Dagblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 10
10 Pagblaðið. Föstudagur 28. nóvember 1975. BIAÐID frfálst, óháð dagblað Ctgeíandi: Dagblaðiö hl. Framkvæmdastjóri: Sveinn 1{. Kyjólfsson Hitstjóri: Jónas Kristjánsson Fréltastjóri: Jón Birgir Pétursson Kitstjórnarfulltriii: Ilaukur llelgason l|)rottir: llallur Simonarson llönmtn: Johannes Keykdal Blaðamenn: Anna Bjarnason, Asgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurösson, Krna V. Ingólfsdóttir, Ilallur Hallsson, Helgi Petursson. ólafur Jónsson, ómar Valdimarsson. Ilandrit: Asgrimur Pálsson, llildur Gunnlaugsdóttir, Inga Gnðmannsdótlir, Maria ólafsdóttir. I.jósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson Auglýsingastjóri: Asgeir Hannes Kiriksson Dreilingarstjóri: Már K.M. llalldórssoji Askriflargjald 800 kr. á tnánuði innanlands. i lausasölu 40 kr. eintakiö. Blaðaprent lif. Kitstjórn Siðumúla 12, simi 8:1222, auglýsingar, áskriftir og af- greiðsla Þverbolti 2, simi 27022. Allir skjóta yfir markið Menn gæta sín stundum illa i hita stjórnmálabardagans, ekki sizt þegar tilfinningamál á borð við fisk- veiðilögsöguna eru i brennidepli. Þessa hefur einmitt gætt i öllum her- búðum hér á landi siðustu dagana. Á Norðfirði gerðu menn tilraun til að grýta brezka sjóliða, en án árangurs, sem betur fer. Og fleiri gera mistök en þessir fáu Norðfirðingar Rikisstjórnin hefur dregið á flot Jón Jónsson, for- stöðumann Hafrannsóknastofnunarinnar, og búið til úr honum stofnun. Hann hefur bréflega vitnað með undanþágusamningnum við Vestur-Þjóðverja og það i nafni Hafrannsóknastofnunarinnar. í bréfinu segir hann stofnunina telja samninginn skásta kostinn. Þetta er siðan tekið hrátt upp i fréttum og áróðri dagblaða rikisstjórnarinnar. Nú er Jón Jónsson engin Hafrannsóknastofnun, enda hefur allur þorri sérfræðinga stofnunarinnar mótmælt bréfi hans sem rökleysu. Bréf sér- fræðinganna er íiæfileg rassskelling á Jón og rikis- stjórnina fyrir frámunalega ómerkilegt herbragð, sem jafngildir þvi, að forsætisráðherra segði: Ég er rikið. „ , , Annað dæmi um, hvernig málin fara úr bondum, er hvatning Samstarfsnefndar um landhelgismál, þar sem skorað var á þjóðina að fara i verkfall i dag til að mótmæla samningnum við Vestur-Þjóðverja. Að baki þessarar tilraunar til að brjóta á bak aftur lýðræðislega hefð i landinu eru virðuleg sam- tök á borð við Alþýðusamband íslands. Sem betur fer tók þjóðin litið mark á þessari á- skorun, enda er málið i höndum alþingis, rétt kjörinnar fulltrúasamkomu þjóðarinnar. Ef Sam- starfsnefndin hefði hugsað málið af skynsemi, hefði hún látið útifundinn nægja og væntanlega haft af honum sóma. En hún skaut yfir markið og varð sér til skammar. Þriðja dæmið er tilraun málgagna rikisstjórnar- innar til að breiða yfir galla samningsins við Vest- ur-Þjóðverja og ýkja kostina út yfir allan þjófabálk. Reynt er að láta lita svo út sem samningurinn feli I sér samdrátt i veiðum Vestur-Þjóðverja á Islands- miðum með þvi að birta gamlar tölur frá 1973. En samningurinn felur ekki i sér samdrátt frá afla- magni áranna 1974 og 1975. Einnig er reynt að gera litið úr þvi, að engin viðurkenning á 200 milum felst i samningnum, ekk- ert afnám refsitolla Efnahagsbandalagsins og engin viðurkenning á þvi, að veiðum Vestur - Þjóðverja eigi að