Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2003, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2003
Síðast en ekki síst DV
Gítarhetjur á Grand Rokk
„Við komumst yfir þennan fína
gítar, sams konar og Angus Young
notar, og kunnum ekki við að hirða
hann sjálfir og þannig varð
þessi keppni til,“ segir Dr.
Gunni sem ásamt Sigur-
jóni Kjartanssyni og félögum þeirra
á útvarpsstöðinni Skonrokk stendur
fyrir gítarkeppni á Grand Rokk í
kvöld.
Ha?
„Skráning hefur staðið yfir í
þættinum Zombie, menn hafa verið
að taka sóló í beinni útsendingu,"
segir Dr. Gunni en í Zombie í dag
verður tilkynnt hvaða átta gítarhetj-
ur fá að taka þátt í keppninni í
kvöld.
Vart þarf að taka ffam að keppn-
in er kennd við Angus Young, gítar-
leikara í ACDC sem þykir einn af
þeim skrautlegri í rokkbransanum.
Að sögn Dr. Gunna mæta keppend-
ur einfaldlega á svið og spila það
sem þeir vilja, hvort sem það eru
sóló, riff eða hvað þetta heitir nú allt
saman. Dómnefnd skipa valin-
kunnir tónlistar- og tónlistaráhuga-
menn.
„Gítarinn er auðvitað aðalverð-
launin en að auki fá þrír efstu veg-
legan AC/DC pakka og allir þátttak-
endur fá bol merktan sveitinni,"
segir Doktorinn að lokum.
Angusinn byrjar á Grand Rokk
Angus Young Gítarhetjukeppni er haldin á
Grand Rokk, skírð í höfuðið á meistara Angus
Young úrAC/DC.
klukkan 21. Eftir það eru alvöru
rokktónleikar á staðnum klukkan 23
með Brain Police og austur-þýsku
sveitinni Sub Dub Micromachine.
Auðveld viðureign
Skákkeppni taflfélaga er haldin
víða um veröld og hér sjáum við
PTBHnM Portúgalann og Vest-
mannaeyinginn Luis
Galego máta Jesus sjálfan í fáum
leikjum!
Hvítur á leik!
Hvítt; Luis Galego (2488)
Svart Jesus Del Barrio Gomez
(2306)
Spænska deildakeppnin Sanx-
enxo (1), 17.11.2003
1. e4 e6 2. d4 d5 3. exd5 exd5 4.
Rfö Bg4 5. Rc3 Bb4 6. h3 De7+ 7. Be3
BxQ 8. Dxf3 Rf6 9. Bd3 Re4 10. 0-0
Rxc3 11. bxc3 Bxc3 12. Habl c6 13.
Df5 Ra6 14. Hb3 Ba5 15. Bxa6 g6 16.
Dd3 bxa6 17. Dxa6 Dd8 18. Dxc6+
Kf8 Stöðumyndin.19. Bg5 1-0
# Deep Purple er hugsanlega á
leiðinni til íslands, sagði Einar
Bárðarson í útvarpsviðtali hjá
Zombie á dögun-
um. Hann setur að
vísu það skilyrði að
hann finni fyrir
áhuga hjá þjóð-
inni. Aðdáendur
ættu að hafa það í
huga rekist þeir á
Einar í stórmarkaði
og hvetja hann til
að koma Ian Gillan stórsöngvara í
Höllina en síðast komu þeir til
landsins 1972 og héldu magnaða
tónleika í Höllinni. Þar var raf-
magnsleysið eftirminnilegast og
setti það hljómsveitina í bobba. Það
þarf því að tjúna Landsvirkjun upp
efþeirkoma.
# Það er búið að banna Birgittu á
FM en á dögunum kom önnur plata
írafárs og þar fara þau nýjar leiðir.
Þetta er meira rokk
og platan heitir
Nýjar leiðir. Fyrsta
lagið á plötunni
heitir Stel frá þér
og vill bandið fá
það í spilun en fá
ekki FM til að spila
rokkið. Umsjónar-
mönnum stöðvar-
innar flnnst lagið of þungt og eru
eflaust hræddir um að hlustendur
FM hafi ekki gaman af því. Það er
því spurning hvort írafár og Birgitta
endi á X-inu en guttamir sem sjá
um þá stöð eru þekktir fyrir að kalla
ekki allt ömmu sína.
# Starfið í Heimdalli er óvenju líf-
legt um þessar mundir og mennirn-
ir í brúnni eru með puttana á púls-
inum á íslensku þjóðlífi. Á mánu-
Syngun í jarDarlörum
Grætir Kallforníubúa
„Bransinn gengur upp og ofan.
Þetta er eins og vera í rússíbana sem
stoppar aldrei og maður veit aldrei
hvað kemur næst," segir Anna Mjöll
Ólafsdóttir, söngkona en hún hefur
alið manninn í Los Angeles í Kali-
forníu síðasta áratuginn.
Anna Mjöll segist hafa nóg fyrir
stafni þessa dagana. „Ég hef verið að
vinna við auglýsingar fyrir nokkur
fyrirtæki, þar á meðal Coke, Barbie
og Folgers. Svo er mikið af „session"
vinnu þar sem ég syng inn á plötur
annarra," segir Anna Mjöll.
