Dagblaðið - 30.09.1975, Qupperneq 18
18
Dagblaðið. Þriðjudagur 30. september 1975
Afbrotaalda
ó ísafirði:
Afbrotaalda hefur að undan-
förnu gengið yfir ísafjörð, jafn-
vel svo að sumum ábyrgum
mönnum finnst nóg um. Hér er
um að ræða bæði stærri afbrot
og minni, sum þegar upplýst en
önnur i rannsókn. Einn situr i
gæzluvarðhaldi grunaður um
aðild aö innbroti.
Viö ræddum fjögur þessara
mála við fulltrúa bæjarfógetans
á tsafirði i gær og fjalla þau um
innbrot, dekkjastungur á bilum
og „frelsisgjöf” sláturfjár að
næturlagi.
Þrír ungir menn hafa játað aö
eiga sök á stuldi peningakassa
úr mannlausri ibúð við Silfur-
götu. Fóru þeir inn i' ólæsta ibúð
um fyrri helgi og námu á brott
lltinn peningakassa. 1 honum
voru 165 þúsund kr. i reiðufé,
bankabók o.fl. Hluta fjárins
vörðu þeir til kaupa á segul-
bandstækjum en bankabókina
hreyfðu þeir ekki. Þeir gátu
skilað henni ásamt kassanum
og hluta peninganna, en munu
greiða andvirði segulbands-
tækjanna og tjónþoli þannig fá
allt það er á brott var numið úr
ibúð hans.
Aðfaranótt mánudagsins 22.
sept. var rúða brotin i úra- og
skartgripaverzlun Axels Eiriks-
sonar að Aðalstræti 22. Stolið
var nokkrum úrum og fleiru.
Grunur hefur fallið á ákveðinn
mann og hefur hann verið úr-
skurðaður i gæzluvarðhald
meðan unnið er að rannsókn
málsins.
Þá var eina nóttina athafna-
samur skemmdarvargur á ferð
á Isafirði, en drap þó ekki niður
af handahófi, að þvi er virðist.
Af völdum skemmdarvargsins
komu bæjargjaldkerinn, starfs-
maður skattstjórans og einn
lögreglumanna á Isafirði að bil-
um sinum þannig útleiknum að
öll dekk þeirra höfðu verið
stungin með sil eða öðru odd-
járni. Dekkin voru ekki ónýt, en
illa farin. Þetta mál er með öllu
óupplýst. A Isafirði er bent á þá
staðreynd, að allir þessir menn
er urðu fyrir barðinu á „stungu-
manninum”, eigi það sameigin-
legt að vinna á einn eða annan
Stolið úr mann-
lausri íbúð - skart-
gripaverzlun rœnd
- slúturfé hleypt
út - dekk stungin
hátt að lögtökum i kaupstaðn-
um. Hafi sá fjórði, bæjarstjór-
inn, hins vegar sloppið og segja
sumir að það hafi aðeins verið
vegna þess að bfll hans var inni i
læstum bilskúr.
Þá gerðist það aðfaranótt
fyrra mánudags að sláturfé,
sem flutt hafði verið i sláturhús
i grennd við Isafjörð, hlaut
skyndilegt og óvænt frelsi. Ein-
hver hafði komið að húsinu um
nóttina og hleypt fénu út. Féð
náðist allt og ekki varð tjón af
þessu tiltæki. Fulltrúi bæjar-
fógetans vildi ekki aðhyllast þá
kenningu sumra Isfirðinga, að
samband væri milli þessa at-
burðar og „Dags dýranna”,
sem var um þessa helgi heldur
telja yfirvöld að hér hafi
hrekkjalómur verið á ferðinni
og sennilega undir áhrifum á-
fengis.
Ýmis önnur mál eru i rann-
sókn á ísafirði s.s. ýmsar kærur
vegna gruns um akstur undir á-
hrifum áfengis o.fl.
— ASt.
Iiim
Hver er
að
byggja?
Trygging hf. er að reisa þetta
fjögurra hæða hús á horni Skafta-
hliðar og Stakkahliðar. 1 septem-
ber á næsta ári verða 25 ár liðin
frá þvi að tryggingarfélag þetta
hóf starfsemi á Vesturgötu 10.
Standa vonir til að fyrirtækið geti
flutt i nýtt húsnæði á aldarfjórð-
ungsafmælinu.
Jarðhæð hússins er hugsuð sem
verzlunarhúsnæði, en efri hæðirn-
ar fyrir skrifstofur. Þegar Trygg-
ing hf. keypti hlutafélagið Vegg
hf. á siðastliðnu ári, og þá um leið
húseign Veggs hf„ sem nú er al-
mennt nefnd Tónabær, fylgdi með
i kaupunum byggingarlóð sú, sem
þetta myndarlega hús er nú risið
á.
