Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2003, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2003, Page 16
76 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER2003 Sport DV Woods kylf- ingur ársins 5. árið í röð Tiger Woods var í gær valinn kylfmgur ársins á bandarfsku PGA- mótaröðinni fimmta árið í röð þrátt íyrir að hafa hvorki verið tekjuhæsti kylftngurinn á mótaröðinni né unnið eitt af fjórum stóru mótunum í fyrsta sinn síðan 1998. Woods vann fimm mót, var með lægsta meðalskor keppenda en hann keppti aðeins átján sinnum. „Ég er gífurlega sáttur við þennan titil því að hann sýnir að menn meta stöðugleika minn mikið og ég held að titilinn endurspegi það,“ sagði Woods. Carter og O'Neal leik- mennvikunnar Vince Carter, framherji Toronto Raptors, og Shaquille O’Neal, miðherji Los Angeles Lakers, voru valdir leikmenn vikunnar 1.-7. desember í NBA- deildinni. Carter, sem var leikmaður vikunnar í austurdeildinni, leiddi Toronto til fjögurra sigurleikja í vikunni og skoraði 23,5 stig og gaf 7,8 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum íjórum. O’Neal, sem var valinn leikmaður vikunnar í vesturdeildinni, skoraði 19,7 stig, tók 16,7 fráköst og varði 4,7 skot að meðaltali í þremur leikjum sem Lakers vann alla. 8 milljarða samningur hjá Serenu '*■ Tennisdrottningin Serena Williams mun á næstu dögum skrifa undir átta ára samning við íþróttavöru- framleiðandann Nike en hún hefur hingað til klæðst skóm og fötum frá Puma. Talið er að samningurinn við Nike færi henni tæpa átta milljarða í tekjur en það er stærsti samningur sem íþróttakona hefur skrifað undir frá upphafi. Serena, sem hefur verið að jafna sig eftir uppskurð á hné, mun keppa á sínu fyrsti móti í langan tíma í næsta mánuði í, þegar hún tekur þátt í Hopman-bikarnum í Perth. Keflvíkingar hafa unnið 22. heimaleiki i röð í öllum keppnum, þar á meðal báða heim mætir franska liðinu Toulon i kvöld þar sem sigur skiptir öllu fyrir framhaldið hjá lið: f A sinurbraut Sui KeflvíMngar leika í kvöld þriðja og síðasta heimaleik sinn í B- riðli Vesturdeildarinnar í Bikarkeppni Evrópu í körfubolta þegar franska liðið Hyeres-Toulon kemur í heimsókn. Keflvíkingar hafa staðið sig frábærlega það sem af er keppninni og voru í efsta sæti riðilsins þegar liðin höfðu öll mæst. Leikurinn í kvöld er fyrsti leikur Keflavíkur í seinni umferðinni en liðið á síðan tvo útileiki eftir gegn portúgölsku liðunum tveimur en liðið mun leika við þau í sömu ferðinni seinna í þessum mánuði. Franska félagið er frá borgunum Hyeres og Toulon á Rívíerunni á suðurströnd Frakklands. Liðið 22 SIGRAR í RÖÐ Keflvíkingar hafa unnið 22 heimaleiki í röð í öllum keppnum en síðasta tap Keflavíkur á heimavelli var gegn nágrönnunum úr Njarðvík 7. janúar síðastliðinn. 22 heimasigrar Keflavíkur í röð: lO.jan. Njarðvík (bk.) 81-72 (+9) 18. jan. (R (bk.) 95-81 (+14) 24. jan. Haukar (d.) 121-85 (+36) 3. feb. Hamar (d.) 113-74 (+39) 17. feb. Valur (d.) 94-87 (+7) 27. feb. (R (d.) 114-88 (+26) 6. mars Snæfell (d.) 108-83 (+25) 14. mars(R(úk.) 103-75 (+28) 18. mars |R (úk.) 115-84 (+31) 23. mars Njarðvík (úk.) 106-64 (+42) 28. mars Njarðvík (úk.) 105-80 (+25) 7. apríl Grindavík (úk.) 113—102 (+11) 5. okt. Snæfell (mk.) 97-90 (+7) 10. okt. Hamar (d.) 100-72 (+28) 17. okt. ÁrmyÞrótt. (f.b.) 112-60 (+52) 24. okt. Breiðablik (d.) 106-85 (+21) 31. okt. Snæfell (d.) 79-70 (+9) 5. nóv. Ovarnense (ek.) 113-99 (+14) 9. nóv. Hamar (f.b.) 77-67 (+10) 18. nóv.Tindastóll (d.) 101-90 (+11) 26. nóv. Madeira (ek.) 99-88 (+11) 5. des. KR (d.) 103-80 (+23) d=daild, úk.