arsson eru báðir reyndir og góð-
kunnir leikarar í Kópavogi og nutu
báðir eðliskosta og reynslu sinnar
prýðisvel í sýningunni sem Húgó
bóndi og Gunter þjónn, Theódór
sá sem langnæst komst þvf að Iýsa
náttúrlegu skapferli í leiknum. Þá
sópaði verulega að Arnhildi Jóns-
dóttur í hlutverki Agötu og Guð-
rún Þór, sem einnig er þekkt úr
fyrri sýningum félagsins gerði ör-
litlu og þvínær alveg þögulu hlut-
verki afgamallar móður þeirra
Húgós og Agötu þau skil sem
þurfti. Og Ina Gissurardóttir, ung
stúlka sem lék Ofelíu af miklum
eðlisþokka, sýndi og sannaði að enn
á Leikfélag Kópavogs von á álit-
legum leikaraefnum heimafyrir. —
Leiktjöldin gerir Baltasar, hagan-
legt og smekklegt verk, en hann
hefur áður sýnt á óperusýningu í
Tjarnarbæ í fyrra að hann er vel til
þeirra hluta fallinn.
Francoise Sagan sópaði að sér
athygli með skáldsögum sínum með-
an hún var enn á unglingsaldri,
og voru ein eða tvær þeirra meira
að segja þýddar á íslenzku; hún
hefur víst öðru hverju komið fyrir
í slúðurfréttum blaðanna alla tíð
síðan. Þessar fyrstu sögur hennar
voru fjarska vel skrifaðar, læsilegar
sögur, og höfundinum hefur reynd-
ar enzt aldur lengur en undrabarn-
inu; hún leggur í seinni tíð stund
á leikritagerð ekki síður en skáld-
sagna, en þau verk hennar munu
hafa verið öldungis óþekkt hér á
landi þar til nú. Og Höll í Svíþjóð
reyndist ekki miður en sögurnaf
fyrrurn, undirförull leikur, fágað-
ur, fyndinn og fjörugur. Það má
nærri geta að með leiknari meðferð
hefði hið úrkynjunarlega, kynferð-
ismengaða andrúm. leiksins notið
sín til meiri hlítar, og þar með
fyndni og andagift hans; en með-
ferð' hans í Kópavogi tókst engu
að síður merkilega vel eftir aðstæð-
unum, samhæfur, vandvirknisleg-
ur leikur sem oft tókst einlæg
kímni. Brynja Benediktsdóttir hef-
ur unnið verk sitt með ráðdeild og
fyrirhyggju og á vafalaust veruleg-
an heiður af því hve vel tekst; Höll
í Svíþjóð er helzta leikstjórnarverk-
efni hennar til þessa og sýnir ótví-
rætt fram á hæfileika hennar til
starfsins. Þannig er sýning þessi með
þeim sem bezt hafa tekizt í Kópa-
vogi. Og þurfi nú að koma starfi
leikfélagsins á fastari fót en verið
hefur vísar hún á færan veg vax-
andi samstarfs áhugamanna heima
íyrir í félaginu og upprennilegra
atvinnumanna utan í frá. — OJ.
HÚSGÖGN
Sófasett, staJdr stólar og svefnbekkir. — Klæöi göm-
ul húsgögn. Úrval af gó’ðu ákJæði, — meðal annars
pluss í mörigum litum. — Köguir og leggingar
BÓLSTRUN ÁSGRÍMS,
Bergstaðastræti 2 — Sími 16807.
Lán tekin í
Þýzkalandi
í 'fréttatlikynningu frá Seðla-
bar.ka íslands segir m. a. að
fengizt hafi 25 milljóna marka
Ián í Þýzkaiandi, eða jafngildi
550 míllj. íslenzkra króna. Lán
ið er I formi 15 ára sku'ldabrélfa
með 7,5% vöxtuim auk lántöku-
(kostnaðar.
Þá hefur fengizt 3 millj.
irnru'ka lán til byggingar haf-
rannisóknanskipsins Bjarna Sæ-
mundssonar.
SUÐMUNDAR
Bergþórugötu 3.
Símar 19032 og 20070.
Fermingamyndðtökur INGÖLFS-CAFÉ
Pantið allar myndatökur tímanlega. Gömlu dansarnir
Ljósmyndastofa 1 kvöld kl. 9.
SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR, Hljómsveit Jóhannesar Eggertssonar.
Skólavörðustíg 30, Sími 11980 — Heimasími 34980. Söngvari: Grétar Guðmundsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 5. — Sími 12826.
Hurðir og póstar h.f.
Sköfmn upp og innpregnerum útihurðir, endurnýjum
stafla og járn á opnanlegum gluggum, setjum í tvöfalt
gler og fjarlægum pósta og sprossa úr gömlum glugg
um og setjum í heilar rúður.
Framkvæmum einnig innanhúsbreytingar. — Athugið
hið sanngjarna verð.
Upplýsingar í súna 23347.
Ingólfs-Café
BINGÓ sunnudag kl- 3
Aðalvinningur eftir vali.
11 umferðir spilaðar. — Borðpantanir
í síma 12826.