Framkvæmdastjórar Trygg-
ingar hf. eru þeir Árni Þorvalds-
son og Hannes 0. Johnson. -BS-
Einar um andstœðingana í landhelgismólinu:
„ÆTTI AÐ NÆGJA, EF ÞEIR
SLEPPA VIÐ SKAÐABÆTUR"
„1 stað þess að berjast
gegn hugtakinu um efnahagslög-
sögu ættu þessi riki að láta sér
nægja, ef þau þurfa ekki að greiða
skaðabætur fyrir þau geysilegu
auðæfi, sem þau hafa tekið
úr þessum auðlindum hingað til”
sagði Einar Agústsson utanrikis-
ráöherra á allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna i gær.
Hann sagði, að útfærslan i 200
milur væri i samræmi við vilja yf-
irgnæfandi meirihluta þeirra
rikja, sem þátt taka i störfum
Hafréttarráðstefnunnar. Rikis-
stjórn Islands væri ekki andvig að
veita sanngjarna aölögun til
bráðabirgða til að koma i veg fyr-
ir efnahagslega örðugleika er-
lendra fiskimanna. tslendingar
mundu hins vegar ekki láta undan
neinum efnahagslegum þrýsti-
ingi.
Með nýjum reglum mundu
verða settar miklar takmarkanir
á veiöar islenzka fiskiflotans
jafnvel eftir að veiðum erlendra
fiskimanna yrði lokið.
Nærri helmingur af heildarafla
botnlægra tegunda á íslandsmið-
um kæmi enn i hlut erléndra,
einkum Breta og Vestur-Þjóð-
verja. Vegna veiða brezkra skipa
á smáfiski yrði að telja, að meira
en helmingur hafi verið veiddur
af erlendum fiskimönnunji, sagði
Einar. Skipin, sem þessar veiðar
stunda, hefðu rikulegan styrk
með ýmsum hætti frá hlutaðeig-
andi rikisstjórnum.
Þýðingarmesti fiskistefninn,
þorskurinn, næði nú aðeins að
hrygna einu sinni. Meðalaldur á
veiddum fiski væri nú miklu lægri
en nokkru sinni fyrr. Þetta sýndi
uggvænlega þróun.
Islenzki fiskiskipaflotinn væri
fullfær um að hagnýta leyfilegan
hámarksafla á svæðinu.
Húsnœði — Bílasala
Gott húsnæði vantar fyrir bilasölu. Fyrir-
framgreiðsla og há leiga fyrir góðan stað.
Tilboð merkt „Fyrirframgreiðsla —1936”
sendist afgreiðslu Dagblaðsins fyrir 4. okt.
nk.
byggðaskipulag.
Miðvikudaginn 1. okt. mun
prófessor Dr. Edwin von Bövent-
erhalda opinberan fyrirlestur um
byggðaskipulag í boði Háskóla Is-
lands.
Prófessor von Böventer er hag-
fræöingur að mennt. Hann hefur
einkum starfað að hagfræðilegum
og tölfræðilegum rannsóknum
varðandi svæðaskipulag, þ.á.m.
þróun atvinnu og mannfjölda i
borgum og byggðarlögum. Hann
er prófessor i þeim fræðum við
háskólann i Munchen i
Vestur-Þýzkalandi, en er um
þessar mundir gistiprófessor við
háskólann i Boston i Bandarikj-
unum. 1 fyrirlestri sinum hér mun
hann fjalla um fyrrgreind rann-
sóknarefni.
Fyrirlesturinn, sem fluttur er á
vegum Verkfræði- og raunvis-
indadeildar Háskóla Islands,
verðurhaldinnikennslustofu 101 i
Lögbergi, húsi lagadeildar, og
hefst kl. 17 þ. 1. okt. Fyrirlestur-
inn verður fluttur á ensku.
Skrifstofa félags
einstæðra foreldra
Traðarkotssundi 6, er opin mánu-
daga og fimmtudaga kl. 3—7 e.h.,
þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 1—5. Simi 11822. Á
fimmtudögum kl. 3—5 er lögfræð-
ingur FEF til viðtals á skrifstof-
unni fyrir félagsmenn.
Kvenstúdentar: Opið hús að Hall-
veigarstöðum miðvikudaginn 1.
október kl. 3-6. Fjölmennum og,
spjöllum saman yfir kaffibolla.
Nýlega kom út ljóðabókin
Gengið á vatni eftir Aðalstein
Ingólfsson. Ihenni eru um þrjátiu
ljóð frumsamin og tuttugu þýdd
úr itölsku. Af höfundum, sem
Aðalsteinn hefur þýtt, má nefna
Quasinodo, Unganetti, Montale
og Pasolini.
