Dagblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 3
Dagblaöiö. Þriöjudagur 30. september 1975
3
MENNTASETUR 0G FÁEINIR SÓLARGEISLAR:
Hvaöa máli skiptireinn sólar-
geisli i kjallaraglugga gamallar
konu við Laufásveginn á móti
heilu menntasetri? Ellegar þá
garðhola fólksins i húsinu nr. 20
við Laufásveg?
Austurgafl nýrrar viðbygg-
ingar við Kvennaskólann þræðir
lóðamörkin við þessa húslóð.
Samkvæmt teikningu gnæfir
hann innan tiðar fyrir kjallara-
gluggum gamals húss. Haust-
sólin yljar þá ekki lengur lúnum
beinum á litlum, hvitum bekk i
garðinum framan við gluggann.
Rabarbarinn er harðgerður.
Er aldrei að vita nema hann
þrjózkist við að deyja. Annar
gróður lifir naumast af bygg-
ingarframkvæmdir, hvað sem
siðar verður. Hver dagurinn,
getur orðið sá siðasti til þess að
horfa vestur yfir Tjörn, yfir
garðhúsið hans Thors heitins
Jensen i Hallargarðinum.
Það gerir minna til, þótt ekki
sjáist lengur þetta fallega hús
neðan frá Frikirkjuvegi. 1 stað-
inn kemur nothæft hús undir
skóla, sem gat verið annars
staðar en á múr- og naglfestu
graslendi austan við Tjörnina.
Næst kemur viðbygging við
gamla ishúsið, Glaumbæ eða
Listasafn rikisins, eftir þvi,
hvað menn vilja kalla húsið.
Ennþá er það óljóst fyrir hvern
eða hverja Hallargarðurinn er
frátekinn til þess að byggja i
honum. Það verður þjáning sins
tima, en hún verður ekki umflú-
in.
Það þýðir vist ekkert að þrasa
um þennan sólargeisla, sem að
vori nær ekki lengur á litinn,
hvitan bekk við kjallaraglugga
gamallar konu við Laufásveg-
inn. En við verðum að vona i
lengstu lög, að kynslóðin, sem
nú er að vaxa og þroskast, virði
betur en við, þörf einstaklings-
ins i borginni fyrir geisla hnig-
andi sólar.
—BS-
Or garðinum sést ennþá vestur
vfir Tjörn.
Olíukoup af Norðmönnum
fyrir 2-3 milljarða?
— sem er hallinn á Sovétviðskiptunum
— rœtt við Indriða Pólsson forstjóra
Hvernig væri að kaupa oliu af
Norðmönnum fyrir fjárhæð, sem
nemur þvl, sem á vantar, að jöfn-
uður sé á viðskiptum við Sovét-
rikin, eða 2000 — 3000 milljónir?
Þetta kemur fram I svari Indriða
Pálssonar, forstjóra Oliufélags-
ins Skeljungs, við spurningu Dag-
blaðsins um hugsanleg oliukaup
frá Noregi.
,,Ég tel, að Islendingar eigi að
kaupa oliu þaðan, sem það er
okkur hagkvæmast,” segir
Indriði. „Við mat á slikri hag-
kvæmni þarf eflaust að taka tillit
til fleiri atriöa en kaupverösins á
oliunni, svo sem þess að okkur er
nauðsynlegt að halda mörkuðum
fyrir útflutningsafurðir okkar ög
afla nýrra. Á árinu 1975 er áætlað,
Próflausir
á nýjum
ökutœkjum
Tveir bráðlátir, nvbakaðir
vélhjólaeigendur voru stöðv-
aðir við akstursæfingar sínar i
Arbænum um helgina. Strák-
amir voru próflausir, en búnir
að kaupa sérhjól fyrir sumar-
hýruna, og gátu ekki beðið
með að nota farkostina. En
slikt er óleyfilegt. Það er öllu
nauðsynlegra að flýta sér að
taka prófið fremur en að eign-
astreiðskjótann. En þá kemur
oft upp vandamálið meðaldur-
inn og siðustu mánuðirnir til
þess er ökualdri er náð, eru oft
lengi að liða.