ljúka hér við land að tveggja ára samningstimanum liðnum. Fjórða dæmið er loddaraleikur Lúðviks Jóseps- sonar, sem I fyrra vildi leyfa Vestur-Þjóðverjum að veiða 80.000 tonn á íslandsmiðum og meðal annars á 54.000 ferkilómetra veiðisvæðum innan gömlu 50 milna markanna. Þá var hann i stjórn. Núna I stjórnarandstöðunni þykist hann vera þrútinn af hneykslun út af 60.000 tonnum og 25.000 ferkilómetr- um. Gömlum lýðskrumurum af þessu tagi á ekki að flagga. Samningarnir við Vestur-Þjóðverja eru búnir og gerðir og hafa fengið löglega staðfestingu alþingis. Við skulum þvi reyna að fá stjórnmálamennina til að hætta að fljúgast á, og ljúgast á um þá. Við skul- um heldur einbeita okkur að Bretum. Afdrifarík vika í Portúaah Hin róttæka vinstrihreyfing Portúgal hefur beðið sinn stærsta ósigur til þessa siðan byltingin var gerö i landinu fyrir nitján mánuðum. Jafnframt hafa stjnrnvöld, undir forystu Fráncisco da Costa Gomes for- seta, unnið sinn mesta sigur með gallharðri afstöðu sinni til upp- reisnartilraunarinnar sem gerð var á þriðjudaginn. Höfuðborgarbúar, sem orðnir voru nærri ónæmir fyrir bylt- ingarhjali og óróleika undanfar- inna mánaða, vissu varla hvaðan á þá stóð veðrið þegar skyndilega rikti hernaðarástand og við lá að ströng herlög væru i gildi. Skothriðin, sem harðskeyttir kommúnistaandstæðingar innan hersins létu loks eftir sér að hefja, hafði mikil sálræn áhrif. Útgöngubann að næturlagi, bann við fundum og mótmæla- göngum, auk handtakna og hús- leita, allt þetta gerði sitt til að breyta andrúmsloftinu i borginni i einni svipan. Francisco da Costa Gomes for- seti tók sér viðtæk völd til að bæla niður uppreisnartilraunina. M esti Stjórnin, sem skipuð er „hófsöm- um” herforingjum, sósialistum, og miðflokksmönnum, gerði landslýð það ljóst að hún væri nú reiðubúin að beita hörðu, bæði hernaðar- og stjórnmálalega. Blaðinu snúið við Breytingin, sem átti sér stað, var sláandi. í tveimur fyrri upp- reisnartilraunum, sem mótuðu linuna i baráttunni fyrir pólitisk- um völdum eftir fall fasista- stjórnarinnar i fyrra, komu rót- tækir vinstrimenn út sem sigur- vegarar. Vinstrimennirnir hafa greini- lega veðjað á að núverandi stjórn, sem I rauninni er tákn um þing- ræðislegt stjórnarfar og tengsl við Vestur-Evrópu, hefði hvorki getu né vald til að standast á- hlaup einmitt nú. Hörð afstaða stjórnarinnar beindist ef til vill fyrst og fremst gegn kommúnistum sem hafa stutt bylgju verkfalla og and- spyrnu við stjórnina. Samt eiga þeir einn ráðherra i stjórninni. í átökunum i september i fyrra, sem leiddu til falls Spinólas for- seta, hvöttu kommúnistar áhang- endur sina — með góðum árangri — til að sýna andstöðu sina við 'stjórn Spinólas i verki. Höfuð- ósigur borgin var umkringd illúðlegum hermönnum og verkamönnum við vegatálma. Óstöðvandi áróður i fjölmiðlum Þegar herforingjar, hliðhollir Spinóla, gerðu tilraun til gagn- byltingar i marz náðu stuðnings- menn kommúnista i hernum strax yfirhöndinni með töku sjón- varps-og útvarpsstöðva. Þeir útvörpuðu stanzlausum straumi ávarpa til þjóðarinnar frá þáverandi forsætisráðherra, Vasco Goncalves, og róttæka hershöfðingjanum Otelo Saraiva de Carvalho. I uppreisnartilrauninni nú hef- ur vakið athygli að kommúnista- flokkurinn hefur litið látið á sér kræla. Hann sendi aðeins