Dagblaðið - 24.11.1975, Page 8

Dagblaðið - 24.11.1975, Page 8
8 Hagblaðið. Mánudagur 24. nóvember 1975. BIAÐIÐ frjálst, úháð dagblað Ctgefandi: Dagblaðiö hl. Kramkvæindastjóri: Sveinn H. Eyjólfsson Kitstjóri: Jónas Kristjánsson Kréttastjóri: Jón Birgir Pétursson llitstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason iþróttir: Hallur Simonarson Hönnun: Jóhannes Reykdal Blaðamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir, Hallur Hallsson, Helgi 'Pétursson, Ölafur Jónsson, Ómar Valdimarsson. Handrit: Ásgrimur Pálsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Inga Guðmannsdóttir, Maria ólafsdóttir. I.jósmvndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson Auglýsingastjóri: Ásgeir Hannes Eiriksson Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. t lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Kitstjórn Siðumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir og af- greiðsla Þverholti 2, simi 27022. Ýmsir kostir-margir gallar mm Vestur-Þjóðverja mun vafalaust ekki verða vinsællhér á landi. Til þess eru gallar hans of miklir og of mikil and- staða i landinu gegn hvers konar samningum við útlendinga um veiðar innan 200 milna fiskveiðilögsögunnar Samt hefur samningurinn bæði kosti og galla. Menn verða að lita bæði á meðrökin og mótrökin, áður en þeir gera upp hug sinn til hans. Við skulum fyrst lita á kostina, þvi að þeir eru færri. Með þvi að semja við erlent riki, sem hagsmuna hefur að gæta, um fyrirkomulag veiða innan 200 milna, höfum við sýnt fram á, að um slikan frið er unnt að semja i frjálsum samningum án gerðar- dóms. Þetta getur haft góð áhrif á niðurstöðu hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. ísland og önnur 200 milna riki vilja, að strandrikin dæmi sjálf um und- anþágur innan 200 milnanna. En andstæðingarnir eru að reyna að koma inn i samþykkt ráðstefnunnar ákvæðum um, að alþjóðlegur gerðardómur skeri úr deilum, sem upp kunna að koma. Eftir samninginn við Þjóðverja er ekki unnt að benda á ísland sem einstrengingslegt strandriki. Samningurinn leggur einnig grunn að samningum við Belga, Norðmenn og Færeyinga, án þess að við þurfum að fórna miklu af þorskfiskstofnunum. Þar með hefur taflið snúizt við á þann hátt, að við getum bent á Breta sem hina einu sönnu sérhagsmuna- menn. Annar kostur samningsins er, hve litlar þorsk- veiðar Þjóðverja mega vera. Af 60.000 tonnum þeirra mega aðeins 5.000 tonn vera þorskur. Þriðji kosturinn er svo bann við veiðum frystitogara og takmörkun á fjölda leyfðra togara. Einn augljósasti galli samningsins er, að 60.000 tonn fela ekki i sér neinn umtalsverðan samdrátt á afla Þjóðverja. Annar galli samningsins er, að hann mun samkvæmt áreiðanlegum heimildum gera ráð fyrir veiðum Þjóðverja innan 50 milna. Þriðji galli samningsins er, að hann felur ekki i sér neina formlega viðurkenningu á 200 milna fisk- veiðilögsögunni. Slik viðurkenning hefði einmitt verið timabær, þar sem komið hefur i ljós, að mikill meirihluti þjóða heims fylgir 200 milna efnahags- lögsögu. Slik viðurkenning hefði orðið málstað okk- ar til framdráttar á hafréttarráðstefnunni. Enn er sá galli á samningnum, að hann leiðir ekki til afnáms refsitolla rikja Efnahagsbandalagsins á sjávarafurðum okkar. Við höfum þvi enga knýjandi viðskiptahagsmuni