Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Síða 4
4 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003
Flug til Keflavíkur vinsælt
Bilun í símastreng við Eyjar
FERÐASKRIFSTOFUR: Flugfélag
(slands hefur tekið upp áætlun
tvisvar í viku milli Keflavíkur, Eg-
ilsstaða og Akureyrar og sömu
leið til baka. Jón Karl Ólafsson,
framkvæmdastjóri Flugfélags-
ins, segir að þetta hafi farið ró-
lega af stað en nú séu 10 til 12
farþegar á hverjum legg, og
það sé mjög ásættanlegt svona
á fyrstu vikum eða mánuðum.
„Við höfum tilfinningu fyrir því
að þetta eigi eftir að aukast og
verðum vör við að erlendar
ferðaskrifstofur hafa verið að
bóka inn á þessa leið. Það eru
fleiri á leiðinni Keflavík - Egils-
staðir eða öfugt en Egilsstaðir -
Akureyri enn sem komið er, en
það hefur þó nokkuð verið bók-
að milli Akureyrar og Egilsstaða
og það er vegna mikilla umsvifa
við Kárahnjúka og víðar á Aust-
urlandi, verktakar eru að senda
fólk þarna á milli. Enn sem kom-
ið er erum við með fáa farþega
frá Akureyri um Egilsstaði til
Keflavíkur eða öfugt, enda eiga
farþegar kost á að fara beint
milli Akureyrar og Reykjavíkur
og aka milli Keflavíkur og
Reykjavíkur.
gg@dv.is
SÆSTRENGUR: Samband við
útlönd um Cantat 3 sæstreng-
inn lá niðri í þrjár klukku-
stundir eftir að bilun í honum
varð klukkan hálftvö í nótt.
Þegar Ijóst varð að sambands-
laust var um strenginn kom
Síminn á gervihnattarsam-
bandi við Bretland og Banda-
ríkin.Talsamband við útlönd
lá því aldrei alveg niðri. Hins
vegar lá internetsamband við
útlönd niðri í um hálfa aðra
klukkustund. Bilunin hafði á
hinn bóginn ekki áhrif á tal og
gagnaflutninga innanlands.
Samkvæmt tilkynningu frá
Símanum er líklegt að bilun-
ina megi rekja til sæsímabún-
aðar við Vestmannaeyjar.
Bæjarstjórí Mosfellsbæjar um baráttu móður drengs með Goldenhar-heilkenni:
Ríkið stendur sig ekki
KASTAÐ Á MILU: Tryggingastofnun og félagsþjónusta Mosfellsbæjar hafa kastað máli Ásdisar og Birkis litla á milli sín. Hvor aðilinn vísar á hinn.
Ríkið stendur sig ekki hvað
varðar umönnunarbætur lang-
veikra barna. Þetta segir Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir, bæjar-
stjóri í Mosfellsbæ, spurð um
synjun félagsmálayfirvalda þar
á aðstoð við einstæða móður
drengs með Goldenhar-heil-
kenni.
DV hefur sagt sögu Ásdfsar Jóns-
dóttur, einstæðrar móður lítils
drengs sem er með Goldenhar-
heilkenni. f stuttu máli hefur hún
nú 36.000 krónur til ráðstöfunar á
mánuði, þ.e. einfalt meðlag, svo og
umönnunarbætur frá Trygginga-
stofnun ríkisins upp á um 20.000
krónur. Hún er bundin yfir drengn-
um allan sólarhringinn.
Ásdís leitaði tfmabundinnar fjár-
hagsaðstoðar félagsmálayfirvalda í
Mosfellsbæ þar sem hún er búsett. i
Hún fékk synjun.
Ragnheiður sagði að hvorki þetta
mál né önnur svipuð kæmu inn á
borð bæjarstjórnar þar sem félags-
málanefnd Mosfellsbæjar færi með
málefni félagsþjónustu sveitarfé-
lagsins í umboði bæjarstjórnar.
Starfsmenn fjölskyldudeildar færu
með þau mál sem vörðuðu einstak-
linga og fjölskyldur í samræmi við
reglur bæjarfélagsins, lög og reglu-
gerðir.
Ragnheiður sagði að aðstoð við
Ásdísi og drenginn, svo og önnur af
sama eða svipuðum toga heyrðu
undir Tryggingastofnun ríkisins.
Skilin mili verksviðs sveitarfélaga
og ríkisins í heilbrigðismálum væru
skýr. Sjúkt barn væri heilbrigðismál
sem heyrði undir Tryggingastofn-
un. Ef veikindi barna yrðu þess
valdandi að einstaklingur gæti ekki
framfleytt fjölskyldunni væri það
alla jafna Tryggingastofnunar ríkis-
ins að bæta tekjutap foreldris. TR
ætti að sjá um að greiða þeim um-
önnunarbætur sem rétt ættu á því.
Ásdís leitaði tímabund-
innar fjárhagsaðstoðar
félagsmálayfirvalda í
Mosfellsbæ þar sem
hún er búsett. Hún fékk
synjun.
„Maður veltir því fyrir sér hvar
heilbrigðiskerfið sé statt þegar
svona dæmi koma upp í þjóðfélag-
inu,“ sagði Ragnheiður. Hún bætti
við að sveitarfélög settu sínar eigin
reglur um fjárhagsaðstoð sem þeim
ber samkvæmt iögum um félags-
þjónustu sveitarfélaga. Ef umsækj-
andi væri ósáttur við ákvörðun fé-
lagsmáladeildar gæti hann áfrýjað
til félagsmálanefndar. Ákvörðun
hennar mætti svo aftur áfrýja til úr-
skurðamefndar félagsmálaráðu-
neytisins. jss@dv.is
Tryggingafélögin harðlega gagnrýndí
utandagskrárumræðu:
Réttarhöld á Alþingi
Þingmenn fóru mikinn í gær í
gagnrýni á tryggingafélögin
og raunar líka eftirlitsstofn-
anirnar sem eiga að gæta
hagsmuna neytenda gagn-
vart þeim.
