Dagblaðið - 12.09.1975, Page 2
7
Spurning
dagsins
Hefurðu nokkurn tima safnað
skeggi?
Lýður Björnsson kennari: Aldrei,
ekki gert nokkrar tilraunir til
þess. Ég raka mig daglega.
Jön Guðmundsson götusali: Jti,
það kól hérna eitt vorið, en eins og
máltækið segir, allt er hey i harð-
indum.
Bjartmar Pálsson lifeyrisþegi:
Nei, aldrei, jU einu sinni á sild
fyrir 30 árum, ekki oftar. ÞU ert
með sæmilegasta skegg.
Kristinn Bjarnason verzlunar-
maður: JU einu sinni, fyrir tveim
til þrem árum, ég gafst Upp og
nennti þvi svo ekki lengur.
Þröstur Steinarsson bóndasonur:
Nei, það hef ég ekki gert, hef eng-
an áhuga á þvi, vist sprettur það
dálitið.
Axel Kinarsson, venjulegur mað-
ur: Já.ætli þaðekki, þetta sem ég
er með, hvorki meira né minna.
Ég geri þetta af þvi ég álit það
fara vel við persönuleika minn.
/*
Trúorhöll?
Að fara á vörusýningu með
hálfstálpuð börnin sin er merki-
leg lifsreynsla, sem enginn ætti
að fara á mis við. Venjulega
verður maður nógu ruglaður á
slikum sýningum þó maður fari
bara einn eða með öðrum full-
orðnum, en eftir slika ferð með
börnin leitar maður að bilnum á
óliklegustu stöðum og endar
með þvi að setjast upp i aftur-
sætið og snúa baki fram.
Annars var það ekki meining
min að ræða hér um vörusýn-
inguna sem slika. Ég er orðinn
þreyttur á si'felldum endurtekn-
ingum um að ég þurfi að fá mér
glerkonu og óskum um að á mig
verði settir stikkkontaktar svo
ýta megi á hnapp til að finna
hvaða partur af mér er lifur og
hvaðer magi, eða hvort skærar
logi á þvagblöðrunni eða skjald-
kirtlinum. Ég er lika orðinn ó-
næmur fyrir suði um vatnsrúm i
barnaherbergin og ákveðinni
kröfu um torfærumótorhjól með
750 kúbik mótor.
Ætlunin var þvert á móti að
velta fyrir sér þessu húsi
hér inni i Laugardal, sem einu
sinni var kallað Auðkúla eða
Kúlusukk, en núna er almennt
kölluð Laugardalshöll, þótt hall-
arsikið sé hvergi nærri henni
(það er á Laugardalsvellinum,
þar sem gert var ráð fyrir fót-
boltavelli) og hún sé svo fátæk-
lega búin að hafa enga skot-
turna. Menn eru nú farnir að
velta þvi fyrir sér, hvort ekki sé
miklu meira trúarlegs eðlis
bundið við Laugardalshöllina en
áður var talið.
Þessar vangaveltur hófust i
sumar, þegar i þessu húsi var
haldin mikil trúarleg ráðstefna,
sem raunar lognaðist út af i
hægðum sinum. 1 lokin komst
sem sé Anzkotinn i spilið og
laumaði matareitrunargerlum i
kássu, sem gerð var úr matar-
afgiingum, hrisgrjónum og
skurðbretti, ef fréttatilkynning
þar að lútandi hefur komið rétt
til skila.
Vatnsrúmið hefur óneitanlega aðdráttarafl, en hver gæti hugsað
sér að hafa eitt i hverju barnaherbergi? Ljósm. imynd, Sigurgeir
Sigurjónsson.
Dagblaðið. Föstudagur 12. september 1975.
Hver getur hrifizt af kvenmanni á borð yiö þennan?
Ekki var þessari ráðstefnu,
sem beindist að Guði, fyrr lokið
en annað trúarþing var sett i
húsakynnum. Þá var það
Mammon gamli, sem tignaður
var svo um munaði. Þá er ég
kominn aftur að þvi sem ég
byrjaði á, þingi kaupahéðna i
Laugardalshöll, þar sem hver
um annan þveran reyndi að
sannfæra saklausa neytendur
um ágæti þeirrar vöru, sem á
boðstólum er. Og vist var þar
margt girnilegt, sem fyrr segir,
bæði vatnsrúm og mótorhjól og
margt annað, sem of langt yrði
upp a ð telja. Og til þess að punta
upp á allt saman var svo lif-
færasýning, meðal annars gler-
konan, sem er einhver sú ó-
frýnilegasta kvenpersóna, sem
ég hef séð, og hefur þó margt
HÁALOFTIÐ
verið borið framan að manni á
þessu konuári.
