Dagblaðið - 03.11.1975, Blaðsíða 3
Dagblaðiö. Mánudagur 3. nóvember 1975.
3
Náms-
lánin
SPILVERKS-
PLATAN
LOKSiNS
m
I
SJÓNMÁLI
„Nú getum við loksins lofað þvi
að Spilverksplatan sé að koma
eftir mikil skakkaföll og tafir”,
sagði Steinar Berg, útgefandi
plötunnar, er við spurðum hann
hvers vegna platan kæmi ekki.
Rúmur mánuður er liðinn siðan
platan átti að koma á markaðinn
og var fólk að vonum orðið
óþreyjufullt eftir henni.
Afgreiðslufólk i plötuverzlunum
var að gefast upp á fólki sem kom
og spurði um plötuna og siminn
hjá Steinari Berg stoppaði aldrei.
En nú er þessi langþráða plata
sem sagt að koma og klukkan
korter fyrir þrjú næstkomandi
miðvikudag verður hún komin i
allar hljómplötuverzlanir á Stór-
Reykjavikursvæðinu.
Ástæðan fyrir þvi hversu seint
platan er á ferðinni er aðallega
sú, að allt upplagið, sem búið var
að pressa, eyðilagðist og þurfti
þvi að byrja á öllu upp á nýtt. En
þá var ekki hlaupið að þvi að fá
verkið gert, þvi að Bretar eru nú i
óða önn að pressa jólaplöturnar
sinar. Þegar pressuninni var
loksins lokið stöðvaðistupplagið á
Lundúnaflugvelli vegna verkfalls
hleðslumanna.
Ekki má heldur gleyma erfið-
leikunum með albúm plötunnar,
en þeir erfiðleikar eiga einnig
sinn þátt i að tefja hana. Fyrsta
útgáfa albúmsins, sem var vatns-
litamynd eftir einn af meðlimum
Spilverks þjóðanna, týndist i pósti
á leiðinni til Englands og kom
ekki fram i dagsljósið f.yrr en
mánuði seinna. Spilverkið gerði
þvi aðra tilraun með albúm, en þá
var ekki til nógu góður pappir i
landinu. Þrtójatilraunin heppnað-
ist hins vegar og fullyrða má að
útlit albúmsins komi fólki á óvart.
— AT.
SKYNDIKÖNNUN Á
NEYÐARTILFELLUM
Dagblaðið: „Nú hefur skapazt
það ástand hjá mörgum náms-
mönnum, sérstaklega erlendis,
að þeir telja sig nauðbeygða til
þess að hverfa frá námi, þar eð
þau 70-80 þúsund, sem úthluta á
nú, eru þegar uppurin i skuldir
vegna þess dráttar, sem orðið
hefur á afgreiðslu lánanna og
50% skerðingar i ofanálag.
Næsta úthlutun á að koma i
byrjun janúar og lokaián i
marz. A hverju á þetta fólk að
lifa þangað til?
Höskuldur Jónsson, fulltrúi I
fjármálaráðuneytinu:
„Eins og námsmönnum er
kunnugt, hefur verið ákveðið að
greiða 5/12 af upphaflegri
haustúthlutun nú og afganginn i
janúar. Vonum við, að það verði
ekki neinum ástæða til upp-
gjafar, þvi ekki er unnt að
greiða hærri lán út nú.”
Átök í Heimdalli
Mikil átök urðu við stjórnar-
kosningu i Heimdalli nú um
helgina. Var mikið smalað á báða
bóga.
Svo fór, að formaður var
kjörinn Jón Magnússon með 135
atkvæðum. Andstæðingar hans
sögðu hann vera fulltrúa flokks-
kerfisins i áróðri sinum, en
„uppreisnarmönnum” mistókst
að fella hann. Þorvaldur Mawby
fékk 84 atkvæði.
Svo heitt var i kolunum, að
mikill fjöldi fundarmanna gekk af
fundi eftir formannskjörið. Voru
aðeins riflega 100 eftir, þegar
aðrir i stjórn voru kosnir. _hh
Frystihús á
Suðurnesjum
lokuð í morgun
Nokkur frystihús á Suður-
nesjum hófu ekki vinnslu i
morgun, en annars staðar er
ekki vitað til, að boðaðar upp-
sagnir hafi komið til
framkvæmda. Ekki er þvi hægt
að tala um neina samstöðu
frystihúsanna á Suð-Vestur-
landi i þessu tilliti, né heldur i
Vestmannaeyjum.
