Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Page 2
2 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003 CFTGAFUFÉLAG: Hömlur hf. RITSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar. auglys- ingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setnlng og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Arvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Ríkið stendur sig ekki - frétt bls. 4 Menning og mannlíf í Boston - Ferðir bls. 8 Skæruárásir ógna uppbygggingu í írak - frétt bls. 10-11 Bíó og sjónvarp -Tilvera bls. 26-27 Eiður Smári skoraði fyrir Chelsea - DV Sport bls. 30-31 Sagt uppeftirfimm daga á tindinum Flugvélaverkfræðingnum og ijallgöngugarpinum Thomasi Milnik frá Berlín í Þýskalandi var í fyrradag sagt upp störfum hjá Schröder & Uehlken flugvéla- verksmiðjunum eftir að hafa ver- ið fjarverandi frá vinnu í nokkra daga meðan hann sat fastur á fjallstindi í Alpafjöllunum. Milnik lenti í slæmu veðri á tindinum og þurft að dúsa þar í beingaddi í heila fimm daga án matar og var að vonum illa haldinn og kalinn þegar honum var loks bjargað. Stjórnendur fyrirtækisins voru þó ekkert að tvínóna við hiutina og sendu Milnik strax upp- sagnarbréf á meðan hann dvaldi á sjúkrahúsi þar sem læknar reyndu að bjarga á honum tán- um sem voru illa farnar eftir kalið. Skilorð í amfetamín-máli sem tafðist DÓMSMÁL: Þrítugur karlmað- ur var í gær dæmdur í þriggja mánaða fangelsi skilorðs- bundið fyrir að hafa haft um 60 grömm af amfetamíni í vörslu á heimili sínu við Naustabryggju í lok ágúst á síðasta ári. Málið var flutt sem svokallað játningarmál og tek- ið til dóms án raunverulegrar sönnunarfærslu. (niðurstöðu dómsins var greinilega litið til þess að brotið var framið fyrir rúmu einu ári - brot sem skýlaust var játað hjá lögreglu. Hins vegar var ákæra ekki gefin út fyrr en 2. september síðastlið- inn en þá var ár liðið frá brot- inu. (dóminum segir að ákært sé fyrir talsvert magn am- fetamíns og þegar til alls þessa sé litið, það er þess að málið var upplýst þegar í lok ágúst 2002, játningarinnar og magnsins, þá séu þrír mánuðir hæfileg fangelsisrefsing og hún skuli vera skilorðsbundin. Maðurinn sem fær dóminn verður því ekki sviptur frelsi með dóminum sem hann hlaut í gær. Innbrot í Strætó LÖGREGLA: Brotist var inn í strætisvagn í Mjóddinni í nótt. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík reyndi þjófurinn að losa peningakassa í vagninum en hafði ekki erindi sem erfiði. Þjófurinn er ófundinn og sama er að segja um þann eða þá sem rústuðu fjórar geymslur í blokk í austurborg- inni í nótt. Engu var stolið. Veiðibann á rjúpu ruglarjólasiðum á fjölda heimila: Um 7 þúsund rjúpur verða fluttar inn JÓLARJÚPUR: Margir geta ekki hugsað sér jólin án þess að borða rjúpur. Það verður hins vegar erfitt í ár vegna veiðibanns. Þó geta þeir hörðustu keypt sér skoskar rjúpur líkt og í fyrra. Hún er að sönnu öðruvísi á bragðið en líkaði þó vel í fyrra. Þótt veiðibann á rjúpu rugli jólasiðum á fjölda heimila þetta árið er ekkert sem bendir til þess að meira verði flutt inn af rjúpu en í fyrra. Þá voru fluttar inn um 7 þúsund skoskar rjúpur og stykkið selt á 1398 krónur. Búist er við svipuðu verði á rjúpunni fyrir þessi jól Leifur Grímsson hjá Sælkera- dreifingu segir að menn séu að leggja lokahönd á áætlun um inn- flutning þetta árið. Útlit er fyrir að um 7 þúsund rjúpur verði fluttar inn frá Skotlandi og þær seldar á svipuðu verði og í fyrra. Engin áform eru um að fullnægja aukinni eftirspurn sem kann að verða vegna veiðibannsins. Innflutning- urinn er, eins og í fyrra, í samstarfí við verslanir Hagkaups og Nóa- túns. „Skoska rjúpan er vissulega öðruvísi en sú íslenska en þeirsem verða bókstaflega að fá rjúpu á jólunum létu sérvellíka." „Fólki líkaði ágætlega við skosku rjúpuna í fyrra. Við fengum hana ekki fyrr en 19. desember en við seldum allt sem við fluttum inn. Skoska rjúpan er vissulega öðruvísi en sú íslenska en þeir sem verða bókstaflega að fá rjúpu á jólunum létu sér vel líka,“ sagði Leifur við DV í gær. Leifur sagði að margir yrðu að reyna eitthvað nýtt fyrir þessi jól. Þó að skoska rjúpan hafi selst ágæt- lega viidu margir ekki sjá annað en íslenska