Útgáfa geisladisks er jafnframt í
bígerð hjá Önnu Mjöll og var hún að
taka upp lag sem hún fékk frá Diane
Warren í vikunni. „Þessi diskur er
búinn að vera á leiðinni ansi leng-
i en nú sér loks fyrir endann á
þessu."
Helgarnar eru svo undirlagðar af
einkaveislum en Anna Mjöll kemur
þá fram með stóru bandi, tíu til
fimmtán tónlistarmönnum. „Það er
alltaf nóg að gera og ég hef einnig
tekið að mér að syngja í jarðarförum
upp á síðkastið. Viðbrögðin hafa
verið góð og fólk hefur komið til mín
eftir á og sagt mér að það hafi byrjað
að gráta undir Ave Maríu," segir
Anna.
Margt fleira er á döfinni hjá þess-
ari stjörnusöngkonu en hún vill
halda því fyrir sig að svo stöddu; „Ég
er svo hjátrúarfull að ég segi bara frá
því ef af því verður," segir Anna
Mjöll og bætir við að hún hyggi á ís-
landsferð í vor, hefur ekki komið í
þrjú ár, vegna þess að íslenskt vor sé
það sem hún saknar mest.
arndis@dv.is
Gengur vel í Los Angeles Anna Mjöll er á fullri ferð í Los Angeles eins og endranær. Hún
syngur inn á plötur fyrirýmsa tónlistarmenn auk þess sem það styttist i að hennar eigin diskur
komi út. .
daginn fundaði viðskiptafrelsishóp-
ur félagsins. Tilefni fundarins var
þó ekki untdeildir kaupréttarsamn-
ingar, eignaraðild fjölmiðla né um-
mæli og óbein afskipti stjórnmála-
manna af markaðsöflunum. Heim-
dellingar töldu það brýnast að ræða
vændisfrumvarpið sem nú liggur
fyrir alþingi. Heimdallur er sem
sagt alltaf í tengslum við manninn
á götunni.
Krossgátan
Lárétt: 1 óhreinindi,
4 kyndill, 7 kvörn, 8 birta,
10 viðbjóður, 12 afreks-
verk, 13 einungis, 14
sigti, 15 rispa, 16 spotta-
korn, 18 dugleg,21 varð-
veita, 22 skinnpoka, 23
reglubróður.
Lóðrétt: 1 spott, 2
bergmáli, 3 tikomumikil,
4 sifjaspell, 5 aðferð, 6
seyði, 9 knéféll, 11 styrk-
tu, 16 kúst, 17 smáarða,
19 þvottur, 20áþekk.
• í Skerjafirði magnast nú
deilur vegna skipulagsmála
og byggingaframkvæmda
eins og komið hefur fram í
DV. Jón Nordal tónskáld og
kona hans Sólveig Jónsdóttir
sem búa á Skeljatanga eru
óánægð með að eiganda
næsta húss er leyft að bæta
ofan á það einni hæð. Þau vilja
halda í gömlu götumyndina frá
Lausn á krossgátu
■>|,i| Oð'neiöL 'u6o l L 'dos 9t 'npga l l 'dnej>| 6'gos 9 '6e| s'wwp>|sgo|q
t? '6a|jepuáw £ iwo z '5/f6 1 ruajQoq ->|unw £z '6und ZZ 'ewAa6 tZ '|nip 81 'iods
91 '>)bj st 'p|es þi 'ejeq £t 'e?P 71 'ea6o 0L 'uj>|s 8 'e||Aw l 'sA|q tr'woj6 1 :»aje-|
sjötta áratugnum. f athuga-
semdum til skipulagsfulltrúa
segjast þau hins vegar vilja
fá að hækka sitt hús um eina
hæð líka, ef það Verður leyft
með hin húsin í götunni.
• Og fyrst verið er að tala
um Skeljatanga. Frægt varð
fyrir nokkrum misserum þegar Kári
Stefánsson forstjóri fékk heimild
borgarinnar til að reisa 540 fer-
metra hús á Skeljatanga 9. Eftir
kvartanir frá nágrönnum, meðal
annars frá tónlistarmönnunum
Gísla Helgasyni og Herdísi Hall-
varðsdóttur sem
búa í næsta húsi.
Byggingarleyfi
Kára var endan-
lega fellt úr gildi
með dómi og
hann gafst upp á
öllu saman, hljóp
frá húsgrunninum
og keypti sér að
sögn lóð upp í Vatnsenda. Nýir eig-
endur lóðarinnar eru Guðmundur
Benediktsson og Lína G. Atladóttir.
Þau hafa lýst því yfir að þau séu sátt
við nýja deiliskipulagstiUögu fyrir
Skerjafjörð..
Veðrið
+0 Nokkur
vindur
V
C2> 0-1
'C3
* *
Nokkur
vindur
I
A *:W
m ■ Nokkur
Frekar hægur
vindur .
+0
vindur
* *
Nokkur
vindur
+0
Frekar hægur
vindur
+1
3|c a|c Nokkur
A vindur
•&>
—►-1
Nokkur
vindur
-e>
Frekar hægur
vindur
1
+2 —►
Frekar hægur
vindur
Frekar hægur
vindur