frá sér tilkynningu þar sem lýst var yfir þvi að flokkurinn væri fús til við- ræðna og að hann hvetti stuðn- ingsmenn sina til að láta lifið ganga sinn eðlilega gang. Þeir voru einnig hvattir til að virða þær hömlur sem settar voru vegna ri'kjandi ástands. Stjórnmálamenn i valdaflokk- unum lita á þessa afstöðu kommúnista sem viðurkenningu á ósigri þeirra. Jafnframt lita þeir á árangursleysi uppreisnar- Skœruliðavísindi t fiskveiðideilunni við Breta höf- um við að undanförnu lagt allt traust okkar á skýrslu Hafrann- sóknastofnunarinnar um ástand fiskistofnanna. Við höfum litið á hana sem sterkasta vopn okkar fyrir verndun fiskimiðanna og brottvisun útlendinga af miðun- um. Hún er orðin meginburðarás hugmynda okkar og röksemda. Óhætt er að segja að hún kom yfir okkur eins og reiðarslag. Þó fiski fræðingar hefðu áður varað þjóðinaviðofveiði hafa þeir aldrei áður hótað okkur dauðadómi eftir svo sem 5 ár. Útlitið með þorskstofninn er svo svart að afleiðingarnar virð- ast nærri ófyrirsjáanlegar og óskiljanlegar. t krafti þess erum við reiðubúin að vaða i gegnum boða i nýju striði við Bretar frem- ur en að semja nokkuð. Nýtt þorskastrið er alvörumál, við vit- um aldrei hvað getur komið fyrir. í siðasta þorskastriði beið einn ts- lendingur bana og varðskips- menn voru oft i lifshættu i harka- legum ásiglingum. Þorskastrið hefur margar aðrar alvarlegar afleiðingar, þegar fer að hitna i kolum kemur sjálfsagt að þvi að sendiherra verði kallaður heim og stjórnmálasambandi slitið. Deilan mun snerta okkur harka- lega á ýmsan hátt mitt i efna- hagsörðugleikum, viðskipti tregðast, samgöngur hindrast, draga mun úr ferðamanna- straumi hingað, gjaldeyrisöflun skerðast. Ef til vill kemur að þvi að landhelgisbrjótar æða yfir við kvæmustu mið okkar, eyðandi og drepandi undir fallbyssuvernd. Ekki má heldur loka augunum fyrir þvi versta sem hryllings- skýrslan birtir okkur, að þorsk- stofninum yrði eytt. Þar höngum við samkvæmt áliti fiski- fræðinganna á sliku hálmstrái að ekkert virðist mega út af bera. Þessi hrollvekja fiskifræðinganna gerir það nauðsynlegt að horfast i augu við vandamálin og undirbúa varnar- og viðlagaaðgerðir ef allt skyldi snúast á verri veg og alger aflabrestur verða, harkalegar að- gerðir til að verjast og jafna niður áföllum. Sú ógnarmynd skelfir okkur ef miðin yrðu dauð, at- vinnuleysi og umkomuleysi hæfi fyrst innreið sina i sjávarþorpin og gagntæki siðan allt þjóðlifið. Þetta er ömurleg framtiðarsýn, en við skulum taka eftir þvi að þessi hryllingsmynd byggir öll á skýrslu fiskifræðinganna. Hún er þungamiðjan i öllu viðfangs- efninu. Hlutverk skýrslunnar og þess hóps fiskifræðinga sem hefur unnið að henni er svo stórvægilegt að ég efast um að nokkurn tima hafi hópur sérfræðinga og embættismanna tekið á sig jafn- mikla ábyrgð i sögu og örlögum þjóðar okkar. Hér er bókstaflega um lif og dauða að tefla og visindamennirnirhafa fært i letur eins konar skilorðsbundinn dauðadóm yfir sinni eigin þjóð. Það þarf þvi varla að taka fram hve brýnt það er að örugglega sé búið um hnútana. Það verður að vera öruggt að visindamennirnir hafi ekki verið að gamna sér við að búa til einhvern hryllingsreyf- ara. Og ekki nóg með það, krefjast verður þess að visinda- mennirnir, sem svo mjög er treyst á, geri sér fyllilega