—ASt.
að við kaupum olfu frá Sovétrikj-
unum fyrir 2000—3000 milljónum
króna hærri fjárhæð en nemur
söluverði þeirra vara, sem þeir
kaupa af okkur.
Ég hef enga ástæðu til að ætla,
að Rússar mundu beita Islend-
inga viðskiptaþvingunum, þótt
við reyndum að reka „sjálfstæða
utanrikisstefnu” og afla okkur
ódýrari oliu en fáanleg kynni að
vera frá þeim.
Að minum dómi er full ástæöatil
að athuga gaumgæfilega alla
möguleika, sem fyrir hendi kynnu
að vera til að kaupa hluta af oliu-
þörfum okkar, til dæmis að jafn-
viröi 2000 — 3000 milljónir króna,
frá Norðmönnum, svo fremi að
okkur bjóðist hagkvæmari kjör á
oliu þaöan.”
—HH
HJALPARSVEITIR
MERGSOGNAR
AF RÍKISVALDINU?
„Skattar og hvers konar
gjöld, sem hjálparsveit skáta
þarf að inna af hendi til hins
opinbera „eru orðin mörgum
sinnum hærrien sá styrkur sem
sveitirnar fá frá rikinu”, segja
hjálparsveitarmenn. Bendir
ársþing þeirra á að óeðlilegt
virðist að innheimtir séu tollar
og söluskattur af innfluttum
búnaði björgunarsveitanna,
s. s. sjúkrabilum, fjarskipta-
tækjum, sjúkrabúnaði og fleiru.
Enn fremur að Póstur og simi
innheimti skráningar og þjón-
ustugjöld af fjarskiptabúnaði
sveitanna. Formaður Lands-
sambands hjálparsveita skáta
er Tryggvi P. Friðriksson. Með
honum i stjórn sitja Haraldur
Friöriksson ritari, Sighvatur
Blöndal og varamaður Sveinn
Jóhannsson.
JBP -
Viltu fara á œfingu með Sinfóníunni?
Það er ekki ónýtt að fá tæki-
færi til að sjá og heyra
Ashkenazy æfa Sinfóniuhljóm-
sveitina á 6. sinfóniu
Tsjaikovskys. Þetta verður
mögulegt i fyrramálið milli 9.30
og 12.30 i Háskólabiói. Dagurinn
á morgun er tileinkaður tónlist-
inni, alþjóðlegur tónlistardagur.
Alþjóðaráð tónlistarmanna
undir forystu Yehudi Menuhins
ákvað að velja þennan dag i
þessu skyni — JBP—
SKOLA-
HLJÓM-
SVEIT
ÞAKKAÐ
Það er góður siður að þakka
það sem þakkar er vert. Og
hann Björn Guðjónsson á sann-
arlega þakkir skildar fyrir elju-
semi sina i sambandi viö Skóla-
hljómsveit Kópavogs. Arum
saman hefur hann unnið að þvi
að skapa góða skólahljómsveit i
bænum, — og það hefur tekizt.
Hljómsveitin hefur náð veru-
lega góðum árangri og vinsæld-
ir hennar eru stöðugt vaxandi.
Elztu félagarnir i hljómsveit-
inni eru nú að veröa hálffullorð-
ið fólk, svo liklega liður ekki á
löngu þar til Kópavogur eignast
lúðrasveit, sem kveður að. DB-
MYNDIN: Kristján Guðmunds-
son félagsmálastjóri afhendir
Birni Guðjónssyni heiðursskjal
frá Félagsmálastofnun Kópa-
vogskaupstaðar til skólahljóm-
sveitarinnar fyrir gott framtak
hennar. Björn er til vinstri -á
myndinni.