En — ég hef verið að velta
einu fyrir mér. Hvernig stóð á
þvi að Anzkotinn gerði engan
uppsteyt á þessu þingi?
Óprúttnir þjófar
Guðmunda Gunnarsdottir
simaði:
, ,Við höfum garða á leigu upp'i
við KorpUlfsstaði og það er anzí
hart, aðfólk skuii ekki hafa frið
til að rækta kartöflur án þess, að
einhverjir biræfnir þjófar steli
úr görðunum.. Við vorum að
taka upp og skruppum i mat.
Þegar við komum aftur var búið
að taka upp úr garði vinafólks
okkar. Við höfðum lánað þeim
helminginn af garðinum, sem er
um 100 fermetrar. Skömmu
seinna voru þeir byrjaðir áftur
og i þetta sinn i garði dóttur
minnar, en sem betur fer var
ekki búið að taka mikið. Annars
hefur alltaf eitthvað borið á þvi,
að karakterlaust fólk gangi i
garða þarna efra og steli græn-
meti. Fólk leggur mikla vinnu
og r ækt við garðana og það gerir
þessa stuldi þeim mun leiðin-
legri. Mjög erfitt er að hafa
eftirlit með svæðinu vegna þess
að þarna eru hundruð litilla
garða og ómögulegt að vita hver
á hvað. Við höfum reynt að sitja
fyrir þessum óprUttnu þorp-
urum. en enn sem komið er
höfum við ekki hitt á þá. Þegar
við að iokum hittum á þá,
þá....” .
Onedin og
Brœðurnir
í óvissu
Gunnar Gunnarsson kom að
máli við dálkinn og vildi fá svar
við stuttri fyrirspurn til Sjón-
varpsins:
,,Ég hef spurt þá hjá sjón-
varpinu hvenær Bræðurnir birt-
ist að nýju á skerminum. Loðin
svör hafa verið gefin við þessu.
Nú vil ég itreka þessa fyrir-
spum. Hvenær verða Bræðurnir
aftur teknir til sýninga? Svo
virðist sem tveir þættir hafi
hætt i miðju kafi, Bræðurnir og
Onedin. Þetta finnst sjónvarps-
áhorfendum heldur leiðinleg
frammistaða.”
SVAR: Ekkert hefur verið
ákveðið um framhald á Bræðr-
únum og Onedin, og myndir úr
þessum serium eru ekki til hjá
Sjónvarpinu að sögn Hermanns
Jóhannessonar hjá Sjónvarp-
inu. Þættirnir eru seldir i 13
mynda syrpum og hafa 2 slikir
flokkar, 26 myndir, verið sýndir
i sjónvarpinu af Bræðrunum.
Erlendis er til framhald af
báðum myndunum. En sem
sagt, allt er i óvissu með fram-
hald af þessum fjölskylduvinum
Islendinga.
-
FLUGVÉLAKAUP GÆZLUNNAR
Geir Thorsteinsson sendi linu
,,Af hverju? Nokkrar spurn-
ingar til Landhelgisgæzlunnar
um flugvélakaupin.
Hvers vegna hafa sjö skip-
herrar, tveir stýrimenn, þrir
flugstjbrar, tveir flugmenn,
tveir flugvirkjar, starfsmenn
Landhelgisgæzlunnar, lýst yfir
stuðningi við kaup á nýjum
Fokker fyrir Gæzluna i stað véla
af annarri gerð?
— Er það vegna þess að þeir,
sem fljúga Fokker, fá hærra
kaup en þeir sem fljíiga minni
vélum ?
— Er það vegna þess, að tvi-
sýnna er að nauðlenda háþekju
en lágþekju?
— Er það vegna þess, að þeir
vildu ekki setja sig upp á móti
ákvörðun forstjóra Landhelgis-
gæzlunnar?
— Er það vegna þess, að
næstum þvi má spila borðtennis
i Fokkernum plássins vegna?
Þannig má lengi halda áfram
að spyrja og ég vildi gjarna fá
að vita rétt svar.
Eitt er þó ánægjulegt að vita
og það er hve vel ,,upplýstir”
stýrimenn og skipherrar skipa
Landhelgisgæzlunnar eru um
hagkvæmustu og ódýrustu flug-
vélategundina.”
—BP.)
Fokkervél Gæzlunnar. Er það munaður aðeiga annan slikan? (Ljósmynd DAGBLAÐSINS