Alþýðublaðið - 12.04.1969, Page 6
6 Allþýðublaðið 12. apríl 1969
iÞorsteinn Gylfason er einn af til-
tölulega fáum Islendingum, sem
leggja stund á heimspekinám, en
það hefur verið hans vettvangur
þau átta ár, sem liðin eru síðan
hann lauk stúdentsprófi með láði
frá Menntaskólanum í Reykjavík.
I vetur er Þorsteinn hér heima
við aðskiljanleg kennslu- og rit-
störr, og sætir færis að komast aftur
til Oxford, þar sem hann hefur
dvaiið síðastliðin fimm ár við samn-
ingu doktorsritgerðar sinnar.
Yið sóttum Þorstein heim á Ara-
götn 11 fvrir nokkrum dögum.
Hapn heilsaði okkur á grænum
innjjakka úr flaueli, aristókratískur,
með brúnt og hvítt blómabindi um
■háisinn og dökk gleraugu.
-r Að hverju starfið þér þessa
dagana, Þorsteinn," spyr ég hann,
þegar við erum sezt í vistlegu her-
bergi hans, þar sem veggír eru þakt-
ir bókum, og þykkt teppi á gólfi.
I
— Ég stýri samdrykkjum um sið-
fræði og iíffræði á vegum Norræna
sutnarháskólans.
— Samdrykkjum?
— Já, ég klíndi því heiti á starf-
semi svonefndra námshópa sumar-
háskólans. „Rannsóknaræfing“
hefði raunar lýst þeirri starfsemi
betur, en rannsóknaræfingar hafa
óvart verið til við háskólann um
árabil og eru drykkjusamkomur
stúdenta í íslenzkum fræðum. Mér
þótti því liggja í augum uppi að
kalla námshópastarfsemina sam-
drykkjur með hliðsjón af gríska
orðinu „symposion" sem er einmitt
haft um áþekka starfsemi víða uin
heim.
Alltaf haft gaman af ., .
—Hvað er gert á þessum sam-
drykkjum?
— Einn þátttakandi hefur fram-
sögu, og framsöguræðan er fjöl-
rituð, áður en hún er flutt, svo
að aðrir þátttakendur hafi kynnt
sér efni hennar fyrirfram.
Þegar frummælandi hefur flutt
sitt mál, ræðum við saman frarn
og aftur um ýmis vandamál, sem
hann hefur drepið á.
— Þér skipuleggið þessa fyrir-
lestra sem sagt.
— Já, og reyni að stýra umræð-
unum. — Þessar samdrykkjur eru
haldnar vikulega, og þeir, sem
sækja þær eiga kost á að fara til
Þrándheims í sumar á mót Nor-
ræna sumarháskólans.
— Við siðfræðisamdrykkjurnar,
sem ég hef einn á minni könnu,
styðjumst við aðallega við tvær
enskar bækur. Höfundar þeirra
deila um, hvort ríkisvaldinu, lög-
gjafar- og dómsvaldi leyfist að hafa
afskipti af siðferði þegnanna. Þessi
deila, sem hófst árið ’59 og stend-
ur enn, hefur vakið mikla athygli
ytra.
— Hvað er um nám yðar erlendis
að segja?
— Ég fór að loknu stúdentsprófi
til Harvard og ætlaði að lesa hag-
fræði. Ég hafði alltaf haft gaman
af (heimspekilcgum (vangaveltum,
en ekki hvarflað að mér, að úr
slíku gæti orðið neitt virðingarvert
nám.
heimspekilegum vandamólum
En þegar ég hafði lesið hagfræði
dálítinn tíma, fór ég yfir í heim-
spcki og varð þeim skiptum tiltölu-
lega feginn. Við Harvard var ég í
þrjú ár og tók þar BA próf, sum-
arið 1965.
— Og svo?
— Frá Harvard fór ég til Oxford
og hef verið þar lengst af síðan.
Eftir nokkurn reynslutíma veittist
mér þar rannsóknaraðstaða, sem
kalla má; henni fylgdu peningar
og auk þess lausn undan öllum
kvöðum á borð við próflestur. I
Oxford er ég með öðrum orðum
frjáls maður og hef getað varið
tíma mínum eingöngu til vinnu að
langri ritgerð.
— Hvers efnis er hún?
Um vísindalega
aðferðarfræði
— Frá því er alveg ómögulegt
að skýra í nokkrum setningum, en
það- heyrir þeirri undirgrein heim-
spekinnar til, sem nefnist „vísinda-
Icg aðferðarfræði", á ensku „Philo-
sophy of Science.11
Slikt efni er hægt að vinna á
afskaplega margan máta. Eg legg
minni rannsókn lil grundvallar
sálarfræði skvnjunarinnar og líf-
eðlisfræði heilans og miðtaugakerfis-
ins.
