Dagblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 8
8 Dagblaðið. Þriðjudagur 30. september 1975 MMBIAÐIB frfálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason tþróttir: Hallur Símonarson Hönnun: Jóhannes Reykdal Blaðamenn: Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bolli Héðinsson, Bragi Sigurðsson, Hallur Hallsson, Ómar Valdimarsson. Handrit: Asgrlmur Pálsson, Inga Guðmannsdóttir, Maria Ólafs- dóttir. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson Augiýsingastjóri: Asgeir Hannes Eirlksson Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Þeir borgi skaðann Við íslendingar eigum i raun og veru kröfurétt til skaðabóta frá þeim rikjum, sem hafa á undan- förnum áratugum hagnýtt sér Is- landsmið án samþykkis okkar og án þess að greiða okkur auðlinda- skatt. Einar Ágústsson utanrikisráðherra vék rétti- lega að þessu i ræðu sinni á allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna i gær. Visaði hann til hafréttar- ráðstefnunnar, þar sem komið hefur i ljós, að yfirgnæfandi meirihluti rikja heims er andvigur þvi hátterni, að stórveldi geti sent togaraflota til að hagnýta sér fiskimið annarra þjóða án þeirra samþykkis. Siðan sagði Einar: „1 stað þess að berjast gegn hugtakinu um efnahagslögsögu, ættu þessi riki að láta sér nægja, ef þau þurfa ekki að greiða skaða- bætur fyrir þau geysilegu auðæfi, sem þau hafa tekið úr þessum auðlindum hingað til.” Spurningin er bara sú, hvort islenzka rikis- stjórnin eigi ekki að setja þetta atriði sérstaklega á oddinn i viðræðum við rikisstjórnir erlendra rikja um undanþágur fyrir togara þeirra innan 200 milna landhelginnar. Einar benti á þá samstöðu, sem komið hefur fram á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um, að strandriki geti ákveðið leyfilegan há- marksafla innan 200 milna fjarlægðar og einnig ákveðið möguleika sina til að hagnýta hann. Þar sem islenzki fiskiskipaflotinn er nú fullfær um að hagnýta fslandsmið til fulls, væri það i samræmi við vilja ráðstefnunnar, að íslendingar önnuðust þessar veiðar einir. Enn veiða erlendir fiskimenn nærri helming heildarafla botnlægra fiskitegunda á íslandsmið- um og það með rikulegum styrk hlutaðeigandi rikisstjórna. Ókynþroska fiskur er vaxandi hluti þessa afla, enda hefur komið i ljós hjá Alþjóða hafrannsóknaráðinu, að 50% samdráttur veiða á þessum miðum mundi ekki minnka heildarafl- ann. Þessar veiðar erlendra togara hafa skaðað ís- landsmið verulega og er þvi ekki nema eðlilegt, að skaðabætur komi fyrir. Ennfremur er eðlilegt, að hugsanlegar undanþágur fyrir erlenda togara verði framvegis skattlagðar með sérstökum auð- lindaskatti. Viðsemjendur íslendinga i fiskveiðimálunum eru harðir i horn að taka og beita jafnvel efna- hagslegum þvingunum á borð við löndunarbann og frestun tollalækkana. Þess vegna eigum við ekki að afsala okkur neinum rétti til bóta fyrir þann skaða, sem íslandsmið hafa orðið fyrir, heldur hefjast handa við að reikna út skaðann og gera viðkomandi rikisstjórnum reikning fyrir hann. Sögulegum rétti á að fylgja söguleg ábyrgð. Það gætu þvi komið vöflur á viðsemjendur okkar, sem bita sig fasta i sögulegan rétt sinn til veiða á Islandsmiðum. Þetta