af þvi að undirrita samninginn. Við fáum sem sagt ekki hið minnsta i staðinn fyrir undanþágur Þjóðverja. Svo má nefna þann galla, að samningurinn virðist ekki gera ráð fyrir þvi, sem við á að taka, þegar tveggja ára samningstima lýkur. Þjóðverjar munu þvi, þegar þar að kemur, geta haldið þvi fram, að undanþágurnar eigi að halda áfram, nema um ann- að sé samið. Við höfum hins vegar alltaf talið okkur vera að semja um umþóttunartima. Loks er sá galli, sem ef til vill er mikilvægastur. Hann er sá, að samningurinn mun sundra þjóðinni og grafa undan rikisstjórninni. Andstaðan gegn samningnum er einfaldlega nógu sterk til þess að rjúfa flokkstryggð manna. Fríríki fellur: Tilrauninni er lokið Kristjanía rifin „Frírfkið” Kristjania i Kaup- mannahöfn verður endanlega og formlega lagt niður 1. april á næsta ári. Súfélagslega tilraun, sem gerð hefur verið i Kristjaniu á undanförnum ár- um, hefur ekki borið slíkan ár- angur, að danska rikisstjórnin sjái ástæðu til að útvega ibúum þar annað borgarhverfi. Borg- aryfirvöld og ibúar i Kristjaniu munu i sameiningu leysa þau vandamál, er eftir verða. Þessar eru niðurstöður skýrslu, sem danska stjórnin og þingflokkur sósialdemókrata hefur tekið saman um Kristjaniu. Er þessi afstaða stjórnarinnar i fullu samræmi við vilja meirihluta þingsins, sem ákvað i april að „fririkið” skyldi lagt niður eigi siðar en 1. april 1976. Þangað til verða i gangi við- ræður milli varnarmálaráðu- neytisins (sem upphafiega hafði ráð yfir Kristjaniu, enda voru þar áður fyrr æfingabúðir danska hersins), Kristjaniu- manna og borgaryfirvalda i Kaupmannahöfn. Tilgangur þeirra er að ræða rýmingu borgarhlutans Rikisstjórnin er þess fullviss, að heppileg og góð lausn finnist á vandamálunum. Hægfara brottflutningur Þessar upplýsingar og aðrar komu fram i fyrirspurnatima i danska þinginu i siðustu viku. Það var Finnur Erlendsson, þingmaður Framfaraflokks Glistrups, sem bar fram fyrir- Björn Th. Björnsson: HAUSTSKIP Heimildasaga Teikningar: Hilmar Þ. Helgason Mál og menning 1975. 356 bls. Það má hafa fyrir satt að með Haustskipum Björns Th. Björnssonar sé sigurstranglegri sölubók stefnt fram á bóka- markað jólanna. Þáerekki vert að spara, hvorki i úthaldi bókar- innar, né þvi afli auglýsinga sem til þarf á næstu vikum að fylgja henni fram til metsölunn- ar, og þegar hefur séð vott til i sjónvarpinu, ásamt ýtarlegum frásögnum af efni bókarinnar i blöðum. Er búið að lesa úr henni ,,á besta dagskrártima” i út- varpi? Allt þetta og meira þó þarf til i þeim kringumstæðum sem bókaútgáfan býr við, og býr sér til, á jólamarkaðnum. Enda skal ekki að þvi fundið, allténd ekki i þetta sinn. An efa er bók Björns Th. dýr. En hún er lika hinn eigulegasti gripur að allri sinni ytri gerð og þegar af þeim ástæðum betri kaup i henni en velflestum jólabókum sem á næstu vikum keppast um hylli kaupenda fremur en les- enda. Þrælakistan og þjóðarsagan En einnig efni bókarinnar kemur mætavel heim við mark- aðsástæður: rótgróinn áhuga á meðal lesenda á sögulegum og svonefndum þjóðlegum fróð- leiks- og frásagnarefnum. Og þar við bætist í þetta sinn að Bjöm Th. Björnsson varpar i bóksinni ljósi á litt þekktan þátt sögunnar, islenska þrælaflutn- inga úr landi, landnám is- lenskra manna úr þrælakistu kóngsins i Kaupmannahöfn norður