= úrslitakeppni, b=bikar, fb.= fyrirtækjabikar, ok.=Evrópukeppni. komst upp í úrvalsdeildina í Frakklandi fyrir þremur árum eftir að hafa verið lengst af í B-deildinni 94% SIGURHLUTFALL Keflvfkingar hafa leikið 32 heimaleiki í mótum síðan að þeir lögðu hið glæsilega parket á gólf (þróttahússins á Sunnubrautinni. Liðið hefur unnið 30 af þessum leikjum þar af 22 þá síðustu. Gengi liða á parketinu í Keflavík: Grindavík (1 sigur - 2 töp) 33% Njarðvík (1-3) 25% Ovarense (0-1) 0% Madeira (0-1) 0% Skallagrímur(O-l) 0% Valur(0-1) 0% Ármann/Þróttur (0-1) 0% Tindastóll (0-2) 0% Haukar (0-2) 0% KR (0-3) 0% Breiðablik (0-3) 0% Hamar (0-3) 0% Snæfell (0-3) 0% ÍR (0-4) 0% Samantekt á gengi Keflavíkur eftir keppnum á nýja parketinu: Deildarkeppni (14 sigrar - 2 töp) 88% Bikarkeppni (3-0) 100% Úrslitakeppni (5-0) 100% Fyrirtækjabikar (5-0) 100% Evrópukeppni (2-0) 100% Meistarakeppni (1-0) 100% ooj@dv.is og hefur síðan fest sig í sessi meðal þeirra bestu. Toulon er nú í 11.-15. sæti af 18 liðum, með fjóra sigra í 11 leikjum. I Bikarkeppni Evrópu hefur Toulon leikið fjóra leiki, unnið tvo og tapað tveimur. Toulon vann öruggan sigur á Keflavík í fyrri umferðinni, 107-91, en það er eini ósigur Keflavíkur til þessa í keppninni. Heimavöllurinn hefur reynst Keflvíkingum afar vel í vetur en liðið hefur unnið alla tíu heimaleiki sína í öllum keppnum, deild (5), fyrir- tækjabikar (2), Evrópukeppni (2) og meistarakeppni (1). Ásama tíma eru sigrarnir sex í 11 útileikjum. Keflavíkurliðið hefur skorað 98,7 stig að meðaltali á Sunnubrautinni og brotið hundrað stiga múrinn sex sinnum í þessum tíu heimaleikjum. Frábær fyrsti leikur í fyrsta leiknum í Evrópu- keppninni var frábært að sjá til Keflavíkurhraðlestarinnar sem kom Portúgölunum greinilega mjög á óvart með mikilli áræðni í vörn og sókn. Keflvíkingar skoruðu alls 113 stig í leiknum og nýttu 58% skota sinna. Þriggja stiga körfurnar urðu alls 13 og með þessum frábæra leik stimpluðu þeir sig glæsilega inn í STAÐAN í RIÐLINUM Staðn í b-riðli vesturdeildar: Toulon 4 2 2 346-342 6 Keflavík 3 2 1 303-294 5 Ovarense 3 2 1 261-264 5 Madeira 4 1 3 336-346 5 Leikir sem eru eftir: Keflavík-Toulon íkvöld kl:19:15 Madeira-Ovarense í kvöld Ovarense-Keflavík 16. des. Madeira-Keflavík 18. des. Ovarense-Toulon 18. des. Evrópukeppnina en Keflavík er fyrsta félagið sem leggur eitt síns liðs í keppni við önnur lið Evrópu í meira en áratug. En hvað er það sem gerir Keflvíkinga svo sterka á heimavelli? Þetta er vissulega mjög sterkt lið sem Keflavík hefur yftr að ráða en á Sunnubrautinni eru þeir nánast ósigrandi. Liðið er með marga frábæra skotmenn sem þekkja körfurnar betur en aðrir og á nýju fjölunum mæta þeir til leiks með sitt þekkta sjálfstraust í botni. Það verður því fróðlegt að sjá hvað Frakkarnir gera í kvöld. Þeir eru eflaust búnir að skoða vel leik Keflavíkur og vita hversu hættulegar skytturnar eru. Það ánægjulega og jafnframt