Á námskelðlnu er m.a. farlA í:
Listin að hafa áhrif á aðra - framkomuþjálfun. Leiðtoginn og uppbygging
liðsheildar. Fjölmiðlar og framkoma - þjálfun fyrir viðtöl við fjölmiðla. Hvernig
skrifum við fréttatilkynningar og greinar (blöð. Stjórnun félagsfunda. Hvernig
notum við Power point við kynningar. Auk þess verður farið I ýmsar þrautir
og æfingar sem miða að því að styrkja leiðtogahæfileika hvers og eins.
Jóhanna Sigurðardóttir, Samfylk-
ingu, sagði að tryggingafélögin
blóðmjólkuðu neytendur í skjóli
einokunar. f þokkabót sýndi Fjár-
málaeftirlitið þeim linkind og ef
ekki yrði breyting þar á væri stutt f
að Fjármálaeftirlitið glataði trú-
verðugleika sínum. Þá skoraði Jó-
hanna á Samkeppnisstofnun að
skila strax rannsókn á tryggingafé-
lögunum sem staðið hefur yfir frá
1997.
Ögmundur sagði að
svo virtistsem Fjár-
málaeftirlitið og aðrar
opinberar stofnanir
færu silkihönskum um
tryggingafélögin.
Fyrirlesarar á leiðtoganámskeiðinu eru á meðal þeirra fremstu á fslandi
á slnu sviði, G(sli Blöndal, Jóhann Ingi Gunnarsson, Sigrún Stefánsdóttir o.fl.
Námskeiðsgjaldið er kr. 40.000. Innifalið (þv( eru námskeiðsgögn, gisting og
fæði á Hótel örk frá fimmtudegi til sunnudags. UMFl mun styrkja sína
félagsmenn til þátttöku á námskeiðinu. Þátttökufjöldi er takmarkaður.
Allar nánari upplýsingar veitir Valdimar Gunnarsson fræðslustjóri á
þjónustumiðstöð UMFf I slma 568 2929, valdimar@umfi.is
LEIÐTOGA.
SKOLINN
Fram kom hjá Valgerði Sverris-
dóttur viðskiptaráðherra að hún
hefði fullvissu fyrir því að rannsókn
stofnunarinnar yrði lokið á þessu
ári.
Lögbrot
Ásgeir Friðgeirsson, Samfylk-
ingu, sagði að tryggingafélögin
hefðu notað styrk sinn til þess að
hindra aukna samkeppni og girða
fyrir aðkomu nýrra félaga að mark-
aðinum. Þá nefndi hann að dæmi
væru þess að félögin byðu við-
skiptavinum, sem hygðust fara
TJÓN ÁTJÓN OFAN: Pétur H. Blöndal segir að aukin tjónatíðni sé ein helsta ástæða þess
að iðgjöld ökutækjatrygginga hafa hækkað en aðrir þingmenn vildu á Alþingi í gær meina
að fákeppni á tryggingamarkaði og linkind eftirlitsstofnana væri um að kenna.
með viðskipti sín annað, svokallað-
an samkeppnisafslátt. „Þetta er
brot á samkeppnislögum," sagði
Ásgeir.
Ögmundur Jónasson, Vinstri
grænum, sagði að markaðurinn
væri nánast í herkví sökum fá-
keppni. Þá tók hann undir sjónar-
mið Jóhönnu Sigurðardóttur og
sagði að svo virtist sem Fjármála-
eftirlitið og aðrar opinberar stofn-
anir færu silkihönskum um trygg-
ingafélögin.
Hækkanir gagnrýndar
Ögmundur var málshefjandi í ut-
andagskrárumræðu um hækkun
iögboðinna iðgjalda tryggingafé-
laganna. Sagði hann að í nýrri
skýrslu Neytendasamtakanna
kæmi fram að iðgjöld ökutækja-
trygginga hefðu tvöfaldast á 6
árum. Þá benti hann á að lægsta
trygging fýrir Toyota Corolla bifreið
kostaði 14 þúsund krónur í Dan-
mörku og Svíþjóð en 69 þúsund
krónur hér á landi.
„Það er ekki óeðlilegt að vátrygg-
ingafélögin séu tortryggð," sagði
Valgerður Sverrisdóttir. Hún sagð-
ist hins vegar ekki hafa forsendur til
að meta hvort hin svokallaða vá-
tryggingaskuld félaganna (oft
kennd við bótasjóði) væri óeðlilega
há. Fjármálaeftirlitið hefði hins
vegar nýverið boðað sérstaka at-
hugun á því.
Skýringar
Pétur Blöndal, Sjálfstæðisflokki,
sagði að bætur tryggingafélaganna
hefðu hækkað mikið á undanförn-
um árum. Á því væru einkum tvær
skýringar: Annars vegar mikil
hækkun launa sem hækkaði dánar-
og örorkutjón ábyrgðartrygginga
og einnig viðgerðakostnað og þar
með munatjón; hins vegar hefði
bílaeign stóraukist og tjóntíðni
einnig aukist hlutfallslega. Hvort
tveggja væri til marks um góðæri,
og yfir því væri hann ekki dapur en
berjast þyrfti gegn aukinni tjón-
tíðni.
Eins og viðskiptaráðherra lagði
Pétur áherslu á hlutverk eftirlits-
stofnana. Sem fýrr segir töldu sum-
ir stjórnarandstæðingar hins vegar
að þær ræktu hlutverk sitt illa.
olafur@dv.is