Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2003, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003
Fókus DV
„Markmiðið er að láta Aðalstræti standa undir nafni og gera eitthvað sem er húsinu samboðið,“ segir
Starri en hann er nú ásamt fleirum að gefa elsta húsi Reykjavíkur, þar sem nú er Vídalín við Aðal-
stræti 10, talsverða andlitslyftingu. Stendur eigandinn Ragnar Halldórsson fyrir framkvæmdunum, en
sér til fulltingis hefur hann bræðurna Starra og Vopna. „Það er ekkert þarna inni sem hefur ekki verið
gert upp“ segir Vopni, en unnið hefur verið hörðum höndum dag og nótt undanfarnar vikur við að
koma hlutunum í skikkanlegt horf.
gf aff jiv m fá jlllu, - •
J f 1 J? m í I j r/Mj ynH f ■ • ' -S. M f
„Maður gerir ekki svona hluti af öðru en hugsjón. Það eru
allir búnir að leggja hönd á plóginn, og enginn sem er ekki bú-
inn að taka upp sparslspaða eða málarapensil." Stefnt er að
því að húsið verði menningarmiðstöð í miðborginni með
ljóðaupplestrum, tónleikum og myndlistarsýningum. Meðal
annars mun starfa þarna atvinnuleikhópurinn Fimbulvetur,
en sem dæmi um þann hugsjónaeld sem drífur fólkið áfram,
mæta leikararnir sumir á æfingar beint af öðrum sýningum,
og æfa síðan mitt á milli borara og múrara sem eru uppteknir
við að koma húsinu í rétt horf. Leikararnir máluðu meira að
segja sviðið sjálfir, en ýmislegt kom í ljós við framkvæmdirn-
ar.“Meðal annars fundum við skorstein sem enginn vissi að
væri ennþá til,“ segir Vopni, en ætlunin er að lýsa hann upp
og verður hann listaverk í sjálfu sér.
Fógetar, forsetar og biskupar
Húsið er talið vera byggt árið 1752, og hefur meðal annars
hýst Innréttingarnar hans Skúla Fógeta, Geir Vídalín biskup
og Westy Pertæus kaupmann, og hefur húsið verið nefnt eftir
þeim öllum. Einnig bjó Jón Sigurðsson landsfaðir þarna hjá
bróður sínum þegar hann kom hingað til lands frá Kaup-
mannahöfn. Það mun þó nú vera nefnt eftir öðrum bræðrum,
kaupmönnunum Silla og Valda, sem ráku þarna verslun mest-
alla 20. öldina. En hvers vegna var ákveðið að skíra húsið eftir
þeim af öllum merkisíbúum hússins?“Silli og Valdi voru alla
tíð aktívir í menningarlífi borgarinnar, og gáfu meðal annars
óperunni Nýja Bíó,“ segir Starri, en stefnt er að því að hafa
viðburði innandyra alla daga. Til dæmis verða ljósmyndir af
Aðalstræti frá hinum ýmsu tímum á veggjunum, og starfsfólk
mun klæðast búningum í anda bannáranna.
Karneval í listum
Hversvegna uröu bannárin fyrir valinu?
„Silli og Valdi tóku við húsinu við upphaf bannáranna,“
segir Vopni. „Stefnan er að strákarnir verði í jakkafötum og
stelpurnar í kjólum, og líklega verður smá gangsterfílingur í
gangi." „Bannáratíminn var karneval í listum," bætir Starri
við, „og við leyfum okkur að vera svolítið rómantískir. Út á við
var þetta tímabil mikilla fordóma, en kaffihúsin fylltust af
fólki og það var mikil gróska í gangi. Það er ekki hægt að neyta
fólki um að tjá sig.“
Þrátt fyrir bannárastemninguna verða ýmsar veitingar í
boði. „Vínmenning er menning líka," segir Starri, en ætlunin
er að gestir geti komið, horft á bíómyndir, tekið þátt í umræð-
um og notið góðra veitinga. Móðir þeirra bræðra bakar kök-
urnar sem í boði verða því: „það er alltaf þannig að mamma
manns bakar bestu kökurnar."
