Dagblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 24
Tveir í gœzluvarðholdi vegna sparisjóðsmálsins Ákaft leitað að svartri bók Kæruefni það, sem nú hefur leitt til dómsrannsóknar á meintum ólöglegum starfshátt- um Sparisjóðsins Pundsins, er meöal annars aö taka óheyri- lega háa þóknun fyrir lánveit- ingar i formi vixlakaupa. Slik viöskipti kærandans við spari- sjóðinn hafa numið milljónum króna. Kærandinn telur, að þóknun- in, sem hann hefur greitt, hafi numið um 42% á ári, að nokkru fyrir almenna vixilvexti en að meirihluta fyrir leigu á pening- um, sem lagðir voru inn i spari- sjóöinn til þess að greiða fyrir vixiikaupunum. Þessi viðskiptakjör voru óvið- ráðanleg, þegar til lengdar lét, þótt að þeim hafi verið gengið i upphafi. Engin breyting eöa leiörétting var fáanleg. Kveöur kærandinn spari- sjóðinn hafa verið fúsan til þess að kaupa af sér vixla, að þvi til- skildu þó, að peningaupphæð, nokkru hærri en vixilfjárhæðin, yrði lögö inn á bók i sparisjóön- um. Var það innlegg bundið þar til á gjalddaga vixilsins. Heldur kærandinn þvi fram, aö spari- sjóðurinn hafi útvegað þetta inniegg hjá manni, sem tók mikla þóknun fyrir auk vaxta af innistæðunni. Hafi þannig verið beint samband milli sparisjóðs- stjórans og peningamannsins. Hafa þeir báðir verið úrskurð- aðir i gæzluvarðhald. Talsverð leit var gerð aö svartri bók, sem kærandinn taldi að öll þessi viðskipti, og ef til vill enn fleiri hliöstæð, hafi verið færö i. Taldi kærandi, að hún myndi skýra meðal annars hugsanlegt hagsmunasamband sparisjóðsstjórans og peninga- mannsins, og greiða fyrir rannsókn á einstökum atriðum. Sparisjóðurinn Pundið hefur unnið fastan sess i banka- þjónustu borgarinnar, og er allur rekstur hans með eðliieg- um hætti, þrátt fyrir þá rannsókn á fyrrgreindum viðskiptum,sem nú er i höndum Sakadóms Reykjavikur. — BS — Þráttf fyrir grimmdarfrost og fannkomu koma hlé öðr'u hvoru. Þessa fallegu mynd tók Björgvin Páls- son uppi i Arbæjarhverfi, þar sem þessir krakkar renndu sér I óðaönn. Þeir gáfu sér þó smátima til að stilla sér upp fyrir framan myndavélina og siðan hélt leikurinn áfram af fullum krafti. Verður jólasteikin elduð ó ðskuhaugunum? Farmenn hafa að undanförnu verið stöðvaðir af tolivörðum, þegar þeir ætluðu að fá að flytja með sér i land jólasteikurnar sinar. Lögum samkvæmt er innflutningur bannaður á hráu kjöti. „Okkur þykir það kyndugt að við skulum fá hluta launa greiddan i gjaldeyri, en fáum svo ekki að kaupa matvöru erlendis”, sagði einn sjómanna i viðtali við Dagblaðið. „Auk þess koma svo kannski matvælasendingar til sendiráðanna með sama skipi. Þær sendingar fá umsvifalaust grænt ljós tollgæzlunnar, en okk- arsendingar gerðár upptækar, og verða siðan brenndar.” í gær voru kjötvörur teknar af farmönnum á irafossi, og er ekki búið að taka ákvörðun um það hjá tollgæzlunni, hvað gert verður við kjötið að þvi er Kristinn Ólafsson tollgæzlustjóri sagði i morgun. Reglan mun+iins vegar vera su að tveir tollverðir fara með kjötið á öskuhauga og brenna þvi þar, en gefa siðan embættinu skýrslu um bálförina. Sumir eru undanþegnir þessum reglum að þvi er virðist. Varnarliðsmenn, sem búa utan Keflavikurvallar, munu fá að hafa kjöt með sér út af vellinum, og eins og fyrr greinir eru toll- gæzlumenn ekkert með nefið ofan i sendingum til sendiráðanna, og munu vist margir tslendingar vita að þar eru fram reiddir réttir viðkomandi þjóða og naumast kemur kjötið soðið þangað. Virðist smithættu á gin- og klaufaveiki þvi boðið til landsins, en aðeins i sambandi við sérstakt fólk. Að sögn Kristins Ólafssonar kemur til greina að leyfa skip- verjum aðsnúa til baka með mat- vöru þá sem tekin hefur verið, og neyta hennar um borð í skipum sinum á siglingum milli landa. — JBP — Skipstjórinn ó Hval 9: Útilokað að varð- skipin hafi „sprengju- skutul" , ,Þetta er skutull með f jórum álmum, sem réttast út, þegar hann er kominn i hvalinn. Steypujárnshólkur er skrúf- aður á og hann springur þá. A hólknum er það, sem við köllum granad, og i honum eru 200 