Dagblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 4
Pagblaöið. Föstudagur 28. nóvember 1975. Mótmœlaaðgerðir í gœr Mest leikaraskapur við brezka sendiróðið sýningarsalur Tökum allar notaðar bifreiðar í umboðssölu Fiat 128 Berlina árg. ’73 Fiat 128 Berlina árg. '74 Fiat 128 station árg. ’74 Fiat 128 Sport 1300 SL árg. '73 Fiat 128 Sport 1300 SL árg. ’74 Fiat 128 Rally árg. '73 Fiat 124 Sport Coupe 1800 árg. ’74 Fiat Special árg. ’73 Fiat GLS árg. ’74 VW sendiferðabifreið árg. '73 Patsun 1200 árg. ’73 Opið á morgun, laugardag, kl. 10 til 13. FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI Davíð Sigurösson h.f.# SÍÐUMULA 35, SIMAR 38845 — 38888 Fíat 600 árg. ’73 Fiat 850 Special árg. ’71 Fiat 126 Berlina árg. ’74 Fiat 126 Berlina árg. ’75 Fiat 125 Special árg. ’70 Fiat 125 Special árg. ’71 Fiat 125 Berlina árg. '72 Fiat 127 Berlina árg. '72 Fiat ’7‘1 127 2ja og 3ja dyra árg. i •> Fiat 127 2ja og 3ja dyra árg. '74 Fiat 127 Berlina árg. '75 Fiat 128 4ra dyra árg . ’70 Fiat 128 Berlina árg. '71 BREIÐHOLTSBÚAR Sparið bensín og verzlið ódýrt í Iðufelli Opið til 10 á föstudögum og 9 til 12 á laugardögum Iðufclli 14, Breiöholti simar 74550 og 74555 UTBOÐ Kröflunefnd óskar eftir tilboðum i álklæðningu á stöðvarhús Kröfluvirkjunar, Suður-Þingeyjarsýslu. Útboðsgögn verða afhent i verkfræðistofu vorri, Ármúla 4, Reykjavik, gegn 3 000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað, föstu- daginn 19. desember 1975 kl. 11 f.h. VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN sf ÁRMÚLI 4 REYKJAVlK SlMI 84499 Nokkur hundruð manns, nærri eingöngu krakkar, söfn- uðust viðbrezka sendiráðið eftir útifundinn um klukkan þrjú i gær. Krakkarnir vóru mest meö ærsl, spauguðu við lögreglu- þjóna og gerðu „at” i lögreglu- konum. Þó flugu 4—5 egg að sendiráðinu og einhverjir smá- steinar. Bjarki Eliasson yfirlög- regluþjónn taldi að tvær litlar rúöur hefðu verið brotnar. Nokkrir voru teknir úr um- ferð. „Sumir voru drukknir,” sagði Bjarki. Þeir fengu vist i fangageymslu um skamma stund. Siðan var þeim sleppt. Mikið lögreglulið var við sendiráðiö. Lögregluþjónar voru þar allt i kring og inni i húsagörðum i grenndinni. Þeir voru staðráðnir i að láta ekki endurtaka sig söguna frá fyrri þorskastriðum, þegar miklar skemmdir urðu við mótmælaað- gerðir. Enda endurtók sagan sig ekki. Upp úr klukkan þrjú æstust krakkarnir upp þvi fíeiri lög- regluþjónar, sem komu á stað-’ inn. Ein „rúta” kom hlaðin lög- reglu og gerðu krakkarnir að- súg að henni um langa hrið, þar til þeir stilltust. önnur „rúta” kom, full af lögregluþjónum, en henni var ekið burt með farmi sinum, þar sem ekki var talin þörf á meira liði. Þegar lögreglukonurnar komu, ætlaði allt vitlaust að verða. Strákunum þótti aug- sýnilega „spennandi” að gera at I þeim, enda fóru þær burtu flestar. Einn strákurinn mun hafa Ungur piltur fékk óblið handtök eftir að hafa slegið til lögreglu- þjóns. Db-myndir Bjarnleifur. slegið til lögregluþjóns, og var hann tekinn i karphúsið og færður niður á stöð. Krakkarnir kölluðu lögreglumenn stundum „svin” og annað miður fallegt. „Þetta var ekkert,” sagði einn lögregluþjónninn við Dag- blaðsmann, og hið sama sagði Bjarki Eliasson. Lögreglunni þótti þetta ekki miklar óeirðir miðað við fyrri tið. Krakkarnir voru langflestir kátir og litu á þetta sem eitt- hvert „sport”. 8000 á fundinum, segir Guðmundur J. Margt manna var á útifundin- um á Lækjartorgi. Guðmundur J. Guðmundsson, nýkjörinn for- maður Verkamannasambands tslands, var einn ræðumanna. Hann sagði við Dagblaðsmann eftir fundinn, að sér þætti senni- legast, að þar hefðu verið um átta þúsund. Það fór ekki mikið fyrir fundarmönnum miðað við fyrri útifundi, en það var kalt i veðri, svo að menn stóðu þétt. Björn Jónsson, forseti Al- þýðusambandsins, sem var fundarstjóri, sagði við blaða- mann Dagblaðsins, að hann væri ánægður með fundinn. Lltið var um kröfuspjöld. A einu stóð „Enga samninga”, á öðru var veitzt að Geir Hall- grimssy ni forsætisráðherra og á hinu þriðja var Bretum bent á, að þeir ættu að hypja sig heim. Ræðumenn voru auk Guð- mundar þeir Magni Kristjáns- son, skipstjóri frá Neskaupstað, Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannaf. Hafnarfjarðarog Pétur Guðjónsson formaður Félags áhugamanna um sjávarútvegs- mál. Þeir veittust að Bretum fyrir innrás i islenzka landhelgi en vörðu annars miklu af ræð- um sinum til gagnrýni á samn- ingsdrögin við Vestur-Þjóð- verja, sem einmitt þá stundina voru til umræðu i Alþingi. Útifundurinn samþykkti Innlendir og erlendir fréttamenn munda tæki sin við brezka sendiráðið. Ungt fólk virtist i meirihluta á útifundinum. ályktun, þar sem fordæmd var innrás Breta i landhelgi, lagzt gegn samþykkt samningsdrag- anna við Vestur-Þjóðverja og þess krafizt, að slitið yrði stjórnmálasambandi viö Bret- land.ef herskipin yrðu ekki þeg- ar á brott. Þögull hópur við Alþingishúsið Eftir fundinn fóru margir hinna eldri til Alþingishússins. Nokkrir tugir manna tóku sé stöðu fyrir framan húsið og stóðu þar þegjandi um hrið. Ahorfendapallar hússins voru þéttskipaðir fólki, sem flest kom af útifundinum, og urðu margir frá að hverfa Unglingar stóðu langtimum saman við bakdyr hússins til að reyna að komast inn. Þar var fyrir lögreglu- vörður, svo og fyrir framan hús- iö. —HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.