Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2003, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2003, Blaðsíða 9
JXV Fréttir FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003 9 Snjóflóð rannsökuð á ísafirði Isafjörður verður mið- stöð snjóílóðarannsókna ef vilji meirihluta íjárlaga- nefndar Alþingis gengur eftir. Meirihlutinn leggur til að íjórar milljónir króna fari til Veðurstofu Islands, sem komi á fót Rannsókn- armiðstöð snjóflóðavarna á ísaftrði. Bæjaryfirvöld fyrir vestan hafa barist lengi íyr- ir slíkri stofnun, auk þess að vilja stofnsetja háskóla- samfélag í fjórðungnum með aðsetur á ísaflrði. Lík- legt er talið að miðstöðin hefji starfsemi næsta sum- ar. Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, er einn Qölmargra sem eru óánægðir með fyrirhugað deiliskipulag í Skerjafirði. Kjartan vill njóta jafnræðis og fá að reisa hlutfallslega jafnstórt hús og nágrannarnir á næstu byggðu lóðum. Skipulagsfulltrúi er fastur fyrir og Kjartan boðar kæru. Áttræð brá sverði Áttræð ekkja, Jean Freke, barðist við tvo innbrotsþjófa með heldur óvenjulegum I hætti á dögunum. At- | vikið átti sér stað í bænum Poole á Englandi og var Jean j ein heima þegar þjóf- j ana bar að garði. Henni var að vonurn 9 brugðið þegar hún j áttaði sig á því í v .1 hvaða erindagjörð- X 1 um mennirnir voru 1 j en hún dó ekki ráða- *— laus. Jean greip til forláta sverðs sem hékk á stofu- veggnum og brá því á loft. Annar þjófurinn var þá inn- an seilingar og beindi Jean sverðinu að brjósti hans og hrópaði: „Komdu þér út, komdu þér út,“ Þjófurinn varð hræddur við þetta og hljóp á harðaspretti út úr húsinu og félagi hans áeft- ir. Yfirlögregluþjónninn í Poole sagði Jean hafa sýnt mikla dirfsku við andstyggi- legar aðstæður. Kaupréttur er tekjuskatt- skyldur I nýútkomnu vefriti fjár- málaráðuneytisins kemur fram að kaupréttarsamn- ingar, eins og þeir sem hafa verið í umræðunni, eru alla jafnan tekjuskattskyldir. Þeir sem gera slíka samn- inga sjeppa aðeins með fjármagnstekjuskatt ef þeir ná til allra starfsmanna og markaðsvirði hlutabréfa- kaupa er ekki meira en 600 þúsund á ári. Skattstofninn nær til mismunar á því kaupverði sem kveðið er á um í samningi og mark- aðsvirði hlutabréfa þann dag sem kauprétturinn er nýttur. Mttmt „Eg leyfi mér þá enn á ný að ítreka þá hógværu ósk." er á þarnæstu lóð því lóðin á milli er óbyggð. Það hús er 487 fermetrar. Hinu megin við hús Kjart- ans er 294 fermetra hús. „Ég leyfi mér þá enn á ný að ítreka þá hógværu ósk að nýtingarhlutfall hinnar óbyggðu lóðar númer 46 við Skildinga- nes verði hið sama og hlutfallið á hinni byggðu lóð númer 42 eða til vara að minnsta kosti hið sama og á lóðinni númer 48, eða meðaltal þeirra tveggja,“ biðlar Kjartan til borgarskipu- lagsins. Kjartan segir að fái hann aðeins að byggja samkvæmt nýtingarhlutfallinu 0,5 geti húsið mest orðið 411 fermetrar. Fengi hann hins vegar að reisa hús með hlutfallinu 0,56 gæti það orðið 460 fermetrar. Þar muni 49 fer- metrum. Það samsvari um 70% af þeirri aukaíbúð sem heimilt verði að hafa í húsinu. Borgarstjóri fær kröfur Kjartans Skipulagsfulltrúi segir að engin óbyggð lóð hafi hærra nýtingarhlutfall en 0,5. „Ekki er tekið undir það að verið sé að mismuna eigendum þótt nýt- ingarhlutfall allra lóða verði ekki það sama," eru skilaboð fulltrúans til skipulags- og byggingar- nefndar. Kjartan er þó fastur fyrir. „Áskilinn er réttur til að koma að frekari gögnum í mál- inu og kærum á síðari stigum ef ekki er tek- ið tillit til þessarar sanngjömu jafn- ræðisóskar," segir hann í athugasemd sinni. Afrit af bréfi Kjartans til skipulagsfull- trúans sendi hann borgarlögmanni og borgarstjóranum í Reykjavík. Kjartan segist ekki vilja tjá sig um málið við fjölmiðla. gar@dv.is . Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins, er ósáttur við að samkvæmt nýju yfirvofandi deiliskipulagi í Skerjafirði muni hann ekki geta byggt nema 411 fermetra hús á sjávarlóð sem hann hefur keypt 1 Skildinganesi. Kjartan vill fá heimild fyrir 460 fermetra húsi. Málamiðlun ekki nóg Nýtt deiliskipulag í Skerjafirði, sem unnið hef- ur verið að í tæp tvö ár, er nú komið ífá skrifstofu skipulagsfulltrúa inn á borð stjórnmálamann- anna í skipulags- og byggingarnefnd. f fmmútgáfu nýja skipulagsins sem kynnt var fyrir ári var gert ráð fyrir að nýtingarhlutfall lóðar Kjartans í Skildinganesi 46 yrði 0,4. Kjartan benti á að nýtingarhlutfall næstu byggðu lóða til beggja handa væri umtalsvert meira, eða annars vegar 0,55 og hins vegar 0,56. Hann sagðist vísa til jafn- ræðisreglu og krafðist þess að fá að hafa sambæri- legt byggingarmagn á sinni lóð. I nýjustu útgáfu deiliskipulagsins frá í maí er að nokkru komið til móts við kröfúr Kjartans og nýtingarhlutfall lóðar hans hækkað í 0,5. „Ég fagna út af fyrir sig þessari tillögu,“ segir Kjartan f athugasemd til skipulagsfulltrúa. Vantar enn 49 fermetra Kjartan fær þó enn ekki að byggja hlutfallslega jafn stórt hús og næstu nágrannar. Annað húsið Skildinganes 46 Hér vill Kjartan Gunnarsson fá heimild til að reisa 460 fermetra ibúðarhús. Hann segir núverandi tillögu skipulagsfulltrúa aðeins gera ráð fyrir húsi sem verði að hámarki 411 fermetrar. Jackson sagður hafa tekið nektarmyndir af Gavin Arvizo Michael Jackson Trúverðugleikipiltsins sem ber Michael þungum sökum er dreginn íefa Michael Jackson tók nektar- myndir af Gavin Arvizo, tólf ára krabbameinssjúkum pilti. Arvizo hefur kært Jackson fyrir kynferðis- ofbeldi eins og alþjóð veit. Breska götublaðið The Sun greindi frá þessu í gær og sagði Jackson ekki að- eins hafa tekið nektarmyndir af drengnum heldur bauð hann honum að horfa á klámmyndir á bú- garði sínum. Myndirnar af Arviso eru sagðar meðal helstu sönnunar- gagna lögreglunnar gegn Jacksons og munu skipta sköpum við mála- reksturinn. Michael Jackson hefur harðlega neitað þessum ásökunum og ætlar að berjast af hörku í réttar- höldunum sem eru framundan. Gavin litli mun hafa lýst heim- sóknum sínum í Neverland og sagt að móðir sín hefði ávallt fylgt sér á búgarðinn en síðan dvalið í gesta- húsi á landareigninni. Jackson hafði það fyrir reglu að bjóða ekki foreldr- um inn í hús sitt á meðan á heim- sóknum barna stóð. Börnin voru ávallt leyst út með dýrum gjöfum og nutu alls hins besta í mat og drykk á meðan á heimsóknum stóð. Vínföng og sígar- ettur voru meðal þess sem í boði var. Fyrrum unnusta Jacksons, Shana Mangana, varði Jackson í fjölmiðl- unt í gær. „Það var ekkert ósæmilegt í gangi. Hann vildi félagsskap barn- anna til að fá innblástur," segir Mangana. Trúverðugleiki Arvizos og móður hans hefúr verið dreginn í efa vestra en þetta mun ekki fyrsta málið þessarar tegundar sem þau sækja fyrir dómstólum. Þá er Arvizo sagður hafa skrifað upp á pappír hjá Jackson þess efnis að hann hafi aldrei orðið fyrir áreiti af hálfu söngvarans. Einnig er til upptaka, gerð af einkaspæjara söngvarans, þar sem drengurinn segir ekkert misjafnt hafa átt sér stað. Þetta getur haft áhrif á málsókn- ina gegn Jackson nema saksóknara takist að færa sönnur á að mis- notkunin hafi átt sér stað eftir undir- skrift pappírsins og viðtalið. . Réttarhöld fara fram í upphafi næsta árs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.