vopn eigum við að notfæra okkur i viðræðunum um undanþágur til veiða inn- an 200 milnanna. Einar drap aðeins lauslega á hugsanlega skaðabótaskyldu viðsemjenda okkar i ræðu sinni á allsherjarþinginu. Það var ágæt byrjun. í beinu framhaldi eigum við nú að fara á fulla ferð i skaðabótakröf um. SLIGAST UNDIR Sköpun heimsins var ekki lok- ið á sjöunda degi. Guð hugsaði sig enn um og skapaði á áttunda degi merkilegan hlut embættis manninn. Svo hlýtur að hafa verið, segir þýzka blaðið Stern. Hvers vegna hefði almenningur annars þolað forréttindi embættismanna svo lengi? Blaðið segir, að borgurunum þyki þung sú byrði, sem þeir bera vegna herskara embættis- manna. Kostnaður við embættismannakerfið lami rlk- ið, en stjórnmálamenn þori ekki að draga úr forréttindunum. Vegna gifurlegs kostnaðar við embættismenn sé ekki til pen- ingur til umbóta. Sjöundi hver Vestur-Þjóð- verji, sem er á vinnumarkaðn- um, starfar hjá rikinu, að með- töldum verkamönnum hjá riki. 40 af hundraði fjárlaga vestur- þýzku fylkjanna fara til embættismanna og annarra starfsmanna fylkjanna. Og hvað um það? Walter Scheel forseti hefur viðurkennt vandann. í skoðana- könnunum kemur fram vaxandi gremja. Fyrir tiu árum taldi nærri helmingur landsmanna, að embættismenn væru yfirleitt hafnir yfir mútur og annað slikt og létu ekki aðra ráðskast með sig. Fyrir ári var þessi tala manna i góðri trú á embættis- mennina dottin niður i rúman þriðjung. öllu fleiri töldu, að embættismenn sköruðu eld að eigin köku. Almenningur var orðinn ókyrr yfir valdi embættismanna. Menn voru jafnvel yfirleitt ekki á þvi að jánka spurningunni hvort þeir hefðu „gott álit” á embættis- mönnum yfirleitt. Aðeins 29 af hundraði sögðu já við þvi, 21 af hundraði sagði nei og 39 af hundraði sögðu bara „það slarkar”. Erlend tœkjakaup opinberra stofnana Islenzkur iðnaður og kaup opinberra stofnana á tækjum og vörum erlendis frá i samkeppni við islenzka iðnaðarframleiðslu. tslenzkur iðnaður hefir sjald- an verið i hávegum hafður af is- lenzkum stjórnvöldum og ekki virðist skilningurinn i þvi efni fara vaxandi nema siður sé. Undirritaður ætlar hér að skýra frá 3 atriðum sem snerta fyrirtæki það sem hann veitir forstöðu, H.F. Raftækjaverk- smiðjuna i Hafnarfirði, i dag- legu tali nefnd RAFHA. Fyrsta atriðið er að visu 2ja ára gamalt en þó eitthvert hið alvarlegasta af þessu tagi á seinni timum. Eftir Vestmannaeyjagosið keypti Viðlagasjóður um það bil 550 hús frá Norðurlöndum. 011 voru húsin keypt með raf- magnseldavélum þrátt fyrir óskir Rafha um að þær yrðu keyptar innanlands. Ráðunaut- ur Viðlag'asjóðs mælti með Rafha, enda sambærilegar og ó- dýrarien erlendu vélarnar, sem fyrir vali urðu, en það var að engu haft af stjórn Viðlaga- sjóðs. Þetta var mikið áfall fyrir Rafha þar sem hér var um að ræða 1/4 — 1/3 af ársfram- leiðslu Rafha. Þannig fór um sjóferð þá. Dæmi nr. 2 er Bændaskólinn að Hvanneyri. Þar var um að ræða stórt mötuneyti fyrir skól- ann með mörgum tækjum, sem Rafha hefir um árabil smiðað með góðum árangri, og jafnvel þótt tollar hafi verið lækkaðir verulega vegna EFTA samn- inga er Rafha enn mjög sam- keppnisfær. En i þessu tilfelli var ekki einu sinni