Vitað er, að frystihúsaeig-
endur á Vesturlandi, Norður-
landi og á Austfjörðum höfnuðu
þeirri leið að segja upp fólki og
loka húsunum.
Frystihúsin á Akranesi hófu
vinnu i morgun eins og venju-
lega. „Nei, hér er ekki lokað”,
sagði verkstjórinnhjá frystihúsi
Haraldar Böðvarssonar i viðtali
við Dagblaðið i morgun,” og við
vonum að ekki komi til sliks.”
Humaraflinn, sem verið hefur
uppistaðan I sumarstarfi sumra
frystihúsanna, hefur nú breytzt
til muna og er nánast enginn
vegna lokunar veiðisvæða eða
tregveiði. Þá hefur með frið-
unaraðgerðum verið þrengt
mjög að togveiðum og sam-.
setning aflans veriö afar
óhagstæð með tilliti til verðs
afurðanna.
Er mjög alvarleg sú fjár-
þröng, semhinverstsettuer nú i
—BS—
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra: „Það,
sem ég vil segja um þetta mál
að svo stöddu, er að i gangi er
athugun á þeim neyðartilfellum
þarsem hugsanlegt er, að menn
verði að hætta námi um
stundarsakir vegna fjárskorts.
Ekki eru til neinir aukasjóðir að
gripa til. En sem sagt, reynt
verður að finna út hverjir það
eru, sem verst eru staddir. Ég
„Ber er hver að baki, nema sér bróöur eigi”. Nú mun menntamálaráðherra beita sér fyrir könnun á
neyöartilfellum, þar sem hugsaniegt er, að námsmenn verði að hverfa frá námi. Myndin var tekin á
Austurvelli af námsfólki og ráðherra. DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson.
hef t.d. heyrt, að þetta komi
einna verst niður á nemum i
framhaldsnámi i tæknifræði,
vegna þess hversu stutt sumar-
fri þeir hafa.”
Torfi Asgeirsson, fulltrúi i
menntamálaráðuneytinu:
„Ég vil ekkert láta hafa eftir
mér um þessi mál”.
Matthias Á Mathiesen,
fjármálaráðherra:
„Svar mitt er það, að ég vona,
að lokið verði endurskoðun á
lögum og reglum varðandi
námslánin, áður en þing fer i
jólafri, svo hægt verði að gera
sér grein fyrir þvi, hvar vandinn
liggur. Menntamálaráðherra
mun beita sér fyrir könnun á
þvi, hvar ástæður eru erfiðastar
til þess að reyna að forða þvi, að
fólk verði að hverfa frá námi”.
— HP
Verkalýðsfélögin á
fund forsœtisráðherra
Samstarfsnefnd verkalýðsfé-
laganna við Faxaflóa gekk á
fund forsætisráðherra i morgun
kl. 10 til þess að ræða við hann
um það ástand, sem hlotizt gæti
af almennum uppsögnum
starfsfólks hjá frystihúsunum á
þessu svæði og viðar.
„Við viljum benda forsætis-
ráðherra á það, að verði þessi
þróun látin ganga óheft, þá
muni hún keðjuverka út i at-
vinnulifið og hafa alvarlegar af-
leiðingar”, sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, varaformaður
Dagsbrúnar, en hann er einn
nefndarmanna. Auk hans eru i
nefndinni Guðriður Eliasdóttir,
formaður verkakvennafélags-
ins i Hafnarfirði, Þórunn Valdi-
marsdóttir, formaður Verka-
kvennafélagsins Framsóknar i
Reykjavik, Herdis ólafsdóttir,
formaður Verkakvennadeildar-
innar á Akranesi og Karl
Steinar Guðnason, formaður
Sjómanna- og verkalýðsfélags
Keflavikur. „Við vonum að ekki
komi til uppsagna þeirra, sem
boðaðarhafa verið. Með slikum
aðferðum yrði sett á gaddinn
launalægsta og atvinnusnauð-
asta fólkið, það, sem sizt
skyldi”, sagði Guðmundur J.
Guðmundsson. —BS—
Suóurnesjamenn athugió:
ViÓ flytjum nú
frá
Hafnargötu 31
Vatnsnesveg 14
VERZLUNflRBfíNKI ÍSLRNDS HfA
ÚTIBÚ KEFLAVÍK SÍM11788 I