i Finnmörku á seinni UNDIR KÓNGSINS JÁRNUM hluta 18du aldar. Og þar með felst i frásögn hans að minnsta kosti visir að endurmati á sögu 18du aldar, yfirstéttar og undir- gefinna og þeirrar styrjaldar sem höfðingjar heyja við múg- inn i krafti hins harðneskjulega réttarfars. Björn bendir marg- sinnis á það aþ fólkið sem frá segir i sögu hans sé ekki einasta margdrepið og ærulaust fólk þegar i lifanda lifi, heldur hafi æruleysismarkið loðað við það langt út yfir gröf og dauða. Þetta er „týnd þjóð” úr is- lenskri sögu og ættvisi. En það má vera álitamál og smekksatriði hvort meðferð og úrlausn þessa frásagnarefnis ráöist i bók Björns Th. fremur af markaðsástæðum bókaút- gáfu og bóksölu, eða sagnfræði- legum eða svonefndum list- rænum og bókmenntalegum á- stæðum. Svo mikið er vist, að hinum sögulega efnivið hans i bókinni mætti gera skil með ýmsu öðru móti, hvort heldur væri i formlegri sagnfræðilegri ritgerð, eða sögulegum frásagn- arþætti upp á gamlan og göðan móð. Hér er efninu teflt upp i form svonefndrar „heimilda- sögu” á einhverskonar millivegi milli skáldskapar og sannfræði. Það er kunnara en frá þurfi að segja að islenskir sakamenn voru um langan aldur dæmdir úr landi undir kóngsins járn og arbeið. Brimarhólmur er mikill sögustaður islendinga, svo mik- ill að menn voru enn lengi dæmdir þangað, að sögn Björns Th. Björnssonar, eftir að fang- elsið var aflagt en Stokkhúsið, sem hér segir frá, komið i þess stað. Þar voru sakamenn af ís- landi enn á 19du öld. Skrýtin til- viljun að Jóni Sigurðssyni skyldi veljast bústaður i næsta nám- unda við Stokkhúsið á siðustu árum þess og gat séð úr glugg- um sinum ofan i þrælakistuna ef hann vildi. Þeir sem hafa fylgst með framkvæmdum rikisins undan- farna áratugi, hafa gjarnan likt þeim við bretavinnuna. Það fyrirbæri þótti lengi táknrænt fyrir skipulagsleysi, bruðl og handvömm. 1 okkar frjálsræðisþjóðfélagi hafa boðberar meðalmennsk- unnar náð svo langt, að ein- staklingsframtak er nánast orð- iðað andsamfélagslegum glæpi, svo notuð séu nútima hugtök. Lýðræðið sem i eina tið þótti fögur hugsjón eins og flestar hugsjónir á meðan þær eru nógu langt frá raunveruleikanum, er nú að þvi virðist orðið að sál- sýkislegri skemmdargleði þar sem uppsprettan og aflgjafinn er öfund. öfundin og illgirnin sem af henni sprettur, er nú sá jarð- vegur þar sem vaxtarsprotar hins komandi þjóðfélags dafna. Þjóðfélags sem byggt skal á Með leti skal einni jötu og einum flór án met- orða. Nú hefur hinni pólitisku yl- rækt sósialismans tekist að rækta þær netlur, sem framveg- is skulu gæta þess, að einstakl- ingsframtaki verði haldið i skefjum. Frumkvæðishvöt ein- staklinga er lika á svörtum lista eins og flestar aðrar leifar sjálfsbjargarviðleitni hins- gamla þjóðfélags. Þessir siðgæðisverðir minna á gelta blámenn, sem áður fyrr gættu kvennabúra kalifa aust- urlanda. Þeirra verður ekki freistað, þvi elementið vantar. Það eru sannarlega timanna tákn, að nú eru menn settir i gapastokk i fjölmiðlum fyrir þá yfirsjón að stjórna opinberum framkvæmdum af hörku og dugnaði. I dómarasætum sitja siðgæðisgeldingar hins nýja þjóðfélags og hamast við að Hetta ofan af hneykslum, enda þeirra sérgrein. Athafnamenn Á meðan þjóðin dýrkar fornar

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.