Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2003, Síða 8
8 FÖSTUDAQUR 28. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
ísafjarðarbær
kærir
ísafjarðarbær hefur kært
þá ákvörðun Fasteignamats
ríkisins að lækka fasteigna-
mat á húseigninni Sund-
stræti 36 á ísafirði. Áður
fyrr var rekin fiskvinnsla í
húsinu en það hefur staðið
autt um hríð og verulega
látið á sjá. Eignaraðili húss-
ins lét Fasteignamat ríkis-
ins gera endurmat vegna
þess og var niðurstaðan sú
að matið var lækkað úr 93
milljónum í 66 milljónir
króna. ísafjarðarbær verður
af tekjum upp á hálfa millj-
ón króna vegna lækkunar-
innar og hefur kært til yfir-
fasteignamatsnefndar. BB
segir frá þessu.
Kentuckytil
Keflavíkur
Kentucky Fried Chicken
ætlar að byggja sinn
stærsta veitingastað á land-
inu í Keflavík. Hugmynd-
irnar voru kynntar um-
hverfis- og skipulagssviði
Reykjanesbæjar í vikunni,
og er sótt um að byggja
staðinn á lóð gegnt Sam-
kaupi, þannig að fólki á leið
í og úr flugi gefist kostur á
að njóta þeirrar matar-
menningar sem á sér vax-
andi fylgi hérlendis.
Vill færri
flóttamenn
Tony Blair hyggst beita
sér fyrir því að fækka um
helming fjölda umsókna
um pólitískt hæli í Bret-
landi. Gaf forsætisráðherr-
ann út þessa yfirlýsingu í
október síðastliðnum en þá
höfðu alls 8900 manns sótt
um hæli í Bret-
landi, sem er
met. í smíðum
er frumvarp til
laga um hælis-
umsækjendur
sem vonast er
til að geri ein-
staklingum
erfitt að sækja um hæli á
fölskum forsendum. Inn-
flytjendur hafa harðlega
gagnrýnt þessa fyrirætlan
ríkisstjórnarinnar sem og
Michael Howard formaður
íhaldsflokksins.
„Ég ernú bara að taka til og róta
hér í ruslinu minu vegna fertugsaf-
mælisins mlns,"segir Kristin Helga
Gunnarsdóttir rithöfundur.„Ný]a
bókin min, Strandanornir, syndir i
jólabókaflóðinu eins og allar hinar
bækurnar. Vegna hennarþarfég
Hvað liggur á
víða að lesa upp, og til dæmis er
ég að fara I upplestrarferð vestur á
Strandir þann 11. desember. Nema
að þá komi Vindgapi hinn minni,
sem ereinn veðurgatdurinn sem til
er.“
Rannsókn lögreglunnar á amfetamínframleiðslu í Kópavogi beinist meðal annars
að því hvort efni hafi verið seld og þeim dreift Fertugur karlmaður og samverka-
maður hans i gæsluvarðhaldi til 10. desember. Leigusalinn tók ekki eftir neinu
„Leigjandinn er afskaþlega dagfarsprúður
maður og hefur gengið snyrtilega um,“ segir Ólaf-
ur Gunnar Sigurðsson, íbúi við Vesturvör í Kópa-
vogi þar sem lögregla gerði upptæk áhöld og
annað úr amfetamínverksmiðju í fyrradag. Ólafur
Gunnar býr í umræddu húsi og á íbúðina þar sem
framleiðslan fór fram.
Tveir menn voru handteknir vegna málsins á
þriðjudag; leigjandi Ólafs, sem er rúmlega fertug-
ur karlmaður, og félagi hans. Daginn eftir var lagt
hald á ýmis tæki og tól til amfetamínframleiðslu í
íbúðinni. Auk þess fjarlægði lögregla tölvubúnað
og bækur sem margar fjalla um efnafræði.
Ólafur segir að sér og öðrum íbúum hafl verið
brugðið þegar lögregla rýmdi húsið. „Það er af-
skaplega óþægilegt að lenda í þessu en því miður
geta svona mál komið upp hvar sem er. Ég vissi
ekki af neinum vandamálum tengdum þessari
íbúð og hafði ekki orðið var við neitt óeðlilegt,"
segir Ólafur Gunnar.
„Svona mál koma ekki upp á hverjum degi,“
segir Ásgeir Karlsson aðstoðaryfirlögregluþjónn
hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Hann
segir að það þurfl að feita að minnsta kosti áratug
aftur í tímann til að finna mál sem svipar til þess
máls sem upp komst í fyrrakvöld. Þá fann lögregl-
an fleiri tugi lítra af vökva og efnablöndum sem á
eftir að efnagreina og flokka með það fyrir augum
að komast að því hvað af efninu sé fullunnið am-
fetamín.Til þess að framleiða amfetamín þarf
ákveðna grunnþekkingu og góða formúlu. Fram-
leiðslan fór fram í um 50 fermetra íbúð en alls eru
ellefu íbúðir í húsinu. Amfetamínframleiðsla get-
ur verið hættuleg; sum efhanna eru eldflm. Það er
ástæða þess að slökkviliðsmenn í eiturefnabún-
ingum sáu um að bera efnin út og koma þeim fyr-
ir í sérstökum eiturefnagámi.
Fíkniefnalögreglan hafði fylgst með mönnun-
um um skeið. Heimildir DV herma að grunur hafl
komið upp um að íslenskt amfetamín væri á
markaðnum f sumar og í framhaldinu hafl bönd-
in beinst að ákveðnum mönnum. „Rannsóknin
hefur staðið um nokkurt skeið og við útilokum
ekki að efninu hafl verið dreift og það selt,“ segir
Ásgeir. „Við höfðum rökstuddan grun um að am-
fetamínframleiðsla færi fram í þessu húsi,“ segir
hann.
Mennirnir voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald til 10. desember. Hvorugur þeirra hefur sætt
rannsókn vegna stórvægilegra fOmiefnabrota.
arndis@dv.is
Útlendingastofnun
tekurvið umönnun
flóttamanna
Rauði kross íslands hefur ákveð-
ið að endurnýja ekki samning sinn
við ríkisstjórnina um umönnum
hælisleitenda. Samningurinn renn-
ur út um áramót og Útlendinga-
stofnun mun í fyrstu taka við um-
önnuninni.
Að sögn Þóris Guðmundssonar,
upplýsingafulltrúa RKÍ, er ástæðan
fyrir uppsögninni sú að samtökin
vilja leggja meiri áherslu á aðra
þætti í málefnum flóttamanna. Um
er að ræða þætti eins og lögfræði-
lega ráðgjöf og réttargæslu. Rauði
krossinn hefur gert samning við
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðana um að vera málsvari þeirra
flóttamanna sem koma til landsins.
Samningurinn sem er að renna
út var gerður 1999 . Flóttamönnum
hefur fjölgað mikið síðan þá og hef-
ur Rauði krossinn borið töluverðan
kostnað af umönnun þeirra.
Aðrar áherslur RKÍætlarað leggja aðrar
áherslur i málefnum flóttamanna