Jósef ekki viss um hvort hann sé faðirinn
Það eru þó ekki einungis Ragnar og þeir bræður sem
standa að uppbyggingu staðarins, því að svo til allir vinir og
vandamenn hjálpuðu til. Húsið er friðað og þurftu því allar
endurbætur að vera gerðar í samráði við Reykjavíkurborg,
sem lagði verkinu lið. Húsið verður opnað klukkan fimm á
mánudag með myndlistarsýningu Birgis Rafns Friðrikssonar
og Snorra Ásmundarsonar, og svo verður dagskrá á hverju
kvöldi. Meðal hápunkta verður frumsýning Fimbulfambs á
Ójólaleikritinu eftir Jeff Goode, sem byggir á jólaguðsspjöll-
unum, en þó ekki alveg eins og við eigum að venjast. María
mey er víst ekki par sátt við að vera að fæða í fjárhúsi, og
Jósef hefur efasemdir um faðerni barnsins. Gamli Vídalín er
þó ekki enn dauður úr öllum æðum, því að á föstudags-
kvöldið er stefnan að kveðja með stæl, tæma allar flöskur og
halda maraþontónleika þar sem fram munu koma hljóm-
sveitirnar Heiða og Heiðingjarnir, Innvortis, Ríkið, Hölt
Hóra ogÆla,
Lífið eftir vinnu
• Stórsveitirnar f
svörtum fötum,
Skítamórall og Á
móti sól spila á
stórtónleikum á
Nasa við Austur-
völl. Húsið opnar á
miðnætti.
• Klippt og skorið nefnist mynd-
listarsýning sem öm Karlsson
opnar f Reykjavflcurakademíunni f
dag klukkan 17. örn vinnur mest
með teikningar og samklipps-
myndir (collage) en einnig texta
sem hann beitir „orðaskurði".
• Bergur Thorberg opnar sýningu
á kaffimálverkum sínum í Véla-
salnum í Vestmannaeyjum ldukk-
an 20. Sýningin stendur fram á
sunnudag.
• Gítarhetju-
keppnin
Angusinn verð-
ur á Grand
Rokk klukkan
20. í verðlaun er
gítar sömu
gerðar og Angus
Young íAC/DC
notar. Síðar um
kvöldið spilar þýska hljómsveitin
Sub Dub Micromachine ásamt
Brain Police. Þeir tónleikar hefjast
klukkan 23.
• Canora, Twisted Turtíe, Amos
og Hölt hóra spila á de Boomkikker
klukkan 22. Frítt inn.
• Atíi sér um neðri hæðina á 22 í
kvöld og Þórhallur spilar á efri
hæðinni.
• Sálinspilará
Gauki á stöng
ásamtTríóiJóns
Leifs.
• Hinir
sjóðandi
heitu
Multipho
nes spila
fyrri part
kvöldsins á Pravda. Á eftir taka
plötusnúðarnir Gísli Galdur á neðri
hæðinni og Áki pain við.
• Hljómar spila á Broadway, jóla-
hlaðborð og allur pakkinn.
• JetBlack
Joe spilar á
dansleik á
Players í
kvöld.
• Heiða og Heiðingjamir, Inn-
vortis, Rfldð, Hölt hóra ogÆla spila
á tónleikamaraþoni á Vídalín í til-
efni þess að staðnum verður lokað.
• Dj Frímann og Dj Amar spila á
Kapital í kvöld.
• Dj Valdi spilar á Fel-
ix í kvöld.
• EinarÁgústog
Gunni Óla spila á
Glaumbar til klukkan
23 en eftir það spilar
Atli skemmtanalögga.
Um helqina
„Ég verð í skólanum ff á 9-2 á
morgun þannig ég geri ráð fýrir að
vera voðalega þæg í kvöld. Þar sem
ég var að skila lokaverkefni í skólan-
unt býst ég við að ég kíki aðeins á
Vegamót annað kvöld og fagni því. Á
sunnudaginn fer ég svo pottþétt á
Súfistann og ligg í blöðunum
og drekk kaffl og svona. Ég
og besta vinkona mín
stundum það um helgar,
erum eiginlega fastagestir.
Annars fer sunnudag-
urinn í afslöppun en
það er þó aldrei að
vita hvort maður fari í
bíó og sjái Kill Bill.“
Sólveig Zophaníasdóttir,
fyrrum Ungfrú Island.is og
nemi i markaðsfræð/ f Hl