Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2003, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003
Sport DV
Orlando Magic vann loks leik í NBA
Sigur eftir
nítján tap-
leiki í pöö
Orlando Magic vann loks sigur í
NBA-deildinni í fyrrinótt þegar liðið
bar sigurorð af Phoenix Suns,
105-98, á heimavelli. Þetta var fyrsti
sigur liðsins síðan 29. oktöber en þá
lagði það New York Knicks á útivelli.
Síðan þá hafði liðið tapað nítján
leikjum í röð, rekið þjálfara sinn,
Doc Rivers, ráðið Johnny Davis í
staðinn, tapað fyrstu níu leikjunum
undir hans stjórn og tapað fyrstu
ellefu heimaleikjum sínum á
tímabilinu.
Það var því kannski ekki furða að
Davis og leikmenn hans væru glaðir
í leikslok eftir sigurinn á Phoenix.
Get leyft mér að brosa
„I fyrsta skipti í langan tíma ríkir
gleði í búningsklefanum eftir leikinn
og í fyrsta skipti get ég leyft mér að
brosa eftir leik frá því að ég tók við
liðinu. Það lögðu sig allir fram og
höfðu þá trú að þeir gætu loksins
snúið við blaðinu og unnið leik til
tilbreytingar," sagði Davis.
Tracy McGrady, stórstjarna
liðsins, sagði eftir leikinn að andinn
í búningsklefanum hefði verið
ótrúlegur.
„Ég vona að við getum byggt á
þessu og öðlast sjálfstraust. Vonandi
hefst deildin hjá okkur npna því að
ég veit ekki hvaða lið hefur verið að
spila síðustu tuttugu leiki hjá
okkur,“ sagði McGrady.
Orlando Magic setti met með því
að tapa nítján leikjum í röð því að lið
með yfir 50% árangur tímabilið á
undan - Orlando vann 42 en tapaði
40 - hefur aldrei tapað jafnmörgum
leikjum í röð á einu leiktímabili.
Gamla metið átti Golden State
Warriors sem tapaði sautjáji leikjum
í röð tímabilið 1964-1965. ■
oskar@dv.is
GENGI ORLANDO 1 VETUR
29. október New York Knicks (ú) 30. október 85-83 S
New Orleans Hornets (h) 98-100T
1. nóvember Detroit Pistons (h) 3. nóvember 85-96 T
New York Knicks (h) 68-75 T
5. nóvember Chicago Bulls (h) 100-106T
7. nóvember Minnesota Timberw. (h) 71-100 T
8. nóvember Houston Rockets (ú) 86-96 T
12. nóvember Memphis Grizzlies (h) 97-107T
14. nóvember Denver Nuggets (ú) 101-106T
15. nóvember Los Angeles Clippers (ú) 17. nóvember 92-95 T
Utah Jazz (ú) 20. nóvember 88-90 T
Phoenix Suns (ú) 89-96 T
21. nóvember Sacramento Kings (ú) 24. nóvember 92-122T
Indiana Pacers (h) 26. nóvember 78-89 T
Boston Celtics (h) 28. nóvember 92-94 T
Toronto Raptors (h) 86-87 T
2. desember New Orleans Hornets (h) 3. desember 91-100 T
New Orleans Hornets (ú) 5. desember 91-106T
San Antonio Spurs (h) 94-105T
6. desember Dallas Mavericks (ú) 8. desember 97-110T
Phoenix Suns (h) 105-98S
Fallist í faðma Tracy McGrady og Johnny Davis, þjálfari Orlando Magic, féllust I faðma eftir sigurinn gegn Phoenix i fyrrinótt, enda hafði liðið
tapað nítján leikjum i röð fyrirþann leik.
Aðeins tvö lið örugg áfram
Lokaleikimir í riðlum A-D í
h. meistaradeildinni fara fram í kvöld.
Gríðarleg spenna er fyrir leiki
kvöldsins því aðeins tvö lið úr
riðlunum fjórum eru örugg áfram og
því verður barist til síðasta
blóðdropa í kvöld.
Bayern í lykilstöðu
Bayern Munchen er neðst fyrir
lokaleikina í A-riðli en liðið er í
lykilstöðu þar sem það á heimaleik
og sigur þar fleytir því áfram.
Anderlecht nægir aftur á móti
jafntefli í Munchen til þess að
komast áfram. Lyon er einnig í
ágætri stöðu gegn Celtic þar sem
liðið á heimaleik en vgrður að
sækja sigur þar sem jafntefli kæmi
skoska liðinu áfram í 16-liða úrslit.
Vænleg staða Arsenal
Arsenal hefur tekið lygilega
dauðakippi í B-riðli og ef það leggur
Lokomotiv á Highbury er það komið
áfram. Liðsmenn Lokomotiv pakka
væntanlega í vörn þar sem jafntefli
fleytír þeim áfram. Kollegar þeirra
hjá ítalska stórliðinu Inter eru aftur á
móti í frekar vondum málum því
þeir þurfa að ferðast til Úkraínu þar
sem þeir mæta Dynamo í
Kænugarði og þar dugir þeim ekkert
nema sigur ef þeir ætla sér áfram.
Dynamo þarf einnig sigur og því er
von til þess að leikurinn verði opinn
og skemmtilegur.
Monaco öruggt
Franska liðið Monaco er komið
áfram í C-riðli og AEK er úr leik. Því
er viðureign þeirra frekar marklaus.
Baráttan um annað sætið er á milli
PSV og Deportivo en þau mætast í
Hollandi. PSV getur leyft sér að fara
hægt í leiknum þar sem jafntefli
nægir því til að komast áfram en
Spánverjunum er sá kostur
nauðugur að leika til sigurs.
Tyrkjarán á Spáni?
Juventus er öruggt með sæti í
16-liða úrslitum í D-riðli og mætir
afslappað til leiks gegn
Olympiakos. Það verður vænt-
anlega blóðug barátta þegar
Galatasaray sækir Real Sociedad
heim. Spænska liðinu nægir
jafntefli í leiknum og því mæta
Tyrkirnir bálvitlausir til leiks og má
mikið vera ef eitthvað lætur ekki
undan f þeirri viðureign.
henry@dv.is
MEISTARADEILDIN 1 MEISTARADEILDIN
C-riðill
A-riðill Leikir kvöldsins:
Leikir kvöldsins: AEK Aþena-Monaco
Bayern Munchen-Anderlecht PSV Eindhoven-Deportivo
Lyon-Celtic Staðan:
Staðan: Monaco 5 3 1 1 15-6 10
Celtic 5 2 1 2 6-4 7 Deport. 5 3 1 1 10-9 10
Anderl. 5 2 1 2 4-5 7 PSV 5 2 1 2 5-5 7
Lyon 5 2 1 2 4-5 7 AEK 5 0 1 4 1-11 1
Bayern 5 1 3 1 5-5 6 D-riðill
B-riðill Leikir kvöldsins:
Leikir kvöldsins: Juventus-Olympiakos
Arsenal-Lokomotiv Moskva Real Sociedad-Galatasaray
Dynamo Kiev-lnter Staðan:
Staðan: Juve 5 3 1 1 8-6 10
Lokom. 5 2 2 1 7-5 8 Socied. 5 2 2 1 7-7 8
Arsenal 5 2 1 2 7-6 7 Galatas. 5 2 0 3 5-7 6
Inter 5 2 1 2 7-10 7 Olympi. 5 1 1 3 6-6 4
D. Kiev 5 2 0 3 7-7 6