jákvæða við leik Keflavíkurliðsins í keppninni til þessa er að þeir eru að skila mikið af körfum inni í teig og státa af 58,5% skotnýtingu í tveggja stiga skotum sem er frábært ekki síst þar sem andstæðingarnir hafa verið töluvert hávaxnari en þeir. Glæsilegt met innan seilingar Keflavíkingar hafa mætt mjög grimmir til leiks í báðum heimaleikjunum, pressuvörn þeirra hefur reynst andstæðingunum afar erfið og hún þarf einnig að vera virk í kvöld svo Frökkunum gangi illa að setja upp fyrir stóru mennina sína. Breiddin hjálpar hér Guðjóni og Fali að halda „tempóinu" í hæsta styrk allan tímann en það er ljóst að Frakkarnir verði ekki lagðir af velli nema að allt gangi upp, góður leikur heimamanna í vörn og sókn sem og góður stuðningur á pöllunum. Takist Keflvíkingum að endurtaka leikinn setja þeir glæsilegt met því engu íslensku liði hefur tekist að vinna þrjá heimaleiki í röð í Evrópukeppni. ooj@dv.is Ekkert grín að standa undir kröfum KKÍ um umgjörð körfuknattleiksleikja Bóbó klæðist aðeins því besta Körfuknattleikssamband íslands, KKÍ, setti í upphafi vetrar nýjar reglur er varða umgjörð leikja í Intersportdeildinni í körfubolta. í þeim felst að lið skulu gefa út leikskrár, spila tónlist í hléum og annað slíkt. Einnig var gerð sú krafa að öll félög f deildinni væru með sitt eigið lukkudýr sem héldu uppi stemningu á leikjunum. Ekki eru öll félög jafn ánægð með þessa ákvörðun KKÍ því það kostar ekkert smáræði að kaupa lukkudýrsbúning. 200.000 kr. er ekki óeðlilegt verð fyrir slikan búning. Fyrir sama pening er til að mynda hægt að fá tvenn klæðskerasaumuð jakkaföt - af dýrari gerðinni - frá Sævari Karli. Það er því óhætt að segja að lukkudýrin í Intersportdeildinni klæðist aðeins því besta. „Við erum ekki ánægðir með þetta því við hér í Stykkishólmi vinnum allt okkar starf í sjálfboðavinnu og höfum vart efni á því að klæða lukkudýrið okkar upp fyrir slíkan pening," sagði Gissur Tryggvason, formaður körfuknattleiksdeildar Snæfells, í samtali við DV Sport í gær. Gissur og félagar hafa ekki enn „splæst” í búning á lukkudýrið sitt en ef þeir gera það ekki fyrir áramót bíða þeirra sektir frá KKI. íslenskt, nei takk? „Við ætium að funda um málið á morgun [í dag, innsk. blm.] og ákveða okkur hvort við kaupum slíkan búning hér á landi eða erlendis," sagði Gissur en félög hafa í mörgum tilvikum pantað búninga alla leið frá Bandaríkjunum þar sem það er oftar en ekki hagstæðara en að kaupa þá hér á landi. Félögum í deildinni er leyfilegt að greiða leikmönnum sínum allt að 500.000 kr. í laun og hlunnindi á mánuði og einn búningur er því á við helming rekstrarkostnaðar hverrar deildar á mánuði. Gissur bendir á að hægt sé að brydda upp á ýmsu öðru skemmtilegu á leikjum. Þeir hafi til að mynda verið með skotkeppnir í hálfleik sem hann hafi ekki séð á öllum stöðurn. Finnst honum skynsamlegra að einbeita sér að slíkum skemmtiatriðum en að eyða fúlgu fjár í einn búning. henry@dv.is Flottur í tauinu Apinr Bóbó, sem er lukkudýr Hamarsmanna ÍHveragerði, klæðist ekki neinum lörfum þvi búningur hans kostar um 200.000 kr. Hann situr hér við hlið þjálfara Hamarsmanna, Péturs ingvarssonar, sem tæpast erí fatnaði fyrirsama pening.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.