grein fyrir þeirri nærri sligandi ábyrgð og alvöru sem þeir taka á sig með slikri dómadagsyfir lýsingu. Við verðum að krefjast þess að á bak við þessa þunga- miðju i öllu landhelgismálinu búi enginn stráksskapur, heldur grandvarleiki og strangasti heið- arleiki, en forðast verði annarleg áhrif. t stuttu máli sagt: Við verðum að gera þær kröfur til Hafrannsóknastofnunarinnar og starfsmanna hennar að það sé fullkomlega hægt að treysta þeim. Þvi er það hörmulegra en tár- um taki að sá atburður hefur gerst innan stofnunarinnar að pólitiskt litaður urgur og deilur og þátttaka i pólitiskri æsingastarf- semi og skrumi hefur átt sér stað sem spillir nú trausti okkar á fiskifræðingunum. Þetta veldur þvi um leið að traust okkar á hinni ægilegu þungamiðju hroll- vekjuskýrslunnar hlýtur að skerðast. Atburður þessi er hörmulegri en tárum taki og við vitum varla lengur okkar rjúkandi ráð, grundvöllurinn, hinn visindalegi grandvarleiki, er rokinn út i veður og vind, og i síaðinn kominn pólitiskur æsingur og annarleiki i hóp þeirra manna er við vildum best treysta. Þar með er jafnframt verið að spilla á hörmulegasta hátt málstað okkar og samstöðu i landhelgismálinu. i siðustu grein minntist ég litil- lega á það að skýra þyrfti linurnar i sambandi við skýrslu fiskifræðinganna svo hún kæmi okkur að sem bestu gagni i land- helgismálinu. Ég skal nú fara nokkru nánar út i þetta. Þvi miður er ýmislegt óskýrt i sambandi við framlagningu hryllingsskýrslunnar. Fyrst er það timasetning hennar sem verður að segja að var mjög undarleg. Eins og allir vita var vikkun landhelginnar tilkynnt um mitt sumar og hún gekk i gildi um miðjan október. Meðan rikis- stiórnin var að taka þessar mikil- vægu ákvarðanir bólaði ekkert á hryllingsskýrslunni. Rikisstjórn hóf fyrstu viðræður við Breta og gaf þeim sennilega i skyn ein- hverjar hugsanlegar byrjunar- tölur sem voru liklega 50 þús. tonn. Enn gerðist þetta án þess að stjórnin hefði hugmynd um efni hryllingsskýrslunnar. Það kom t.d. i ljós siðar, þegar hún birtist, að hún kom sjávarútvegsmála- ráðherra algerlega á óvart og þvert á kross við allt sem búið var að gera. Hvernig i ósköpunum gat staðið á þessum alvarlegu mistökum? Þegar skýslan loksins birtist gerbreytti hún i einu vetfangi samningaaðstöðunni við Breta. En hún kom alltof seint fram. Hún verkaði þannig ekki sem vopn i okkar hendi gagnvart and- stæðingum heldur hitti hún okkur sjálfa og olli riðlun og ráðleysi. Það er þvi þungvæg spurning: — var ómögulegt að koma fram með hana fyrr? Gátu ei ýmis önnur þýðingarminni verkefni beðið? Hér höfðu fyrstu alvarlegu mis- tökin átt sér stað, Hafrannsókna- stofnunin ekki staðið i stykki sinu og væri mikilvægt að upplýsa hvað olli. Annað undarlegt atvik er enn ó- upplýst og mjög óklárt. Eftir að hryllingsskýrslan hafði loks verið birt og afleiðing hennar hefði átt að vera að lækka beinlinis tilboð til Breta niður i 40 þús. tonn gerist sá atburður á einhvern óskiljanlegan hátt að sömu fiski- fræðingarnir, sem birt höfðu hryllingsskýrsluna, gerast svo höfðinglyndir að ,,nefna” við breska fiskifræðinga töluna 65 þús. tonn. Þvi hefur siðan verið lýst yfir að þessi tala, 65 þús. tonn, hafi aldrei verið raunveru- legt tilboð stjórnarinnar heldur

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.