rjúpu. Hann benti hins vegar á að úrvalið af villibráð í verslunum væri ágætt. í stað rjúpu gæti fólk borðað hreindýr, dádýr og eins mætti prófa fasana. Leifur var spurður um rjúpu frá Grænlandi eða Rússlandi. Hann sagði að grænlensku rjúpurnar væru svo fáar að ekki tæki þvf að standa í innflutning þeirra. Þá væru ekki væru leyfi fyrir innflutningi á rússneskum rjúpum en afar strang- ar reglur giltu um innflutning á þeim. Sólmundur Oddsson, markaðs- stjóri hjá Nóatúni, tók í sama streng og Leifitr, bæði varðandi innflutn- inginn og jólasiðina. „Við ætlum ekki að leggja ofurá- herslu á rjúpu heldur vekja athygli á öðrum möguleikum. Það er úr nógu að velja. Engin áform eru um að fullnægja aukinni eftirspurn sem kann að verða vegna veiði- bannsins. Margir eru að vísu afar íhalds- samir og fastheldnir en fyrst fólk getur verið á Kanaríeyjum yfir jólin í hita og snjóleysi hlýtur það að geta brugðið út af vananum varð- andi jólamatinn," sagði Sólmund- ur. Hann sagði sölu skosku rjúpunn- ar hafa verið vel undirbúna í fyrra. Fengnir hafi verið nokkrir sérfræð- ingar til smökkunar. Þeir hafi fund- ið greinilegan mun á skosku og ís- lensku rjúpunni og eins á mismun- andi tegundum þeirrar skosku. Þennan mun settu einhverjir fyrir sig þótt mörgum hafi vel líkað. Sólmundur minnti á að þó að veiðibann væri á rjúpu væri ekkert sölubann í gildi. Því gætu menn jafnvel átt von á að rjúpur sem leg- ið hafa í frysti frá í fyrra skytu upp kollinum í verslunum þegar nær drægi jólum. hlh@dv.is Nýir útgefendur DV Eimskip í tvö félög Forstjórinn lætur afstörfum Hömlur hf. hafa tekið að sér út- gáfu DV eftir að Útgáfufélag DV varð gjaldþrota síðdegis í gær. Þorsteinn Einarsson hrl. var í gær skipaður skiptastjóri þrotabús Ugáfufélags DV. Félagið var lýst gjaldþrota þegar ljóst var að endurskipulagning fjár- mála félagsins hafði mistekist. Greiðslustöðvun fékkst þann 10. september sl. og meðan á henni stóð átti að safna nýju hlutafé. Það tókst ekki og þegar greiðslustöðvun fékkst ekki framlengd síðdegis í gær varð gjaldþrot félagsins óhjá- kvæmilegt. Landsbanki íslands er stærsti kröfuhafinn og kom í gær fram skýr áhugi hans á að útgáfa blaðsins haldi áfram. Skiptastjóri gerði því tímabundið samkomulag við Hömlur hf., sem er dótturfélag Landsbankans, um að félagið ábyrgðist útgáfu blaðsins. NÝIR ÚTGEFENDUR: Hömlur hf. hafa tekið að sér útgáfu DV eftir að Útgáfufélagið DV ehf. varð gjaldþrota í gær. Skiptastjóri hélt í gær fund með starfsmönnum DV og kom þar fram að hagsmunum áskrifenda, viðskiptavina DV, starfsmanna blaðsins og kröfuhafa væri best borgið með því að blaðið héldi áfram útgáfu. Áformaður er fundur í dag með skiptastjóra og starfs- mönnum þar sem frekari áform um útgáfu blaðsins verða skýrð. Stjórn Eimskips hefur ákveðið að leggja fyrir hluthafafund í félaginu að félaginu verði skipt í tvö félög. Annars vegar verður Eimskipafé- lag Islands, sem mun annast flutn- ingastarfsemi Eimskips, og hins veg- ar Burðarás sem annast mun fjárfest- ingarstarfsemi. Burðarás mun auka núverandi hlutabréfaeign og taka yfir hlutabréf Eimskips í Brimi. Verða hlutabréf beggja þessara félaga skráð í Kauphöll fslands. Með þessum að- gerðum er stefnt að því að gera félög Eimskipafélagssamstæðunnar að skýrari fjárfestingarkosti. Unnið er að því að fá fleiri fjárfesta að þessum fé- lögum sem geta orðið þátttakendur í uppbyggingu og umbreytingum þessara félaga á næstu ámm. í ljósi þessara breytinga hefur Ingi- mundur Sigurpálsson, forstjóri Eim- skips, ákveðið að láta af störfúm hjá félaginu. Magnús Gunnarsson stjóm- arformaður mun verða starfandi stjórnarformaður á meðan þessar breytingar ná ffam að ganga. Ingi- mundur telur að þær breytingar sem voru gerðar á hluthafafúndi 5. nóvember 2002 hafi verið nauðsynlegar og að eignir fé- lagsins hafi tvöfaldast að verðmæti, velta tvöfaldast, hlutfall eigin fjár styrkst og gengi hlutabréfa í félaginu hækkað um rúm 40% á einu ári. Því telur hann hvorki rétt né fært að taka þátt í því að umbreyta núgildandi skipulagi Eimskips eftir skamma reynslu og nauðsynlegt að fylgja eig- in sannfæringu. gg@dv.is Ingimundur Sigurpálsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.