Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2003, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER2003 FRÉTTIR 17
Shevardnadze segi af sér
Stirt á milli Blairs og Browns
GEORGÍA: Öryggissveitir í fyrr-
um Sovétlýðveldinu Georgíu
búa sig undirfrekari ólgu í
landinu í dag vegna ásakana
um að stjórnvöld hafi haft
rangt við í þingkosningunum
á sunnuda'g.
Míkhaíl Saakasjvílí, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, hefur
sagt Edúard Shevardnadze
forseta að hann verði að segja
af sér fyrir miðjan dag í dag
eða játa ósigur stjórnarflokk-
anna í kosningunum. Shevard-
nadze sagðist myndu standa
við opinber úrslit en segja af
sér ef þjóðin færi fram á það.
Bandarísk stjórnvöld hafa lýst
yfir áhyggjum sínum af fram-
kvæmd kosninganna og hvatt
til heiðarlegrarog skjótrar
talningaratkvæða.
BRETLAND: Mjög stirt er nú á
milli Tonys Blairs, forsætisráð-
herra Bretlands, og Gordons
Browns fjármálaráðherra.
Blair hefur í tvígang hafnað
beiðni Browns um sæti í fram-
kvæmdastjórn Verkamanna-
flokksins, nú síðast í fyrradag
þegar fjármálaráðherrann
sneri aftur til starfa eftir fæð-
ingarorlof sitt.
Einn stuðningsmanna Browns
sagði við the Guardian að það
þjónaði ekki hagsmunum
flokksins að útiloka hann frá
framkvæmdastjórninni.
Brown er bæði bandamaður
og hugsanlegur keppinautur
Blairs um leiðtogaembætti
Verkamannaflokksins. Áður
hafði Blair ákveðið að leiða
kosninganefndina fyrir 2005.
Dekkjahótel
við geymum dekkin fyrir þig
gegn vægu gjaldi
SÓUIHIUG
(oniinenfal
Kópavogi - Njarðvík - Selfoss
Viðurkenningar
fyrir gott aðgengi
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaöra og aöildarfélög
þess um land allt, veita fyrirtækjum og þjónustuaðil-
um viðurkenningar fyrir gott aðgengi hreyfihaml-
aðra á alþjóðadegi fatlaðra, 3. desember ár hvert.
Um er að ræða tvenns konar viðurkenningar:
1. Fyrir fullkomlega aðgengilegt húsnæði sem nýtist
bæði gestum og starfsmönnum fyrirtækja
og stofnana.
2. Fyrir lagfæringar á áður óaðgengilegu húsnæði,
til verulegra bóta fyrir hreyfihamlaða.
Þeir aðilar sem vilja koma til greina við úthlutun
viðurkenninga á þessu ári, eða tilnefna aðra til við-
urkenninga, komi ábendingum á framfæri við
Sjálfsbjörg í síðasta lagi 14. nóvember 2003.
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra
Hátúni 12,105 Reykjavík
Sími: 552 91 33;
fax: 562 37 73
Netfang: mottaka@sjalfsbjorg.is
ÁRÁSARMANNA LEfTAÐ: Skæruliðar gerðu í gær sprengjuárás á höfuðstöðvar bandaríska
hersins í Bagdad, annað kvöldið í röð, og var þeirra leitað um miðborgina og meðfram
Tigris-ánni án árangurs.
CBS lagði ekki í að
sýna Reagan-þætti
Yfirmenn bandarísku sjón-
varpsstöðvarinnar hafa ákveð-
ið að hætta við sýningar á um-
deildri þáttaröð um Ronald
Reagan, fyrrum forseta, og selt
sýningarréttinn til kapalsjón-
varpsstöðvar.
íhaldsmenn vestanhafs ruku upp
til handa og fóta og sögðu tveggja
þátta röðina ekki gefa sanngjarna
mynd af forsetanum fyrrverandi.
Þeir þrýstu mjög á sjónvarpsstöð-
ina að sýna myndina ekki.
Forráðamenn CBS vísuðu því á
bug að þeir hefðu látið undan
þrýstingi og tóku undir með
repúblikönum um að jafnvægi væri
ekki í framsetningu efnisins.
Bæði demókratar og repúblikan-
ar í Washington fordæmdu ákvörð-
un sjónvarpsstöðvarinnar. Tom
Daschle, leiðtogi demókrata í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings, sagði
við fréttamenn að málið allt
„lyktaði af þvingunum". Ed
Gillespie, formaður landstjómar
Repúblikanaflokksins, sagði að
flutningur þáttaraðarinnar til kap-
alstöðvarinnar „tæki ekki á áhyggj-
um manna um sagnfræðilega ná-
UMDEILDURIMYND: Ekkertverðurafsýn-
ingum umdeildrar myndar um Ronald
Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta, hjá CBS
sjónvarpsstöðinni. Reagan er 92 ára og
langt leiddur af Alzheimer.
kvæmni". Repúblikanaflokkurinn
hafði farið ffam á að fá að sjá
myndina áður en hún yrði sýnd en
aðrir höfðu hvatt til að CBS-sjón-
varpsstöðin yrði sniðgengin.
Þú finnur rétta
búninginn hjá okkur
^®ncfum,
^°stkröfu
knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560