haft fyrir þvi að spyrja Rafha, tækin voru ein- faldlega keypt erlendis frá án þess að leita fyrir sér hér heima. Þegar spurzt var fyrir um hverju þessi aðferð sætti var oss tjáð að til þess að fá starfsfólk væri nauðsynlegt að kaupa dýr- ustu og finustu tæki erlendis frá, þá veit maður það. Þá var þess einnig getið að „ráðunautur” um þessi kaup hefði verið skólastjóri hótelskól- ans i Reykjavik og þar með var þvi slegið föstu að betra gæti það ekki verið. Vonandi verður ekki hörgull á starfsfólki á þessari stofnun. Þriðja dæmið, sem hér verður minnzt á, er mötuneyti Mennta- skólans á Isafirði, en þar er sömu söguna að segja og við dæmi nr. 2. Ekki var haft fyrir þvi að leita fyrir sér hjá innlendum fram- leiðendum, aðeins pantað er- lendis frá án útboðs, frá sama framleiðanda og keypt var frá fyrir Hvanneyrarskóla enda sami „ráðunautur” að verki. Þessi kaup komust upp þegar rektor Menntaskólans á fsafirði sagði frá þvi i útvarpi nýlega að ekki gæti mötuneyti skólans tekið til starfa á réttum tima vegna mistaka tæknideildar Innkaupastofnunar rikisins, sem annaðhvort hafði gleymt að panta eða verið svikin um af- greiðslu. Vonandi verður heldur ekki hörgull á starfsfólki þar, þegar mötuneytið loks kemst i notkun. Annars má geta þess hér um leið, að eldavél, sem fyrir valinu varð I þessu tilfelli, er mun dýr- ari erlendis frá, þrátt fyrir lækkun tolla, en samsvarandi Rafha eldavél. Það var bara ekkert haft fyrir þvi að leita fyr- ir sér innanlands. Hér hafa verið rakin 3 dæmi um innkaup á vegum opinberra aðila að undanförnu, en mörg fleiri eru tiltæk, sjúkrahús. heilsuverndarstöðvar, skólar og fleira sem geymd eru en ekki gleymd. Mikill hluti islenzks iðnaðar, eins og við þekkjum hann i dag, er aðeins 40—50 ára, en það er stuttur timi miðað við þróun iðnaðar i nágrannalöndum okk- ar sem mest samkeppni er við. Erlendir menn, sem hér hafa komið oft til að selja erlendan iðnvarning, samskonar og við erum að framleiða, hafa lýst undrun sinni á kæruleysi og skilningsleysi islenzkra yfir- valda á afstöðunni til hins unga islenzka iðnaðar og látið orð falla um að sparaður gjaldeyrir væri jafnverðmætur og sá sem aflað er með útflutningi, þannig væri það i þeirra heimalöndum. Forystumenn islenzks iðnað- ar hafa þvi miður ekki vérið nógu skeleggir i baráttu sinni fyrir islenzkum iðnaði, mikið hefir skort á að nægjanleg fræðsla um mikilvægi iðnaðar og þá fyrst og fremst smáiðnað- ar væri i té látin opinberlega, allt tal og skrif um framtið iðn- aðar á Islandi hefir á-undan- förnum árum snúizt um svokall- aðan stóriðnað, sem talinn er leysa öll vandamál iðnþróunar á Islandi framtiðarinnar. Það hefir gleymzt, að smáiðnaður- inn er undirstaðan og þar hefst þjálfun og iðnþróun sem stór- iðnaður byggir á að verulegu leyti. Bezta sönnun þessara staöhæfinga er kannski þróun fiskfrystiiðnaðarins hér á und- anförnum áratugum. Enn er kannski ekki of seint að snúa við blaðinu og hefja markvissa fræðslu fyrir al- menning um mikilvægi smáiðn- aðar á Islandi, en jafnframt þurfa Islenzk stjórnvöld að öðl- ast þennan skilning að koma i veg íyrir að islenzkur smáiðn-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.