F.n hingað til hefur aðferðarfræð-
in reyndar mest fjallað um eðlis-
■fræðileg vandamál; (afstæðiskenn-
ingu og öreindaeðlisfræði. Ekki um
líffræði og sálarfræði.
— Svo þér farið þarna kannski
út á nýjar brautir?
— Um það get ég ekkert sagt,
en það gildir sama um mig og alla,
sem vinna að slíkum verkefnum;
við reynum að kjósa okkur efni,
sem tiltölulega lítið hefur verið átf
við, er óplægður akur.
— Hvenær búizt þér við að leggja
ritgerðina fyrir?
— F.fnið í hana er að langmestu
leyti tilbúið. En mig langar að
vera ler.gur í útlöndum — Oxford
— iá, og hvergi nema þar.
Ef mér tekst að aura mér fyrir
því, þá fer ég þangað í sumar, og
vil vera þar eitt eða tvö ár til við-
bótar. Svona ritgerðir er ómögu-
legt annað en láta liggja í salti —
laga svo og breyta. Það er líka
bráðnauðsynlegt að fá sem allra
flesta af sínum kollegum til að Iesa
yfir og ræða svo við þá um efnið.
Það er alltaf ýmislegt, sem manni
getur sézt yfir; hefur ekki komið
auga á. Svo geta verið til ýmis
skrif um þetta efni, tímaritsgrein-
ar eða annað, sem maður hefur
sjálfur ekki rekizt á, en þeir, sem
lesa yfir, þekkja, og gcta þá berft á.
Það er semsé alveg undir hælinn
lagt. hvenær ég legg ritgerðina fyr-
ir. Ég er afskaplega lítill hégóma-
Hjúkrunarkonvr óskast
Hj úknmark'onur vantar á nýja lyflæfcninga-
deild í Landtspítalanum. Allar nánari upplýs-
ingar gefur foÉstöðukona Landspítalans á
staðnum og í síma 24160.
Reykj'avík, 9. apríl 1969
Skrifstofa ríkisspítalanna
Yfirmatráðskona óskast
Staða yfirmatráðiskionu við Kópavogshæ'lið
er laus til umsóknar. Húlsmæðrakennara-
menntun eða próf frá ökomama'skola æski-
leg. Laun sam'kvæmt úrskurði Kjaraldóms.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf isendilst istjómamiefnd
ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, fyrir 10. maí
1969.
Reykjavík, 10. apríl 1969
SkUfstofa ríkisspítalanna
Vinningar i
happdrætti Hí
Fóimmtuidaiglin'n 10. iapríl var
dregið í 4. fflokki Happdirættis
Háskóla íslamids. Dregnir voru
2.100 virniimgajE að fjórhæð
7.100.000 kjrómrr.
Hæsti viinninguríi'nn 500.000
krómir. fcom á' hálfimiða núm-
er 6061. Þtrír hálfmiðair voru
seTdiir í lumboði Frímanlns Frí
mannssonair, etrr/isá fjórðf í ,um
hoðiniui í Sasndgerði.
100.000 fcirónur Ikomu á heil
m|lða miúmer 5048. Vorui báðir
hieilmiðamir seldiir í tumboð-
linui í Vestmannaeyj.um og átti
sami maðurinru samstæða heii
miða 'í báðuimj fiokkuin'um og
fær því 200.000 ikrónuír.
10i.000 kjrómir:
419, 1320, 1515, 3452,. 4775,
5163, 6060, 6062, 7349, 7392,
7785, 8855, 9289, 9655, 12558,
12986, 13350, 17536, 20491,
20873, 21019', 22224, 22843,
26875, 27930, 30357, 31279,
31029, 34288, 36651, 37718,
38118, 40553, 40972, 41054,
41130, 42707, 43249, 45663,
46613, 46824, 47057, 47603,
48757, 48995, 49158, 50339,
'51440,! 51663, 52947, 53871,
59312.
Deildðirhjúkrunarkonur óskast
í Landspítalanum, lyflækni'sdeild, eru lausa*
2 d'ei-ldarhjúkrunarkonustöður. Nánari upp-
lýsingar gefur forstöðukona LandspítalanJs,
sími 24160.
Umsóknir með upplýsingum um 'aldur,
menntun og fyrri störf áendist til Skrifstofu
ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, fyrir 27.
apríl 1969.
Reykjavfk, 9. apríl 1969
Skrifstofa ríkisspítalanna
Hjúkrunarkonur óskast
Hjúkrunarkionur vantar á hinar ýmsú deiUdr
ir .Landspítalans til afieýsilnga í sumarleýf-
um. Bamagæzla fyrir hendi. Ailar nánari
upplýsingar gefur forstöðukona spítalans á
staðnum og í síma 24160.
Reykjavík 9. apríl 1969
Skrifstofa ríkisspítalanna
(BM án ábyrgðar.)