Gengið á vatni er til sölu i
Bókabúð máls og menningar,
Bókabúð Braga og i Bóksölu
stúdenta. Einnig er hægt að fá
bókina key pta hjá höfundi og næst
i hann i sima 21587.
Gengið á vatni er önnur bók
Aðalsteins. Arið 1971 gaf Al-
menna bókafélagið út bók hans
óm innisland.
Sýnfngar
Ljósmyndasýning i franska
bókasafninu að Laufásvegi 12.
Þeir, sem sýna, eru tveir ungir
Frakkar, Philippe Patay og
Christian Roger. Sýningin stend-
ur til 19. október og er opin dag-
lega frá kl. 15—22. Myndirnar eru
allar til sölu. Aðgangur ókeypis.
Sigurþór Jakobsson sýnir i
vinnustofu sinni að Hafnarstræti
5, kjallara, gengið inn Tryggva-
götumegin. Sýningin er opin frá
2—10 og stendur frá 27. septem-
ber til 5. október.
Loftið: Hafsteinn Austmann sýn-
ir. Opnaökl. 2 i dag, en verður op-
ið á verzlunartima aöra daga, og
sunnudaga frá kl. 2—6. Sýningin
stendur frá 27. sept. til 11.
október.
Kjarvalsstaðir: Pétur Friðrik
sýnir. Opiö frá 2—10. Stendur til 5.
október.
MtR-salurinn Laugavegi 178:
Sýning á myndum eftir sovézk
börn. Opin laugardag og sunnu-
dag kl. 14—18. ......
cencisskrAninc
'NR. 178 - 26. aept. 1975.
SkriB írá
23/9 1975
25/9
26/9 -
25/9 -
26/9 -
23/9 -
Eining Kl. 12,00 Sala
1 Danda rfkjadolla r 164,20
l Strrlingapund 336, 20
1 Kanadadolla r 160,40
100 Danakar krónur 2661, 10*
100 Norakar krónur 2909, 10*
100 Sænikar krónur 3648,40*
100 Finnak mörk 4183,65*
100 Kranskir írtank.tr 3624, 60*
100 lU lg. franktar 411, 40*
100 Svissn. írartkar 6011, 55*
100 Gyllit.i 6017,60*
100 V. - Þýzk mörk 6199, 90 *
100 Lírur 23. 94 *
100 Auaturr. Sch. 877, 20*
100 Cscudos 601,30*
100 Peseta r 274. 35
100 Yen 54, 44 *
100 P.eikningsk rónur -
Vilruskipta lond 100,14
1 Reikningsdolla r -
Vöruskiptalönd 164,20
* D reyting írá •í'Buslu skráningu
Við erum hérna tvær stelpur, sem
langar til að komast i bréfaskipti
við stráka á aldrinum 13-14 ára.
Æskilegt er að mynd fylgi fyrsta
bréfi. Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Suðurgötu 99, Akranesi og Sigur-
rós Allansdóttir, Sunnubraut 20,
Akranesi.
Kvenfélag Hreyfils: Fundur
verður þriðjudaginn 30. septem-
ber kl. 8.30 i Hreyfilshúsinu. Rætt
verður um vetrarstarfið o.fl.
Mætið vel og stundvislega. —
Stjórnin.
BFÖ- Reykjavíkurdeild.
Þórsmerkurferð 4.-5. október.
Upplýsingar og farmiðapantanir
í sima 26122 i dag og á morgun.
Frá iþróttafélagi
fatlaðra Reykjavík:
Iþróttasalurinn að Hátúni 12 er
opinn sem hér segir, mánudaga
kl. 17.30—19.30, bogfimi, miðviku-
daga kl. 17.30—19.30 borðtennis og
curtling, laugardaga kl. 14—17,
borðtennis, curtling og lyftingar.
— Stjórnin.
Blak
Reykjavikurmeistaramót 1975,
karla ogkvenna í blaki, fer fram i
iþróttahúsi Hagaskóla dagana 6.
nóv., 17. nóv. og 25. nóv. næst-
komandi.
Þátttökutilkynningar, ásamt
þátttökugjaldi, kr. 2000, skulu
berast bréflega til Blakráðs
Reykjavikur, Iþróttamiðstöðinni,
Laugardal,fyrir 15. október næst-
komandi.
Blakdeild Vikings.
Æfingatafla 1975—76.
Vörðuskóli — þriðjudaga og
fimmtudaga.
Kl. 6.30: Old boys.
Kl. 7.20: Frúarflokkur.
Kl. 8.10: Meistarafl. kvenna.
Kl. 9.30: Meistarafl. karla.
Kl. 9.50: Meistarafl. karla.
Réttarhoitsskóli — miðvikudaga.
Kl. 21.10: Unglingaflokkur.
Kl. 21.50: Meistarafl. karla.
Kl. 22.25: Meistarafl. karla.
Stjórnin.
—HH