grömm af púðri. Þegar skutullinn fer i hvalinn, festist kló og kippir að sér, þannig að kviknar i púðrinu. Þarna er skrúfaður á sér- stakur „rifari”, sem er i raun- inni kveikja, sem springur, þegar tekur i.” Þannig lýsti Ingólfur Þórðarson skipstjóri á Hval 9 þvi verkfæri, sem kalla mætti sprengiskutul. Brezka blaðið Daily Express sagði i gær, að Landhelgis- gæzlan beitti sliku vopni til að skemma vörpur brezku togar- anna. Ingólfur telur útilokað, að Landhelgisgæzlan hefði þetta vopn. Hann sagði, að þetta gæti samt orðið gott. Að visu mundi ekki verða spreng- ing, þegar slikum skutli væri skotiö i vörpu, en hann mundi rifa hana i sundur. Ingólfur sagði, að ekki væri hægt að skjóta þessum skutli úr byss- um varðskipanna. Þau hefðu ekki byssur til sliks. Hinsveg- ar væri það mátulegt á Bet- ann, að gæzlan yrði sér úti um þær. —HH Eldgildrur víða í íbúðarhúsnœði Engin eftirlitsskylda um eldvarnir í íbúðum í íslenzkum lögum „Eg held að enginn hafi raun- verulegt heildaryfirlit yfir hve mikiö af húsnæöi er i notkun i Reykjavik, sem hættulegt getur taliztef eldur kemur upp; þetta er nokkuð viða,” sagði Rúnar Bjarnason slökkviliðsstjóri i morgun.Þaðerviðasem rishæðir eru notaðar i þvi skyni aö leigja einstaklingum. Skóiafólk er mikið I sliku húsnæði og einnig einstak- lingar af ýmsu tagi. Það er engin eldvarnaeftirlits- skylda með ibúðarhúsnæði sam- kvæmt islenzkum lögum, en þau eru sniðin samkvæmt norrænum staðii, sagði Rúnar. Aðrar reglur og miklu strangari eru um þetta i Bandaríkjunum. Eldvarnareftirlitiö veitir leið- beiningar og gefur ráö varöandi björgun úr eldsvoða, ef húseig- endur eða leigjendur óska eftir þvi, en annars ekki, sagði Rúnar. ASt Föstudagur 28. nóvember 1975. frjálst, áháð dagblað Tíu þingmenn tðluðu í nótt Ýmsir stjórnarþingmenn fundu marga annmarka á samnings- drögunum við Vestur-Þjóðverja, en enginn þeirra lýsti þó yfir and- stöðu. Tiu þingmenn töluðu á fundi f Alþingi i nótt, sem stóð fram til hálf þrjú. Ekkert hefur i umræðum bólað á þeirri andstöðu gegn drögunum, sem Einar Agústsson utanrikis- ráðherra sagði i viðtali við Dag- blaðið að væri ekki veruleg. Framsóknarmenn hafa sáralitið talað. Steingrimur Hermannsson var f fyrstu fremur andvigur drögunum en snerist siðan til fylgis við þau. Þeir, sem töluðu i nótt, að loknum útvarpsumræðum, voru: Stefán Jónsson (Ab), Jón Arna- son (S), Jónas Arnason (Ab), Oddur Olafsson (S), Pétur Sig- urðsson (S), Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra, Jón Armann Héðinsson (A), Lúðvik Jósepsson (Ab), Einar Agústsson utanrikis- ráðherra og Karvel Pálmason (Samtökin). HH Samnings- arogin samþykkt Samningsdrögin við V-Þjóð- verja voru samþykkt á Alþingi klukkan rúmlega 11 i morgun með 42 atkvæðum gegn 18. Allir stjórnarþingmenn greiddu atkvæði með þeim, en tveir Framsóknarþingmenn, Halldór Ásgrfmsson og Tómas Árnason, gerðu grein fyrir at- kvæðisinu. Halldór fann ýmsa galla á drögunum en sagði að innrás Breta i landhelgina, hefði riðið baggamuninn, þannig að hann greiddi at- kvæði með tillögunni. Tómas kvaðst styðja tillöguna i trausti þess, að strangar regl- ur yrðu settar um framkvæmdina. Þá mun Jón Skaftason hafa verið efins um tillöguna fram á siðustu stundu, en hann studdi hana þó. Allir þingmenn stjórnar- andstöðunnar greiddu atkvæði á móti. —hh Fannkyngi ó Akureyri Mikil snjókoma var á Akur- eyri i morgun og var þar kom- inn 15 sentimetra jafnfallinn snjór við almennan fótaferð- artima. Logn var með snjó- komu þessari, annars hefði bærinn verið iilur yfirferðar. Um niuleytið var vindátt að snúast til norðlægrar áttar og mega Akureyringar búast við vetrarriki ef eitthvað verður úr þeirri vindátt og úrkoma heldur áfram. ASt. Tilraun til flótta eftir ölvunarakstur Þrfr menn voru teknir fyrir ölvun við akstur á götum Reykjavikur i nótt. Atti lög- reglan f nokkrum brösum við einn þeirra,og mun hann hafa gert tilraun til aö komast und- anlaganna vörðum. Ekki varð honum kápan úr þvi klæðinu. ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.